Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1985, Page 40
40
DV. FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER1985.
Halldór Ó. Ólafsson siglingafræð-
ingur lést 25. nóvember sl. Hann var
fæddur að Brekku í Fljótsdal 19.
nóvember 1923, sonur Ólafs Lárus-
sonar og konu hans, Sylvíu Guð-
mundsdóttur. Halldór lauk prófi frá
Loftskeytaskólanum 1948 og starfaði
hjá radioflugþjónustunni í Gufunesi
í 6 ár. 1954 réðst hann til Loftleiða,
fyrst sem loftskeytamaður, en lauk
1955 prófí loftsiglingafræðings og
starfaði síðan sem slíkur og var eftir-
litsflugleiðsögumaður í átta ár. Vo-
rið 1974 réðst Halldór til Cargolux
sem loftsiglingafræðingur og
hleðslustjóri og flutti þá heimili sitt
til Lúxemborgar. Haustið 1981 flutt-
ust þau hjónin síðan aftur hingað til
Islands þar sem heilsu Halldórs var
tekið að hraka. Eftirlifandi eigin-
kona hans er Helena Svanhvít Sig-
urðardóttir. Útför Halldórs verður
gerð frá Dómkirkjunni í dag kl. 13.30.
Afmæli
80 ára afmæli á í dag, fimmtudaginn
5. desember, Sveinn Marteinsson
bifvélavirki, Réttarholtsvegi 87,
Reykjavík. Hann vann lengst af á
verkstæði SVR. Eiginkona hans er
Vilhelmína Einarsdóttir. I dag verða
þau hjónin á heimili dóttur sinnar
og tengdasonar, Hæðarbyggð 5 í
Garðabæ.
Tilkynningar
Kvenfélag Óháða safnaðarins
heldur basar í Kirkjubæ laugardag-
inn 7. desember kl. 14. Tekið verður
á móti basarmunum og kökum á
föstudag frá kl. 16-19 og laugardag
kl. 10-12 í Kirkjubæ.
Ný plata frá Bjartmari
í fyrra sendi Bjartmar Guðlaugsson
frá sér sína fyrstu hljómplötu og nú
er komin út önnur hljómplata hans
„Venjulegur maður“. Viðfangsefni
texta hans eru úr daglega lífinu, um
þau efni sem hinn venjulegi maður
er að hugsa um dags daglega. Hljóm-
platan inniheldur 10 ljóð og lög
Bjartmars Bjartmar Guðlaugsson
vakti mikla athygli á síðasta ári fyrir
lög sin, Sumarliði fullur, Hippinn,
Það stimir á goðin o.fl. Á þessari
plötu fær Bjartmar til liðs við sig
marga góðkunna poppara, m.a.
Björgvin Gíslason, Pétur Knstjáns-
son, Þorsteinn Magnússon p.fl. Út-
gefandi er útgáfufélagið NÚ sf. og
dreifingu annast STENAR hf.
Pass í Zafari
Lítið hefur heyrst frá hljómsveitinni
Pass á þessu ári en það eru aðallega
mannabreytingar sem hafa tafið
hljómsveitina frá spilamennsku. Nú
huga þeir félagar að nokkrum tón-
leikum og verða þeir fyrstu í Zafari
í kvöld, 5. desember. Það eru hinir
þrír stofnendur Pass sem skipa hana
í dag, það eru þeir Þórhallur Árna-
son bassaleikari, Birgir Haraldsson,
gítarleikari og söngvari, og Karí
Tómasson trommuleikari. Vegna
óviðráðanlegra orsaka falla niður
tónleikar hljómsveitarinnar í Fé-
lagsstofnun stúdenta 6. desember en
þeir félagar verða með uppákomu á
Hótel Borg föstudaginn 13. og laug-
ardaginn 14. desember
Russ Taff í Reykjavík
Söngvarinn Russ Taff mun halda
eina söngsamkomu £ Fíladelfíu,
Hátúni 12, í kvöld, fimmtudagskvöld,
kl. 20.30. Þar mun hann syngja lög
sín og ávarpa samkomugesti. Það er
verslunin JATA sem stendur að
hljómleikunum. Aðgangur er ókeyp-
is í þetta sinn en samskot verða tekin
fyrir kostnaði. Allir eru velkomnir
meðan húsrúm leyfir. Fólk er hvatt
til að koma tímanlega til að tryggja
sér sæti. Russ hefur fengið
Grammy verðlaunin og Dove-verð-
launin sem veitt eru gospel-tónlist-
armönnum. Einnig hefur hann verið
útnefndur „söngvari ársins" og plöt-
ur hans setja hvert sölumetið á fætur
öðru í Bandaríkjunum.
Tónsnælda með Ijóðasöng
Komin er á markaðinn tónsnælda
með ljóðasöng. Þessi tónsnælda
nefnist: Fjörtíu og átta tímar og
basta. Þar syngur Rúnar Þór Péturs-
son við eigin gítarundirleik, ljóð og
kveðskap eftir ljóðskáldið Jónas
Friðgeir Elíasson sem um þessar
mundir er að senda frá sér sína fyrstu
ljóðabók. Bassaleik annaðist Kjart-
an Baldursson. Snældan var tekin
upp í Stúdíói Davíðs - upptökustjóri
var Kjartan Baldursson. Útgefandi
er Jóel. Dreifingu annast Fjölva
útgáfan.
Aðventutónleikar í Ólafsvík,
Grundarfirði og Stykkishólmi
Kór Snæfellingafélagsins í Reykja-
vík heldur tónleika nk. laugardag 7.
desember í Ólafsvíkurkirkju kl. 14
og í Grundarfjarðarkirkju sama dag
ki. 17. Á þessum tónleikum verða
flutt jóla- og aðventulög, einnig verð-
ur einleikur á orgel og einsöngur.
Sunnudaginn 8. desember, sem er
annar sunnudagur í aðventu, verða
tónleikar í Félagsheimili Stykkis-
hólms kl. 16. Orgelleikari er Þóra
V. Guðmundsdóttir, einsöngvari og
stjórnandi er Friðrik S. Kristinsson.
Allir velkomnir.
Salurinn sýnir sitt síðasta
Síðasta sýningin í Gallerí Salnum,
Vesturgötu 3, er samsýning aðstand-
enda. Þar sýna Anna Líndal, Guðný
Richards, Gunnar Karlsscn, Harpa
Björnsdóttir, Haukur Friðþjófsson,
Magnús Þór (Megas), Margrét Birg-
is, Sigrún ögmundsdóttir og Stein-
grímur Þorvaldsson. Sýningin verð-
ur opnuð laugardaginn 7. desember
kl. 14-19 og verður opin frá kl. 14
alla daga nema mánudaga og fylgir
lokunartíma verslana. Henni lýkur á
aðfangadag sem gæti orðið mesti
hamingjúdagur vina þeirra sem gefa
málverk frá Gallerí Salnum í jóla-
gjöf. Svo þakkar galleríið fyrir mót-
tökurnar, hættir og heyrir fortíðinni
til þegar þetta ár gerir það líka.
FélagsfundurSI
Skýrslutæknifélag íslands boðar til
félagsfundar í Norræna húsinu
föstudaginn 6. desember 1985 kl. 15.
Efni þessa fundar er nokkuð frá-
brugðið því sem algengast er á fé-
lagsfundum SÍ. Að þessu sinni verður
fjallað um upplýsingaþjóðfélagið frá
félagslegu og menningarlegu sjónar-
horni - áhrif tölvutækninnar og
upplýsingabyltingarinnar á menn-
ingu okkar og líf. Dagskrá: kl. 15
formaður SI, Sigurjón Pétursson,
setur fundinn. Kl. 15.15 Þórarinn
Eldjárn rithöfundur: Tölvutæknin í
þjónustu rithöfundarins. Kl. 16 kaffi.
Kl. 16.15 Þorbjörn Broddason dósent:
Fjölskyldan í upplýsingaþjóðfélagi.
Að fyrirlestrinum loknum verða
almennar umræður um efnið og fyr-
irspumum svarað. Fundurinn er öll-
um opinn á meðan húsrúm leyfír.
Sýning Arkitektafélags íslands
Arkitektafélag íslands opnar í kvöld
kl. 2.30 sýningu á lokaverkefnum 14.
ungra arkitekta, sem lokið hafa námi
á þessu eða síðasta ári. Arkitektarnir
munu á þremur fimmtudagskvöldum,
þann 5„ 12. og 19. desember, kynna
verkefni og þá skóla erlendis sem
þeir hafa stundað nám í. Þetta er í
annað sinn sem A.í. heldur slíka
kynningu á lokaverkefnum arki-
tekta. Sýnignin stendur til 20. des-
ember og er opin alla daga kl. 14-22.
Aðgangur að sýningunni og kynn-
ingarfundum er ókeypis.
Jóladagatal SUF.
5. desember nr. 2768.
Bókaverslun Snæbjarnar gefur
til Rauða krossins
Bókaverslun Snæbjamar hefur
ákveðið að gefa Rauða krossi íslands
7% af allri sölu verslunarinnar dag-
ana 2. til 10. desember og verður það
fé allt látið renna óskipt til Kólumb-
íu. Nú fer í hönd sá tími sem fólk
kaupir ýmsan varning til jólanna s.s.
jólakort, jólapappír, jóladúka og
fleira þess háttar að ógleymdum jóla-
bókunum og þeir sem versla í Bóka-
verslun Snæbjarnar geta nú látið
gott af sér leiða um leið og þeir
undirbúa jólin hjá sér og stuðla að
aukinni hjálp við þá sem eiga um
sárt að binda á eldgosasvæðum í
Kólumbiu.
Athyglisverðir Brucknertón
leikar í Háskólabíói
í kvöld, 5. desember, kl. 20.30 mun
Sinfóníuhljómsveit Islands ásamt
Söngsveitinni Fílharmóníu, kórstjóri
Guðmundur Emilsson, og einsöngv-
urunum önnu Júlíönu Sveinsdóttur,
Elísabetu Waage, Garðari Cortes og
Kristni Hallssyni flytja Sinfóníu nr.
9 og Te Deum eftir Anton Bruckner
undir stjórn Karolos Trikolidis.
Þetta er frumflutningur á 9. sinfóníu
Bruckners á íslandi, en Te Deum var
flutt hér undir stjórn Dr. Róberts
A. Ottóssonar árið 1971. Gert er ráð
fyrir að fjórar Wagner-túbur bætist
í málmblásaradeild hljómsveitarinn-
ar í sinfóníunni og hafa þessi hljóð-
færi verið fengin að láni frá Fíl-
harmóníuhljómsveitinni í Stokk-
hólmi.
Jólafundur MS félags íslands
verður í dag, fimmtudaginn 5. des-
ember, kl. 20 í Hátúni 12, annarri
hæð. Ýmis skemmtiatriði og veiting-
ar. Mætið vel og stundvíslega.
Kvennadeild Rauða kross ís
lands
heldur jólafund í dag, fimmtudag 5.
desember, í Átthagasal Hótel Sögu.
Mæting í Háteigskirkju kl. 18.30,
aðventuspjall sr. Arngrímur Jóns-
son. Ekið að Hótel Sögu kl. 19.
Matur, dinnermúsík og félagsvist,
konur eru beðnað að tilkynna þátt-
töku á skrifstofuna, Öldugötu 4, sími
28222.
Kvenfélagið Hrönn
Jólafundur í kvöld, 5. desember, kl.
20.30 að Borgartúni 18.
Fundur Landssambands
sjúkrahúsa
Föstudaginn 6. desember nk. kl. 13
verður haldinn fundur í Landssam-
bandi sjúkrahúsa. Fundurinn verður
haldinn í Átthagasal Hótel Sögu, 1.
hæð. Fundarefni: Tillaga heilbrigðis-
málaráðherra um að flytja 15 sjúkra-
hús af daggjaldakerfi á fjárlög. Heil-
brigðismálaráðherra mætir á fund-
inn og skýrir sjónarmið ráðuneytis-
ins. Ennfremur mæta á fundinn forr-
áðamenn Sambands ísl. sveitarfélaga
og fulltr. fjármálaráðuneytisins.
Brýna nauðsyn ber til að forstöðu-
menn og forsvarsmenn sveitarfélaga,
sem rek sjúkrahús, mæti á fundinn.
Jólasveinar Alþýðuleikhússins
Jólasveinar Alþýðuleikhússins eru
komnir á kreik. Við rákumst á þá á
förnum vegi þar sem þeir voru að
setja nagladekkin undir kassabílinn
sinn. Þeir voru greinilega komnir í
jólaskap og önnum kafnir við að búa
sig undir jólatrésskemmtanir. Þeir
báðu okkur að skila til félagasam-
taka að þeir væru reiðubúnir að
koma á jólatrésskemmtanir og gleðja
börnin. Nánari upplýsingar í símum
10026 og 19567. Og þar með brunuðu
þeir af stað á kassabílnum með nýju
nagladekkjunum.
Ég lít í anda liónatíð # :
Ólntsf M3«««íso» fra Mosfclll syngat
fðnos Ingimondarson lcfkur með á pianó á
é s « -
Ég lít í anda liðna tíð — ný plata
Bókaútgáfan Örn og Örlygur hefur
gefið út hljómplötu með einsöng
Ólafs Magnússonar frá Mosfelli við
píanóundirleik Jónasar Ingimundar-
sonar. Platan er gefin út í tilefni af
75 ára afmæli Ólafs fyrr á þessu ári.
Lögin sem Ólafur syngur eru: Suður-
nesjamenn, Kom ég upp í Kvíslar-
skarð, Horfinn dagur, Nótt, I daln-
um, Þei, þei og ró ró, Ég lít í anda
liðna tíð, Vorvindur, Ásareiðin,
Plágan, Nirfillinn, Fyrir átta árum,
Bergljót, Vor, Til Unu, Góða veislu
gjöra skal, Helgun frá döggvum
himnabrunns, Kveðja, Sunnudagur
selstúlkunnar, Litla skáld, Aleinn
reika ég um dimman stíg, Rauði
sarafaninni, Vögguljóð. Upptökurn-
ar eru starfrænar (digital) og fóru,
eins og áður segir, fram í Hlégarði.
Upptökurnar annaðist Halldór Vík-
ingsson.
Jólaskemmtun F.Í.D.
verður haldin í Broadway sunnudag-
inn 8. desember nk. bæði um daginn
og kvöldið og kemur jólasveinn
væntanlega í heimsókn til barnanna.
Einnig verður um kvöldið dans eftir
sýningu. Nemendur úr eftirtöldum
dansskólum munu sýna dansa: Nýja
dansskólanum, Dansskóla Auðar
Haraldsdóttur, Dansskóla Sigurðar
Hákonarsonar, Jassballettskóla
Báru, Jassballettskóla Kristínar,
Dansneistanum, Hafdís Jónsdóttir
og Jassballett frá F’anneyju Gunn-
laugsdóttur. Miðar eru seldir x dans-
skólum og við innganginn og kosta
þeir 150 kr. fyrir börn og 200 kr.fyrir
fullorðna . Allir eru velkomnir.
Á málþingi sem Félag íslenskra
bókaútgefenda hélt með fulltrúum
fjölmiðla í fyrrakvöld, sagði Eyjólfur
Sigurðsson, formaður félagsins, að
allt benti til þess að bókaútgáfa í ár
yrði 10% meiri en í fyrra, en þá voru
gefnir út um 350 titlar á jólavertíð.
Taldi hann að í þeirri aukningu
munaði mest um ný útgáfufyrirtæki,
sérlega þau sem sérhæfðu sig í papp-
írskiljum svo og eiginútgáfu ein-
Nýir eigendur að tískuverslun-
inni Bóbó
Eigendaskipti urðu um síðustu
mánaðamót á tískuversluninni Bóbó
sem er að Laugavegi 61. Nýju eigend-
urnir eru tveir, Jóhanna Guðnadótt-
ir og Guðrún Björnsdóttir. Tísku-
verslunin Bóbó mun eins og áður
vera með herra- og kvenfatnað á
boðstólum. Á myndinni eru frá
vinstri: Fríða Methúsalemsdóttir
afgreiðslustúlka og nýju eigendurn-
ir, Jóhanna og Guðnin.
Sala hafin á jóladagatölum
Lionsklúbbsins Freys
Jólin nálgast og enn á ný býður
Lionsklúbburinn Freyr í Reykjavík
ásamt lionsklúbbum um allt land hin
landsþekktu jóladagatöl með sæl-
gæti til sölu. Dagatölin eru orðin
ómissandi hjá yngstu kynslóðinni
við að telja dagana til jóla og kaup-
endur þeirra styrkja klúbbana ríf-
lega til að sinna fjölþættu og viða-
miklu hjálparstarfi. Lionsklúbbur-
inn Freyr hefur ráðstafað ágóða af
sölu jóladagatalanna til ýmissa líkn-
armála, svo sem til vistheimila
þroskaheftra, dvalarheimila aldr-
aðra, til kaupa á þýðingarmiklum
lækningatækjum, auk fjölda annarra
verkefna.
i lag 1 akalausra
Félag makalausra
Flóamarkaður og basar verður hald-
inn nk. laugardag og sunnudag milli
kl. 14 og 18 báða dagana í húsnæði
félagsins á 3. hæð í Mjölnisholti 14.
(Brautarholt 3, áfast við Hampiðj-
una.) Fjölbreytt úrval muna.
Doris Lessing gestur Listahá-
tíðar
Doris Lessing, sá heimskunni rit-
höfundur, verður gestur Listahátíðar
1986. Hún mun halda hér fyrirlestur
á sérstakri dagskrá sem verður um
hana og verk hennar. Þá mun Doris
Lessing afhenda smásagnaverðlaun
Listahátíðar við opnun hátíðarinnar
þann 31. maí. Doris er borin og barn-
fædd í Rhodesiu en býr nú í Englandi.
Hún hefur oft verið orðuð við nóbels-
verðlaunin. Hún hefur skrifað fjölda
skáldsagna sem hafa verið þýddar á
mörg tungumál og eru tvær af skáld-
sögum hennar væntanlegar eftir
hana á íslensku innan skamms. Þær
eru: The Grass is Singing og Memoirs
of a Survivor. Báðar þessar sögur
hafa verið kvikmyndaðar.
Herrakvöld Týs verður haldið laug-
ardaginn 7. desember kl. 20.30 í fé-
lagsheimilinu við Hástein. Má taka
með sér gesti. Þátttaka tilkynnist til
Ómars Jóh. í síma 2861 milli kl. 11
og 12 alla virka daga.
stakra höfunda.
Þótt bókamarkaðurinn í fyrra
hefði verið mátulega stór, að mati
útgefenda, voru þeir á því að bókin
væri í stöðugri sókn og engin ástæða
til að örvænta um hana. Árni Einars-
son, útgáfustjóri Máls & menningar,
gekk svo langt að segja að á hans
forlagi væru menn „ferlega bjartsýn-
ir“.
AI
Bókaútgefendur „ fer-
lega bjartsýnir”