Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1986, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1986, Síða 18
62 DV. LAUGARDAGUR 8. MARS1986. John Malkovich varð ekki frægur á einni nóttu. Hann er nú þrjátíu og eins árs, lék lengi á sviði í Chicago en hélt til New York fyrir þrem árum og hefur síðan komið fram í sjónvarpsmyndum og kvikmyndum og leikstýrt og leikið á sviði. Malkovich hefur fengið leiklistarverðlaun sem kennd eru við Clarence Derwent, Obie, Jeff Drama Desk, Outer Critics Circle og til- nefningu til þeirra sem kennd eru við Óskar nokkurn í Hollywood. Sérkennileg stjarna John Malkovich minnir ekkert sérstaklega á kvikmyndastjörnu í útliti, að minnsta kosti ekki Robert Redford gerðina. Hann er þó hærri og myndarlegri en Dustin Hoffman en ennið farið að færast eins mikið aftur á hnakka og á Jack Nichol- son sem þó er til muna eldri maður. Malkovich lét laga í sér tennurnar til að styrkja stöðu sína á leiklist- arbrautinni (eldri bróðir barði úr honum framtönn í æsku) en hann notar gleraugu hvenær sem hann getur leyft sér það starfsins vegna. Á íslandi hafa kvikmyndahús- gestir séð Malkovich sem ljós- myndara í The Killing Fields og Mr. Will, blinda manninn í Places in the Heart. Fyrir síðarnefnda hlutverkið fékk hann óskarsverð- launaútnefninguna. Upphaffrægð- ar leikarans má þó rekja til þess að hann lék ágengan og ofstækis- fullan ungan mann í sjónvarps- kvikmynd sem gerð var eftir leik- riti Sam Shephard, True West. Margir gagnrýnendur héldu að Malkovich myndi festast í hlut- verkum töffaranna, en í Places in the Heart og með því að leika soninn Biff í Sölumaður deyr, sjón- varpsmynd þar sem Dustin Hoff- man leikur sölumanninn Willy Loman, sýndi hann á sér nýjar hliðar. Árið 1985 fór Malkovich svo með aðalhlutverkið í kvikmynd- inni Eleni, sem byggir á sannsögu- legri frásögn bandaríska blaða- mannsins Nicholas Gage. Gage sneri aftur til fæðingarþorps sína á Grikklandi til að komast að því hverjir hefðu myrt móður hans fyrir þrjátíu árum og varð margs vísari. Bókin um þessa ferð varð undireins metsölubók. Kvikmynd- in mun þó nokkuð útvötnuð og harður áróður gegn vondu komm- unum í borgarastríðinu í Grikk- landi. Fjölhæfur leikstjóri Malkovich hefur leikstýrt nú- tímaverkum og einnig leikriti eftir Bernhard Shaw og þykir jafnan takast vel upp þó gagnrýnendur hafi fundið að því að leikur undir stjórn hans sé á stundum fullofsa- fenginn og ýktur. En hvort heldur Malkovich leik- ur ruddafengna unga menn eða rólegri persónur eins og blinda manninn í Places in the Heart virð- ist túlkun hans koma djúpt að innan. Hann er aldrei yfirborðsleg- ur og virðist hafa einstæðan hæfi- leika til að tjá áhorfendum innri mann ólíkra persóna. Malkovich eyðir oft dágóðum tíma í að rann- saka bakgrunn persóna sem hann á að leika en treystir þó ævinlega meira á eigið innsæi. Þegar hann átti að leika hinn blinda Mr. Will var honum til dæmis bent á að heimsækja vinnustofu blindra en hann var þar ekki nema einn dag og treysti eftir það á sjálfan sig við sköpun persónunnar. Malkovich er giftur leikkonunni Glenne Headly og hún leikur ein- mitt eiginkonu Gage í Eleni. Hjón- in kynntust í Chicago og voru bæði meðal stofnenda að leikhúsi sem þau kenndu við Steppenwolf, en margir af samverkamönnum þeirra þar hafa síðan getið sér gott orð á leiklistarsviðinu víða um Banda- ríkin. Hjónin Glenne Headly og John Malkovich sem Gage hjónin í Eleni. Malkovich í hlutverki blinda mannsins i Places in the Heart, leiddur af Danny Glover. - hefur þegar leikið í þrem kvikmyndum, The Killing Fields, Places in the Heart og Eleni, og þykir þegar hafa skipað sér í fremstu röð banda- rískra leikara Headley sér algerlega um fjármál þeirra hjóna þyí Malkovich gafst upp á bankastarfsmönnum - það var hónum einfaldlega um megn að skipta við þennan þjóðflokk. Hún hefur líka þurft að ýta honum út í alls konar' verkefni því Malkovich er ákafur kvartari og vill bara gera það sem honum þykir skemmtilegt þó hann sé í rauninni mesti vinnuþjarkur. Malkovich vildi til dæmis ómögu- lega fara alla leið til Thailands til að vera með í Killing Fields, en þegar eiginkonan hafði nuddað nóg í honum dreif hann sig á staðinn og þótti bara gaman. Úr fjölskyldu sérvitringa Malkovich er alinn upp í smá- bænum Benton í Illinois og fjöl- skylda hans var meðal þeirra efn- aðri í bænum, átti bæjarblaðið Benton Evening News. Afi Malkovich gafst upp á blaðútgáf- unni og lét eiginkonu sína, sem fyrir giftinguna hafði verið vinnu- kona fjölskyldunnar, taka við. Hún er enn að, 82 ára'gömul, og deilir skrifstofu með barnabarni sínu, Danny, bróður John Malkovich. Danny segir að John hafi verið heldur vælulegur krakki og slags- mál tið meðal systkinanna (það var Danny sem braut tönnina í John). Systir þeirra bræðra er líka blað- maður, vinnur í New York og segir að uppeldið hafi ekkert verið á heimilinu og slagsmál þeirra systk- ina mörgum sinnum áhugaverðari en að glápa á sjónvarp. Malkovich var lengi mjög óráð- inn sem unglingur en vinkona hans benti honum á að taka kúrs í leik- list í Eastern Illinois University. Stúlkan gafst síðan upp á samband- inu við Malkovich og það fékk svo mikið á hann að hann flutti sig um set en gat ekki sagt skilið við leik- listina og hóf nám í henni í Illinois State University. Ef þessi kven- maður hefði ekki komið til skjal- anna væri John Malkovich ef til vill blaðamaður hjá ömmu sinni og lesendur Benton Evening News geta velt því fyrir sér hvort þeir hafa einhvers að sakna. -SKJ MALKOVICH Töff ljósmyndari: Malkovich í The Killing Fields. Dustin Hoffman Sölumaðurdeyr. og Malkovich í

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.