Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1985, Page 5
DV. LAUGARDAGUR 28. ÐESEMBER1985.
5
Menning
Menning
Menning
Menning
Hvítt og svart?
Sjónvarpiö sýnir:
Bleikar slaufur.
Höfundur: Sfeinunn Sigurðardóftir.
Leikstjóri: Sigurður Pálsson.
Tónlist: Hjálmar H. Ragnarsson.
Mynd: Einar Páll Einarsson, Gylfi Vilberg
Árnason, Friörik Friðriksson.
Helstu leikendur: Edda Björgvinsdóttir,
Eggert Þorleifsson, Guðlaug Maria
Bjarnadóttir, Harald G. Haraldsson.
Stjórn upptöku: Elín Þóra Friðtinnsdóttir.
Sjónvarpið frumsýndi á annan
jóladag nýtt íslenskt leikrit eftir
Steinunni Sigurðardóttur.
Við þekkjum stíl Steinunnar úr
sögum hennar en hér eru pensilför-
in enn skýrari, myndin dregin upp
í ennþá ákveðnari litum, líkt og
sjónvarpsúrvinnslan magni and-
stæður og áherslur.
Steinunn sýnir okkur hér mynd
úr íslenskum samtíma, fjöl-
skyldudrama, sem á ytra borði
sýnist svart-hvítt, virðist annars
vegar sýna okkur algóða einstakl-
inga en hins vegar ólánsfólk sem
allt gengur á afturfótunum fyrir
uns yfir lýkur á hinn hörmulegasta
hátt. En þegar betur er að gáð blasa
við skírskotanir og maf gt býr undir
einfaldri sögu.
í leikritinu segir frá tvennum
hjónum og fjölskyldum þeirra. Hjá
þeim Helga og Margréti gengur
allt í hag. Þau hlaða niður börnum
þrátt fyrir þröngan efnahag og
auðvitað kemur stóri vinningurinn
eins og af himnum sendur þeim til
hjálpar þegar ljóst er að næsta
viðbót við fjölskylduna verður
tvöfaldur skammtur. „Við erum
alltaf svo heppin,“ segir Margrét.
En öðru máli gegnir hjá nágrönn-
unum. Þar gengur allt á afturfót-
urtum og þau Erla og Guðmundur
virðast í engu kunna fótum sínum
forráð. Þegar við bætist heilsuleysi
er ekki von að vel fari.
Björtu hjónin verða tákn hins
góða í mönnunum. „Leyfðu börn-
unum að koma til mín,“ segir
Margrét við Erlu og orðalag Bibl-
íunnar fellur áreynslulaust inn í
samtal þeirra. Mikið er lagt upp
úr að sýna trú þeirra hjóna sem
ekki er aðeins í orði heldur miklu
fremuríverki.
Leiklist
AUÐUR
EYDAL
Höfundur stendur álengdar, oft
eins og með bros út í annað, og
reynir hvorki að vekja samúð með
ólánsfólkinu né aðdáun á góðvild
hinna. En ýkt myndin verður oft
til þess að yfirmáta gæska góðu
hjónanna vekur bros og hallæris-
gangur þeirra misheppnuðu sömu-
leiðis.
Allt snýst í höndum ólánsfólks-
ins. Peningagjöf nágranna þeirra
verður þeim til ógæfu og tortíming-
ar. Guðmundur getur ekki einu
sinni drepið konu'sína skammlaust
og hjálpfýsi og góðvild mætir hann
með illyrðum og fólsku.
Eggert Þorleifsson og Guðlaug
María Bjarnadóttir leika þau
Helga og Margi-éti snilldarlega,
svo sem vera ber um svo guð-
hræddar og góðar manneskjur sem
aldrei hækka róm og skipta ekki
skapi hvað sem á dynur. Harald
G. Haralds leikur Guðmund hinn
bakveika. Svartskeggjaður og svip-
þungur hefur hann hefðbundið
útlit hins illa. Edda Björgvinsdóttir
leikur Erlu, konu hans, og nær þar
góðum tökum. Kannski er Erla í
útfærslu sjónvarpsins þrátt fyrir
allt manneskjulegust þeirra fjög-
urra með öllum sínum göllum og
vanköntum sem ekki eru fáir.
Eins og fyrr segir magnar sjón-
varpsútfærslan myndina og yfir
þann hluta sem snýr að „góðu"
hjónunum er hdllt svo dísætri syk-
urbráð að fullkomleiki þeirra vek-
ur stundum bros, til dæmis þegar
Margrét fyrirgefur manni sínum
smáhliðarspor með Erlu. „Helgi
minn, þetta var alls ekki þér að
kenna. Ég segi nú bara: Aumingja
þú að lenda í þessu.“
Aðeins tvisvar sinnum bregður
fyrir blæbrigðum á annars einlitum
persónum. Annars vegar skiptir
hinn annars dagfarsprúði Helgi
skapi þegar systir hans stingur upp
á því að þau gefi börnin. Hins vegar
bregður fyrir mannlegum tilfinn-
ingum hjá Guðmundi þegar hann
brotnar saman og grætur eftir að
hafa hrækt framan í Helga á
sjúkrahúsinu. „Það er ekki einu
sinni friður í helvíti fyrir góðverk-
umþínum."
Tæknivinna, myndataka, lýsing,
hljóðupptaka og klippingar voru
ágætar, án galla, en líka án stórtíð-
inda.
Tónlist Hjálmars H. Ragnarsson-
ar féll vel að efninu. Einsöngur og
kórsöngur undirstrikuðu efnið
einkum lagið Guð vill að ég sé
honum sólskinsbarn sem var notað
til áherslu á tveimur stöðum og
undirstrikaði söguna.
Ekki veit ég hvort öllum hefur
þótt við hæfi að sýna þetta leikrit
á jólum en víst er að mannlífið
verður aldrei til öðruvísi en í öllum
litbrigðum þó að sjaldan sé svo
afdráttarlaust málað í svörtu og
hvítu sem hér var gert í Bleikum
slaufum. AE
Bandalag
háskólamanna:
Reisirþjónustu-
íbúðir fyrir
aldraða félaga
Akveðið hefur verið að hefjast
handa um byggingu 60 þjónustu-
íbúða fyrir aldraða félagsmenn innan
BHM. Þær verða byggðar á vegum
Byggingasamvinnufélags BHM og
öldungaráðs samtakanna. Þetta
ásamt mörgu öðru kom fram á aðal-
fundi BHM sem haldinn var 22. nóv.
sl. Félagsmenn í Bandalági háskóla-
manna eru 5700 talsins í 27 aðildarfé-
lögum. Á þingi bandalagsins á síð-
asta ári gengu sex ný f'élög í BHM.
Eitt félag, Verkfræðingafélag ís-
lands, hefur sagt sig úr bandalaginu
á þessu ári.
Nýmæli.í starfinu er leiga á íbúð
fyrir félagsmenn í miðborg Kaup-
mannahafnar.
1 athugun er nú að leigja íbúðir i
fleiri erlendum borgum. Fyrir at-
beina orlofsnefndar hafa félagsmenn
átt kost á orlofsferðum með veruleg-
um afslætti.
Þá má geta þess að ríkisstarfsmenn
innan bandalagsins eiga 16 orlofshús
að. Brekku í Biskupstungum. .4
þessu ári var bvggð þar reisuleg
þjónustumiðstöð með aðstöðu til
ráðstefnuhalds.
Blaðaútgáfa er mikilvægur þáttux-
í starfsemi BHM en blað félags-
manna kom út fimm sinnum á árinu.
Fleira af starfserm b„núalagsins
var tíundað á aðalfundinum. m.a.
greint frá ráðstefnuhaldi. lögfræði-
þjónustu. könnun á atvinnumálum
félagsmanna og kjaramálum.
Formaður BHM er Gunnar G.
Schram alþingismaður og varafor-
maður Ragnheiður Torfadóttir
menntaskólakennari.EP
ÞG
Lærið ensku í Englandi
Fjölbreytt áætlun kemur út í dag um enskunám í
Englandi, verslunarskóla og námskeið í sérhæfðri
ensku. Ársskólar, en einnig sumarnámskeið. Ensku-
nám fyrir fólk á öllum aldri - frá 8 ára aldri og upp
úr.
Skólarnir eru flestir í Bournemouth á suðurströnd
Englands, en einnig í London.'Kennslutímar á viku
frá 20-40 tímar.
Gisting á einkaheimilum, sérherbergi með baði, wc.
Fæði innifalið. Kynnið ykkur skólana, fáið bæklinga
og skoðið videospólur.
Enska er hagnýtt, alþjóðlegt tungumál, sem notað
er í flestum viðskiptum manna í milli. Við höfum
nú 1 2 ára reynslu í að senda nemendur í slika skóla
með góðum árangri.
Intensive
English Courses
Kynningardagur
á Hótel Esju, 2. hæð, laugardaginn 4. jan.
Þangað er boðið öllum sem vilja kynnast námi i English International skólanum i
Bournemouth. Dagurinn hefst með kennslustundum fyrir hádegi kl. 09.00 og aftur
eftir hádegi kl. 14.00. Skólastjórinn, yfirkennarinn og einn af aðalkennurum skólans
mæta og annast sýnikennslu. Tilkynna þarf þátttöku og afhendum við próf (test)
til þátttakenda sem þeir eiga að svara. Afhenda þarf svör i síðasta lagi kvöldið 3.
jan. til skrifstofunnareða í gestamóttökuna Hótel Esju.
Um kvöldið er öllurn nemendum, ungum sem gömlum. ásamt gestum þeirra sem
verið hafa í enskuskólunum okkar, boðið á diskó sem einn af nemendum skólans
stjórnar. Nýir nemendur velkomnir. Hittumst öll á Hótel Esju kl. 20.00. Heilsum
nýja árinu.
Allar nánari upplýsingar veittar í skrifstofu okkar.
| English
International
RWOOD
College of Further Education Business, Management, Secretarial Courses Feröaskntstola KJARTANS WEF æBBb helgasonar Gnoóavog 44 - 104 Reykjavik - Simi9l-68 62 55 I Símnefni: Istravei - Telex: 2265 Istrav-ls
Courses in Bournemouth, England
/TW fW( ISH !N t'NGL AND