Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1986, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1986, Síða 3
DV. LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1986. 47 en þar var þessi liðþjálfi á vappi á árunum 1914 til 1918. Ef þessi liðþjálfabulla hefði nú bara haldið sig að málverkinu! Á næsta leiti Langdrægur tölvuteikn- aður svighringur Uppfinningamaðurinn Alan Adler hefur hannað svifhring (frisbee) sem lengst hefur svifið 318 metra. Það er heimsmet. Fyrra met var sett með öðrum hring sem Adler hannaði, hann komst 261 metra árið 1980. Hringur Adlers er holur að innan, ólíkt venjulegum svifhringjum. Galdurinn við hringinn er þunn rönd yst á hringnum. Hún gerir hann stöðugan. Hringurinn er gerður úr hörðum polykarbonatkjama en mjúkt plast er látið utan um. Það var tölva sem hannaði hring- inn. Flösku- póstur Nokkrir strákar í Massachusetts í Bandaríkjunum skrifuðu bréf hvar i þeir óskuðu eftir bréfavinum. Svo settu þeir bréfið í flösku og vörpuðu flöskunni í Atlantshafið. Fimmtán mánuðum síðar tók flaskan land í Louro á N-Spáni. Og þar fann níu ára gamall drengur hana. Dagblaðið „La Voz de Galicia" (Rödd Galisíu) birti bréfið og nú hafa strákamir frá Massachusetts eignast marga bréfavini. Það er langt síðan einhver kenndi mér samkvæmisleik sem er þannig að í upphafi fara þrír menn inn í herbergi með tvær flöskur á mann, drekka úr flöskunum og að því búnu fer einn þremenninganna út úr herberginu. Síðan eiga þeir tveir sem eftir eru að reyna að finna út hver það var sem fór. Ekki veit ég af hverju mér datt þessi ágæti leikur í hug einmitt núna en það er örugglega ekki vegna þess að sveitarstjórnarkosn- ingar standa fyrir dyrum þótt þær standi fyrir dyrum og alls staðar vanti betri höfn, nema kannski á Egilsstöðum, betri vegi, betri sam- göngur í lofti og sums staðar meira að segja áfengisútsölu. Svo las ég það í einhverju blaði ekki alls fyrir löngu að fólk á Reyð- arfirði væri enn að bíða eftir einhverri verksmiðju, sem á það fyrir höndum að breyta mannlífinu á staðnum, lífríkinu við fjörðinn og atvinnuhorfum vörubílstjóra. Það kemur sem sagt alltaf í ljós skömmu fyrir kosningar hvað bet- ur má fara í þjóðlífinu en þó hef ég ekki heyrt neinn frambjóðanda úti á landi kvarta yfir skorti á pan- hópum og leðjusýningum í sinni heimabyggð en ef marka má aug- lýsingar er þetta það næstskemmti- legasta sem hægt er að hugsa sér. Það skemmtilegasta er nektar- sýning og þegar þetta er skrifað er enn verið að auglýsa eftir fram- bjóðendum sem láta standa á sér einhverra hluta vegna. Ekkert nýtt Um svipað leyti og ég var að uppgötva muninn á sjálfum mér og óæðra kyninu, ég komst að því eft- ir talsverðar rannsóknir að það var Háaloft BENEDIKT AXELSSON innflutningurinn búinn að klæða sig úr hönskunum og sveifla þeim í kringum sig á svo tælandi hátt að maður á næsta borði blístraði og taka af sér trefil. Fleiri fötum fækkaði blessuð konan nú ekki í það skiptið fyrr en uppi á slysadeild. Vonandi verða íslenskir nektar- sýnendur ekki látnir hoppa mikið yfir bekki. Alvara lífsins Eins og ég gat um áðan eru kosn- ingar á næsta leiti og af því tilefni eru frambjóðendur í Reykjavík til sýnis á vinnustöðum þar sem talað er um alvöru lífsins og grjótið frá Portúgal. Þetta grjót er víst einhvers staðar á Laugaveginum og þess vegna er viðbúið að þó nokkuð margir hafi traðkað á þessu kosningamáli nú þegar þótt ég sé ekki einn af þeim. Ég hef ekki einu sinni séð þetta grjót sem veldur svona mikilli geðshræringu hjá borgarfulltrúum en hins vegar bjó ég fyrir löngu í Kópavogi og þar þurfti maður ekk: aldeilis að gera sér ferð á hendur til að virða fyrir sér stein. Maður þurfti ekki annað að gera en líta út um glugga. Og nú er aðeins vika í kosningar og því kannski nokkuð seint að koma með tillögu um breytingu á fyrirkomulagi þeirra en ég hef stundum verið að velta því fyrir mér hvort ekki mætti spara bæði tíma og peninga með því að láta frambjóðendur til dæmis keppa í hástökki. Kveðja Ben. Ax. miklu síðhærðara, voru framtaks- samir menn i óðaönn að flytja inn fatafellur og þótt merkilegt megi virðast var ekki farið fram á niður- fellingu á tolli eins og björgunar- sveitir gera til dæmis þegar þær kaupa snjóbíla. Þótt ég ætti að sjálfsögðu ekki að segja frá því hér varð ég eitt sinn svo frægur að horfa á svona kvenmann og var nálægt því að komast að raun um það sem að- greinir kynin fyrir utan síða hárið. Þessi viðburður átti sér stað í Sjálfstæðishúsinu við Austurvöll og það sem mér er einna minnis- stæðast frá þessu kvöldi er það að tiltölulega snemma þurfti innflutta konan að klofa vfir bekk sem var á sviðinu en þá tókst svo illa til að hún datt um bekkinn og meiddi sig. Áður en þetta óhapp varð var - Hvað er það sem við ættum að gefa borginni okkar í afmælisgjöf á tvö hundruð ára afmælinu? Hann hallar sér yfir borðið, rauð- eygður og rámur, byrjaði að halda upp á afmælið um áramót og segist ætla að halda því áfram fram að næstu áramótum. - Þetta er borgin sem hefur alið okkur alla við brjóst sér, hér lærð- um við að spila fótbolta á mal- bikinu, svo var borginni fyrir að þakka að við þurftum ekki að reka bcljur kvölds og morgna eða eltast við rolluskjátur upp og ofan snar- brattar brekkur! Hann réttir úr sér meðan hann fer með þessa ástarjátningu og lítur sigri hrósandi í kringum sig að henni lokinni. En það nennir eng- inn að hlusta á hann svo hann fornemast og lemur í borðið. Þetta er elsta byggð á íslandi, hér kom Ingólfur aðvífandi og sá landkostina blasa við, þó heimskir þrælar nöldruðu! En þau voru sam- heldin og dugleg hjónin, a.m.k. finnast þess engin merki að Hall- veig hafi nöldrað! Og svo sitjið þið hér, arftakar Ingólfs, og nennið ekki um annað að tala en fótbolta! Einn viðstaddra lét nú svo lítið að svara ræðumanninum og upp- lýsti hann um það að Valsarar væru nú Islandsmeistarár, eins og viðeigandi væri á afmælisári Reykjavíkur, og nú væru menn að ræða nauðsyn þess að Revkjavík- urliðyrði aftur Islandsmeistari í ár! Það væri útaffyrirsig ekki slæm afmælisgjöf, segir unnandi Reykja- víkur treglega. En ég var nú að reyna að láta mérdetta í hug ein- Hyldýpið Olafur B. Guðnason hverja veglegri afmælisgjöf á þessum stórmerku tímamótum. Hvað er það sem helst er að í Reykjavík? Honum gekk teglega i fvrstu að fá okkur til þess að viðurkenna að nokkuö væri að í Reykjavík. en að lokum skapaðist eining um eftir- farandi vankantalista. 1. Reykvíkingar eru fúllvndir. 2. Umferðarmenning engin. •^,3. Bíl astæði ófinnanleg. •L Húsin Ijót. 5. Hnattstaða afleit. ætti að vera mun suðlægari. Já. það er nokkuð til í þessu. sagði unnandi Revkjavíkur. hugsi. Viö getiun lítið gert við lvndis- einkunn íliúanna! Enda held ég að fúllyndi Revkvíkinga stafi ekki síst af því hvað umferðin gengur treg- lega. Revkvíkingar eru alltaf of seinir. hafiði tekið eftir því? - Svo er það þetta með arkítekt- úrinn í Reykjavík. Um það verður ekki deilt að Reykjavík er ekki borg hinna fögru bygginga! Allar fegurstu bvggingar í borginni voru bvggðar áður en fyrsti íslendingur- inn lærði húsagerðarlist. - Hnattstaðan er óhagstæð. ég er því sammála. Það hafa runnið upp þeir vetrarmorgnar að ég hef velt því fyrir mér af liverju lngólfur sigldi ekki eitthvað suður á bóginn. til Kanarí. eða Azór! En við hnatt- stöðunni getum við ekki gert annað en að bíða eftir loftslags- breytingu. Unnandi Revkjavíkur brosti nú breitt. - En umferðarmenningin er annað mál! Vitið þið af hverju Reykvíkingar eru alltaf svona til- litslausir i umferðinni? Þeir eru nefnilega alltaf að luigsa um það hvar þeir geti lagt bílnum! Það er bílastæðaskorturinn sem skapar vonda umferðarmenningu. Reyk- vikingar ættu að færa sjálfum sér bilastæði í afmælisgjöf! Hugsiði vkkur morgunn afmælisdagsins. þúsund ný bílastæði opin almenn- ingi í fvrsta sinn. Og þennan fyrsta' dag vrðu engir stöðumælar heldur risastór kerti! Og bílstjórarnir mvndu blása á þau um leið og þeir legöu bíhtnum. Unnandi Revkjavíkur hugsaði sig um andartak, og ljómaði svo allur. Svo mætti auglýsa Reykia- vík erlendis. eins og stórverslan- irnar hér heima. og klykkja út með slagorðimt: Nasg lúlastæði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.