Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1985, Page 44

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1985, Page 44
44 DV. FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER1985. Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós Albert prins, ríkisarfi Mónakó, er slyngur á seglbretti. Albert prins nýtur sín í sumri og sól Albert prins af Mónakó er alla- Mónakó á frönsku Rívierunni. jafna ekki eins mikið í fréttum og Albert siglir gjaman á snekkju systur hans, faðir og móðir meðan sinni, Offshore Monaco, um Mið- hún lifði. jarðarhafið og skreppur þá gjarnan Engu að síður veita margir Albert til baðstaða fína fólksins í grennd- athygli. Hann er tuttugu og sjö ára inni, til dæmis St. Tropez. gamall og þykir ákaflega hugguleg- Prinsinn er sagður ekki vera við ur maður. Hann er talsvert upp á eina fjölina felldur í kvennamálun- kvenhöndina og sagt er að aðalá- um en síðustu fréttir herma að Ger- hugamál hans sé að njóta sumars aldine nokkur Danon eigi hug hans og sólar, enda hæg heimatökin í oghjarta. kvenhöndina. Hér er hann í kossaflensi með Geraldine nokkurri Danon. Albert er enn að kyssa Geraldine og vellauðugir vinir hans njóta lifs- ins hver um annnan þveran. Fyrirsætan Renée í slag- togi með Duran Duran Það varð uppi fótur og fit í Árósum þegar ein þekktasta dóttir bæjarins kom þangað í heimsókn. Það var engin önnur en Renée Simonsen sem vann fyrirsætusamkeppnina Face of the 80’s um árið og varð eins hæst- laimaða fyrirsæta heims. Nýjustu fréttir af henni eru þær að hún leikur lesbíu i kvikmynd sem tekin var á Ítalíu í sumar. Ástamálin standa í blóma því hún er farin að búa með John Taylor í Duran Dur- an. Þar hitti skrattinn ömmu sína sagði einhver því að Renée er draumadís margra drengja og John sannkallað kyntákn. Renée býr nú með John Taylor í Duran Duran. Eina vandamálið: Renée reykir einn og hálfan pakka á dag. Helsta áhyggjuefni hennar er að hún reykir of mikið að eigin sögn, 30 sígarettur á dag, en hún segist aðeins smakka það um helgar - og drekkur þá helst- Cuba libra - romm og kók. Svíakonungur bregð- ur sér á diskótek Karl Gústaf, konungur Svía, brá sér á dögunum út á lífið þegar hann var í heimsókn í kóngsins Kaupin- höfn. Karl Gústafvarí einkaerindum i Danmörku, drottningarlaus, en skemmti sér hið besta. Konungur brá sér svo við tólfta mann á veitingahúsið Hans kóng. Var þess getið að málsverðurinn hefði verið konunglegur, marinerað- ur lax, fasanhani, ís og Chateau Renault, hvítt Bordeaux vín frá 1983 og svo Chassagne Montraset ’82 - ungt Búrgundarvín - á eftir. Að málsverði loknum brugðu kon- ungur og fylgdarlið sér á diskótek. Varð Annabells fyrir valinu. Kon- ungur dvaldi á diskótekinu í tvo og hálfan tíma. Luku starfsmenn lofs- orði á kurteisa framkomu hans. m-----------------► Karl Gústaf brá sér á diskótekið Annabells í Kaupmannahöfn þegar hann dvaldi þar á dögun- um. Paul McCartney farinn að betla Það tók enginn eftir gamla mannin- um á hjólinu. Þegar hann steig af reiðhjólinu og fór að betla við járn- brautarstöðina þóttist ’enginn taka eftir honum. Hann fékk ckki krónu. Enda þurfti hann ekki á því að halda. Hér var á ferð forríkur maður og vel þekktur, enginn annar en Paul McCartney. Hann brá á þennan leik á dögunum í Lundúnaborg. McCartney var nefnilega að gera myndband til að fylgja úr hlaði ný- justu.smáskífu sinni: Spies like us. McCartney segir að hann hafi verið svo blankur fyrst þegar hann kom til Lundúna, óþekktur strákur frá Liverpool, að hann hafi orðið að betla sér til matar. Það er kannski ljúfsár eftirsjá sem olli því að McCartney tók nýjustu plötu sína upp í Abbey Road Studios. Þar tóku Bítlarnir upp fyrstu plötur sínar og nefndu raunar eina eftir stúdíóinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.