Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1986, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1986, Blaðsíða 15
DV. LAUGARDAGUR12. APRÍL1986. 15 Þeirsem séð hafa Amadeus hafa áreiðanlega ekkigleymt Tom Hulce sem lék Mozart á s vo eftirminnilegan hátt. Fyrirframmistöðuna hlauthann frægð sem endastmun honum um Jangan tíma. Hulce í einni af eldri myndum sínum. Hulce hefur nú leikið í annarri mynd, Echo Park, en henni leik- stýrir Austurríkismaðurinn Róbert Dornhelm. Myndin gerist í Los Angeles og fjallar um konu og tvo menn! leikkonu, vaxtarræktai-- mann og mann sem flytur pizzur heim til fólks. Ýmsum þykir ekki mjög mikið til myndarinnar koma þegar hún er þorin saman við Amadeus en Hulce segist hafa tek- ið hlutverkið alvarlega. „Vildi fylgja túlkun Róberts" „Kvikmynd er mjög háð túlkun leikstjórans," segir Hulce, „og ég vildi fylgja túlkun Róberts. Mér fannst athyglisvert að sjá hvernig hann vinnur því að hann er ekki alinn upp í Hollywood. Þá fannst mér einnig áhugavert að kynna mér stefnu hans í kvikmyndagerð; hann velur sér óvenjuleg viðfangs- efni og gerir skemmtiefni úr því. Það kom meðal annars greinilega fram í She Dances Alone. Vildi ólíkt hlutverk Hulce segir að hann hafi ekki aðeins langað tii þess að vinna með Róbert Dornhelm heldur hafi hann langað afar mikið til þess að leika hlutverk sem væri eins ólíkt Moz- art og hugsast gæti. Það hafi orðið honum enn meiri hvatning til þess að leika pizzufiutningamanninn í Echo Park. „Verði ég fyrir bíl á morgun þá vil ég geta verið stoltur yfir því sem ég gerði síðast." Þann- ig lýsir Hulce hugarfari sínu er hann lék í nýju myndinni. Fæddur i Wisconsinfylki Tom Hulce minnir á margan hátt á New Yorkbúa, ekki síst hreimur- inn. Hann er hins vegar fæddur í bænum White Water í Wisconsin- fylki. Hann var einn fjögurra systkina og fór að heiman gegn vilja foreldra sinna er hann var 15 ára til þess að fara í Norður-Karól- ínuleiklistarskólann. „Það vilja margir fara frá Miðvesturríkjun- um,“ segir hann til skýringar. „Ég held raunverulega að maður sé of ungur 15 ára til að fara í leiklistar- skóla,“ bætir hann svo við. „Mér fannst ég hins vegar verða að gera það. Það gekk ekki vel fyrir okkur heima á þessum tíma. Mamma og pabbi voru að skilja og í rauninni gekk allt á afturfótunum. Ég vissi að sjálfsögðu ekki að ég yrði leikari þegar óg var strákur en ég var þó ákveðinn í að verða eitthvað.' Um tima ætlaði ég að verða söngvari en svo breyttist röddin í mér svo að ég varð leikari í staðinn." Til New York eflir námið Þegar Hulce hafði lokið leiklist- arnámi hélt hann til New York en ekki Hollywood. Hann hafði þá mikinn áhuga á því að leika á sviði og um tíma lét hann sig dreyma um að geta farið á milli leikhúsa í Bandaríkjunum. Er hann hafði ve- rið í heimsborginni í hálfan annan mánuð hitti hann Peter Schaffer (Amadeus) og það varð til þess að hann gerðist varaleikari Peters Hirth í Equus. Svo fór að Hulce tók við hlutverkinu og lék þá á móti Anthony Perkins. Þá var hann aðeins 19 ára og stóð sig vel. Önnur sviðshlutverk Hulce fékk síðan önnur hlutverk á sviði og má þar nefna Rómeó og Júlíu, Mávinn, eftir Chekov, Július Caesar og Tólf drauma. Þá leik- stýrði hann söngleik sem hét Sleep Around Town en svo fékk hann hlutverk í sjónvarpskvikmyndinni Emily, Emily, og það leiddi til þess að hann fór að hjálpa vangefnum börnum. Smáhlutverk í kvikmyndum í fyrstu Fyrstu hlutverk Hulce í kvik- mvndum voru litil. Hann lék i 30/9/55, Those Lips, those Eyes (á móti Frank Langella) og gaman- mynd Johns Landis, National Lampoon's Animal House. Það var hins vegar túlkun Toms Hulce á Mozart sem færði honiun heims- frægð og marga aðdáendur meðal kvenþjóðarinnar. I því sambandi hefur hann stundum vísað í um- mæli stúlku einnar sem sagði: „Hann er svo sætur að mann lang- ar til að stinga honum í vasann." Að verða þritugur Tom Hulce er svo unglegur að það er erfitt að trúa því að hann sé orðinn 29 ára. Hann er bjartsýnn að eðlisfari og það er ekki að sjá að frægðin og velgengnin hafi stig- ið honum til höfuðs. Hann gengur ekki áberandi klæddur og virðist ekki hafa látið fé og frægð breyta venjum sínum neitt að ráði. „Ég vona að ég taki aldrei ákvarðanir af því einu að fé er í boði,“ segir hann, „og vonast til þess að geta valið mér viðfangsefni eftir því hver þau eru og hverjir eiga að starfa með mér, svo lengi sem ég get borgað reikningana mína." Slakar vel á Það heíúr vakið athygli hve vel Hulce slakar á þegar hann er að vinna. Hann viðurkennir þó að það sé ekki meðfæddur hæfileiki heldur hafi hann þegið góð ráð frá sál- fræðingi. „Ég þakka guði fyrir þau,“ segir hann, „því að annars heföi ég aldrei getað skilað af mér hlutverki Mozarts á þann hátt sem ég gerði. Áður fyrr tók ég starfið mjög alvarlega en svo tókst mér að átta mig á því að í því var ekki um líf eða dauða að tefla." Þó sagður samviskusamur Þótt þeim sem til þekkja beri saman um að Hulce fari sér nú hægar en áður þá ber öllum saman um að hann sé afar samviskusamur og búi sig vel undir ný hlutverk. Á meðan á töku Amadeus stóð æfði hann sig á píanó í fjórar stundir á dag, lærði að lesa og skrifa nótur og kynnti sér grundvallaratriði í hljómsveitarstjórn. Hann er mikill áhugamaður um hljómlist (bæði sígilda og popp) og það er því ef til vill ekki að undra þótt hann leiki í Echo Park mann sem semur lög á laun. Erfitt að skýrgreina töfrana Þótt Hulce segi að sig langi til þess að leika undir stjóm allra frægustu leikstjóranna þá á hann erfitt með að skýrgreina töfra leik- listarinnar. „Starf mitt er að gæða sköpunarverk annarra lífi. Það má því vera að við séum töframenn. Ég spyr sjálfan mig oft að þvi hvers vegna ég sé leikari og hvort ég gæti ekki gert eitthvað annað. en sannleikurinn er sá að ég elska þetta starf.“ Þýð. ÁSG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.