Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1985, Side 4
4
DV. LAUGARDAGUR 28. DESEMBER198E
Sigtúnshópurinn:
„Vitum ekki enn
hvað á að gera”
— segir Bjöm Ólaf sson
„Okkurerenr hulið hvaðverður
raunverulega gert.. Við vitum líka
að fólk bíður eftir því að fá að vita
hvað á að gera. Það hefur verið talað
um að það eigi að skuldbreyta lánum
og lengja lán. Þetta eru atriði sem
við höfum lagt áherslu á. Við vitum
til dæmis ekki hvort það eigi að
samræma greiðslubyrði og greiðslu-
getu þeirra sem eru í vanda. Við
höfum lagt áherslu á að öllum
skammtímalánum verði safnað sam-
an í einn banka og greiðslubyrði
samræmd að greiðslugetu hvers og
eins. Ef það verður ekki gert safnast
alltaf að nýju upp vanskilaskuldir.
Ég vona að þær 200 milljónir sem
eiga að fara í ’endurkaup á lánum
af bönkunum geri eitthvert gagn.
Hins vegar söknum við enn þeirra
700 milljóna sem á að afla á næsta
ári með sérstakri fjáröflun, sagði
Björn Ólafsson, einn af forsvars-
mönnum Sigtúnshópsins svokallaða,
í viðtali við DV.
Um breytingar sem gerðar hafa
verið á skattafrádætti vaxta á
skammtímalánum sagði Björn að
þær myndu ekki velta stóru hlassi.
„Okkar hugmyndir hafa verið mun
rótttækari. Við viljum að skattafrá-
dráttur verði mun meiri hjá þeim sem
eru að festa sér húsnæði og að vextir
verði niðurgreiddir.
Það sem verður að gera er að leið-
rétta það misgengi sem hefur orðið
milli lánskjara og launa. Annað
hvort verður að lækka vextina eða
hækkalaunin,“sagðiBjörn. - APH
Stúdentar
og af mæli
„Það útskrifuðust fimmtíu og átta
stúdentar hjá okkur að þessu sinni,“
sagði Kristín Arnalds, konrektor
Fjölbrautaskólans í Breiðholti, í
samtali viðDV.
Af þessum 58 nýstúdentum voru 8
úr öldungadeildinni. Auk stúden-
tanna útskrifaðist stór hópur nem-
enda með verslunarpróf og nokkrir
luku sveinsprófi á tréiðna- og raf-
iðnabrautum, svo og sjúkraliða-
braut.
Af nýstúdentum í öldungadeild
hlaut Hrefna Einarsdóttir hæstu
einkunn en Hörður Andrésson og
Albert Imsland hæstu einkunnir
stúdenta í dagskólanum.
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti hef-
ur starfað í tíu ár. Skólameistari
skólans er Guðmundur Sveinsson.
Á tíu ára afmæli Fjölbrautaskólans í Breiðholti útskrifuðust 58
nýstúdentar við hátíðlega athöfn í Bústaðakirkju 2o. des. sl.
Þú hringir — við birtum og auglýsingin verður færð á kortið.
Nú er hægt að hringja inn smáauglýsingar
og ganga frá öllu í sama símtali.
Hámark kortaúttektar í sima er kr. 2.050,-
Hafið tilbúið:
Nafn — heimilisfang — síma — nafnnúmer — kortnúmer
og gildistíma og að sjálfsögðu texta auglýsingarinnar.
Snjótittlingar.
Fuglatalningar-
dagurá
morgun
Á morgun, sunnudaginn 29. des-
ember 1985, verður haldinn síðasti
náttúrufræðidagur ársins, sá 8. á
þessu ári. Ahugahópur um bygg-
ingu náttúrufræðisafns hefur
staðið að þessum kynningardögum
þar sem teknir eru fyrir ýmsir
þættir úr ríki náttúrunnar, svo og
dæmi um starfsemi væntanlegs
safns. Til dæmis má telja sýningar,
fræðsluferðir og, eins og nú, sam-
starf áhugamanna og vísinda-
manna við rannsóknir. Tilgangur-
inn með náttúrufræðidögunum
er að veja athygli ráðamanna og
almennings á nauðsyn þess að
byggt verði alhliða, nútímalegt
náttúrufræðisafns þar sem aðstaða
er til sýninga á ýmsu því sem við
kemur náttúrunni, svo og til
ýmissa rannsókna.
Að þessu sinni ber náttúru-
fræðidaginn upp á sama dag og
fuglaáhugamenn halda árlegan
talningardag. Fuglatalningardag-
ar eru haldnir ár hvert, oftast milli
jóla og nýárs. Hefur svo verið síð-
astliðin 33 ár, eða frá árinu 1952.
Þetta er eini dagurinn sem segja
má að sé almennt útkall meðal
fuglaskoðara á öllu landinu í einu.
Alls taka 5CM30 áhugamenn þátt í
þessum talningum.
Hvers vegna fuglatalningar?
Tilgangur þess að telja fugla að
vetrarlagi er einkum þríþættur:
1) Að kanna hvaða fuglategundir
lifa í landinu um hávetur.
2) Að kanna hversu algengar
hinar ýmsu tegundir eru.
3) Að fylgjast með ástandi fugla-
stofna, hvort fuglum fækki,
fjölgi eða hvort stofnar standi
í stað.
Fuglatalningar af þessu tagi gefa
þverskurð af því fuglalífi sem hér
er á þessum árstíma. Sá misskihr-
ingur hefur komið upp meðal
þeirra sem þekkja ekki nægilega
til að taldir séu allir fuglar í
landinu. Slíkt er vitaskuld ógjörn-
ingur, enda athugendur sárafáir,
landið stórt og hver talningarmað-
ur kemst aðeins yfir takmarkað
svæði.
telja hinn valda dag, en birtu-
tíminn er ekki nema 5-6 klukku-
stundir á þessum árstíma. Talning
hefst f dagrenningu og talið óslitið
fram í myrkur. Veður ræður að
sjálfsögðu miklu um hvernig til
tekst og oft er kalsasamt við þessa
iðju. Stundum verður að telja á
öðrum degi en þeim sem hafði verið
ákveðinn vegna veðurs. Á þessum
tíma komast menn yfir um 3-8 kma
svæði.
Hvað á að gera á
fnáttúrufræðidaginn?
Á náttúrufræðidaginn 29. des-
ember er öllum sem vilja boðin
þátttaka í fuglatalningu. í stað þess
að leita langt yfir skammt skulu
þátttakendur taka upp kíkinn og
skoða fuglana í næsta nágrenni
sínu. Þátttakendur skulu hafa eft-
irfarandi hluti við höndina: kíki,
fuglabók (besta bókin sem til er á
íslensku til að greina fugla er
Fuglar fslands og Evrópu, öðru
nafni Fuglabók AB), vasabók (eða
blað)ogblýant.
Þátttakendur skoða ákveðið
áfmarkað svæði í nágrenni síns
heima, t.d. garðinn við húsið, næsta
nágrenni sveitabýlis, ströndina
neðan við húsið. Á þessu svæði er
leitað að öllum fuglum og reynt að
finna hvað þeir heita. Rita skal í
bókina allar fuglategundir sem
sjást og hve margir eru af hverri
tegund. Ef fuglahópur er svo stór
að ekki er hægt að telja fuglana
má giska á hve margir þeir eru. í
stað þess að telja allan tímann
meðan birta endist (eins og margir
fuglaskoðarar gera) skal aðeins
talið tvisvar sinnum meðan bjart
er, kl. 12 ogkl. 15.
Þeir sem taka þátt í talningunni
skulu rita athuganir sínar skipu-
lega á blað á þennan hátt: FUGLA-
TALNING 29.12.1985 og síðan
1) Lýsa svæðinu sem var athugað,
hvar það sé og hve stórt.
2) Gera lista yfir allar fuglateg-
undir sem sjást og hve margir
fuglar (ef þeir eru taldir).
3) Rita nafn sitt og heimilisfang.
Blaðið er síðan sent til Náttúru-
Hvernig fara talningar fram? fræðistofnunar íslands, póst-
Talningar fara þannig fram: Val- hólf 5320,125 Reykjavík. Þeirsem
inn er hentugur dagur en talið er senda inn athuganir sínar munu fá
sama daginn um land allt. Tekið sent yfirlit yfir fuglatalninguna
er mið af því hvenær flestir at- þegar allar skýrslur hafa borist og
hugendur eiga frí frá sínum dag- búið er að taka upplýsingarnar
legu störfum. Talningarsvæðin eru saman.
ákveðin fyrirfram. Birtan tak- Áhugahópur um byggingu
markar hversu lengi er hægt að náttúrufræðisafns.