Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1985, Síða 9
DV. FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER1985.
Q
Útlönd Útlönd
Heidemann með fölsuðu dagbækurnar sínar.
SNEKKJA HEIDEMANNS
A NAUÐUNGARUPPBOÐI
Ásgeir Eggertsson, fréttaritari DV
í Munchen:
LúxussnekkjaGerds Heidemanns,
fyrrum blaðamanns „Stern“, sjálf
„Karin II“, var boðin upp á nauðung-
aruppboði í Hamborg. Snekkjan er
27,5 metra löng og var eitt sinn í eigu
marskálksins Görings.
Heidemann var í júlí í sumar
dæmdur til fjögurra ára og átta
mánaða fangelsisvistar fyrir að hafa
unnið með Konrad Kujau að fölsun
dagbóka Hitlers. Heidemann keypti
snekkjuna árið 1973 fyrir 160 þúsund
mörk. í réttarhöldunum var snekkj-
an mikilvægt sönnunargagn. Hei-
demann hafði nefnilega steypt sér í
skuldir vegna endurnýjunar skips-
ins. Meðal annars lét hann gullhúða
alla vatnskrana í skipinu.
HEROR
GEGN
ROTTUM
Borgarráð Lissabon hefur Næsta ár skal helgað því að losa
skorið upp herör gegn rottu- og borgarbúa við þessa plágu. Það
rnúsagangi í höfuðborginni. Tal- mun þó kosta skildinginn. Til að
ið er að fjögur nagdýr séu á móti byrja með eru ætlaðar 18 milljón-
hverju einu mannshami í þessari ir króna til rottustríðsins.
tveggja milljón manna borg.
SÁPUKULUPÍPAN
SEM HVARF
Ketilbjörn Tryggvason, DV,
V-Berlín:
Það gerist ekki á hverjum degi að
sápukúlupípur glatist. Þannig gripir
eru nú heldur ekki í eigu hvers
manns og illfáanlegar nú til dags,
að sögn fróðra manna. Það gerðist
samt í Vestur-Berlín fyrir nokkru að
lýst var eftir einni slíkri og það sem
meira var; þeim sem fyndi pípuna var
heitið 1000 þýskum mörkum í fundar-
laun. Að nánar athuguðu máli
reyndist þetta ekki vera gabb heldur
var þama um sýningargrip að ræða
sem hafði glatast við flutninga á
þjóðminjasýningu. Þykir það því
ekkert undarlegt að Berlínarbúar
eyði frístundum sínum utandyra
þessa dagana, við pípuleit.
NAÐU10 KILOUM
AF HERÓÍNI
Frá Sigrúnu Harðardóttur,
fréttaritara DV í Amsterdam:
Lögregla í Amsterdam lagði á
fóstudag hald á íjölda gjafaböggla
sem smyglað hafði verið inn frá
Pakistan. Reyndust þeir hafa að
geyma 10 kíló af heróíni. Söluverð-
mæti þess á svörtum markaði í
Amsterdam ein milljón gyllina eða
15 milljónir íslenskra króna.
Lögreglan í Veemdam komst á slóð
sem leiddi til handtöku fjögurra
manna í Amsterdam og Rotterdam,
sem aðild eiga að málinu, og auk
þess voru handteknir 12 menn sem
grunaðir voru um að vera í tengslum
við smyglið. Málið er í rannsókn.
Náðist úr klóm ræningjanna
Lögreglunni í Tokýo tókst að
bjarga milljónaarfa í gærkvöldi eftir
að neyðaróp stúlkunnar heyrðist úr
aftursæti bifreiðar mannræningj-
anna sem ætluðu að fá fyrir hana tíu
milljónir króna í lausnargjald.
Junko Toyoda er 24 ára dóttir fata-
framleiðanda, margmilljónamær-
ings. Henni hafði verið rænt af heim-
ili sínu hjá Osaka. Neyddu rænin-
gjarnir hana til þess að hringja í
móður sína og koma á framfæri
lausnargjaldskröfunni.
Lögreglan rakti símtalið til sjálf-
sala og hraðaði sér á staðinn. Vakti
þar grun lögreglunnar kyrrstæð bif-
reið. Þe'gar lögreglan nálgaðist bif-
reiðina kallaði Junko, sem var í aft-
ursætinu, á hjálp. f bifreiðinni sat
undir stýri 43 ára rafvirki og var
hann handtekinn.
úrvalaf
barnaúlpum
og göllum.
fwmm
Þingholtsstræti 6 - Reykjavík. Simi 29488
hverÍuin
þrceði
ULLARTEPPI
40 ára
reynsia
fo \$l(Xftd1
40 ára revnsla á íslandi hefur sýnt og sannað gæði
BMK-ullarteppanna. Þau eru níðsterk og ótrúleg ending og
fallegt útlit bæði einlitu teppanna og mynstruðu, hefur tryggt
geysilegar vinsældir þeirra öll þessi ár.
Við tökum mál, sníðum og sjáum um ásetningu ef óskað er.
Friðrik Bertelssen
Síðumúla 23 (gengið inn frá Selmúla).
Sími 68 62 60