Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1985, Síða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1985, Síða 42
42 DV. FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER1985. Listaverkamarkaðurinn Á tímamótum Það er gróska í myndlistinni. Síðustu mánuði hafa starfað hér fleiri sýningarsalir en nokkru sinni áður. Fyrir utan sali í opinberri eigu hefur bæst við fjöldi sala í einkaeigu sem ýmist eru reknir af einstökum áhugamönnum eða hópum listamanna. Með þessum sölum hefur sýningum fjölgaö að mun og stöðugt fleiri íistamenn keppa um hylli listunnenda. Nú á haustdögum er það trú margra að íslenskur listaverka- markaður standi á tímamótum. Margir þeirra einstaklinga sem rekið hafa sýningarsali eru að gef- ast upp á rekstrinum. Hætt var að reka Listamiðstöðina fyrr á þessu ári. Listmunahúsinu verður lokað innan skamms. Gallerí Salurinn við Vesturgötu verður opinn til jóla. Gallerí Langbrók er að kikna undan hárri húsaleigu en heltist þó væntanlega ekki úr lestinni á næstunni. Þeir eigendur sýningarsala sem DV hefur rætt við eru sammála um að rekstur þeirra sé vonlaus nema stuðningur í einhverju formi komi tiL Staðan er þó misjöfn og sumir sýningarsalanna virðast ætla að lifa þrengingartímana af. Þar má nefna Gallerí Borg og Gallerí Grjót sem bæði eru rekin með hagnaði. Óhóflegt verð ó listaverkum er nefht sem ein af ástæðum þessarar þróunar. Minnkandi kaupgeta almennings á einnig sinn þátt í samdrættinum. Ungum listamönn- um svíður einnig vantrú kaupenda á verkum lítt þekktra manna. Það eru yfirleitt þeir ungu sem sam- drátturinn kemur harðast við. Að þessu sinni fjallar Tíðarand- inn um rekstur sýningarsala. Jafn- framt er leitað svara eigenda þeirra um stöðuna á íslenskum lista- verkamarkaði. Fáir festa fé í verkum ungra listamanna - segir Sigrún Eldjárn hjá Gallerí Langbrók „Mest af því sem við bjóðum eru verk ungra listamanna. Þeir sem fjárfesta í listaverkum taka yfirleitt ekki áhættuna af að kaupa annað en verk viðurkenndra listamanna," sagði Sigrún Eldjárn, ein þeirra tíu kvenna sem reka Gallerí Langbrók. Og stalla hennar, Guðný Magnús- dóttir, bætir við: „Auðvitað gætum við snúið okkur að sölu á verkum dauðra meistara en við ætlum að berjast fyrir lífinu lifandi og vísum því ekki til afkomendanna." REYNUM AÐ LIFA AF LISTINNI Gallerí Langbrók hefur starfað síðan 1978. Reksturinn hófst á Vita- stíg 12 en var tveim árum síðar fluttur í Landshöfðingjahúsið á Bernhöft- storfunni. Frá upphafi hefur rekstur- inn verið í höndum hóps myndlistar- kvenna. Núna eru þær tíu en hafa flestar orðið 24. Það er því nokkur hreyfing á mannskapnum. „Við hófum þennan rekstur vegna þess að við vildum reyna að lifa af listinni og koma henni á framfæri," sagði Guðný Magnúsdóttir. „Þegar við byrjuðum var enginn vettvangur fyrir þá list sem við stunduðum ef frá er talið að eitthvað seldist af keramiki í verslunum. Grafík var aftur á móti hvergi seld. Við tökum í umboðssölu þau verk sem okkur'líst á. Sjaldan hefur það verið nokkurt álitamál. Við gerum hvort tveggja að taka við því sem er boðið og eins leitum við uppi það listafólk sem okkur hefur fundist skemmtilegt að hafa með. Við bjóðum upp á fastar sölusýn- ingar og sérsýningar í framherberg- inu. Það virðist vera töluverður markaður fyrir listaverk. Salan er þó ekki ör, verkin liggja oft lengi en fara þó flest á endanum." Hins vegar er greinilegt að fólk kaupir frekar fjöldaframleidda gjafa- vöru en frumlega list. Fjöldafram- leiðslan er oftast innflutt og mikið auglýst. Það virðist hafa meiri áhrif en verðið því þessi gjafavara er ekkert ódýrari en listaverkin sem við bjóðum." EKKI EINS OG HVER ÖNNUR BÚÐ - Hafið þið ekki reynt að auglýsa til að standa betur í samkeppninni við gjafavöruverslanirnar? „Við höfum einfaldlega ekki haft efni á því. Auk þess viljum við ekki vera eins og hver önnur búð,“svarar Sigrún. „Hingað kemur auðvitað fólk og kaupir gjafavörur. Gjafa- vöruverslunum hefur bara fjölgað svo mikið síðustu ár og við stöndum höllum fæti gagnvart þeim.“ íslenskir listamenn verða að berj- ast fyrir sínum málum sjálfir. Það má líta á það sem munað að starfa að list hér eftir að skóla lýkur. Lista- verk ungra íslenskra listamanna eru hreint ekki dýr ef miðað er við vinn- una sem fer í þau. Vandinn er að koma þeim á framfæri. Langbrókin er tilraun okkar til að brjótast út úr þeim vítahring." - Hvernig verðleggið þið listaverk- „Við byrjum á að taka hinn bein- harða kostnað sem liggur aðallega í innrömmuninni. Síðan ræðst verðið mikið af samanburði við önnur verk sem í boði eru. Ég veit ekki hvenær það byrjaði,“ segir Sigrún. „Við reynum að fó tilfinningu fyrir hvað markaðurinn tekur við háu verði.“ - Hvað finnst ykkur að ráði mestu um söluna? „Við vitum að verðið ræður ekki öllu,“ segir Guðný. „Skilningur ó myndlistinni skiptir miklu sem og auglýsingar. Það höfum við lært á samkeppninni við gjafavöruverslan- irnar. Þar virðist ráða miklu ein- hvers konar eftiröpunar-ósjálfstæði. Fólk vill hafa þá hluti í kringum sig sem aðrir hafa.“ „Allir vita að verk þekktra lista- manna seljast betur og dýrar en önnur,“ segir Sigrún. „Markaðurinn segir auðvitað ekki allt um gæði listarinnar. Mörg góð verk seljast á háu verði en við vitum líka að margir góðir listamenn lepja dauðann úr skel.“ MEST TILGJAFA - Hvemig viðskiptavinir kaupa verk í Gallerí Langbrók? „Langmest af því sem við seljum fer til gjafa,“ segir Sigrún. „Þó eru alltaf nokkur dæmi um að fólk kaup- ir listaverk til að eiga. Því miður er allt of lítið um að stofnanir og fyrir- tæki kaupi verk til skreytinga. Ef til vill finnst þeim staðurinn svo lítill að hér geti ekki verið aðrir hlutir á boðstólum en eitthvað smátt. Áuð- vitað komast stórir munir ekki fyrir hér en við vísum á listamenn sem vinna slíka hluti. Síðan má ekki gleyma að talsverð- ur hópur af fólki hefur fylgst með okkur frá upphafi. Það eru ýmsir góðir viðskiptavinir sem sem alltaf kaupa eitthvað." - Nú eru líkur ó breytingum á högum gallerísins. Hvernig ætlið þið að bregðast við þeim? „Við vonumst til að geta verið hér áfram en vitum ekki enn hvort það getur orðið,“ segir Sigrún. „Leigan er orðin það há að við ráðum ekki við hana. En sem betur fer er fjöldi fólks sem vill að við verðum hér áfram. Það erum við sem höldum uppi menningunni hér á Bernhöft- storfunni." „Við vonumst til að fá leiguna lækkaða,“ segir Guðný. „Okkur er hlýtt til staðarins og viljum að tillit sé tekið til starfseminnar hér. Við ráðum afitur á móti ekki við leigu eins og þá sem gerist við verslunar- götur. Það er vonlaust fyrir lista- menn að reka gallerí við þær aðstæð- ur nema stuðningur komi til. Okkur finnst að ríki og borg ætti að styðja svona starfsemi. Þetta er enginn stórbisness og á meðan svo er sýnist okkur það vonlaust að láta sýningar- sal standa undir sér.“ GK Leigan fyrir Salinn við Vesturgötu 3 þrefaldast: HUGSUM OKKUR EKKIAÐ HALDA REKSTRINUM ÁFRAM -segja aðstandendur gallerísins „Leigan á að þrefaldast um áramót- in. Það er miklu meira en við ráðum við. Hópurinn sem staðið hefur saman að rekstrinum frá því í vor hættir þar með samvinnunni. I það minnsta hefur ekkert verið rætt um að halda áfram,“ sagði Harpa Bjömsdóttir, ein þeirra tiu ungu listamanna sem undanfarna mánuði hafa rekið gallerí í kjallaranum á Vesturgötu 3. Starfinu á Vesturgötunni ætla þau að ljúka með sýningu á öllum verk- um gallerísins. Hefst hún 7. des. og stendur til jóla. Fjórir fulltrúar gallerísins voru samankomnir í höfuðstöðvunum þegar DV bar þar að garði. Salinn hafa þau notað undir eigin sýningar að mestu. Þau verk sem ekki seljast á sýningunum eru ófram til sýnis og sölu. Leigunni skipta listamennirnir á milli sín en að öðru leyti er reksturinn afskaplega óform- legur. „Við kunnum ekki að græða og viljum það heldur ekki,“ er grund- vallaratriðið í fjármólastefnunni. SVEKKJANDINIÐURSTAÐA „Við viljum auðvitað vera bjart- sýn,“ sagði Gunnar Karlsson „en fjárhagshliðin á rekstri gallerís er ekkert spennandi.“ „Okkur finnst þetta mjög svekkj- andi niðurstaða en það gengur bara ekki að reka sýningarsal án styrkja frá hinu opinbera eða einhverjum velgjörðamanni," sagði Harpa. „Það er mjög þroskandi fyrir unga lista- menn að efna til sýningar. Menn sjá verk sín í nýju ljósi þegar búið er að raða þeim upp í sýningarsal fyrir almepning. Ungir listamenn eiga aftur á móti ekki i mörg hús að venda. Á Kjarvalsstöðum og í Norr- æna húsinu er minnst tveggja ára bið eftir plássi ef það fæst ó annað borð. Þar þarf líka að borga leigu sem ungir listamenn ráða ekki alltaf við. I öðrum sölum eru yfirleitt ekki teknar aðrar myndir en talið er lík- legt að seljist." - Hvemig hefur salan verið hjá ykkur? „Verkin á einkasýningunum hafa selst ógætlega en það sem er í rekk- unum hér bakvið selst lítið,“ sagði Sigrún Ögmundsdóttir. „Nafn lista- mennsins virðist skipta miklu máli. Fólk virðist ekki taka áhættu af að kaupa verk eftir ungt fólk nema það trúi að um mjög efnilega listamenn sé að ræða eða verðið mjög lágt.“ ÓREYND í VERÐLAGNINGU - Hvernig verðleggið þið listaverk- in? „Við reynum að hafa verðið heldur lægra en almennt gerist ó hliðstæð- um verkum," sagði Margrét Birgis. „Verð á grafíkverkum fer eftir upp- laginu. Einnig reynum við að taka tillit til hve mikil vinna hefur farið í verkið. Reyndar höfum við ekki selt það mikið að við séum reglulega sjóuð í verðlagningunni. Okkur virðist að það sem selst fari helst til gjafa. Fólk gefur listaverk ef gjöfin á að vera eitthvað veglegri en venjulega." „Viðhorfið til sölu ó listaverkum er að breytast," segir Gunnar. „Fleiri og fleiri hafa hug á að eignast lista- verk. Við verðum mest vör við fólk af okkar kynslóð. Gallinn er að það ó yfirleitt enga peninga. Ef til vill fara verk okkar að seljast þegar okkar kynslóð er orðin rík.“ - GK •* íf*. ,'artt' vr ****** 'iÉiíH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.