Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1986, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1986, Page 2
46 DV. LAUÖARDAGUR 8. MARS1986. Nóg að reyna 21 árs gamall atvinnulaus ungling- ur í London hugsaöi sér að verða sér úti um skotsilfur með því að fremja rán. Hann fékk sér pappírsmiða og prentaði á hann: „Ég er með byssu og ætla að skjóta ef þú lætur mig ekki fá peninga.“ Fyrst rétti hann stúlku einni mið- ann. Hún afgreiddi í lyfjabúð. Og hélt að hann væri að ætlast til ein- hvers ósiðlegs af henni. Og neitaði að líta á miðann. Þá fór „ræninginn" inn í verslun eina. En þar var bara afgreiðslumað- ur sem var nýinnfluttur einhvers staðar frá Asíu. Og sá hristi bara höfuðið og stamaði eitthvað um að hann gæti ekki lesið ensku. í búð númer þrjú fann gamli kaup- maðurinn ekki gleraugun og gat þess vegna ekki séð hvað prentað var á miðann. Það kemur ekki fram í fréttaskeyt- inu hver það var sem hafði samband við lögguna, en þessi misheppnaði ræningi var gripinn og dæmdur í tveggja ára fangelsi, skilorðsbundið. Enda var hann ekki með neina alvörubyssu. Og reyna aft- ur eins og ræningi einn í New York Hann otaði byssukjafti að miða- sölumanni í neðanjarðarlestinni í 1 New York. En sölumaðurinn horfði rólegur í hlaupið, enda sat hann á bak við skothelt gler. Ræninginn sleppti þá ormi undir glqrið. En sölumaðurinn var hvergi banginn og glotti bara. Þá tók ræn- inginn til fótanna. í ljós kom að ormurinn var af snáksætt, en ekki hættulegur. Dýraverndunarfélagið tók hann undirsinn verndarvæng. Kynlíf fyrir milljónir Handritið að hinni taumlausu lýs- ingu Henry Millers á eigin kynlífi var um daginn selt fyrir 165.000 doll- ara, eða nærri 6 milljónir króna hjá Sothebys í New York. Handritið ku vera helmingi stærra en bókin sem byggði á því og var gefin út. Þessir Eng- lendingar! Einn af fréttamönnum Breiðsíðu- nefndarinnar var á ferð í Englandi um daginn. Þar hitti hann Englend- ing sem var Englendingur frá toppi til táar og inn við beinið. Sá góði maður hafði fyrir átján árum verið fjóra daga i París. Og hafði þar með fengið ferðalöngun sinni svalað og taldi sig vita að heimurinn utan Englands væri ekki þess virði að sannur Englendingur liti á hann. Þegar hann frétti að Breiðsíðu- nefndarmaðurinn var kominn alla leið frá Islandi, sagði hann okkur að hann hefði frétt að Grænlendingar, Norsarar og svoleiðis fólk væri óþol- andi sökum skorts á kímnjgáfu. Og að þegar hann heyrði Finna, Svía og svona norðurbúa nefnda á nafn, dytti honum bara í hug rófur í mat- inn, éða svona grænkál sem tekur langan tíma að sjóða. Jæja, sagði okkar maður - það er bara svona. Og óskaði Tjallanum til hamingju með veðrið. Skjaldbök- urnar kusu Markos Á Skjaldbökueyjum sem tilheyra Filippseyjum eru 588 manneskjur með atkvæðisrétt. í nýafstöðnum kosningum á Filippseyjum, sem allir vita hvernig fóru (Markos sagður sigurvegari, en varð eigi að síður að hypja sig úr forsetastólnum og fara „heim“ til Bandaríkjanna) var Markos sagður hafa fengið 1.125 atkvæði. Þannig að 537 atkvæði hljóta að hafa komið frá skjaldbökunum. Eða svo taldi stuðningsmaður Corazon Aquino. Kengúrum fjölgar _ Kengúrum hefur fjölgað um 35% í Ástralíu. Og þessi mikla Qölgun varð öll í fyrra, Eða svo segja áreiðanlegar heimildir. Nú eru kengúrurnar orðn- ar 17 milljónir talsins. Það þýðir að í Ástralíu eru fleiri kengúrur en manneskjur. Manneskjunum finnst það ástand óviðunandi. Og uppi eru fyrirætlanir um að slátra 2,68 milljónum kengúra. Er ekki hægt að fá þessi dýr til að lifa meira á getnaðarvarnatöflum (eða p-pillum?) Eða flytja þær til íslands. Hvernig væri að hafa þessi hopp-dýr í Vest- mannaeyjum? Eða Breiðafjarðareyj- um? Eða í Hafnarfjarðarhrauni? Meira frá Sothebys Það er ekki gott að segja hvar Breiðsíðunefndin væri stödd, ef ekki væri til hið þekkta uppboðsfyrirtæki, Sothebys í London og New York. (Var það ekki þar sem Finnur keypti geirfuglinn? Og hvar er hann nú?) Um daginn voru seldar hjá Sot- hebys í London áður óþekktar mynd- ir úr fjölskyldusafni hinnar gömlu, rússnesku, keisaraættar. Verðið var 155 milljónir króna. Myndirnar höfðu verið teknar á veiðiferðum zar-fjölskyldunnar og ýmsum annars konar skemmtiferð- um. Ein myndin var af Nikulási öðrum, zar sitjandi uppi á hesti framan við herfylki eitt. Það var stórhertogaynjan Xenia Alexandrovna, systir Lása, sem límdi myndirnar inn í albúm á árunum 1904 og 1905. Hundalíf f Indónesíu reyna yfirvöld nú að útrýma þeirri siðvenju þarlands- manna að matreiða hundakjöt því ótti ewr um að hundaæði breiðist út um landið og eigi upptök á hundabú- görðum eða annars staðar þar sem hundar eru haldnir og aldir til átu. I Kanton í Kína aftur á móti, er annað uppi á teningnum. Þar hafa yfirvöldin bannað hundahald - en gefa fólki undanþágu frá því banni ætli menn að borða sinn elskaða seppa. Vaxandi eftir- spurn eftir brúðarslöri Eða svo hefur nefndin heyrt. En þessi eftirspurn er ekki á íslandi, heldur i Austur-Þýskalandi. Þar er

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.