Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1986, Page 8
52
DV. LAUGARDAGUR 8. MARS1986.
MARS heftið er komið
NÚNA
Tímaritfyriralla
1
3 HEFT|_45.ÁR -MARS 1986-VERÐ KR. 160
< ............................. 2
LUMSKUR Líkaminn, gjöf guðs .... *
STUKÐOMUK ___________ Marilyn: Töfrar hennar ^
LEGGSTÁKONUR
Helstu trúarbrögð heims: ^
■Di_ 77 Hindúisminn ............
1 Hugsun íorðum .......... ^
Á tali við forsetann 3
Með haturskveðju frá Russlandi .
_ _ . Úr heimi læknavísindanna . 4
Marilyn. ................................ 57
TÖFRARHENNAR í^mo:FlóridaíuÍiu ..... 60
deyjaaldrei «^JttiforsnM„............«,
BlS 12 Vina-þáttur ........
HVM) LE©IRSAMAN3£ARL OG KONU?
Bls. 93
g. , Lúmskur sjúkdómur ^
HEIMSOKNI leggstákonur ......—^ 84
HEIMSKIALLARANN Heimsókn í heimskjallarann ...... 8
Í-i 00 Hvað leiðir saman karl og konu. 93
Bls. 00
et*
Kirk Douglas og synir. Til vinstri við hann Joel og Michael
og til hægri Eric og Peter.
eir munu fáir sem
þekkja ekki nafn
Kirks Douglas, kvik-
myndaleikarans
bandaríska, og margir
þekkja einnig nafn sonar hans,
Michaels Douglas, enda hefur
hann hlotið alþjóðlega frægð á
síðustu árum.
Færri vita hins vegar að Dou-
glasfeðgarnir eru fimm, og telst
ættin nú ein sú áhrifaríkasta í
Hollywood og hefur af sumum
verið líkt við Kennedyættina, þótt
starfssviðin séu ólík. Þeir sem það
segja halda því fram að Douglas-
og Kennedybræðumir hafi farið
mjög svipað að; þeir hafi kosið að
móta líf sitt í samræmi við vilja
feðra sinna.
Skrifaði sonunum
bréf eftir bréf
Kirk Douglas, sem er tvíkvæntur,
lék um langt skeið í allt að þremur
kvikmyndum á ári. Hann fór því
víða, innan lands og utan, og í við-
tali, sem nýlega var tekið við hann,
synina og báðar eiginkonurnar,
kemur fram að í lok vinnudags settist
hann oft niður og skrifaði sonum
sínum bréf. Þar hvatti hann þá til
að standa sig betur í skóla, til að
hætta að rífast, til þess að temja sér
hógværð og til þess að leggja hart
að sér í lífinu. Oft minnti hann þá á
hve heppinn hann hefði sjálfur verið
um ævina. „Gleymdu því ekki,“ sagði
hann í einu þessara bréfa, „að ég var
heppinn. Ég var fátækur í æsku og
gat aðeins farið eina leið: Upp á við.“
„Þeir vissu að mér var annt um
þá,“.segir Kirk, sem hafði orðið að
þola það að faðir hans sneri við
honum bakinu þegar hann var fjórt-
án ára. Hann var því ákveðinn í því
að bregðast ekki sonum sínum.
Faðirinn skransali
Faðir Kirks, Herschel Danielo-
vitch, var skransali í New Yorkj-og
einn daginn yfirgaf hann börnin sín
sjö. „Hann var öðrum mönnum meiri
að burðum,“ segir Kirk, en bætir svo
við að meira hafi farið fyrir vöðvun-
um en vitinu. Kirk varð því að heyja
harða lífsbaráttu á unglingsárunum,
og enn er hann að berjast fyrir sig
og sína. Um sjálfan sig segir hann
að hann sé í rauninni alltaf sami
pilturinn, sem gekk um götur New
York, því að hann trúi því aldrei að
hann hafi orðið heimsþekktur kvik-
myndaleikari.
Reynsla hans
hjálpaði sonunum
Þótt synimir fjórir, Joel og Mich-
hhael, frá íyrra hjónabandi, og Eric
og Peter, frá því síðara, hafi ekki
allir haft sama tækifærið til þess að
vera með föður sínum í æsku og á
unglingsárunum þá eru þeir nú allir
í Hollywood, þar sem þeir starfa við
kvikmyndagerð, og öllum er það
sammerkt að þeim vegnar vel í starfi.
Þeir þekkja sögu föður síns, sem
varð að þræla til þess að sjá fyrir
móður sinni, uns honum tókst loks
að komast í St. Lawrenceháskólann,
þar sem hann varð brátt bekkjarfor-
maður. Þaðan komst hann svo í
American Academy of Dramatic
Arts, þar sem hann kynntist fyrra
konuefninu sínu, Díönu Dill, og
skömmu síðar breytti hann nafni
sínu í Kirk Douglas. Með Díönu átti
hann svo Michael og Joel. Eftir
skilnaðinn bjó hún á Austurströnd-
inni með sonunum fjórum, en þeir
héldu þó alltaf sambandi við föður-
inn og heimsóttu hann reglulega í
Hollywood.
Michael er nú heimsþekktur leik-
ari, og má nefna myndir eins og Ro-
mancing the Stone og Jewel of thc
Nile. Joel er framleiðandi og hefur
átt þátt í gerð flestra mynda bróður
síns.
Peter, sem er af seinna hjónabandi
eins og Eric, er bæði framleiðandi
og handritahöfundur, og Eric er leik-
ari, og lék meðal annars í The Flam-
ingo Kid. Móðir þeirra er Anne, og
sér hún um heimilishaldið í húsinu
við North Rexford Drive, þar sem
þau Kirk eiga meðal annars mörg
málverk eftir heimsþekkta lista-
menn.
Átti lika erfitt
á yngri árum
Anne Douglas hét fyrrum Anne
Buydens. Hún var fædd í Belgíu en
flúði til Parísar í heimsstyrjöldinni
síðari. Þar munaði minnstu að Gest-
apo handtæki hana og sendi í fanga-
búðir því að hún var grunuð um að
senda bandamönnum leynilegar
upplýsingar. Hún kunni hins vegar
þýsku og gat blekkt nasistana.
Anne kynntist Kirk við gerð mynd-
arinnar Act of Love, en líf hennar í
Hollywood hefur þó ekki alltaf verið
dans á rósum því að þar fékk hún
krabbamein, sem hún sigraðist þó á,
og nú er hún við góða heilsu, þótt á
sjötugsaldri sé, rétt eins og maður
hennar sem er að nálgast sjötugt.
Stundar líkamsrækt
daglega
Kirk þykir af mörgum mjög ung-
legur miðað við aldur, en leyndar-
dómurinn er líkamsrækt um langt
árabil. Hann fer á fætur snemma á
hverjum morgni og lyftir lóðum og
þjálfar sig í ýmsum tækjum. Hann