Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1985, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1985, Side 18
DV. LAUGARDAGUR14. DESEMBER1985. ' 70 Að telja krærnar í Köben virðist óvinnandi verk. Ég hef heyrt um nokkra Islendinga sem tóku sér fyrir hendur að reyna. Þeir ætluðu að fara á hvérja einustu krá í miðbænum og gá hvar bjórinn væri bestur, Könn- unarleiðangurinn hófst í St. Péturs- stræti sem er varla lengra en Hafnar- stræti í Rcykjavík. Þegar þeir félag- arnir höfðu farið það á enda og feng- ið sér einn á hverjum stað voru þeir uppgefnir ot'ðnir og gáfust upp við fyrirtækið. Síðan eru mörg.ár og ekki vitað til að krám haf; fækkað, frekar fjölgað, í millitíðinni. Auðvitað drekka margir sér til skaða. Alkóhólistar eru fleiri í Dan- mörku en nokkru öðru Norðurland- anna. Fáir Danir vilja ennþá viður- kenna að of mikil áfengisneysla sé sjúkdómur, að sumt fólk sé þannig samansett að fyrir það sé eitt glas af áfengi of mikið, heilt úthaf ekki nóg. B Og þó. Einn öldurhúsarúnturinn í miðbænum er kallaður Dauðarútan. Það var blaðamaður á Politiken sem fann upp þetta nafn fyrir fáum árum og þegar spurt er hvað það þýði er svarið: „Þeir sem fara hann of oft enda með því að drekka sig í hel.“ Hér er ekki stressið Ferðalagið eftir Dauðarútunni stendur langt fram á nótt svo að hyggilegt er að fá sér góða máltíð á einhverjum matstað í grenndinni áður en lagt er í hann. Svo er farið á fyrstu krána og er það venjulega Café Rex í Pílustræti, líka kallað Hos fru Lind. Þeir hörðustu líta kannske inn á Bobi-Bar í Klarebod- erneá undan. Þessir staðir eiga það sameiginlegt að þeir eru litlir og notalegir. Erfitt að spá í aldur þeirra því tískubylgjur hafa ekki breytt innréttingunum. Hér eru menn ekki stressaðir. Eins og tíminn sé ekki til og sannist gamla Café Victor; þar situr unga, ríka ogfallegafólkið. Myndir: Nanna Búchert. Á Skarfinum hafa menn lengi rætt saman á færeysku og ís- lensku. orðtakið: „Það eru ekki nema skó- smiðir og skraddarar sem líta á klukkuna.“ Líklega eru þessir staðir aðallega ætlaðir þeim sem vilja taka það j iega smástund milli vinnudags og fj öiskyldumá 1 tíðar. Ég held að Tove L'itlevsen kalli það einhvers staðar öndundarop í hafísbreiðunni af daglegum skyldum. Þeir sætu og smörtu Að biðja um kaffi á ekta danskri krá er aíveg út í hött. Þjónninn rekur upp stór augu og kemur síðan með -^taðið hitakönnugutl. En staðirnir, sem við förum á næst, Dan Turell og/eða Café Victor, eru í nýja franska tískustílnum og þar er boðið upp á kaffi, bæði eins og við erum vönust og svo alls konar tilbrigði með heitri mjólk og guð veit hverju. Oft fylgir staup af sterku. Menn fá sér franskt koníak eða ítalska gröppu, jafnvel grískt metaxa. Á stöðum eins og Dan Turell og Victor þykir Álaborgarákavíti hálf- gerð sveitadurgaslefa, og mér er sem ég sæi gestina þurfa að drekka íslen- skan svartadauða. Þeir mundu æla samstundis. Allt á að vera frá Suður- Evrópu, líka innréttingin. Löng bar- borð og mikið af krómi og speglum. Victor er fínni en Dan Turell og þangað koma menn ekki til að gleyma heldur til að gleymast ekki. Þeir sætu og smörtu, sem eiga aura, koma til að láta horfa á sig, lista- menn til að minna á tilveru sína og þeir gáfuðú til að láta hlusta á sig. Hér er ekki grenjandi diskó eða djúkbox til að drekkja samræðunum. Hér þarf ekki að hjálpa fólki til breiða yfir að það veit ekkert hvað það á að segja. Menningunni er ekki gleymt og stundum fengin skáld til að lesa úr verkum sínum síðdegis á sunnudög- um. Og hægt að kaupa sniðug smá- kver með þjóðsögum frá ýmsum löndum, þar á meðal íslandi, og senda vinum sínum sem póstkort og auglýsingu fyrir glaða stund á Vic- tor. Æðisgengnir tilburðir hefjast Það er komið fram yfir miðnætti og skikkanlegir staðir fara að loka. En þeir sem eru að göltrast á Dauð- arútunni eru nú komnir í góðan ham. Næst liggur.leiðin á Andy’s Bar við Gothersgötu eða Brönnum við Kóngsins nýjatorg þar sem opið er til klukkan fimm að morgni. Andy’s bar er reyndar að detta úr tísku. Menn líta þar við af tryggð, til að rifja upp gömul glappaskot, áður en þeir fremja ný. Fyrir utan Brönnum eru stundum biðraðir um þetta leyti sólarhrings, en þær eru afar fáséðar hér í borg. Nú líður væntanlega að því að menn fari að verða ölóðir. „Villtur tími“ (Vild tid) heitir skáldsaga sem var að koma út. Höfundurinn, Krist- en Björnkjær, hefur verið nokkuð tíður gestur á Dauðarútunni. Hann sendi frá sér Ijóðasafnið „Kæreste- sorg“ fyrir nokkrum árum og seldist

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.