Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1985, Page 48
FR ÉTTASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu
eða vitneskju um
frétt — hringdu þá i
sima 68-78-58. Fyrir
hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notað i DV, greið-
ast 1.000 krónur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið i
hverri viku,
Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
Frjálst, óháð dagblað
FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 1985.
Landsfundur BJ:
Andófshóp-
' urinnmun
ekki mæta
Andófshópurinn innan Bandalags
jafnaðarmanna eða meðlimir í Félagi
jafnaðarmanna ætla flestir hverjir
ekki að mæta á landsfund Banda-
lagsins sem verður haldinn nú um
helgina. Þá ætlar Valgerður Bjarna-
dóttir, fyrrverandi varaformaður
landsnefndar, ekki að mæta á fund-
inn. Líklegt er að Kristófer Már
Kristinsson, fyrrverandi formaður
landsnefndar Bandalags jafnaðar-
manna, muni ekki heldur láta sjá sig
á þessum landsfundi.
Viðmælendur DV sögðust því ekki
búast við því að þessi fundur yrði
tíðindamikill. Vegna fjarveru and-
ófshópsins verður ekki gerður upp
sá ágreiningur sem staðið hefur yfir
undanfarið meðal félaga í Bandalagi
jafnaðarmanna. Framtíð flokksins
verður því ekki ráðin á þessum fundi.
, Menn úr hópi Félags jafnaðar-
manna eru ekki sáttir við boðun
þessa fundar. Þeir benda á að einn
af þingmönnum flokksins hafi sagt
^ að á þessum fundi ætti að ræða
endanlega hver hin rétta stefna
flokksins er. Þetta sé ekki í anda
Bandalagsins sem stofnað var með
það fyrir augum að þar gæti fólk með
mismunandi skoðanir sameinast
undireinni „regnhlíf'. - APH
Skaftá tæmd
íAntwerpen
Ákveðið hefur verið að tæma
Skaftá, skip íslenska skipafélagsins,
sem kyrrsett hefur verið í rúma viku
í Antwerpen.
Farmur skipsins verður fluttur með
pramma til Rotterdam þar sem eitt
af skipum Eimskips tekur hann heim.
Þessi ákvörðun var tekin þegar ljóst
var að ekki tækist að losa skipið á
næstu dögum. Eins og mál standa
nú er óvíst hvenær tekst að losa
skipið úr farbanni, sem tilkomið er
vegna skuldakrafna á hendur Haf-
skip. - APH
LOKI
>»
Nú standa sælkerar á
öndinni.
Fimmtíu milljónir vantaríbyggingu Listasafns íslands þrátt
fyrirarfínn frá Sigurliða Kristjánssyni kaupmanni:
Arfurinn horfinn í
fjármagnskostnaö
„Ef það ætti að flytja inn núna
þyrftum við 50 milljónir til að ljúka
við bygginguna," sagði Guðmund-
ur G. Þórarinsson, formaður bygg-
ingamefndar Listasafns íslands, í
samtali við DV. Byggingunni átti
að vera lokið á hundrað ára afinæli
safnsins á næsta ári. Talið er von-
laust að það takist.
Þegar safninu tæmdist arfurinn
frá Sigurliða heitnum Kristjáns-
syni kaupmanni árið 1980 var talið
að þeir peningar dygðu til að ljúka
byggingunni. Það voru eignir að
verðmæti 12-13 milljónir sem saf-
nið fékk í sinn hlut. Nú er það fé
allt horfið í fjármagnskostnað að
stórum hluta.
Samkvæmt heimildum blaðsins
hafði féð, sem Listasafnið fékk úr
arfi Sigurliða þegar árið 1983, rým-
að um allt að helmingi vegna vafa-
samrar erlendrar lántöku af hálfu
fjármálaráðuneytisins.
Sú saga hófst þegar listasafiiinu
vom lánaðar 2 milljónir úr ríkis-
sjóði um áramótin 1981/82. Þá var
enn ekki búið að gera dánarbú
Sigurliða upp.
Síðan var ákveðið að greiða þessa
skuld með 4 milljón kr. dollaraláni
sem tekið var án vitundar safn-
stjómar. Afganginn var notaður til
framkvæmda eftir að greiddar
höfðu verið um 400.000 í stimpil-
gjöld til ríkisins.
Vegna óhagstæðrar gengisþró-
unar var þetta lán orðið að 16- 18
milljónum í árslok 1983. Þá var
arfurinn metinn á 34 milljónir.
Að sögn Guðmundar G. Þórarins-
sonar er safiiið nú laust úr erlend-
um fjárskuldbindingum fyrir meira
en ári en arfurinn frá Sigurliða
einnig uppurinn frá sama tíma.
- GK
alvarlegar
afleiðingar, segir
forstjóri Hollustu-
vemdar ríkisins,
Þórhallur
Salmonella
f innst í
aliöndum
— Geturhaft
Halldórsson
„Erfitt er að tilgreina nákvæmlega
hver orsökin er fyrir þessari salmon-
ellusýkinginu í Vilmundarstaða-
öndunum. Hún gæti uppmnalega
verið frá fóðri eða frárennsli. Aðal-
hættan er sú að sýkillinn berist í
annan mat sem ekki er soðinn, t.d.
salöt. Það getur haft alvarlegar af-
leiðingar, sérstaklega í stómm mötu-
neytum eða veitingahúsum," sagði
Þórhallur Halldórsson, forstjóri
Hollustuverndar ríkisins við DV í
morgun.
Salmonellusýking hefur fundist í
aliöndum frá Vilmundarstöðum.
Hefur sala á þeim frá búinu verið
stöðvuð og fyrirmæli gefin um inn-
köllun vörunnar. Þrátt fyrir þessa
aðgerð er ljóst að endur þessar geta
víða verið til staðar á heimilum, í
mötuneytum, veitingahúsum og víð-
ar. Þeim sem eiga í fórum sínum
slíkar endur er bent á að skila þeim
til þess aðila sem seldi vöruna.
„ Salmonellusýking hefur valdið 2
alvarlegustu matareitrunum sem
upp hafa komið hér á landi. 1954
veiktust um 120 manns og 1962 um
250 manns. Afleiðingar veikinnar
koma m.a. fram í hita og niðurgangi.
Vegna ferða okkar til útlanda hefur
hættan aukist á því að sýkillinn sé
í frárennsli," sagði Þórhallur.
Ekkert hefur fundist athugavert
við aliendur frá öðrum búum né
heldur gæsum á markaðinum.
- -KB
Lögreglan við hús Grænmetisverslunar landbúnaðarins skömmu eftir ránið í gær. Skrifstofa Félagsmála-
stofnunar er á Qórðu hæð. DV-mynd:S.
Ræningi á hverfaskrifstofu Félagsmálastofnunar:
Reif 114 þúsund krónur
af konu og komst undan
Lögreglan leitaði í gær að ákveðn-
um manni í tengslum við ránið á
hverfaskrifstofu Félagsmálastofnun-
ar Reykjavíkurborgar á homi
Fellsmúla og Síðumúla. Enginn
hafði þó verið handtekinn í morgun.
Um 114 þúsund krónum var rænt
af starfsmanni Félagsmálastofnunar,
rúmlega þrítugri konu, sem gegnir
gjaldkerastarfi í forföllum gjaldkera,
í hádeginu í gær. Konan var að koma
inn á skrifstofuna á fjórðu hæð húss-
ins eftir að hafa sótt í banka 107
þúsund krónur fýrir Félagsmála-
stofnun. I handtösku sinni hafði
konan auk þess um sjö þúsund krón-
ur af eigin fjármunum, að sögn
Sveins Ragnarssonar félagsmála-
stjóra.
Konan hefur lýst ræningjanum á
þá leið að hann hafi hulið andlit sitt
með trefli og verið klæddur blágrárri
úlpu með hettu. Hann hafi verið
meðalmaður á hæð.
Ráninu lýsir hún þannig, sam-
kvæmt upplýsingum Rannsóknar-
lögreglunnar: Þegar hún er að loka
glerdyranum að skrifstofunni tekur
hún eftir skugga á bak við hurðina.
Maður, sem falið hafði sig á bak við
hurðina, réðst á konuna. Veitti hún
harða mótspymu. Lauk snörpum
átökum með því að hún féll í gólfið.
Þegar starfsfólk, sem heyrt hafði
hróp í könunni, kom freun á gang var
maðurinn horfinn á braut með veski
konunnar. Konan var ómeidd en var
mikið bragðið.
- KMU.