Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1985, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1985, Blaðsíða 23
DV. FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER1985. 23 Jólabökin fyrir alla þá sem eiga örbylgjuofna Opifl á laugardögum PANTANIR SÍMI13010 V7S4 HÁRGREIÐSLUSTOFAN KLAPPARSTÍG 29. Þetta er einwitt jólagjöfinfyrir þá sem eiga örbylgjuofn. TOSHIBA EF MATREIÐSLUKLÚBBURINN er uppskriftaklúbbur fyrir eigendur allra tegunda af örbylgjuofnum. Þú kaupir fyrst söfnunarmöppuna með 12 kaflaskilum, uppskriftum og góð- um leiðbeiningum. Verð möppunnar (fyrsta pakkans) er kr. 420,- Síðan færðu senda uppskriftapakka og leiðbeiningar á 3 mán. fresti. Pakka nr. 2 er verið að senda út. Verð hans er 295,- í póstkröfu. Á þennan hátt geturðu eignast glæsi- lega uppskriftabók og nýtt þér enn betur ofninn þinn. Líttu inn hjá okkur eða pantaðu möppuna gegnum síma 16995. EINAR FARESTVEIT & CO. HF. BERGSTAÐASTRÆTI 10A - SlMI 16995 TOSHIBA EF MATREIÐSLUKLÚBBURINN skiptist í 12 kafla: 1. kafli: Forréttir. 2. kafli: Súpurog sósur. 3. kafli: Fiskréttir. 4. kafli: Kjötréttir. 5. kafli: Fuglar. 6. kafli: Grænmeti. 7. kafli: Ábætisréttir. 8. kafli: Eggja-og ostaréttir. 9. kafli: Sulturog hlaup. 10. kafli: Brauð, kex og kökur. 11. kafli: Aðsendar uppskriftir. 12. kafli: Þetta ergottaðvita. Dröfn H. Farestveit hússtjórnarkennari ritstýrir klúbbnum. Dröfn ersérmenntuð i matreiðslu i örbylgjuofnum og landsþekkt fyrir uppskriftir sinar i blöðum og tímaritum. SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA ^Ö7rvS FATLAÐRA Aý v T—j Reykjanessvæði Ritari óskast hálfan daginn á skrifstofu Svæðisstjórnar málefna fatlaðra í Reykjavík að Hátúni 10, frá 1. jan. nk. Vinnutimi frá kl. 13.00 til 17.00. Öll algengustu skrifstofustörf. Laun samkv. kjarasamningum opinberra starfsmanna. Velkomin á staðinn eða hringið í síma 6213 88. TILSÖLU b/v KOLBEINSEY ÞH-10 Skipið er talið vera 430 brúttólestir að stærð, smíðað árið 1981. Aðalvél skipsins er af gerðinni M.A.K. 1800 hestöfl frá 1980. Skipið er nú við viðlegukant hjá Slippstöðinni Akureyri og verður selt í því ástandi sem það nú erí. Allar frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Fisk- veiðasjóðs í síma 28055 og hjá eftirlitsmanni sjóðs- ins, Valdimar Einarssyni, í síma 33954. Tilboðseyðu- blöð eru til afhendingar á skrifstofu Fiskveiðasjóðs og óskast tilboð send í lokuðum umslögum merkt „KOLBEINSEY" og skulu hafa borist á skrifstofu sjóðsins eigi síðar en 19. desember nk. kl. 16.00. Askilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafnaöllum. Fiskveiðasjóður islands. TILSÖLU v.s. HELGIS. KE-7. Skipið er talið vera 236 brúttólestir að stærð, smíðaó árið 1959, en endurbyggt árið 1982. Aðalvél skips- ins er af gerðinni Callesen, 1000 hestöfl frá 1978. Skipið er nú í slipp hjá Skipasmíðastöð Njarðvíkur hf. og verður selt í því ástandi sem það nú er í. Allar frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Fisk- veiðasjóðs í síma 28055 og hjá eftirlitsmanni sjóðs- ins, Valdimar Einarssyni, í síma 33954. Tilboðseyðu- blöð eru til afhendingar á skrifstofu Fiskveiðasjóðs og óskast tilboð send í lokuðum umslögum merkt „HELGI S." og skulu hafa borist á skrifstofu sjóðs- ins eigi síðar en 16. desember kl. 16.00. Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Fiskveiðasjóður Ísiands. Sven Stray utanríkisráðherra segir að ef Treholt hefði verið neitað um inngöngu í norska varnarmálaskólann hefði hann kannski farið að gruna að hann væri undir eftirliti. HART SÓTT AÐ STRAYVEGNA TREHOLTSMÁLSINS Frá Björgu Evu Erlendsdóttur, fréttaritara DV í Osló: Norsk pólitík hefur að miklu leyti snúist um Treholtsmálið að undan- fömu. Verkamannaflokkurinn sakar ríkisstjómina um ábyrgðarleysi þeg- ar Treholt var hleypt inn í varnar- málaskólann. Ríkisstjórnin sakar aftur á móti Verkamannaflokkinn um að Treholt hafi komist í mikil- vægar trúnaðarstöður innan flokks- ins eftir að grunur um njósnir hafði beinst sterklega að honum. Þingfundur Þriðjudaginn 26. nóvember gerði utanríkisráðherrann, Sven Stray, grein fyrir aðild ríkisstjórnarinnar að Treholtsmálinu. Þetta gerðist á opnmn þingfundi og bæði ræðu Stra- ys og umræðunum á eftir var sjón- varpað í beinni útsendingu. Utan- ríkisráðherrann útskýrði þá ákvörð- un stjórnar sinnar og utanríkisráðu- neytisins að sleppa Treholt inn í skólann. Stray sagði að þetta hefði verið eini möguleikinn til þess að geta haldið áfram að rannsaka málið án þess að Treholt eða KGB grunaði að norsk yfirvöld væru komin á sporið. Skiptar skoðanir Ræða utanríkisráðherrans hefur vakið mikla athygli í Noregi en mjög skiptar skoðanir eru um réttmæti útskýringa hans. Ríkisstjórnin styð- ur sjjónarmið Strays og segir að ef Treholt hefði ekki verið gripinn vegna þeirra sannana sem fengust á hann eftir að hann komst inn í skól- ann þá hefði hann ef til vill getað komist alla leið á toppinn í norskri pólitík og jafnvel orðið forsætisráð- herra. Stjórnin leggur áherslu á ábyrgð Verkamannaflokksins í mál- inu og segir að hann hefði getað hindrað að Treholt kæmist í þær mikilvægu trúnaðarstöður sem raun vará. Kveðjuræða Stjórnarandstaðan er ekki á sama máli. Verkamannablaðið kallar þetta pólitískt hneyksli. Þar segir að Stray hafi komið fram á einkennileg- an og óverjandi hátt þegar hann tók ákvörðun um skólagöngu Treholts. í fyrsta lagi hafi hann hvorki ráðfært sig við forsætisráðherrann né yfir- völd varnarmála í Noregi. Og í öðru lagi hafi hann stungið því undir stól að fleiri umsækjendur komu til greina. Blaðið segir að þetta hafi verið kveðjuræða Strays sem utan- ríkisráðherra og telur ómögulegt að hann geti setið áfram eftir þetta. Verjendurnir Verjendur Treholts, Ame Hauge- stad og Alf Nordhus, segja að þeir muni fljótlega leggja fram kröfur um að fleiri verði yfirheyrðir í sambandi við inntöku Treholts í varnarmála- skólann. Þeir segja ekki neitt um það ennþá hverja þeir vilja láta yfir- heyra. Fyrst ætla þeir að kynna sér greinargerð Strays nákvæmlega. En verjendurnir segja báðir að ræða utanríkisráðherrans hafi ekki að neinu leyti breytt skoðun þeirra á því að það hefði alls ekki verið nauðsynlegt að hleypa Treholt inn í skólann.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.