Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1985, Side 20
20
DV. FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER1985.
Nýjar bækur Nýjar bækur Nýjar bækur Nýjar bækur
Heimsins mestu
... tÐUFUi
Mike Parker
HEIMSINS MESTU
FURÐUFUGLAR
-NÝBÓKUM MARGAR
EFTIRMINNILEGAR PERSÓNUR
Frjálst framtak hf. hefur sent frá
sér bókina Heimsins mestu furðu-
fuglar eftir Mike Parker í íslenskri
þýðingu Karls Birgissonar. Heimsins
mestu furðufuglar fjallar um fólk sem
hefur á einhvern hátt skorið sig
rækilega úr fjöldanum. Af einstökum
frásögnum bókarinnar má geta kafla
um John Merricks sem þekktur var
undir nafninu Fílamaðurinn en um
hann og ævi hans var gerð eftir-
minnileg kvikmynd, kafla um hina
frægu Síamstvíbura Eng og Chang,
sagt er frá fólki sem hafði afbrigði-
legt tölvuminni og gat leyst fló-
knustu þrautir á svipstundu. Getið
er um sterkasta fólk sem sögur fara
af, feitasta fólkið, hávaxnasta fólkið,
minnstu dvergana, hár- og skegg-
prúðasta fólkið, úlfabörn og upp-
vakninga svo að nokkur dæmi séu
nefnd. Fjöldi mynda er í bókinni.
Heimsins mestu furðufuglar er sett,
brotin um, filmuunnin og prentuð í
Prentstofu G. Benediktssönar en
bundin hjá Bókfelli. Kápu gerði
Sigurður Valur.
FUGLARNIR OKKAR
EFTIR
STEFÁN AÐALSTEINSSON OG GRÉT-
AR EIRÍKSSON
Bókin Fuglarnir okkar er skrifuð
til fróðleiks og skemmtunar börnuni
og unglingum og að sjálfsögðu geta
þeir sem eldri eru notið hennar líka.
hún verði bók allrar fjölskyldunnar.
I bókinni er sagt frá einkennum
fuglanna, lífsferli þéirra og lifnaðar-
háttum en auk þess er tínt til ýmiss
konar efni um marga fuglana úr
þjóðtrú og þjóðsögum.
I bókinni er fjallað um þrjátíu og
fimm íslenska fugla:
Sjö spörfugla,
einn hænsnfugl,
sjö vaðfugla,
þrjá ránfugla og
sautján sundfugla.
Alls er talið að um sjötíu tegundir
fugla verpi að staðaldri á íslandi og
er því aðeins um helmingi íslenskra
fugla lýst í bókinni.
Fuglar voru fyrst og fremst valdir
í bókina með það í huga að þeir
væru algengir.
Þar að auki eru teknar með teg-
undir sem eru sérstæðar fyrir ísland
og fuglar sem eru fulltrúar fyrir
skyldleikahópa eða kjörlendishópa.
Bókin er 71 bls. að stærð og í henni
eru alls 43 litmyndir af fuglum.
GABRIELLA í PORTÚGAL
- Dálítil ferðasaga - eftir Svein Ein-
arsson. Myndir eftir Baltasar
Gabriella er 7-8 ára telpa sem fer
með foreldrum sínum í skemmti-
ferðalag til Portúgals. Bókin segir
frá því sem þar hendir. Foreldrar
Gabriellu hegða sér eins og fullorðn-
ir eru vanir að gera í slíkum ferðum,
en Gabriella er ekki alltaf sátt við
það, henni finnst sumt af því ekki
neitt viturlegt. Og svo gerast auðvit-
að ýmis ævintýri í ferðalaginu. Sag-
an er bæði viðfelldin og skemmtileg
og afar fallega myndskreytt af Balt-
asar sem lifir sig inn í söguna og
þekkir vel það umhverfi þar sem
sagan gerist. Bókin er auðvitað
skemmtilegust fyrir jafnaldra Gabri-
ellu litlu, en foreldrar gætu einnig
haft af henni gagn og gaman. Hún
er 62 bls. að stærð og unnin í Prent-
smiðjunni Odda. '
■S.S'
, hvernia^lska á
i
HVERNIG ELSKAÁ
KARLMANN
-NÝ BÓK UM UNAÐ ÁSTARLÍFSINS
Frjálst framtak hf. hefur gefið út
bókina Hvernig clska á karlmann
eftir Alexandra Penney í íslenskri
þýðingu Sigurðar Hjartarsonar.
Þegar bók þessi kom út í Bandaríkj-
unum á sínum tíma vakti hún mikla
athygli og umtal og hlaut höfundur
lof fyrir efnistök sín. Er byggt á
viðtölum sem Penney átti við fjölda
karla og kvenna. Fjallar bókin um
unað ástarlífsins og hvemig unnt er
að bæta það bæði tilfinningalega og
líkamlega og svarar bókin spurning-
um um hvernig fólk getur og á að
sýna ástúð sína í orði og verki. 1
kynningu útgefanda á bókarkápu
segir að ekki sé langt síðan þau
viðhorf hafi verið rikjandi að konan
ætti að vera hlutlaus og undirgefin
í ástarlífinu, en sá tími sé liðinn.
Bókin Hvernig elska á karl-
mann er sett, brotin um, filmuunnin
og prentuð í Prentstofu G. Bened-
iktssonar en bundin hjá Amarfelli.
Auglýsingastofa Ernst Bachmanns
hannaði kápuna.
LITIÐÚTUM UÓRA
Bolli Gústavsson í Laufási hefur
um árabil skrifað greinar og þætti
um ýmisleg efni. Með fjölþættum
störfum hefur hann um langt skeið
fengist við ritgerðir, auk þess sem
hann hefur haslað sér völl sem skáld.
í þessari bók bregður hann m.a. upp
íjölbreyttum og lifandi myndum af
ýmsum athyglisverðum mönnum, lífs
og liðnum. Skáldleg tök og hlýr
mannskilningur einkenna þættina,
sem allir munu teljast merkar heim-
ildir. f bókinni eru margar teikning-
ar eftir höfundinn, sem löngu er
þjóðkunnur fyrir myndir sínar.
í þessum 15 þáttum koma ýmsir við
sögu. M.a. kapparnir Þorvaldur
mennir og Hríseyjar-Klængur;
tónskáld ólíkra tima, Hafliði Hall-
grímssoh og Björgvin Guðmunds-
son; bragsmiðurinn hnyttinyrti,
Bjarni Jónsson frá Gröf; biskup-
arnir dr. Sigurbjörn Einarsson og
herra Pétur Sigurgeirsson, skáld-
in Stephan G. Stephansson, Þor-
steinn Erlingsson, Davíð Stefáns-
son, Karl ísfeld og Jónas E. Svafár
; fagurkerinn og hugsjónamaðurinn
Björn Bjarnarson sýslumaður; rit-
stjórinn og stjórnmálaleiðtoginn dr.
Valtýr Guðmundsson; Ljósa-
vatnsbændur og fræðimennimir
ættvísu, Konráð Vilhjálmsson frá
Hafralæk og Hólmgeir Þorsteins-
son frá Hrafnagili.
SIKILEYINGURINN
- NÝ SKÁLDSAGA EFTIR MARIO
PUZO
Frjálst framtak hf. hefur gefið út
bókina Sikileyingurinn eftir Mario
Puzo í íslenskri þýðingu Gissurar
Ö. Erlingssonar. Mario Puzo er
þekktur höfundur, ekki síst fyrir bók
sína, Guðfaðirinn, sem víðfræg kvik-
mynd var gerð eftir. Þegar Sikiley-
ingurinn kom út erlendis í fyrra
vakti bókin mikla athygli og komst
skjótt á metsölulista bæði í Banda-
ríkjunum og Bretlandi. Hlaut Mario
Puzo mikið lof fyrir bókina og þá
sérstaklega fyrir trúverðugar lýsing-
ar og þekkingu á söguefni sínu.
Mario Puzo byggir á atburðum sem
átt hafa sér stað og spinnur söguefifi
sitt út frá þeim. Sagan gerist að
mestu á stríðsárunum og fyrstu ár-
unum eftir stríð á Sikiley og kemur
þar Mafían og valdabarátta hennar
mjögvið sögu.
Bókin Sikileyingurinn er sett,
brotin um, filmuunnin og prentuð í
Prentstofu G. Benediktssonar en
bundin hjá Amarfelli hf. Kápu hann-
aði Auglýsingastofa Ernst Bach-
manns.
ELDUR OG REGN
-NÝTT SKÁLDVERK EFTIR
VIGDÍSIGRÍMSDÓTTUR
Frjálst framtak hf. hefur sent frá
sér bókina Eldur og regn eftir Vig-
dísi Grímsdóttur. Þetta er önnur bók
höfundarins en árið 1983 kom út
bókin Tíu myndir úr lífi þínu og
hlaut sú bók einróma lof bókmennta-
gagnrýnenda og vakti hrifingu le-
senda. Eldur og regn er smásagna-
safn og fylgir ljóð upphafi hverrar
sögu. Vigdís fer ekki troðnar slóðir
í sagnagerð sinni og er þessi nýja bók
hennar á margan hátt mjög ólík fyrri
bók hennar. í kynningu bókaforlags-
ins á kápu bókarinnar segir m.a. svo:
„Með nýju smásagnasafni leiðir
Vigdís Grímsdóttir þig um furður
veraldar þinnar, sækir óspart til
ævintýra, þjóðsagna, biblíu og goð-
sagna, kallar þig á fund huldufólks,
trölla, drauga og djöfla, gefur þér
kost á að glíma við gátur og þrautir
sem hvarvetna blasa við þér.
Bókin Eldur og regn er sett, brot-
in um, filmuunnin og prentuð í
Prentstofu G. Benediktssonar en
bundin hjá Bókfelli hf. Kápu hann-
aði Auglýsingastofa Ernst Bach-
manns.
Höfundar og útgefendur vona að
SJÓNVÖRP
GÓÐ? BETRI?
BEST?
EIGENDUR ITT SJÓNVARPSTÆKJA
ERU EKKI í VAFA.
VID ERUM ÞAÐ EKKI HELDUR.
FÆRAST? SJÓNVARPSDEILD
SKIPHOLTI 7 - SÍMAR 20080 & 26800