Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1986, Síða 15
DV. LAUGARDAGUR 8. MARS1986.
59
Fyrsti
framhjóla-
drifni bíllinn
frá Volvo
480 ES
BÍLAR
- sýndur í fyrsta sinn opinberlega
þessa dagana á alþjóðlegu bílasýning-
unni í Genf
Mælaborðið er fullt af nýjungum og örtölvutæknin er notuð til fulls. Getur
ökumaðurinn fengið fram ýmsar upplýsingar um aksturinn og ástand bílsins
iakstri.
Mikið er lagt upp úr innréttingu og öll sæti eru búin þriggja punkta öryggis-
beltum.
Umsjón:
Jóhannes Reykdal
Fremur hljótt hefur verið um vænt-
anlegar nýjungar í bílaiðnaðinum
undanfarið og fáar nýjungar verið
tilkynntar sem vekja mikla athygli.
Alþjóðlega bílasýningin í Genf, sem
opnaði nú fyrir þessa helgi, hefur
yfirleitt verið boðberi nýjunga en nú
er aðeins vitað um örfáar verulegar
nýjungar sem þar munu sjást í fyrsta
sinn. Heyrst hefur af nýjum smábíl
frá Citroen en ekki er vitað nú hvort
hann muni koma fram í Genf. Peuge-
ot verður með nýja útgáfu af „205“-
bílnum og Opel hefur tilkynnt um
ódýra sportlega útgáfu af Kadett sem
þeir kalla „Sprint“. Einn þeirra bíla-
framleiðenda, sem þegar hefur kynnt
nýjungar, er Lada eins og sagt var
frá hér fyrir skömmu en nú er vitað
að til viðbótar við 2108 bílinn Samara
þá kemur splunkunýr smábíll frá
Lada síðar á þessu ári. Þessi bíll
kallast OKA og er á stærð við al-
minnstu japönsku bílana. Einnig eru
Sovétmennirnir með nýja gerð af
Volgu og Moskvitch.
Sá bíll, sem fyrirfram er vitað um
að flestir gesta á bílasýningunni í
Genf þessa dagana munu skoða með
áhuga, er nýi framhjóladrifni Volvo-
inn.
Þessi bíll, Volvo 480 ES, er fyrsti
framhjóladrifni bíllinn sem fram-
leiddur er hjá Volvo og verður smíð-
aður í verksmiðjunum í Hollandi. í
þessum bíl koma fram fjölmargar
nýjungar, bæði hvað varðar hönnun
hennar og útlit og eins í húnaði.
Segja má að að nokkru sé hér tekið
mið af tilraunabílnum LCP2 sem
Volvo kynnti fyrir tveimur árum. Sá
bíll þótti gefa góð fyrirheit um fram-
tíðina.
Mikið hefur verið ritað um þennan
nýja bíl frá Volvo, jafnvel löngu áður
en verksmiðjurnar viðurkenndu til-
vist hans. Voru sögusagnirnar orðn-
ar svo háværar á tímabili að yfir-
stjórn Volvo neyddist til að staðfesta
tilvist bílsins á liðnu hausti og sýna
hann þótt opinberlega sé hann nú
sýndur í fyrsta sinn á bílasýningunni
í Genf. Volvo hefur ekki sinnt „sport-
lega“ markaðinum í fjöldamörg ár,
eða allt frá því að þeir framleiddu P
1800 bílinn á sínum tíma.
Með 480 bílnum kemur fram á sjón-
arsviðið „ný kynslóð“ bíla frá Volvo,
sem sameina bæði nútíð og framtíð.
Haldið er í þær hefðir sem ráðið hafa
ferðinni hjá verksmiðjunum til
þessa, vandaða smíði, öryggiskröfur,
aksturseiginleika og góða endingu.
Tölvutæknin hefur mikið komið við
sögu í hönnun þessa bíls og prófanir
á honum og jafnframt er hún notuð
í bílnum sjálfum.
í útliti er 480 ES líkastur sportbíl
enda hefur bíllinn marga slíka eigin-
leika. En fyrst óg fremst er þetta
fjölskyldubíll af millistærð, kraft-
mikill og lipur, en jafnframt spar-
neytinn. Lögð var mikil áhersla á að
hafa vindmótstöðu sem minnsta til
að minnka eyðslu og auka aksturs-
eiginleika og stöðugleika. Vind-
mótstuðull 480 ES er aðeins 0,34 sem
er með því lægra sem gerist í þessum
stærðarflokki bíla. Á bílnum er ný
hönnun vindkljúfs (spoiler), sem
vinnur þannig að loftið, sem streymir
undir bílinn í akstri, dregur hann
niður og eykur þar með veggrip og
stöðugleika.
Enn sem fvrr er örvggið í fvrirrúmi
hjá verksmiðjunum og umfangsmikl-
ar tilraunir voru gerðar með bílinn
til að ná fram sem mestu öryggi fyrir
ökumann og farþega. Stvrktarbitar
eru umhverfis farþegarýmið og eins
eru þeir staðir f bílnum sem líkleg-
astir eru til að verða fvrir hnjaski
sérstaklega styrktir. Þá er í bílnum
Tilraunabíllinn LCP2, sem kom fram fyrir tveimur árurn, er að mörgu leyti
lyrifrénnári hínsh yj a I8ÖE ST
Vélin er léttbyggð en gefur mikið afl,
109 hestöfl, en er jafnframt sparneyt-
in.
öryggisstýri og tvöfalt hemlakerfi.
Bensíntankur er þannig staðsettur
að hann á ekki að fá á sig högg.í
árekstri.
Mikið hefur verið lagt upp úr inn-
réttingu með þægindi í huga og
mælaborð er á margan hátt nýjung,
en þar kemur örtölvutæknin við
sögu. Getur ökumaðurinn fengið
ýmsar upplýsingar um aksturinn og
ástand bílsins en æ fieiri bílafram-
leiðendur hafa farið inn á þessa braut
í hönnun stjórntækja bíla í dag.
Mikið er lagt upp úr miðstöð og loft-
ræstikerfi bílsins og eru mun fleiri
stillimöguleikar á miðstöð en al-
merint tíðkast í dag.
Volvo 480 ES flokkast sem bíll af
millistærð. Bíllinn er 4,25 metrar á
lengd og 1,70 á breidd. Vélin er íjög-
urra strokka, 1721 rúmsm að stærð,
109 hestöfi (80 kW) við 6000 sn. á
mín. Gírkassinn er fimm gíra. Há-
markshraðinn er 190 km á klst.
Hröðun er góð, t.d. tekur aðeins 9,5
sek. að koma bílnum i 100 km hraða.
Eyðslan er sögð vera um 5,9 lítrar á
húndfaðið í stöðu'gum ákstti á 90 kfn
meðalhraða en 7.9 lítrar í blönduðum
akstri. í þessari útgáfu er bíllinn
þriggja dyra og farangursrýmið er
allgott, eða frá 160 lítrum í venjulegri
stöðu upp í 660 lítra þegar bak aftur-
sætis hefur verið lagt fram.
Mikið hefur verið lagt upp úr því.
að sögn Volvo, að gera allt viðhald
og eftirlit með bílnum sem þægileg-
ast. Er talið að reglubundið eftirlit,
t.d. eftir 2000 km akstur. taki aðeins
25 mínútur enda komi eigandi hílsins
reglulega með hann í skoðun sam-
kvæmt, þjónustuáætlun.
Framleiðendur Volvo bjóða nú,
fyrstir bílaffamleiðenda, átta ára
ryðvarnarábyrgð sem að vísu er
bundin því að eigandinn láti skoða
bílinn skv. þjónustubók verksmiðj-
anna.