Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1986, Side 24
?
V' 24
\
DVjLAUGAíIDAGUíIö; APRÍL1986.
Erlend bóksjá
Erlend bóksjá
Erlend bóksjá
Erlend bóksjá
ELÍZABETU
BOWEN
VMmHUAiiLKMH.VNIXt;
ELIZABETH BOWEN.
Höfundur: Victoría Glendinning.
Penguin Books. 1985.
Skoðanir eru mjög skiptar um
gildi verka írska rithöfundarins
Elizabeth Bowen, sem lést fyrir
þrettán árum, þá á áttræðisaldri.
Þó munu flestir sammála um að
ein af skáldsögum hennar, The
Death of the Heart (1938), og
smásögurnar muni halda nafni
hennar á lofti um ókomin ár.
Ævisöguhöfundurinn og gagn-
rýnandinn Victoria Glendinning,
sem hefur samið þessa ævisögu
Bowen, segir hana vera í hópi tíu
mikilvægustu skáldsagnahöf-
unda þeirra er ritað hafi á enska
tungu á þessari öld austan Atl-
antsála. Það megi nefna hana í
sömu andrá og Virginiu Woolf,
enda sé Bowen í reynd hlekkur-
inn sem tengi saman höfunda
tveggja tímabila þ.e. Woolf við
höfunda eins og Iris Murdoch og
Muriel Spark.
Svo sem við er að búast er hér
fjallað um Bowcn af kunnáttu
og ritleikni sem einkennt hefur
aðrar ævisögur sem Victoria
Glendinning hefur skrifað. Hún
segir jafnt sögu konunnar og
rithöfundarins og tengir það
tvennt saman en Bowen byggði
mjög á sínu nánasta umhverfi við
sagnagerð sína.
'3
ELVIS AND ME.
Höfundar: Priscilla Beaulieu Presley
og Sandra Harmon.
Arrow Books, 1986.
Bandaríska stúlkan Priscilla
Beaulieu var aðeins fjórtán ára
þegar hún hitti fyrst rokkkóng-
inn Elvis Presley, átrúnaðargoð
unglinganna á þeim tíma. Þá var
hann við herþjónustu í banda-
ríska hernum í Vestur-Þýska-
landi.
Þessi fundur varð upphaf fjórt-
án ára náins sambands. Þau urðu
fljótt elskendur og síðar hjón en
skildu árið 1973. Þá höfðu þau
eignast eina dóttur, Lísu.
Priscilla hefur nú sett saman
bók um sambúðina með Elvis.
Þar segir hún frá þeim miklu
áhrifum sem rokkkóngurinn
hafði á líf hennar allt þar til hún
krafðist skilnaðar til þess að geta
lifað sem sjálfstæður einstakl-
ingur.
Það kemur ekki margt á óvart
í þessari bók sem virðist samin
af einlægni. Hér kemur enn fram
að auður og frægð nægir ekki til
lífsfyllingar. Elvis reyndi að bæta
upp tómleika og einmanaleika
með lyfjum. Hann varð fangi
eitursins og féll í valinn á besta
aldri.
Aftáningum og utan-
gavdsfolki í London
INSIDE OUTSIDER - THE LIFE AND
TIMES OF COLIN MACINNES
Höfundur: Tony Gould.
CITY OF SPADES
ABSOLUTE BEGINNERS
MR. LOVE AND JUSTICE
Höfundur: Colln Maclnnes.
Penguin Books, 1985 og 1986.
Á sjötta áratug aldarinnar var
mikil gerjun meðal ungs fólks á
Vesturlöndum. Þá komst á legg
kynslóð sem hafði enga persónulega
reynslu af síðari heimsstyrjöldinni.
Þessu unga fólki fannst að sér þrengt
í því samfélagi sem byggt var upp
eftir styrjöldina og leitaði eigin leiða.
Táningar urðu í fyrsta sinn að-
greindur hópur. Rokkið var tónlist
þeirra. Uppreisnarmaðurinn James
Dean fyrirmyndin.
I Bandaríkjunum varð ein skáld-
saga öðrum fremur tákn táningsins
á þessum árum: Catcher in the Rye
(Bjargvættur í grasinu) eftir Saling-
er. í öðrum löndum birtust einnig
um þetta leyti skáldsögur þar sem
táningar fóru með aðalhlutverkið og
sem af sumum var Iíkt við skáldsögu
Salingers. í Danmörku var það Den
kroniske uskyld eftir Klaus Rifbjerg.
Og á Englandi Absolute Beginners
eftir Colin Maclnnes. Hvorug þess-
ara skáldsagna hafði þó áhrif í lík-
ingu við sögu Salingers.
Einfari
Colin Maclnnes var af enskum
kominn en alinn upp í Ástralíu.
Hann starfaði sem rithöfundur og
gagnrýnandi. Hvergi var hann þó í
föstu starfi heldur lausamennsku hjá
tímaritum og breska útvarpinu,
BBC.
Foreldrar Colins slitu samvistum
meðan hann var á unga aldri en
móðir hans giftist aftur og fluttist
með nýjum eiginmanni sínum til
Ástralíu. Sextán ára að aldri hélt
Colin til Englands á ný og bjó þar
síðan.
Tony Gould, bókmenntaritstjóri
tímaritsins New Society, rekur náið
líf og starf Colins í ævisögunni Inside
Outsider sem kom fyrst út árið 1983.
Þar kemur ljóslega fram að Colin var
sérstæður og að mörgu Ieyti frá-
hrindandi persónuleiki, ekki síst
þegar líða tók á ævi hans. Hann var
einfari, átti hvergi heimili, tengdist
engum varanlegum böndum en átti
þeim mun fleiri skyndisambönd, sérs-
taklega þó við unga pilta af afrísku
og vesturindisku ætterni, en af þeim
var mikið í London þegar á sjötta
áratugnum. Hann drakk mikið og
varð þá tilætlunarsamur og rudda-
legur jafnt við vini sína sem ókunn^
uga.
í London umgekkst hann öðrum
fremur þá sem á einhvern hátt voru
utangarðs í þjóðfélaginu: svarta og
þeldökka innflytjendur sem margir
Bretar höfðu þá þegar horn í síðu,
smákrimma, vændiskonur og mellu-
dólga. Og táninga sem lifðu á mörk-
um þessara undirheima stórborgar-
innar.
Lundúnaskáldsögurnar
Fyrsta skáldsaga Maclnnes sem
vakti athygli er einmitt úr þessum
sérstæða heimi. City of Spades nefn-
ist hún og lýsir þar lífi þeldökkra
innílytjendanna í London. Þessi
saga, sem kom fyrst út árið 1957, er
sú fyrsta af þremur sem nefndar hafa
verið „Lundúna-skáldsögur" Mac-
Innes. Hinar eru Absolute Beginners
(1959) sem áður var nefnd og fjallar
um nokkra táninga og Mr. Love and
Justice (1960) þar sem söguhetjurnar
eru vændiskonur og melludólgar og
lögreglumenn sem eru að eltast við
þau fyrrnefndu. Penguin hefur nú
gefið þessar þrjár skáldsögur út að
nýju ásamt ævisögunni.
Absolute Beginners vakti mikla
Hver sagði hvað?
THE PENGUIN DICTIONARY OF POLIT-
ICAL QUOTATIONS
Safnaö hefur Roberf Sfewart.
Penguln Books, 1986.
„Kjósið Verkamannaflokkinn og
búið til loftkastala. Kjósið íhalds-
flokkinn og þið getið búið í þeim!“
Þessi slagorð, smíðuð af sjónvarps-
manninum David Frost, voru aldrei
notuð í kosningabaráttu í Bretlandi
en hefðu vafalaust átt vel við. Þau
er að finna í þessari fróðlega saman-
safni áhugaverðra ummæla um
stjórnmál.
Hér er bæði að finna fleyg ummæli,
sem margir kannast við, og önnur
sem færri hafa séð. Höfundurinn
hefur lagt mikla áherslu á að fara
rétt með upphafsmenn þekktra yfir-
lýsinga og kemur þar sumt á óvart.
Það kemur til dæmis í Ijós að þótt
ummælin um „járntjaldið" milli
austurs og vesturs séu yfirleitt rakin
til Fulton-ræðu Winstons ChurchiII
árið 1946 þá var þetta hugtak notað
löngu fyrr. Elsta tilvitnunin hér er í
Ethel Snowden, enska kvennrétt-
indakonu, sem notaði þetta orð í bók
um heimsókn sína til Sovétríkjanna
árið 1920: „Loksins erum við komin
bak við jámtjaldið!"
Ummæli eru hér flokkuð eftir höf-
undum en í lok bókarinnar er allítar-
leg lykilorðaskrá sem er afar gagnleg
til að finna öll tilfærð ummæli um
ákveðin málefni.
Svo sem vænta má af enskri bók
eru ummæli eftir enska menn og
ameríska hér í miklum meirihluta,
en þó er víða leitað fanga. Hér má
finna ummæli eftir stjórnmálamenn
að sjálfsögðu, fræðimenn, rithöf-
unda, skemmtikrafta og marga fleiri,
þar á meðal ýmsa sérvitringa sem
komist hafa knálega að orði.
Hér er margt vel sagt og annað
hnyttilegt.
Sumar tilvitnanirnar koma á óvart.
Það mætti til dæmis ætla að óreyndu
að eftirfarandi ummæli væru eftir
einhvern forsvarsmann friðarhreyf- klæði.“ Höfundurinn? Jú, hershöfð-
ingar: „Sérhver byssa sem hleypt er
af, sérhvert herskip sem er sjósett,
sérhver eldflaug sem skotið er á loft
er, þegar allt kemur til alls, þjófnað-
ur frá þeim sem eru hungraðir og fá
ekki mat, eru kaldir og fá ekki
Dlí’TIOMRY ÖF
inginn og forsetinn Eisenhower.
Margt er hér neikvætt um stjórn-
mál og stjórnmálamenn. Skoskur
maður, John Arbuthnot, segir til
dæmis: „Allir stjórnmnálaflokkar
deyja að lokum af því að éta eigin
lygar.“
Krústjoff sagði stjórnmálamennina
vera alls staðar eins: „Þeir lofa því
að byggja brýr jafnvel þar sem engin
eráin.“
Göbbels taldi að stjómmálin rækt-
uðu það versta í skapgerð manna.
Og fyrsti markgreifinn af Halifax lét
þau orð falla að flestir gengu í stjórn-
málaflokk af fáfræði en skömmin
kæmi í veg fyrir að þeir gengju úr
þeim!
Það er vafalaust þarft fyrir stjórn-
málamenn, ekki síður en aðra sem
áhuga hafa á mannlegu samfélagi,
að glugga í bók af þessu tagi. Það
er við hæfi að vitna þar um til
ummæla Michaels Foot: „Menn í
valdastöðum hafa engan tíma til að
lesa. Samt eru menn sem lesa ekki
óhæfir að fara með völd.“
BS.NDARÍKÍN
PAPPÍRSKILJUR lO.Jean M. Auel:
THE CLAN OF THE CAVE
1. Danielle Steel: BEAR.
FAMILY ALBUM.
2. Alice Walker: RIT ALMENNS EÐLIS:
THE COLOR PURPLE. 1. Isak Dinesen (Karen Blixen):
3. Sidney Sheldon: OUT OF AFRICA og SHADOWS
IFTOMORROW COMES. ON THEGRASS.
4. John D. MacDonald: 2. Connell Cowan og Melvin
THE LONELY SILVER RAIN. Kinder:
5. Elmore Leonard: SMART WOMEN, FOOL-
GLITZ. ISH CHOICES.
6. Erich Segal: 3. Richard Bach:
THE CLASS. THE BRIDGE ACROSS
7. Louis L’Amour: FORE VER.
DUTCHMAN’S FLAT. 4. Michael Drosnin:
8. Louis L’Amour: CITIZEN HUGHES.
RIDING FORTHEBRAND. 5. M.Scott Peck:
9. Valerie Sherwood: THE ROAD LESS TRAVELED.
WINDSONG. (Byggt á New York Times Book Review).
athygli á Maclnnes fyrstu árin eftir
að hún kom út, sérstaklega vegna
þess hversu vel honum þótti takast
að lýsa viðhorfum táninga til hinna
fullorðnu og þjóðfélagsins á þessum
tíma. Hafi Maclnnes fallið í
gleymsku síðustu einn til tvo áratug-
ina eða svo þá mun nú væntanlega
úr því bætt um sinn með kvikmynd
sem gerð hefur verið eftir þessari
táningasögu hans og frumsýnd var
nýlega. Þessi mynd er reyndar þegar
komin hingað til lands.
Af skáldsögunum þremur er Ab-
solute Beginners tvímælalaust sú
sem ber aldurinn best, kannski í og
með vegna þess að hún er merkur
vitnisburður um tímabil sem mörgum
er enn hugleikið. City of Spades er
út af fyrir sig forvitnileg þótt tímans
rás hafi óneitanlega heflað af henni
nýstárleikann. Þriðjasagan erþeirra
slökust. Hún virkar oft á tíðum frem-
ur sem upplýsingarit um viðhorf og
lífsstíl vændiskvenna og verndara
þeirra en skáldsaga um einstaklinga.
Ævisöguna er afar nytsamlegt að
hafa við höndina við lestur skáld-
sagnanna: þar eru þær settar í sögu-
legt samhengi, sýnt fram á hversu
vel Maclnnes þekkti til þess veru-
leika sem hann var þar að lýsa, og
reyndar einnig hversu dýru verði sá
lærdómur hans var keyptur.
Umsjón: Elías Snæland Jónsson
GILBERT AND SULLIVAN
Höfundur: Hesketh Pearson.
Penguln Books, 1985.
Nöfn Gilbert og Sullivan eru
svo nátengd í hugum flestra að
annar er ekki nefndur nema hinn
sé hafður með. Með samstarfi
sínu skópu þeir fjórtán léttar
óperur sem margar hverjar eru
færðar upp enn í dag og njóta
vinsælda.
Sambúð þeirra félaga var hins
vegar síður en svo auðveld. Þvert
á móti var hún æði stormasöm á
köflum, og um tíma var um vin-
slit að ræða. Hesketh Pearson,
sá ágæti ævisöguritari, rekur
þessa storma af nákvæmni og
skilningi og skýrir þá. Þeir félag-
ar voru gjörólíkrar skapgerðar.
Gilbert, sem samdi textann, var
afar skapheitur maður (frægt
dæmi er rakið í bókinni þegar
Gilbert kom öskureiður á skrif-
stofu Saturday Review og spurði
um ritstjórann. „Hvað viltu
honum?“ var spurt. „Ég ætla að
berja hann,“ svaraði Gilbert.
Ritstjórinn var auðvitað ekki
við). SuIIivan hafði hins vegar
drauma um að semja tónlist við
alvöruþrunginn texta, „grandó-
peru“ og þótti niðurlægjandi að
semja tónlist við alþýðlega söng-
texta Gilberts - gerði það fyrst
og fremst vegna peninganna og
þeirrar frægðar sem vinsældum
verka þeirra fylgdi.
Þetta allt saman rekur Pearson
skilmerkilega i bók sinni, segir
margar frábærar sögur af þeim
félögum, lýsir sundurlyndi þeirra
og samvinnu sem þrátt fyrir alla
erfiðleika skilaði skemmtilegum
verkum sem sum halda enn gildi
sínu einni öld síðar.