Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1985, Side 11
DV. LAUGARDAGUR 28. DESEMBER1985.
RNURNAR1986?
þér finnst þú hafa fórnað miklu. Það
mun taka sinn tíma að komast yfir
þessa erfiðleika sem mun há þér
nokkuð i starfi. Reyndu að halda þig
við efnið og sýna þínum nánustu
skilning því það eru fleiri en þú sem
hafa átt erfiða tíma.
í júní tekst þú á við nýtt verkefni
sem þér virðist vera þér ofviða fjár-
hagslega. Þetta verður vissulega
erfitt en horgar sig samt. Keppinaut-
ar gera hvað þeir geta til að standa
í vegi fyrir þér en þú munt hafa
betur. Þessi barátta hefur sin áhrif á
þig og þú þarfnast hvíldar. Þess
vegna verður þú ekki undir það
búinn að takast á við vandamál
heima fyrir og kannski verða þau þér
ofviða. Þú virðist alls ekki þola það
að tilfinningalif þitt sé flókið og þú
virðist eiga erfitt með að gera þér
grein fyrir að ákvörðunum um slik
mál verður ekki frestað. Þrátt fyrir
þetta gengur þér allt i haginn á
framabrautinni og þú klifrar upp
stigann á ótrúlegum hraða. Það
verður til þess að þú lendir í leiðin-
legum aðstæðum á vinnustað en fólk
mun sjá að sér og þú nærð aftur góðu
sambandi við félaga þína.
í lok ársins ferðu enn og aftur að
efast um persónulegt samband og
hvort hlutirnir geti nokkurn tíma
orðið eins og fyrr. Það er ekki hægt
en erfiðum kafla er lokið og nú er
rétti tíminn til að gera upp sakirnar
við þá sem þér finnast hafa komið
illa fram við þig.
Þú verður að fara varlega heilsu
þinnar vegna og munt þurfa að taka
á öllu sem þú átt til vegna breytinga
á vinnustað. Þær munu geta haft
ófyrirsjáanleg áhrif á framtíð þína.
Vertu því á varðbergi vegna þess að
fólk, sem þú treystir, mun sýna á sér
áður óþekktar hliðar. Kjarkur er eitt
af einkennum sporðdrekans og ekki
mun veita af í þeim vandræðum sem
þeir eiga á hættu að standa frammi
fyrir í byrjun sumars. Þú gætir þurft
að standa frammi fyrir þvi að segja
algjörlega skilið við fyrri félaga og
vini og byrja upp á nýtt. Reyndu
sjálfur að standa fyrir breytingum
.og taktu frumkvæðið. Hægt og ró-
lega skaltu endurskipuleggja líf þitt.
Þér mun takast að vinna þannig úr
vandamálum að þú hljótir engan
skaða af.
Seinni hluti ársins einkennist af
alls kvns deilum og árekstrum við
vini og vandamenn. Þú mátt alls
ekki láta það hafa of mikil áhrif á
þig þó á stundum virðist allt vera í
upplausn því það kemur að því að
fólk mun koma hreint fram og þá
kemur í ljós að sökin var ekki öll
þín megin.
••
Ljónið, 24. júlí - 23. ágúst:
Næsta ár verður ár margra óvæntra
atburða hjá fólki í ljónsmerkinu sem
leiðir til þess að ýmsar leyndar
væntingar munu rætast. Töluverðar
breytingar snemma á árinu eru lík-
legar hjá þér en einkennandi er efmn
sem kemur upp hjá þér bæði hvað
varðar starfið og einkalífið.
Þér finnst þú vera að kikna undan
þeirri ábyrgð sem þú hefur tekist á
hendur og hugsar um breytingar. Þú
skalt samt ekki reyna að komast hjá
að standa undir ábyrgðinni enda
muntu fá góðan stuðning hjá þeim
sem þú leitar til með vandamál þín.
í maí er þér hollast að vinna sem
1 mest þú mátt. Þú hefur ekki gert þér
rétta mynd af ástvinum þínum og
fjölskyldu og þú þarft að setjast
niður og skoða hug þinn til þeirra
og þá áttarðu þig á mistökum þínum.
Júlí verður eftirminnilegur fyrir
ljónin því þá kemstu að því að sá/sú
sem þér þykir vænst um hefur ekki
sagt allan sannleikann. En ljónið
hefur ekki heldur verið hreinskilið.
Það. veltir þess vegna fyrir sér hvort
engum þyki virkilega vænt um það
lengur. Þú kemur til með að þurfa
að taka erfiða ákvörðun varðandi
framtíðina í starfi þínu með haustinu
og ennfremur hvað varðar einkalífið.
Ákvörðunin leiðir til þess að þér mun
finnast þú frjálsari en áður og ert
því ánægður. Fjármálin virðast samt
ekki ganga nógu vel en þú færð
tækifæri til að bjarga málunum á
síðustu stundu.
Síðustu þrjá mánuði ársins verður
þú að leggja hart að þér til að sann-
færa þá sem þú umgengst um að
áætlanir þínar komi til með að stand-
ast. Þú leggur hart að þér til að koma
á breytingum heima fyrir sem þú
óskaðir eftir en samt máttu ekki
gleyma því að ættingjar og vinir gera
sínar eigin áætlanir, sama hvað þú
segir. Þegar þú hefur lagt spilin á
borðið er bara að sjá hvernig hinir
spila úr sínum.
Meyjan, 24. ágúst - 23. sept-
ember:
Árið ætti að byrja vel hjá meyjunni,
bæði í vinnu og í tilfinningalífinu.
Óvæntar en ánægjulegar uppákomur
lífga upp á tilveruna. Notfærðu þér
hugmyndaflug þitt og þá ættirðu að
geta nýtt þér aðstæður eins og þú
óskar helst. Þegar kemur fram í
mars gerast hins vegar atburðir
heima fyrir sem geta breytt miklu,
eftir það munu hlutirnir ganga þér í
hag. Þú gefur sköpunargleði þinni
lausan tauminn og færð verðskuldað
hrós á vinnustað.
Með vorinu fer samt að halla und-
an fæti og þú átt í erfiðleikum með
að hafa stjórn á skapi þínu. Þér
finnst þú vera misskilinn sem er í
raun rótt að vissu leyti. Þú ert nauð-
beygður til að gera breytingar sem
þú ætlaðir alls ekki að gera en hafðu
ekki áhyggjur, þær munu nýtast þér
vel þegar fram líða stundir. Þú held-
ur að náinn vinur hafi svikið þig og
ætlar svo sannarlega að láta hann
gjalda þess. Þú ættir kannski að líta
í eigin barm áður en þú dæmir hann
ofhart.
í júlí verður,svo sannarlega kom-
inn tími til að gera upp reikninga
og hafa samband við gamla vini.
Áfram verða samt vandamál og þér
finnst þú vera út undan, eins og eitt-
hvað sé að gerast sem þú megir ekki
vita um. Málin skýrast bæði heima
fyrir og á vinnustað með tímanum
en þú ert samt ekki laus við áhyggjur
af undirferli eða svikum vina þinna.
Þú skalt ekki láta slíkar áhyggjur
taka of mikinn tíma og hugsa heldur
um þinar eigin áætlanir og kanna
hvað þú getur gert sjálfur til að bæta
ástandið.
Þér mun bjóðast tækifæri til að
taka þátt í áhættusömu verkefni
síðla árs og því skaltu taka þó að
fjárhagsstaða þín hafi kannski ekki
verið sem best undanfarið. Samt
verðurðu að fara varlega og gæta
tungu þinnar. Þó árið virðist hafa
verið heldur dapurlegt hjá þér, þegar
þú lítur til baka í desember að ári,
þá muntu sjá að ákvarðanir þínar
hafa skilað tilætluðum árangri, bæði
hvað varðar frama þinn í starfi sem
og í einkalífínu.
Vogin, 24. september - 23. okt- .
óber:
Fólk í vogarmerkinu ætti ekki að
takast á við ný verkefni né gefa stór
loforð í upphafi nýs árs, a.m.k. ekki
í janúar, það má bíða þar til í febrúar
því þá virðast stjörnurnar mun hag-
stæðari.
Þú munt þurfa að endurskoða
persónulegt samband og gera upp
hug þinn hvort rétt sé að halda áfram
á sömu forsendum. Ef þú telur svo
vera þarftu að sætta þig við nýjar
reglur og skilyrði. Þú munt samt
verða fyrir sárum vonbrigðum því
nauðsyn og í júlí ættirðu virkilega
að láta verða af því. Kannski væri
rétt að breyta algjörlega um um-
hverfi en farðu samt varlega.
Geymdu áhyggjur vegna persónulegs
sambands þar til seinna. Þú kynnist
persónu sem ruglar þig í ríminu.
Seinni hluta ársins ættirðu að fara
varlega í vinnunni og reyna að halda
friðinn. Hlutirnir virðast ekki ganga
sem best og þú þarft að leggja þig
allan fram ef þú ætlar að ná settu
markmiði. í lok ársins skaltu ekki
eyða of miklum tíma í að fara yfir
það sem liðið er. Kannski skipulagn-
ingin hafi ekki tekist sem best hjá
þér og þá þýðir ekkert að iðrast
heldur verðurðu að takast á við
vandamálin sem við blasa.
Steingeitin, 22. desember - 20.
janúar:
Árið byrjar ekki sem best hjá stein-
geitum. persónuleg vandamál eru
yfirvofandi og það er ekki auðvelt
að horfast í augu við það. Þér finnst
eins og enginn vilji hlusta á áhyggjur
þínar og láti sér fátt urn fmnast.
Láttu samt ekki bugast. þetta líður
hjá. Þú munt loks öðlast stvrk til að
gera eitthvað-í málinu og þegar þú
hefur gert það mun þér líða betur.
Þú þarft að vísu að taka erfiðar
ákvarðanir sem geta breytt einkalíf-
inu en spurningin er hvort þú átt
einhvern valkost.
í starfinu gengur þér betur og þér
bjóðast góð tækifæri til að bæta hag
þinn og sýna frarn á hvers þú ert
megnugur.
Með vorinu koma betri tímar i
einkalífinu og þá verður þú að sýna
að þú getir gleymt því sem liðið er
ef þú ætlar ekki að eyðileggja sam-
bandið. Þú munt einnig öðlast styrk
til að sýna að þú sért þess verðugur
að eftir þér sé tekið í starfi þínu.
I september og það sem eftir er
árinu hefur þú loks náð þér eftir
vandræðin fyrr á árinu og þinn tími
mun koma þar sem þú færð laun
erfiðis þíns. Samt gerirðu þau mistök
að hafna tilboði sem þínir nánustu
vildu að þú tækir og það hefur áhrif
á samband þitt við fjölskylduna. Þú
skalt samt halda þínu striki í vinn-
unni og ný tækifæri virðast vera á
næstu grösum.
Stytt og þýtt, -SJ.
Sporðdrekinn, 24. október - 22.
nóvember:
Sporðdrekar ættu að byrja árið á því
að gera áætlanir fram í tímann.
Undanfarið hafa sporðdrekar átt í
alls kyns útistöðum við fjölskyldu
sína. En hafið þið gert ykkur grein
fyrir ástæðunum? Nú er heldur betur
þörf á að sýna þolinmæði og skilning
heima fyrir. Ef þér tekst það mun
ástandið batna.
í febrúar færðu tækifæri til að sýna
hvað i þér býr og bæta fjárhagsstöðu
þína. En þú verður að hlusta eftir
þinni innri rödd og vera óhræddur
við að fara eftir henni.
Það virðast ýmsar breytingar vera
í vændum hjá sporðdrekum en erfitt
er að segja fyrir hvaða afleiðingar
þær munu hafa. Samt áttu að geta
veriðbjartsýnn.
Bogmaðurinn, 23. nóvember -
21. desember:
Það er kominn tími til að þú gefir
þér tíma til að hugsa um dagleg
vandamál og gerir fjárhagsáætlanir.
Enginn gerir það fyrir þig og á þessu
ættir þú að byrja árið 1986. í upphafi
ársins muntu kynnast fólki sem á
eftir að reynast þér vel en láttu
skoðanir annarra ekki hafa of mikil
áhrifáþig.
Breytingar í einkalífinu munu eiga
sér stað með vorinu en þér finnst þú
þurfa frelsi til að gera það sem þú
vilt sjálfur. Aðrir skilja kannski ekki
þessa þörf og þess vegna gætirðu lent
í vandræðum. Peningar verða vand-
mál hjá þér, eins og svo oft áður, en
þú ert víst orðinn vanur því. 1 maí
ættirðu aó geta bætt stöðuna en þú
verður að fara varlega og gæta þess
að eyða ekki um of.
Endurskipulagning á lífi þinu er