Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1985, Síða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1985, Síða 23
DV. LAUGARDAGUR14. DESEMBER1985. 75 Bílar Bílar Bílar Bílar Bíll ársins 1986 Ford Scorpio. Séð að framan koma línurnar frá Ford Sierra vél í ljós. Gluggaflötur er mikill og útsýni gott. Fyrirrennarinn Granada var frekar stór og klunnalegur, en sporðdrekinn er mjög straumlínulagaður. Bill ár sins 1986 Lancia Y-10 og Mercedes Benz 200E komust næst hinu nýja flaggskipi frá Ford í bílaheiminum er ávallt beðið með nokkurri eftirvæntingu eftir því hvaða bíll fær útnefningu sem bíll ársins i Evrópu. Fyrir nokkrum dögum komu úrslit i vali þessa árs. 56 blaðamenn, sem skrifa um bíla í hinum ýmsu löndum Evrópu, felldu þann dóm að í efsta sæti kom Ford Scorpio með alls 337 stig. Næst komu Lancia Y-10 með 291 stig og í þriðja sæti kom síðan Mercedes Benz 200E með 273 stig. Lancia Y-10, litli frændi Fiat Uno lenti í öðru sæti á undan nýja Benzan- um. Ford Scorpio er líkt og Renault 25 s'ambland af fólksbíl og stationbíl. Stór afturhlerinn sanieinar þessa kosti vel í fimm dyra útgáfunni, nokkuð sem er velþekkt i minni bílum. tillit til straumlínulagsins á Sierra við hönnun þessa bíls. Bremsulæsivörn staðalbúnað- ur Það sem helst er talið hafa verið sporðdrekanum til framdráttar er að þetta er fyrsti bíllinn sem búinn er svonefndri bremsulæsivörn (ABS- Anti-Blocade-System) sem staðal- búnaði, sem er bylting út af fyrir sig. ABS er búnaður sem tryggir að hjól bílsins læsast ekki þótt harka- lega sé stigið á hemlana. Það þýðir að bílar skríða ekki til við slíkar aðstæður og það er hægt að gera hið ómögulega - nefnilega hemla og stýra samtímis. Að sjálfsögðu hafa aðrir eiginleik- ar, svo sem aksturseiginleikar og þægindi, verið þungir á metunum. Einnig efstur í Danmörku ogNoregi Jafnframt W - '-~.u+ birt í vali á bíl ársins í Evrópu var til- kynnt um hverjir hefðu orðið efstir í öðrum löndum. í Noregi varð sporð- drekinn einnig í efsta sæti og í Danmörku sömuleiðis. Þar fékk Scorpio 133 stig af 200 mögulegum. í öðru sæti kom hin nýja Mazda 323 með 108 stig og þónokkru neðar kom MG Montego í þriðja sæti með 55 stig, rétt á undan Toyota Starlet 1300 sem fékk 54 gtig. Þar á eftir komu þessir: Súperfimman frá Renault (45), Alfa 75 (44), Subaru Leone 1,8 (19), Toyota MR-2 (17), Seat Ibiza (13), Saab 9000 (5), Seat Malaga (3) og Mercedes Benz W124 (0). Slæm útkoma Saab og Benz hjá frændum okkar Dönum er talin liggja í að ekki höfðu allir þeirra 20 blaðamanna sem þátt tóku í valinu reynsluekið þessum bílum og þeir mættu heldur ekki til leiks hjá Köre- teknisk Institut þegar lokavalið fór fram. í Danmörku vnm ^afhont heiðursverðlaun. Audi 100/200 fékk sérstaka viðurkenningu fyrir heilg- alvaniseringu á yfirbyggingu venju- legs bíls, nokkuð sem tryggir enn frekari vörn gegn ryði. Annað sæti í heiðurslaunaflokki fékk Fiat/ Lan- cia fyrir FIRE 1000 vélina sem knýr m.a. Lancia Y-10 og Fiat Uno 45. Þar var bent á velheppnaða tæknihönn- un og gæði sem meðal annars byggð- ist á notkun vélmenna sem aftur leiddi til lægra verðs. í annað sinn Þetta er í annað sinn sem Ford fær í sinn hlut bíl ársins í Evrópu. Það var árið 1981 sem Ford Escört var valinn bíll ársins. Síðustu fimm ár hefur titillinn fall- ið í skaut eftirtalinna: 1981: Ford Escort. 1982: Renault 9. 1983: Audi 100. 1984: Fiat Uno. 1985: Opel Kad- ► ett. TR Val á bíl ársins hefur undan- farin ár verið nokkuð umdeilt og sitt sýnst hverjum um það hvern- ig til hefur tekist. Ekki skal lagð- ur á það dómur hér en eins og oft hefur verið bent á þá ráða mjög mismunandi sjónarmið því hvaða bílar hljóta náð fyrir aúgum við- Jfomandi blaðamanna. 1 ár til dæmis má nefna að það voru stig ítölsku blaðamannanna sem lyftu Lancia Y-10 upp i annað sætið. Hvort hér var fyrst og fremst þjóðernissjónarmið sem réð ferðinni skal ekki getum leitt að hér en benda má á að mjög mismunandi mat er lagt á bíla í Suður-Evrópu annars vegar og í norður- og miðhluta álfunnar hins vegar. í Mið- og Norður- Evrópu vilja menn fremur bíla með gott innanrými og að breidd og lengd sé hæfileg ásamt góðum búnaði. Þeir í suðrinu vilja frekar bíla sem komast hratt áfram og smjúga vel i umferðinni, nokkuð sem allir þeir sem ekið hafa t.d. á Ítalíu vita mætavel. Stax spáð velgengni Þegar Ford Scorpio kom fyrst á markað var bílnum spáð velgengni. Margir blaðamannanna, sem þá fjöl- luðu um bílinn, notuðu stóru lýsing- arorðin og áttu vart orð til að lýsa þessum arftaka Ford Granada. Það er annars fátt líkt með þessum tveim- ur bílum. Arfur Scorpio er m.a. vél- arnar, auk afturhjóladrifsins, nú þegar flestir bílar eru annars með framhjóladrifi. 1 útliti erbíllinn alveg nýr þótt greinilega hafi verið tekið

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.