Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1985, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1985, Page 30
30 DV. FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER1985. Nýjar bækur Nýjar bækur Nýjar bækur Nýjar bækur STBISMR J L.UÐVIKSSON ÞRAUTQÓÐJR A RAUNASTUND aiöfiGUNAR- OG SJÓSLYSASAGA ÍSlANDS XM! aWDI ÞRAUTGÓÐIR Á RAUNA- STUND 17. bindi björgunar- og sjóslysa- sögu íslands eftir Steinar J. Lúðvíks- son Bókaútgófan Örn og Örlygur hefur gefið út bókina Þrautgóðir á raunastund eftir Steinar J. Lúð- víksson. Bókin er sautjánda bindið í hinum mikla bókaflokki um björgun- ar- og sjóslysasögu íslands og fjallar hún um atburði óranna 1967 og 1968, en í fyrri bókunum hefur verið fjallað um atburði frá aldamótunum 1900 fram til 1966. I bókinni er getið margra sögulegra atburða er urðu á árunum sem bókin fjallar um. Meðal stærri atburða má nefna frásögn um mannskaðaveðrin er urðu snemma árs 1968 er breski togarinn Kingston Peridot fórst með allri áhöfn fyrir norðan land, breski togarinn Ross Cleveland og vélbát> urinn Heiðrún II fórust á ísafjarðar- djúpi og togannn Notts Counti strandaði við Snæfjallaströnd. Sagt er frá einstæðri björgun Harry Ed- doms, sem var eini maðurinn sem komst lífs af er Ross Cleveland fórst, sagt frá frækilegri björgun áhafnar- innar af Notts Counti og greint ítar- lega frá réttarhöldunum sem fram fóru í Bretlandi eftir sjóslysin. Sautjánda bindið var filmusett og prentað hjá Prentstofu G. Benedikts- sonar en bundið hjó Amarfelli hf. Sigurþór Jakobsson teiknaði káp- una. KROSSFERÐ Á GALLABUXUM: VERÐLAUNUÐ UNGLINGABÓK Komin er út hjá Iðunni bók eftir Theu Beckman, Krossferð á galla- buxum, en hún hlaut hollensku gullverðlaunin eftirsóttu fyrir bestu unglingabók ársins 1976. Efni bókar- innar er þannig kynnt á kápubaki: „Rúdólf frá Amsterdam er 14 ára gamall. Hann getur engum sagt leyndarmól sitt, að hann sé 20. aldar maður, sendur með tímavél til stuttr- ar dvalar á 13. öld. Trúir nokkur slíkri sögu um venjulegan 14 óra ungling sem helst af öllu vill vera með foreldrum sínum og fjölskyldu? - En Rúdólf frá Amsterdam er foringi barnanna sem lögðu af stað í kross- ferðina til að frelsa Jerúsalem. Bækur Theu Beckman koma nú út um allan heim og hefur hún tryggilega skipað sér sess með fremstu barna- og unglingabókahöf- undum samtímans. Margrét Jóns- dóttir þýddi. Oddi hf. prentaði. Kápa er hönnuð ó Auglýsingastofunni Octavo. 49. tbi. 47. árg. 5.-11. desember 1985. Verð 110 kr. Er eiginlega sambland af druslunni og þessum seinheppna Viðtal við Eddu Björgvins Hvað gerir þú á Þorláksmessu? Nokkrir íslendingar svara Jól og engin jól Fólk, sem var fjarri góðu gamni, segirfrá Tíska: Hönnuðirí j jólafötunum sínum A Rikshaw í poppi Jóíaföndur Spáð í spil JBIlÍll Kalkún íjólaeldhúsi Smellin jólasaga EKKIKJAFTA FRÁ - NÝ UNGLINGABÓK EFTIR HELGU ÁGÚSTSDÓTTUR Komin er út hjó Iðunni bók eftir Helgu Ágústsdóttur útvarpsmann. Nefnist hún Ekki kjafta fró og er kynnt á þessa leið á kópubaki: „Hvernig er að vera hrifin af þeim sem vill mann ekki eða uppgötva leyndarmál foreldra sinna? Hvað gerist í skólanum, frítímum og for- boðnum partíum? Af hverju hafa flestir eitthvað að fela, eitthvað sem ekki má kjafta frá? Hvernig upplifa unglingarnir foreldra sína og hverjar eru leyndustu hugsanir þeirra? Hvernig á að bregðast við ástinni? Höfundurinn, Helga Ágústsdóttir, leiðir lesandann inn í heim reykví- skra unglinga í dag. Atburðarásin er hröð og spennandi frá upphafi til enda. Oddi hf. prentaði. Auglýsingastof- an Octavo hannaði kápu. GESTURII -SAFNRIT UM ÞJOÐLEGAN FRÓÐLEIK Gestur ber nú að dyrum íslenskra lesenda í annað sinn. I þessu safnriti, sem Gils Guðmundsson hefur tekið saman, er að finna fjölmargt um þjóðlíf fyrri tíðar í landinu. í þessu bindi eru m.a. eftirtaldar frásagnir: „Bíttu á jaxlinn, Breiðfirðingur" sem Qallar um þrekraun lítils drengs er hafðist við aleinn í stórhríð í beitar- húsum heila viku órið 1919. „Ömur- leg nótt ó Fróðórheiði“ greinir frá hrakningsför ungrar stúlku órið 1937. Þá eru bernskuminningar frá Viðey eftir miðja nítjándu öld og þáttur um lífið í Reykjavík um líkt leyti. Hér eru þættir um ferð í verið, fjárrekstur fyrir Ok og hákarlaveið- ar á Ströndum. Einnig má lesa per- sónusögu sérstæðra hæfileika- manna, Ámunda Jónssonar smiðs og Brynjúlfs Jónssonar frá Minna-Núpi. Gestur er hugsaður sem nokkurs konar framhald þjóðfræðiritsins Heimdraga sem kom út ó árunum 1964-72. Bókaútgáfan Iðunn gefur út. Oddi hf. prentaði. Kápa er hönn- uð á Auglýsingastofunni Octavo. ■vr'j' "'JJJ..ÍSS rMZlHBta&atJaaxi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.