Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1985, Síða 28
FR ÉTTASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu '
efia vitneskju um
frétt — hringdu þá i
síma 68-78-58. Fyrir
hvert fráttaskot,
sem birtist eða er
notað i OV, greið-
ast 1.000 krónur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið i
hverri viku,
Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 1985.
Mikil
snjó-
flóða-
hætta
á Seyðis-
firði
- — annað snjóflóð
féllfgær
Annað snjóflóð féll úr Bjólfi í
Seyðisfirði um miðjan dag í gær.
Engin slys urðu á mönnum né
skemmdust mánnvirki en Fjarðar-
heiðarvegur lokaðist um stundarsak-
ir vegna snjóflóðsins.
Snjóflóðið féll í Mýrarbrekku, sem
er alllangt frá þeim stað er fyrra
snjóflóðið féll á fimmtudag. Lokaði
snjóflóðið veginum til Egilsstaða og
- komst langferðabíll á leið til Egils-
staða ekki leiðar sinnar. Þurfti að
kalla til blásara til að opna veginn
að nýju.
Að sögn lögreglu er snjóflóðahætta
mikil um þessar mundir á Seyðisfírði,
þar sem mikið hefur skafið upp í
Bjólf við norðausturhorn fjallsins.
Hefur öll umferð verið bönnuð um
það svæði.
KÞ
— sjáeinnigbls.2
BillyGrahamí
MHogáAkureyrí
Bandaríski prédikarinn Billy Gra-
ham verður í beinni sjónvarpsút-
sendingu, sem sést í Menntaskólan-
um við Hamrahlíð og Sunnuhlíð á
Akureyri, milli klukkan 15 og 17 í
dag. Þetta er liður í Explo ‘85, fjög-
urra daga ráðstefnu, sem haldin er á
sama tíma í um eitt hundrað borgum
um allan heim. - KMU.
LOKI
■m
Þá er það FT næst —
Framsóknar-Tími!
Símamynd Reuters
Særðir farþegar kúra niðri við gólf í brottfararsalnum í flughöfninni á Rómarflugvelli á meðan bardaginn stendur yfir. Fjórtán létu lifið
og 75 særðust en samtímis var önnur hryðjuverkaárás gerð á flugveilinum i Vínarborg þar sem tveir voru drepnir og þrjátíu særðir.
- Sjá nánar frétt á blaðsiðu 2.
NT hættir um áramót—öllum sagt upp:
Framsóknmeö
nýtt fíokksblað ?
í gær var öllu starfsfólki á dag-
blaðinu NT, 80 manns alls, sagt upp
störfum frá og með áramótum. Þá
var ákveðið á framkvæmdastjórn-
arfundi Framsóknarflokksins að
ganga til viðræðna við framsókn-
arfélögin í Reykjavík um stofnun
nýs útgáfufélags með útgáfu nýs
dagblaðs i huga. Útgáfufélag NT
verður lagt níður um áramótin og
útgáfu blaðsins hætt. Stefnt er að
því að gefa út nýtt dagblað á
rústum NT. Og Framsóknarflokk-
urinnn hefur yfirtekið allar skuldir
NT.
„Skuldirnar eru komnar á herðar
flokksins. Það er ekki ljóst hversu
háar þessar skuldir eru. Það á eftir
að gera upp eigur NT og útistand-
andi skuldir þess. En það er nálægt
sanni að þær séu eítthvað um 80
milljónir," sagði Steingrímur Her-
mannsson, formaður Framsóknar-
flokksins. í viðtali við DV. „Það
verður margra ára starf fyrir flokk-
inn að koma sér út úr þcssum
skuldum en hann hefur lent í öðru
eins áður.“
Um helgina hefjast síðan viðræð-
ur flokksins og framsóknarfélag-
anna í Reykjavík. Líklegt er að
nafn blaðsins verði aftur Tíminn.
Þá þykir ljóst að seglin verði dreg-
in saman í útgáfunni. Það mun
hafa í för með sér að segja þarf upp
starfsfólki. Engin ákvörðun hefur
verið tekin um það. Allir starfs-
mennirnir hafa 3 til 1 mánaða
uppsagnarfrest.
í gær yfirtóku einnig framsókn-
arfélögin eignarhlut Framsóknar-
flokksins í Blaðaprenti, en hann
var 40 prósent. NT eða Tímanum
hefur því enn einu sinni verið
bjargað fyrir horn. En er þá allt tal
um sameiningu Þjóðviljans, Al-
þýðublaðsins og (NT) Tímans úr
sögunni?
„Nei, það er ekki úr sögunni. Það
mál er enn til meðferðar en tekur
iangan tíma,“ sagði Steingrímur.
- APH