Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1985, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1985, Page 8
60 DV. LAUGARDAGUR14. DESEMBBR1985. CPC 464 Afburðatölva Tölvukaupendur fá alltaf meira og meira fyrir peningana sína. í þeirri þróun er AMSTRAD tvímælalaust toppurinn: 64K tölva, litaskjár og innbyggt segulband. Frábær hönnun, afl og hraði, skinandi litir, gott hljóð og spennandi möguleikar Tæknilegar upplýsingar: • BAUD hraði á segulbandinu 1000 og 2000. • Tengi fyrir disk drif, centronics prentari. • Stýripinnar, sterio, viðbótar RAM og ROM. • Með diskdrifum fylgir CP/M. • Stýrikerfi og Dr. Logo forritun- armálið. • Úrval af forritum. • Örtölva Z80A 4MHZ. • 64 K RAM þar af 43 K fyrir notendur 32 K ROM. • 640 x 200 teiknipunktar. • 27 litir. • 20, 40; 80 stafir í línu. • Innbyggt segulband. • Innbyggðir hátalarar. • Fullkomið lyklaborð með sór- stökum númeralyklum. • 12 forritanlegir lyklar. Verð aðeins 21.980 kr. stgr.l Söluumboð útí á landi: Bókabúð Keflavlkur Kaupfélag Hafnarfjarðar Músík & myndir, Vestmannaeyjum Bókaskemman Akranesi Seria sf fsaflröi KEA-hljómdeild Akureyri Bókaverslun Þórarins Húsavík Fjölritun s.f., Egilsstöðum Söluumboð í Reykjavík: Bókabúö Laugaveg 118 v/Hlemm, s: 29311, 621122 TÖLVULAND H/F STURTUKLEFAR jólatílboð Bjóðum Koralle sturtuklefa með einstökum kjörum: EKKERT ÚT OG REST Á 6 MÁN. GETUM ANNAST UPPSETNINGU & VATNSVIRKINNAf ÁRMÚLA 21 REYKJAVÍK SÍMAR: 686455, 685966, 686491 *i.»i i íhjáleigunni Þetta var á Suðurlandi á síðari hluta 19. aldar. Aðfangadagur jóla rann upp með logni og stillu. Snjóföl var á jörðu. Það suddaði öðru hverju úr köldu loftinu. Svo langt sem augað eygði var landið þakið ísing- arhjúp. Fossreykirnir urðu að ísnál- um, sem ýmist féllu á árbakkana eða ílögruðu langar leiðir í loftinu og stungu vegfarendur í framan, svo að þeir vissu ekki hvaðan á sig stóð veðrið. Fjármenn stóðu yfir fé á stöð- um þar sem þeir höfðu beitt ár eftir ár, en nú hættu þeir að kannast við steina, kletta og hús í þessari ís- storku. Það var kynlega hljóðbært. Kliður heyrðist úr klökugu togi fjár- ins ef það hreyfði sig. Sumar kind- anna voru orðnar með ísbrynjum. Það stirndi á héluð horn, féð varð annarlegt. Öðru hverju hlupu fjár- mennirnir inn v hópana, hóuðu og börðu niður stöfum sínum til þess að vita hvort féð gufaði ekki upp - væri huldufólkshjarðir eða svipir hjarða er flætt hefði í sjó. Um dagmál lagði miðaldra maður af stað í hálkunni með tíu ára gam- alli dóttur sinni á leið til stórbýlis eins. Það var enn hvergi nærri farar- sýn. En ratvís mórauður rakki trítl- aði á undan feðginunum og honum hafði verið sagt hvert ferðinni var heitið. Brátt stansaði bóndi og tók upp mannbrodda úr vasa sínum og batt þá á sig. Hann leiddi síðan telp- una. Bóndi gekk hægt, var talsvert halt- ur, og svo hafði hann verið síðustu tvö árin. Það bar við í eftirleit í öndverðum október að hann var að síga í þverhníptan hamar eftir lambi er var í svelti í grastó; kaðallinn skarst sundur á hvassri nibbu og hann hrapaði nokkra faðma; enn hafði hann ekki náð sér eftir þá byltu. Hann bjó á hjáleigu hálfrar stundar gang frá sjó. Heyskapur hans losaði 250 kapla. En hann var beykir og fyrir þá iðn hraut honum oft skildingur. „Pabbi, ertólg á stráunum?" spurði telpan, er þau gengu flóðgarð einn. „Nei, þetta er ísing, væna mín.'1 „Pabbi, af hverju rauk svo á öllum bæjum í gær?“ „Það var bakstursreykur og eldun- arreykur, væna mín. Nú baka kon- urnar og elda fyrir jólin.“ „En það rauk ekki meira hjá okkur en vant var,“ mælti telpan. „Nei, ónei. En það mun rjúka hjá okkur upp úr hádegi í dag. Mamma mun baka stafla af rúgkökum og annan stafla af lummum. Þá var okkur færð smjörskaka í gærkvöldi af næsta bæ, svo að við þurfum ekki að borða þurrt á jólunum. Og okkur verður gefin mjólk í dag til þess að hafa í jólagrautinn á morgun.“ „Fáum við þá rúsínugraut eins og venja er til alls staðar annars staðar einu sinni á ári?“ „Nei, góða mín. En mamma er svo fornbýl að hún á krækiber. Þau tútna fallega út við hitann og gera vín- bragð - þjóðleg fæða.“ Eftir hálfa stund fara þau fram hjá dreifðum fjárhóp af stórbýlinu. Fjár- maðurinn var að kveða rímur uppi á hæsta hólnum. Hann hrökk í kút er hann þóttist sjá hvítabjörn nálgast, en náði sér er Kann sá að þetta var einungis hundur - og bóndi og lítil dóttir hans i hámóti á eftir. Síðan hélt hann áfram að kveða. Þau sjá skammt burtu tugi hrossa af stórbýlinu er líta ekki við jörð og heyra stórbóndann siga hrossunum í puntinn og kalla: „Hvað eruð þið að krafsa í tjörnina og leggja kollhúfur, skammirnar ykkar? Það ætti við ykkur að verða að nykrum, skilja mig eftir hestlaus- an. Hvernig ertu orðinn á litinn, Rauður - ertu orðinn að nykri, fjár- inn þinn? Það er þó enn krafstursjörð utan tjarnarinnar." Feðginin gengu til stórbóndans og heilsuðu hæversklega. Hann tók kveðju þeirra fálega. „Ertu ekki með réttu ráði að vera í bæjasnatti í blindþoku?“ sagði hann. „Ferðalag mitt stafar af illri nauð- syn. Eina kýrin mín, snemmbæra, er með doða eða eitthvert annað slen og lítur ekki við leirugri töðunni. Þú veist að Fljótið flæddi yfír mest- allt tún mitt í vor í vatnavöxtunum miklu og löngu. Og nú langar mig til þess að biðja þig að lána mér kapal af sílgrænni töðu,“ stundi hjáleigu- bóndi upp. „Hvers vegna fórstu ekki skemmri bæjarleið að fala töðukapal?" spurði stórbóndinn byrstur. „Það er vegna þess að á hinum sjóbæjunum eru þeir litlu betur staddir, þeir urðu líka fyrir skakkaf- alli af völdum Fljótsins,“ ansaði bóndi og horfði i gaupnir sér. Stórbóndinn ræskti sig, tók tap- pann úr silfurtóbaksbauk sínum, hristi hann og stútaði sig síðan. „Ég setti svo djarft á í haust, maður minn, að ég er ekki búinn að bíta úr nálinni með það. Þar varð mér ljóta skyssan á. Ég get ekkert strá misst, skilurðu?" „Gætirðu látið mig fá kapal af síl- grænni töðu þá borga ég hann með tveim köplum af nýhirtri töðu síðar meir,“ sagði bóndi daufur í bragði. „Já, þó það nú væri, það er yfirleitt venjan - og er ekki ofrausn. En þú hefur fengið svar mitt. - Viltu ekki í nefið?“ Hjáleigubóndi afþakkaði. „Landpósturinn kom í gærkvöldi, ég held að það sé eitthvað af bréfum eða jólabréfspjöldum til ykkar þarna á sjóbæjunum.“ Feðginin kvöddu af skyndingu og héldu sem leið lá á bréfhirðingar- stöðina - hundurinn var sífellt á undan þeim. Þegar í hlað kom var þar vinnumaður að spýta skinn af jólaánni á skemmuþil. Gluggi við- hafnarstofunnar var opnaður, gluggatjöldunum svipt frá, og það glytti i prýddan svartvið er stóð á gólfi og út lagði angan af púnsi. Heldri gestur var staddur á bænum. Bóndi kvaddi dyra. Húsfreyja kom út og heilsaði vin- gjarnlesa. . Þið hljótið að hafa leið- a k ú g a li á ú P \ I' 1 g 1 f r t !h ! r d i h ■ r í s a r n ,1- I r 1 : 1 I 1 ! s i t ! 'c i | r r i g i c í ! v !t I í

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.