Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1986, Side 10
54
DV. LAUGARDAGUR 8. MARS1986.
Þeim sem kUSð
hafafjöll
leiðistá hólunum
íkring
-rætt viðHafliða Hallgrímsson, tónlistarmann
og menningarverðlaunahafa DV
,,Ég held að það sé ekki hægt
að tala um hvert sé hið eiginlega
blómaskeið í ferli listamannsins
fyrr en að honum látnum. Merm
blómstra á mismunandi skeiðum
ævinnar. Sumir eru bráðþroska,
aðrir eru lengi að þroskast. Ég
fer mér hægt og vona að ég sé
í þaim veginn að ná mér á strik
en árangurinn fer að verulegu
leyti eftir því hvort maður fær
tíma ognæði. “
Svo fórust Hafliða Hallgrímssyni orð
er blaðamaður DV hitti hann að
máli nýverið. Hafliði kom hingað í
síðustu viku, gagngert til að veita
menningarverðlaunum DV viðtöku
en þau fékk hann fyrir tónverkið
Poemi og útsetningar á íslenskum
þjóðlögum. Það er skammt stórra
högga á milli hjá Hafliða því fyrir
nokkrum vikum fékk hann önnur
eftirsótt verðlaun - tónlistarverð-
laun Norðurlandaráðs. Eins og fram
kemur að ofan vildi Hafliði ekki
fallast á að þetta tvennt væri sérs-
taklega til marks um að tónsmíðar
hans væru í sérstökum blóma núna.
En eru verðlaunin ekki hvatning?
„Verðlaun breyta sáralitlu um af-
stöðu mína gagnvart sjálfum mér.
Maður veit hvar skórinn kreppir.
Of mikil athygli getur virkað
truflandi á suma, hvort sem um hól
eða gagnrýni er að ræða. Ég viður-
kenni að listamaðurinn þarf að hlúa
að tengslum sínum við almenning
og sætta sig við viðtöl, kynningar
og auglýsingar en engu að síður legg
ég áherslu á að það er ekki hans
hlutverk að auglýsa sjálfan sig. Mér
dettur í hug sagan af kínverska
málaranum sem málaði landslag og
hús á landslagið og svo hurð á húsið,
fór svo inn og lokaði á eftir sér! Eftir
stóð svo listaverkið... “
Kominn þriðjung leiðarinnar
heim
- Þú ert búsettur á Skotlandi, hver
voru tildrög þess að þú settist þar að?
„Ég var búinn að vera búsettur 13
ár í Lundúnum. Ég var búinn að
standa nokkuð lengi í baráttu við
útlendingaeftirlitið. Þetta voru
menningarleg viðskipti en þeir
kröfðust þess um síðir að annaðhvort
fengi ég mér fullt starf eða hypjaði
mig úr landi. Nú, kunningi minn
bauð mér að koma til Skotlands og
gerast fyrsti sellóleikari í Skosku
kammersveitinni. Ég þáði þetta með
þökkum og flutti til Edinborgar. Ég
hafði veri að hugleiða að flytja heim
en hugsaði með mér að Edinborg
væri skref í áttina, ég væri kominn
þriðjung leiðarinnar. Um leið og ég
var búinn að koma mínum málum á
hreint við útlendingaeftirlitið 1983
sagði ég starfi mínu lausu í kammer-
sveitinni til að einbeita mér að tón-
smíðum, síðustu tónleikarnir voru
um jólaleytið. Það var stund sem ég
hafði lengi beðið eftir er ég gekk inn
í vinnuherbergið mitt á nýju ári og
vissi að ég gæti farið að vinna í friði
- með fá bindandi verkefni framund-
an. Það má líkja þessu við að gera
stórátak og taka almennilega til hjá
Tónskáld mega ekki lokast inni
í fílabeinsturni
Ég á nokkuð stóra fjölskyldu -
konu og þrjá stráka, og varð þess
vegna að fást við annað en tónsmíðar
til að framfleyta okkur. Ég álít líka
að tónskáld megi ekki lokast inni í
fílabeinsturni og einangrast frá
umhverfinu. Ég stofnaði tríó - sem
heitir í höfuðið á hollenska málaran-
um Mondrian - og það hefur blómstr-
að. Það verður talsvert að gera hjá
því á næstu vikum og mánuðum,
bæði hljómleikaferðir og plötuupp-
tökur eru bókaðar fram í tímann.
Litlar snjókúlur verða oft fljótt að
snjóboltum! Nú, ég spila líka oft með
nýrri grúppu, New Music of Scot-
land, kem líka fram annað slagið í
sjónvarpi og útvarpi og svo koma
stundum boð frá Lundúnum um
hljómleikaferðir. Ég reyni núorðið
að taka bara slíkum tilboðumi ef ég
kemst til landa sem ég þekki ekki.
Ég fer til dæmis á næstunni til Suð-
ur-Ameríku með lítilli kammersveit
sem nokkrir kunningjar skipa.“
- Er tónlistarlífið fjörugt í Edin-
borg?
„Edinborg er ákaflega alþjóðleg
þegar Festivalið stendur yfir. Yfir
veturinn er líka ágætt tónlistarlíf og
þá er magnið ekki aðalatriðið heldur
gæðin.“
Kraftur sem togar í mann
Hafliði Hallgrímsson hefur verið
búsettur erlendis í rúma tvo áratugi
eða frá 1964. Honum er raunar mein-
illa við að tala um það. Hann segir
að sér líði stundum eins og liðhlaupa
þegar árin séu talin. Enda hefur
hann allan þennan tíma verið á leið-
inni heim. Þriðjungur ferðarinnar er
að baki en ekki er víst að haldið
verði yfir Atlantshafið alveg á næst-
unni.
„Ég finn það alveg á mér í hvaða
átt ísland er í íbúðinni minni í Edin-
borg. Það er þessi segull.... þessi
kraftur sem togar í mann heim. Ef
ég get líkt mér við útvörð íslenskrar
tónlistar sem er í beinu andlegu
sambandi við Island."
Sannleikurinn séður í fjarska
Þrátt fyrir langa fjarveru fylgist
Hafliði vel með hræringum íslensks
tónlistarlífs. Bæði notar hann tæki-
færið og hlýðir á tónlist þegar hann
kemur heim og lætur senda sér það
markverðasta sem skrifað er í íslensk
blöð. Hann segist gjarnan vilja að-
stoða íslenska tónlistarmenn við að
koma sér á framfæri í Edinborg en
enn sem komið er hafi það ekki verið
stórt í sniðum.
„Ég held að verið sé að leggja
grunn að langvarandi tónlistarlífi á
Viðtal: Arni Snævarr
Ljósmyndun: Gunnar V. Andrésson