Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1985, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1985, Blaðsíða 21
t DV. LAUGARDAGUR 28. DESEMBER1985. 21 LYGIOG MISSKILNINGUR Á MISSKILNING OFAN Trúlega er gamla Iðnó við Tjörn- ina það hús í Reykjavík sem hvað mest hefur verið hlegið í - hæst og oftast. Og enn mun hann bresta á með hlátrasköllum í gamla salnum í kvöld, þann 28. desember þegar LR frumsýnir nýjasta hláturtaug- akitlara sinn, „Sex í sama rúmi“ eftir þá félaga Ray Cooney og John Chapman. Jón Sigurbjörnsson er leikstjóri. Karl Guðmundsson þýddi. Það þótti í frásögur færandi eftir eina af síðustu æfmgunum að þeir Jón og Karl sátu í salnum skellihlæj- andi. „Já,“ sagði Jón, „maður er enn að hlæja að þessu. Þetta er einhver magnaðasta flækja sem ég hef komist í tæri við.“ Karl er áreiðanlega sá íslenskra þýðenda sem hvað hnyttilegast kemst að orði - og Jón sá íslenskra leikstjóra sem hvað best kann að „hantera“ farsa svo allir brandarar hitti beint í mark. Þeir kalla hann líka farsa-sérfræðinginn, sumir í Iðnó. Jón segist svo sem ekki kunna því neitt illa en aftekur þó að hann sé einhver sérfræðingur í försum. „En ég hef í mörgum tilvikum verið heppinn með verkefni. Og mér fmnst þetta skemmtilegt. Annars fengist ég heldur ekki við það. - Nei, mér hefur ekki enn dottið í hug að skipta um starf. Ætli maður kunni margt annað en þetta - að fást við leikhús. Það væri ekki nema ég gerðist bílstjóri aftur, eða sneri mér alfarið að hestamennskunni, færi að ala upp hesta til að selja - í stórum stíl. Það verður að vera í stómm stíl ef eitthvað á að hafast upp úr því.“ MISSKILNINGUR - Farsar, Jón - ekki hestar; við ætluðum að tala um farsa og skelli- hlátur ekki hrossahlátur. „Alveg rétt. En líf manns er í samhengi, ekki í mörgum hólfum. Ég hef ómælda ánægju af hestum. Og ómælda ánægju af leikhúsinu." Hann brosir - nei, hlær og skrifar- anum finnst að hann þurfi ekki að spyrja að því hvort Jón Sigur- björnsson sé ánægður með lífið. Það er a.m.k. engu líkara en að svo sé. - Farsi, Jón - hvað er það eigin- lega? Einhver samsetningur sem byggir á misskilningi? „Það er algengt, jú, þannig var Flóin samansett, Fló á skinni. Hvaðeina rekst á annars horn og enginn botnar neitt í neinu. En auðvitað er misjafnt hvernig farsar eru uppbyggðir." - Kannski hægt að leika suma sem tragedíu? „Drama í staðinn? Nú veit ég ekki - en það er áreiðanlega von- laust með þennan farsa sem við erum nú að fara að frumsýna, „Sex í sama rúmi“. Þetta leikrit er sú mesta flækja, mesta flækjuleikrit sem ég hef fengist við. En kannski yrði sýningin bara enn fyndnari ef við reyndum að leika verkið sem drama. Nei, veistu þú mátt ekki kalla mig farsasérfræðing. Ég er það ekki. Ég vil ekki gefa mig út fyrir það. . En dæmalaust er oft gaman að þeim sumum." AÐ VILLA Á SÉR HEIMILDIR „Farsar eru vitanlega ekki með einhverju einu sniði. í þeim sumum gengur allt út á ærsl og læti á sviðinu. Fólk er dettandi um sviðs- munina eða hellandi 'úr koppum hvað yfir annað. Og svo eru aðrir, eins og t.d. „Sex í sama rúmi“, sem byggja á lygi og misskilningi. Menn koma sér í einhverjar að- stæður sem þeir þurfa síðan að losna úr - fólkið er búið að flækja Jón Sigurbjörnsson - „þetta leikrit er sú mesta flækja sem ég hef fengist við“. málin þannig að það er sjálft hætt að botna í tilverunni. Menn eru stöðugt að villa á sér heimildir, stöðugt að leika ein- hverjar aðrar persónur en þeir sjálfir eru. - En svo leysist allt einhvern veginn að lokum. Og þannig á það líka að vera. En þetta er áreiðanlega með flóknari leikrit- um sem ég hef fengist við. Þarna er ansi margt af sama toga og í Fló á skinni. Þetta gefur henni ekkert eftir.“ ÞAKIÐ EKKIFOKIÐ ENN Stundum hafa þær fregnir borist af leiksýningum í Iðnó að áhorf- endur hafi hlegið svo dátt að þakið hafi lyfst af húsinu. Það hefur nú væntanlega verið eitthvað orðum aukið - þetta með þakið. En óneit- anlega hefur maður stundum haft það á tilfinningunni að húsið gæti þá og þegar gliðnað sundur og veggirnir fallið til jarðar þegar hvað mest hefur gengið á. Kannski er það þess vegna að nýja Borgar- leikhúsið er úr rammgerðri stein- steypu - engin hætta á að hlátras- köllin moli hana. Ekki fyrstu 100 árin að minnsta kosti. „Nýja leikhúsið - maður er svo sem farinn að bíða eftir því,“ sagði Jón Sigurbjörnsson. „En annars er Eftir Gunnar Gunnarsson Mynd: Gunnar V. Andrésson HJÓIM LEIKA HJÓINl Níu leikarar fara með hlutverk í „Sex í sama rúmi“. Valgerður Dan og Þorsteinn Gunnarsson leika önnur hjónin. Hlutverkin ættu að henta þeim vel, því þau gera ekki annað í lífinu en að leika hjón. Kjartan Ragnarsson og Hanna María Karlsdóttir leika hin hjónin. Kjartan Bjargmundsson leikur fjöllyndan innanhússarkitekt og Margrét Ólafsdóttir er siðavandur barnabókahöfundur. Lilja Þóris- dóttir leikur vinnustúlku og Sig- urður Karlsson og Rósa Þórsdóttir leika fólk sem til er í framhjáhald. Jón Þórisson gerði sviðsmynd. Daníel Williamsson lýsir. Valgerður Dan og Þorsteinn Gunnarsson í hlutverkum sín- maður búinn að vera svo lengi í Iðnó að maður er eiginlega orðinn klístraður við veggina hér. Sýningin á Land míns föður sýndi að það var mikil nauðsyn á að fá nýtt hús. Það er ekki pláss hér fyrir leikarana - og á mörkum allrar sanngirni að vinna þetta hérna.“ „YFIRMÁTA OG OFURHEITT“ Nei. Þeir sem hafa fylgst með Iðnó-leikurum að tjaldabaki í Land míns föður geta tekið undir það að slíkar vinnuaðstæður eru ósann- gjarnar - og áreiðanlega heimsmet. Mannskapurinn er á þönum ofanúr rjáfri niður fyrir sjávarmál, út á götu og á hendingskasti allt í kringum áhorfendur. Áhorfendur? Þeir skemmta sér. En það er heldur engin sanngirni að kalla Jón Sigurbjörnsson fars- asérfræðing. Hann hefur sett upp margar sýningar af öðru tagi. Við munum eftir Rommí. „Rommí var vissulega enginn farsi,“ segir Jón. „Það var alvarlegt leikrit, nánast tragedía, en með þessu kómíska ívafi. Skjaldhamrar og Þið munið hann Jörund - hvort tveggja eftir Jónas Ámason - eru nú eiginlega mínar uppáhaldssýningar, eða þau verk- efni sem ég hafði mesta ánægju af að fást við. En ég get nefnt fleiri Skáld-Rósa eftir Birgi Sigurðsson var líka skemmtileg að vinna við - en af öðru tagi.“ Jón brosir, hlær ekki. „Manstu eftir „Yfirmáta og ofurheitt'1? - Það var amerískur gamanleikur sem ég setti upp. Þrir leikarar. Allir upp á sitt besta. Mikið fannst mér það skemmtileg sýning. En áhorf- endum fannst það ekki. Þeir komu að minnsta kosti ekki. Það voru örfáar sýningar. Ég var ákaflega skúffaður. En ég hugsa með mikilli ánægju til þessara sýninga sem þó voru.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.