Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1985, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1985, Blaðsíða 3
55 DV. LAUGARDAGUR14. DESEMBER1985. var dramatískt. Þá birtust þeir allir fimm á sviðinu og við eggjandi músik og dempuð ljós afklæddu þeir sig hægt og rólega, hnepptu hverjum hnappi sérlega vandvirknislega. Sumar af konunum voru farnar þegar síðasta plaggið fauk. Lúxemborg- arvín I Lúxembúrg, því ríki Evrópu sem við íslendingar höfum bundist traustum viðskiptaböndum - er, eins og allt of fáir vita, framleitt úrvals- gott vín. Eftir að menn fóru að blanda frostlegi í vín í Austurríki og Sviss hefur athygli vínkaupmanna beinst að Lúxemhúrg. Ekki í sam- bandi vió frostlög - heldur tærleika vínanna. Lúxembúrgsk hvítvín, ræktuð og þróuð í hæðunum við Mosel, eru sérlega góð. Og stefna nú i auknum mæli inn á heimsmarkað- inn. Lúxembúrgarar framleiða aðeins hvítvín - og framleiða 15 milljónir lítra við hverja uppskeru. Hvítvín þeirra er í senn þurrt og mjúkt og tært. Flest lúxembúrgarvín eru merkt/með „marque nationale" sem á að vera trygging fyrir gæðum. Breiðsíðunefndin mælir með víni sem heitir Auxerrois. Það fæst stundum á Islandi. Óhætt að gagnrýna Nú er orðið óhætt fyrir þá sem lægra standa í virðingarstiga so- véska kommúnistaflokksins að gagnrýna yfirmenn sína, eða þá sem ofar standa í stigagarminum. A síðasta fundi í pólitbyró, sem er aðalstjórnarnefnd ríkisins þar sem sitja 12 heilagir menn, var almenn- ingur hvattur til að „vera gagnrýnni í garð yfirmanna sinna og hætta að gorta af árangri og að svindla á útkomu," og var víst átt við reikn- ingslega niðurstöðu rikisfyrirtækja sem bókhaldsblækurnar hafa verið að falsa til að hafa sjeffana góða. Eða þannig. Postularnir 12 i politbyró sögðu að gagnrýni neðan frá væri sérlega þýðingarmikil. Og þá byrja víst sumir þar eystra að brýna sína kuta og gagga hátt um skítmennsku yfirmanna. Eða það óttast Breiðsíðunefndin. Bönnum allt Það hefur löngum verið klifað á því að málið okkar sé það dýrmæt- asta sem við eigum, sumir segja um það bil helmingi dýrmætara en Kröfluvirkjun og togaraútgerð á Skeiðarársandi, og þess vegna kom það svo sem ekkert á óvart þegar boðað var til ráðstefnu um íslenskt mál í Þjóðleikhúsinu við Hverfis- götu fyrir nokkru enda er búið að samþykkja það á Alþingi að íslen- skan sé elsta mál í heimi og jafn- framt það merkilegasta. Þessu til sönnunar er bent á Is- lendingasögurnar sem voru skrif- aðar á íslensku eins og menn geta komist að raun um ef þeir nenna vestur í Arnagarð. En það eru fleiri tungumál töluð í heiminum í dag en íslenska og vegna þess hvað þau eru mörg finnst mér oft gott að hafa sex ára tungumálasérfræðing á heimilinu sem segir manni að fulltrúi Sri Lanka í alheimsfegurðarsam- keppninni tali srilönsku og sá frá Filabeinsströndinni fílabeinsku. Hins vegar kann þessi sérfræð- ingur ekki bankamál sem farið er að ryðja sér til rúms á hinum ís- lenska málamárkaði og virðist það sumum ráðherrum tamara en móðurmálið á stundum, að minnsta kosti tilkynnti ráðherra á dögun- um að hann ætlaði að tala við bankana um lengingu skammtíma- lána og hefði ég gjarnan viljað hlusta á það samtal, sérstaklega svar bankans þótt ég búist ekki við að ég hefði skilið neitt því að ég er svo illa að mér að ég veit ekki einu sinni hvað of háir raunvextir eru. Boð og bönn Ég hef lengi verið talsmaður þess að láta banna alla skapaða hluti J og ef ég hef ekki lagt það til áður legg ég það til nú að öll bókaútgáfa verði bönnuð á lslandi, nema kannski útgáfa Símaskrárinnar og þó fmnst mér sjálfsagt að banna fólki að lesa hana sér til dægra- styttingar. Og þegar finnskar, sænskar, fran- skar og amerískar klámmyndir eru sýndar í sjónvarpinu finnst mér sjálfsagt að banna börnum að lesa textann en binda fyrir augun á þeim að öðrum kosti og lýsa síðan í stuttu máli því sem fram fer á skjánum svo að blessuð börnin fari ekki alveg á mis við menninguna og sætti sig betur við að vera með bundið fyrir augun flesta daga ársins. Einnig hefur mér dottið í hug hvort ekki ætti einfaldlega að banna fólki að læra að lesa og leggja þess í stað meiri áherslu á stærðfræði og boðorðin níu. Þetta kæmi að vísu ekki í veg fyrir að fólk hugsaði dónalega og blístraði dónaleg lög og ó meðan skepnuhald er ekki bannað í sveit- um kæmust trúlega einhverjir að því á unga aldri hvernig lömb verða til en það er ekki víst að þeir tengi fengitímann þeirri dónalegu athöfn BENEDIKT AXELSSON þegar börnin okkar vcrða til og þá er tilganginum náð. Fræðslustarfsemi Sem dæmi um það hvað börn nú til dags eru hrikalega vel upplýst um upphaf lífsins get ég sagt ykkur frá samtali tveggja stráka, annar hafði verið í sveit og vissi allt um þessi mál, hinn hafði hvorki verið í sveit né lesið bókina um þig og mig þar sem hann er ólæs. . Samtalið fór fram í byrjun des- ember þegar ég var nýkominn heim, búinn. að klæða mig úr úlp- unni. borða kvöldmatinn og ætlaði að fara að hlusta á fréttirnir af tapi einhvers banka. Sá sem hafði verið í sveit hóf umræðuna. „Veistu það," sagði hann. „að hænurnar í sveitinni-éta orma og flugur og maðka og þegar þær eru búnar að háma í sig helling af möðkum og flugum verpa þær eggjum og svo liggja þær á eggjun- um í marga mánuði og þá verða eggin að kjúkiingum sem við borð- um á sunudögum og jólunum. „Þú ert að skrökva," sagði sá sem ekki hafði verið í sveit. „Nei. nei. þetta er alveg satt. bóndinn sagði mér þetta hér um bil og hann skrökvar aldrei," sagði sveitavargurinn. „En hvernig verðum við þá til?“ spurði sá sem ekki hafði vit á hænsnarækt. „Alveg eins og kjúklingarnir og eggin," svaraði sveitamaðurinn að bragði og lét engan bilbug á sér fínna. ,.En ef mamma þín borðar lamba- k'öt." sagði sá fáfróði um sveitalíf- ið. „af hverju ert þú þá ekki kjöt- bolludós?" „Eigum við ekki bara að koma í feluleik?" spurði upphafsmaður umræðunnar og var tillagan sam- þykkt samhljóða. Kveðja Ben. Ax. __________VIIMSÆLASTI HERRAFATIMADUR I EVRÓPU. ___ ______________ÓTRÚLEGA HAGSTÆTT VERÐ. iTivlkG í ÖLLUM BESTU HERRAFATAVERSLUNUM Á LAIMDINU. GÆÐIN í ÖNDVEGI IkCS SKYRTUR v__/ GÆÐIN í ÖNDVEGI Ika buxur GÆÐIN í ÖNDVEGI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.