Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1986, Qupperneq 2
46
DV. LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1986.
Hughraustir
Kanar
200 Bandaríkjamenn hafa afpantað
herbergi sín í sumar á Grand Hotel
í Torquay í kjölfar þess að frú
Thatcher leyfði bandarískum
sprengjuflugvélum, sem köstuðu
eyðileggingunni yfir Líbýu, að hefja
sitt flug í Bretlandi.
Kanarnir þora ekki til Evrópu -
og allra síst til Bretlands. En nú
hefur hótelstjórinn á Grand Hotel,
Ray Lott að nafni, ákveðið að veita
sérstök „hugrekkisverðlaun" þeim
Bandaríkjamönnum sem samt sem
áður koma til Torquay í sumar.
Verðlaunin verða annars vegar
skrautritað skjal og hins vegar sér-
stakur drykkur sem nefndur er eftir
bandarísku stríðsorðunni „Purple
Heart“ - og er búinn til úr vodka,
bláum Curacao líkjör, grenadin og
grapealdinsafa.
Menn endurheimta hug sinn, hafi
þeir honum tapað, við það eitt að
bragða þennan drykk. Og fylgir sög-
unni að hann sé trúlega hættulegri
en líbýskir hermdarverkamenn.
Framtíðin
tryggð
Norska tlugfélagið Widerö hefur
boðið nýfæddu barni starf sem flug-
freyja.
Barnið fæddist fyrir viku um borð
i flugvél frá Widerö, en félagið sinnir
innanlandsflugi í Noregi.
Eina ráðningarkrafan sem hin ný-
fædda stúlka þarf að uppfylla áður
en hún tekur við starfanum, er að
hafa náð nægilega háum aldri.
Drauga-
gangurí
Kenýa
Járnbrautarstarfsmaður einn í ná-
grenni Nairobi í Kenýa getur nú
varpað öndinni léttar. Loksins eru
menn famir að trúa honum - ef það
bætir eitthvað úr fyrir honum. Mað-
urinn hafði lengi sagt ógnarlegar
draugasögur af afturgöngum sem
gerðu honum og fjölskyldu hans lífið
leitt. Og enginn lagði trúnað á orð
hans. En nú hafa nokkrir blaðamenn
orðið vitni að reimleikunum - og
allir trúa.
Blaðamennirnir sáu hvernig flösk-
ur skullu fyrir eigin krafti í veggi og
í þá sjálfa og hvernig vatnsfata hellti
úr sjálfri sér.
Járnbrautarstarfsmaðurinn, Will-
iam Ndungi Michobo, hefur skýrt
mönnum frá því hvernig drauga-
pakkið hefur molað sundur baðher-
bergið hans, baðker, handlaug,
salernisskál og allt annað naglfast í
gömlu íbúðinni og að auki grýtt
börnin hans.
Michobo skipti um íbúð - en þá
gerðist hið undarlega, a.m.k. finnst
okkur, skyggnum Islendingum, það
óvenjulegt: draugarnir fluttu með
honum.
| - Og nú hafa þeir magnast, segir
Michobo - þeir skirrast ekki við
óþokkabrögðin um hábjartan dag.
Kanar sáu
aldrei draug
Enn um draugagang: Þegar Bretar
komu til fslands og hernámu oss í
stríðsbyrjun kom í ljós að þeir sáu
alla þá drauga sem íslendingar
þekktu til og höfðu séð. Og reyndar
sáu þeir marga ffeiri því margur
draugurinn fór að gera vart við sig
þegar breski herinn fór að vera með
jarðrask, umbætur og niðurrif,
drykkjusöngva um nætur o.s.frv.
Breiðsíðan hefúr jafnvel heyrt af því
að Bretar hafi snúið sér til bæjar-
stjórna eða fógeta í byggðarlögum
og kvartað undan draugum á ís-
landi. En reyndar þekktu þeir fyrir-
bærið heiman að frá sér og vissu að
það var náttúrlegt. Draugar eru auð-
vitað bara hluti af lífríkinu.
Þegar svo Ameríkanar leystu Breta
af hólmi við varðstöðuna úti hér b.rá
svo við að allir draugar stungu sér
í gleymsku og dá. Ekki befur Breið-
síðan frétt af einum einasta Kana
sem hafi séð draug á fslandi.
Verðugt viðfangsefni fyrir reim-
leikafræðinga.
Dýr klukka
Sænsk fjölskylda, sem ekki vill láta
nafiis síns getið, hefur sett gömlu
ættarklukkuna sína á uppboð.
Klukkan var saman sett á fimmtándu
öld og talin mjög verðmæt. Trúlega
fær fjölskyldan vel þegna viðbótar-
peninga og getur skroppið í sumarfrí
í ár.
Klukkan á að kosta 35 milljónir
króna, reyndar rúmlega það. Það var
safnari nokkur sem keypti klukkuna
til einkasafns síns og borgaði með
svissneskum frönkum. Klukkan var
smíðuð i Frakklandi úr bláu emalji
og gulli, sett demöntum.
Vor er í lofti. Hvar er ykkar?
Liðþjálfa-
list
í kjallara i húsi einu nærri Huy í
Belgíu hafa fundist 20 málverk, sem
flestir bendir til að Adolf Hitler fyrr-
um liðþjálfi hafi málað.
Myndirnar fundust í kistu, sem auk
myndanna var full af peningum frá
árinu 1913. Myndirnar voru af
landslagi og byggingum á Flandri,
ÁSKRIFENDA
ÞJÚNUSTA
KVARTANIR
ÁSKRIFENDUR ERU
VINSAMLEGAST BEÐNIR
AÐ HAFA SAMBAND VIÐ
AFGREIÐSLUNA,
EF BLAÐIÐ BERST EKKI.
Við höfum nú opið lengur:
Virka daga kl. 9-21
Laugardaga kl. 9-14
SfMINN ER Z7022
AFGREIÐSLA
Þverholti 11 - Sími 27022
A BLAÐSOLUSTOÐUM
Ákaflega fom í mér
enda alinn upp á
safni
Viðtal við Þórarin
FIHiárn
Karlaklúbbar
Arkitektalegur, lista- Alltsem þig hefuralltaf
mannslegur, fríkaður langað til að vita um
fatahönnuður og skrif- kræklinga,.. en þorðir
stofustúlkuyfirbragöið ekki að spyrja