Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1985, Síða 10
10
DV. LAUGARDAGUR 28. DESEMBER1985.
___ ■ ■
Hvað segja stjörnurnar um árið
1986 hjá þér? Vonandi allt það besta,
hugsa víst flestir. Stjörnuspekingur-
inn Patric Walker hefur lagt niður
fyrir sér stjörnukort fyrir næsta ár
fyrir hvert stjörnumerki og birtum
við hér útdrátt úr spá hans fyrir árið
1986. Þetta eru eðlilega aðeins grófar
línur sem hann getur dregið upp af
árinu en svona sýnist honum þetta
verða í stórum dráttum. Gjörið þið
svo vek
Vatnsberinn, 21. janúar - 19.
febrúar:
Árið ætti að byrja vel hjá vatns-
berunum, þ.e.a.s. ef þeir vilja það
sjálfir, stjörnumar eru þeim að
minnsta kosti hagstæðar. J febrúar
koma að öllum líkindum upp pen-
ingavandræði og munu vatnsberar
efast um að dæmið gangi upp í þetta
sinn.
Marsmánuður ber með sér frekari
íjárhagsvandræði en þú kemst yfir
það og þá getur þú gefið sköpunar-
gleði og hugmyndaflugi þinu lausan
tauminn. Einhver vandræði í tilfinn-
ingalífinu koma upp á i maímánuði
og þú þarft að gefa þér góðan tíma
til að vinna úr þeim. Einhver veginn
virðist þú stöðugt lenda-upp á kant
við fólk þetta árið. Kannski liggur
svarið í vanhæfni þinni til að aðlaga
þig breyttum aðstæðum því þó stjör-
numerkið teljist til loftmerkjanna þá
eru vatnsberar oft ósveigjanlegir og
þrjóskir. Ef þú bætir ekki ráð þitt
og reynir að sýna ofurlítinn sveigjan-
leika, sérstaklega í vinnunni, gæt-
irðu lent í klípu.
Með haustinu endurtaka sig vand-
ræðin í tilfinningalífinu, jafnvel
gætu margir vatnsberar lent í skiln-
aði eða sambúðarslitum. I október
fara málin loks að ganga betur og
síðasti dagur þess mánaðar verður
sérstaklega hagstæður þeim vatns-
berum sem eru á leið upp metorða-
stigann. í nóvember verður loks
kominn tími vatnsberans, hvort sem
er í einkalífinu eða í vinnunni, og
engin takmörk virðast vera fyrir því
hversu vel hlutirnir geta gengið.
Síðasti mánuður næsta árs reynir
mjög á þolrif vatnsberanna og nú er
um að gera að sýna sínar bestu hlið-
ar. Að ári ættir þú, vatnsberi góður,
að ígrunda vel framtíðaráætlanir
þínar.
Fiskarnir, 20. febrúar - 20.
giars:
Fiskunum líkar vel við breytingar,
sérstaklega ef þeir stjórna þeim sjálf-
ir. Samt verður þú að sætta þig við
breytingar í upphafi ársins sem þú
getur engu ráðið um. Yfirmenn þínir
munu fylgjast vel með þér og koma
þér á óvart með ýmsum hætti. Það
er ekki bará i starfinu sem ýmislegt,
óvænt gerist, það sama má segja um
tilfinningalífið. Janúar verður tími
breytinga en í febrúar færðu tíma til
að átta þig á hlutunum. Síðan kemur
að því að þú verður að stand^ við
gefindoforð og það veldur þér vand-
ræðum. Við því er ekkert annað að
gera en að koma hreint fram og segja
sannleikann, enda mundi þér líða illa
annars.
Maímánuður verður líkiega erfiður
hjá fólki í fiskamerkinu því þá virð-
ast ráðgerðir þess ei ætla að standast
en látið ekki bugast og standið fast
á ykkar. Fyrri hluti júní er tilvalinn
tími til að hefja ný kynni og jafnvel
skipta um starf. Það er vitað að þú
hefur háleit markmið og ert tilbúinn
til að leggja hart að þér. En þú verður
að fara varlega til að fæla ekki frá
þér þína nánustu, bæði heima og að
heiman, því þú munt þurfa á stuðn-
ingi þeirra að halda vegna mikilla
breytinga sem eiga sér stað í ágúst.
Nokkur vandræði fylgja í kjölfarið
og þú efast jafnvel um réttmæti þess-
ara breytinga. Það er óþarfi því í lok
ársins muntu standa með pálmann í
höndunum og hafa náð því sem þú
ætlaðir þér.
í desember verða svo breytingar
sem byggjast eingöngu á þinni eigin
ákvörðun, bæði tilfinningalega og í
starfi. Þar mun þér standa til boða
öryggi til frambúðar eða áhætta og
veldu hið síðara. Heillastjörnurnar
hafa sjaldan verið þér eins hagstæð-
ar - hvers vegna þá að vera með
áhyggjur?
Hrúturinn, 21. mars-20. apríl:
Mikilvægar breytingar gætu átt sér
stað hjá hrútnum strax í upphafi
ársins en samt ber að varast keppi-
nauta. Besta ráðið er að beita öllum
þeim töfrum sem þú hefur yfir að
ráða og þá mun allt ganga vel.
Ef þú ert dæmigerður hrútur setur
þú sennilega framabraut í starfi
framar persónulegum samböndum og
þú munt koma til með að Jenda í
vandræðum vegna þess í febrúar.
Málin þróast að líkindum á annan
hátt en þú liefðir kosið. Það mun
taka þig nokkurn tíma að átta þig á
hlutunum. Ef þú hefur hugrekki þá
bjóðast þér tækifæri til að byrja nýtt
líf og vinna aftur traust þeirra sem
þú annt. Þetta eru erfiðir tímar fýrir
þig tilfinningalega en þú mátt samt
eklri láta kröfur ástvina þinna hindra
þig í framtíðaráætlunum. Samt verð-
ur þú að viðurkenna að þú ert ekki
eins frír og frjáls og þú þóttist vera.
Þú hefur unnið mikið en það eru
ekki bara peningar, sem þínir nán-
ustu sækjast eftir, heldur þú sjálfur
og því verður þú að gefa eitthvað af
sjálfum þér og draga úr vinnunni,
a.m.k. í smátíma. Stöðuhækkunin
kemur. Með tímanum nærðu aftur
góðu sambandi við fjölskylduna og
getur nú í rólegheitum lagt niður
fyrir þér framtíðina. Þú hefur smám
saman gert þér ljóst að ástæða erfið-
leikanna varst þú. Það verður samt
ekki fyrr en seinni hluta ársins sem
þú gerir þér grein fyrir að lausnin
er að segja algjörlega skilið við for-
tíðina.
Mikilvægast fyrir hrútinn á þessu
tímabili er að stofna til nýrra per-
sónulegra kynna og þiggja góð ráð
hjá nánum vinum. I lok ársins bjóð-
ast þér ýmis tækifæri og ný ævintýri
blasa við en fyrst þarftu að sýna fram
á að þú sért maður sem stendur sig
í stykkinu.
Nautið, 21. apríl - 21. maí:
Þó hlutirnir ættu að ganga vel hjá
fólki í nautsmerkinu í byrjun ársins
þá virðist sem þú hafir ekki skipulagt
tíma þinn nógu vel og þú lendir í
vandræðum þess vegna. Ástvinir
þínir hafa orðið út undan og þú hefur
ekki sýnt þeim þá umhyggju og alúð
sem þeim ber.
Enginn getur verið gjöfulli, elsku-
legri og ástríkari en fólk í nauts-
merkinu og vinátta er því afar mikil-
væg. En það- ótrúlega gerist að þú
munt efast um hvort þú hefur eytt
tíma þínum í einhverja sem voru
þess ekki verðugir. Einbeittu þér að
því sem þú ert að gera og eyddu ekki
orku þinni í óþarfaáhyggjur. Þegar
þér finnst rétti tíminn skaltu byrja á
nýjum verkefnum og ekki reyna að
fara leynt með fyrirætlanir þínar.
Þú verður að gefa þér tíma til að
kynnast tilfinningum annarra og
taka tillit til þeirra.
Það munu fáir skilja að þú þurfir
að breyta svo mörgu og kannski
munu þeir aldrei skilja það, þannig
að stundum finnst þér þú vera
kannski eitthvað skrítinn. Láttu það
samt ekki á þig fá og haltu ótrauður
áfram. Þú verður í þannig aðstöðu
að það þarf ekki mikið til að eyði-
leggja það sem þú hefur lagt grunn-
inn að með ærinni fyrirhöfn. Júlí
verður þinn mánuður og þá muntu
sjá afrakstur erfiðisins en strax í
ágúst lendirðu í aðstæðum sem eru
varasamar og þú verður að fara sér-
staklega varlega til að hrekja ekki
frá þér persónur sem þér þykir mjög
væntum.
I september verður þú að leggja
hart að þér og vinna vel. 1 tilfinn-
ingalífinu kemur ýmislegt þér á
óvart ef þú gefur þínum nánustu
tækifæri til að tjá sig. Það sem eftir
lifir ársins ganga málin heima fyrir
betur en fyrr og þá verða það kröf-
urnar í vinnunni sem valda þér
áhyggjum. Fólk virðist halda að það
geti stjórnað þér en þú verður að
sýna því að svo er ekki og það muntu
gera.
Tvíburar, 22. mai-21. júní:
Persónuleg vandamál virðast hrjá
tvíbura í byrjun ársins. Þú skalt ekki
taka neinar stórar ákvarðanir án
þess að ráðgast við hinn aðilann,
annars áttu á hættu að eyðileggja
hamingju ykkar beggja. Þú munt
efast um að þið séuð að gera rétt.
Tvíburar þurfa frelsi bæði í orði og
verki og þér finnst þú vera heftur á
einhvem hátt. Sambandið mun
breytast og þér finnst þú vera ein-
mana en sá eða sú sem hefur yfirgefið
þig mun sjá eftir því. Þú gerir nýjar
áætlanir og framkvæmir breytingar
sem munu skila árangri bæði heima
fyrir og í vinnunni. Þar með færðu
þá virðingu sem þú átt skilið.
I maí færðu upp í hendurnar óvænt
tækifæri sem leiðir til þess að þú
stofnar til nýrra kynna sem munu
verða til góðs fyrir þig. Júní verður
erfiður hjá tvíburum. Það er sama
hvað þú gerir, allt mistekst. Ef þú
ert dæmigerður tvíburi þá áttu þér
þínar lífsreglur og nú verður þú að
standa við orð þín og læra af reynsl-
unni og reyna að vera umburðar-
lyndari í samskiptum við fólk.
Fjárhagsáhyggjur verða verulegar
í júlí og þú munt líklega þurfa að
leita þér aðstoðar. Seinni hluti sum-
ars og haustið verða tímar breytinga
og óvæntir hlutir gerast í vinnunni
sem hafa áhrif á tekjur þínar. Enn-
fremur eiga sér stað atburðir sem
hafa mikil áhrif á tilfínningalíf þitt.
Þú gerir þér loks grein fyrir hvers
vegna þú hefur svo sjaldan þorað að
sýna tilfinningar þínar.
Það er ljóst að mikilvægar breyt-
ingar á framabraut tvíbura munu
eiga sér stað árið 1986 en þú verður
samt að bíða eftir frumkvæði ann-
arra í þeim málum. í desember verð-
urðu loks að gera upp hug þinn hvað
varðar persónulegt samþand en þú
virðist reiðubúinn að endurskoða
afstöðu þína. Þú munt a.m.k. notfæra
þér aðstæðurnar og ekki gera neitt
sem þú munt sjá eftir er fram líða
stundir.
0
Krabbinn, 22. júni - 23. júli:
Afstaða stjarnanna í byrjun árs hjá
fólki í krabbanum bendir til þess að
nú séu að hefjast nýir tímar hjá þeim.
Eins og kröbbum er gjarnt reynir
þú alltaf að vera hagsýnn og varfær-
inn í öllu sem þú tekur þér fyrir
hendur. En hlutir hafa gerst sem
verða til þess að augu þín opnast og
þér verður ljóst að nú er komið að
þér að taka af skarið. Ættingjar og
vinir munu svo sannarlega ekki láta
standa á stuðningi við það sem þú
tekur þér fyrir hendur.
Nóg verður af vinnu þetta árið. Því
miður getur þú lítið gert að þvi þegar
upp kemur vandamál heima fyrir en
þú verður að reyna að vera þolin-
móður og sýna umburðarlyndi gagn-
vart þínum nánustu allt þetta ár.
Þú ert gefinn fyrir breytingar en
gerðu samt ekkert án þess að ráðfæra
þig við þitt heimafólk. Þegar og ef
þú færð stuðning þess skaltu breyta
til en ekki fyrr. Farðu varlega að
fólki og hafðu það með í ráðum og
þá losnar þú kannski við þá kröfu
sem þér finnst svo oft hvíla á þér,
þ.e. að þú eigir að skipuleggja og
vera leiðtoginn i hópnum.
Þú þarft að taka til hendinni heima
fyrir, sem og hvað varðar frama þinn
í starfi. Þú hefur hlustað of mikið á
gagnrýnisraddir það sem af er árinu
og í september verður kominn tími
til að þú takir þig á og snúir þér
virkilega að því sem þú ert að gera
sjálfur.
Seinni hluta ársins muntu samt
enn á ný standa frammi fyrir því að
allir halda að hlutirnir séu svo ein-
faldir og vel skipulagðir hjá þér. Það
er ekki rétt því vandamál í fjölskyld-
unni skjóta enn upp kollinum. Þú
munt helst vilja komast í burtu frá
öllu. Kannski það verði best fyrir þig
og þína að þú takir þér smáfrí í lok
ársins til að þú getir gert upp hug
þinn.