Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1986, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1986, Page 5
DV. LAUGARDAGUR 8. MARS1986. 49 lt yfir í slandi Michel Tournier, (Ljósm. GVA) skrifa? Fimmtón ár unnuð þér að fyrstu bókinni? „Jú, en ég var að gera það sem var ómögulegt. 1 raun og veru er öll sköpun ómöguleg. Það sem er mögu- legt er ekki sköpun heldur fram- leiðsla. Þegar einhver teiknar bifreið er hún orðin möguleg þegar hún er komin á blað og þá tekur framleiðsl- an við. Þegar ég skrifa skáldsögu. á hinn bóginn. helst sköpun og fram- leiðsla í hendur. Um leið og orðin eru komin á blað hefur bæði sköpun og framleiðsla átt sér stað. Um dag- inn var sagt við mig að Marcel Pro- ust hefði ekki getað skrifað verk sín ef hann hefði verið uppi í dag. Eg svaraði því til að það hafi aldrei vei'ið mögulegt. l’roust kom hinu ómögu- lega i framkvæmd. Athugum tónlist- ina og þátt Beethovens. Fyrir hans daga voru Havdn. Hándel og Mozart. Þetta var eina tónlistin sem til var og hún var nátengd fornu valdakerfi konungs og aðals. Franska byltingin ryður þessu úr vegi og svo siglir Napóleon í kjölfarið. Einhver hefði getað sagt: tónlistin er búin að vera. Og Beethoven hefði svarað því til: já. þetta er ómögulegt en ég ætla nú samt að gera það. Hann blandaði Mozart saman við Haydn og Hándel. frönsku bvltinguna og heri Napó- leons og út kom Hetjusinfónían. Þegar ég ákvað að halda út á rit- höfundarbrautina með það í huga að dulbúa héimspekina talaði ég ekki um það við nokkurn mann. Ef ég hefði sagt einhverjum frá því hefði sá sami umsvifalaust sannfært mig um að þetta væri ekki hægt." Nóbelsverðlaun - Við víkjum nú talinu að nóbels- verðlaununum. Tournier hefur verið orðaður við þau og ýmsum fannst hann eiga þau fremur skilið en landi hans. Claude Simon. sem fékk þau i fvrra. ..Nei. ég á ekki mikla möguleika á því að fá Nóbelinn - ég er alltof þekktur! Ég held að ýmsir samlandar mínir ættu þau frekar skilið. Henri Michaux hefði átt að fá þau. Mér finnst að Marguerite Yourcenar hefði átt að fá þau fremur en Simon: hún er besti rithöfundur Frakka nú. Meðal yngri höfunda eru Le Clézio og Patrick Modiano góðir." - Tournier fylgist ákaflega vel með frönskum samtímabókmenntum í starfi sínu í Goncourtnefndinni en hún ákveður hver hljóti hverju sinni þessi eftirsóttu verðlaun. Hann les um hundrað nýjar skáldsögur á ári. Þegar tómstundir gefast sinnir Tournier mest ljósmvndun. ..Ég þurfti að svara því um daginn hjá Tryggingunum hversu margar stundir ég vnni á viku og hversu margar tómstundir ég hefði. Ég margfaldaði vikudagana með 24, því rithöfundur er alltaf að vinna, alltaf að safna efni, alltaf að hugsa um sköpunarverk sín. Ljósmvndunin hefur fært mér rnikla ánægju. Ég kann ekkert að gera með höndunum. ég get ekki teiknað og ekki málað. Ég vissi ekkert hvað ég átti að gera við putt- ana á mér en nú tek ég myndir, fram- kalla og stækka. Og ég er ekki síður ánægður með að hafa lært að meta marga stórkostlegustu ljósmyndara heims. Ég olli hneykslun í fyrrasumar þegar ég var í útvarpsviðtali ásamt fulltrúa ijósmyndafyrirtækis í tengslum við alþjóða ljósmyndasýn- inguna í Arles. Hann kvartaði sáran yfir því að það væri kreppa og æ færri keyptu sér myndavélar. Ég fagnaði því fyrir mitt leyti að það yrðu þá færri fávitar sem tækju myndir í gríð og ergi án þess að vita ueitt um ljósmyndun! “ iidin» . i. ■ -r . A.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.