Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1986, Síða 7
DV. LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1986.
51
Claude Picasso.
Paloma Picasso, nú eftirsóttur hönnuður.
Arfleifð
Picassos
Pablo Picasso, einhver frægasti og ríkasti mynd-
listarmaður sem uppi hefur verið, lést án þess
að gera erfðaskrá. Nánir vinir hans töldu að það
hefði verið með ráðum gjört. Eftir jarðarförina sagði
Paulo, sonur listamannsins, við blaðamenn: „Faðir
minn minntist aldrei á erfðaskrá meðan hann var á
lífi því hann vildi ekki heyra á dauðann minnst."
Franska ljóðskáldið André Verdet
bætti við: „Á Spáni er það ekki til
siðs að strengja heit eða gera erfða-
skrár. Gamalt katalónskt máltæki
segir að sá sem skrifi undir erfðaskrá
undirriti um leið eigin dauðadóm."
Picasso reyndi í lengstu lög að
halda í æsku sína og storka Elli kerl-
ingu. „Allt sem ég geri geri ég fyrir
nútíð,“ segir hann á einum stað.
En hann hafði líka megnustu fyrir-
litningu á allri opinberri afskipta-
semi og skrifræði enda hafði hann
efni á því. Það var honum mikils
virði að geta gefið heiminum langt
nef þegar honum sýndist „dire merde
á tout le monde“. Því hefði hann
eflaust haft takmarkaðan áhuga á
þeim skýrslugerðum og skrififinnsku,
sem fylgir erfðaskrá. Picasso taldi sig
hafa skilað sínu dagsverki, nú máttu
aðrir gjöra svo vel að sjá um afgang-
inn.
En eins mikill hrekkjalómur og
æringi sem hann var, hefur Picasso
sennilega brosað í kampinn við til-
hugsunina um þá ringulreið og
deilur sem dauði hans mundi orsaka.
Hundruð milljóna
Eftirlátnar eignir hans voru gífur-
legar, bæði að umfangi og verðgildi.
Meðal hús- og jarðeigna hans voru
Chateau de Vauvenargues, sem er
höll frá miðöldum í Suður-Frakk-
landi, ásamt með 2600 ekrum lands,
stórhýsið Notre Dame de Vie á Cote
dÁzur, 17. aldar höll, Chateau de
Boisgeloup í Normandí, sem Picasso
keypti á kreppuárunum en bjó ekki
í síðustu 38 ár ævi sinnar, og 15 her-
bergja villa í Cannes sem ber nafnið
La Californie.
í dag gætu þessar eignir verið 150
milljón króna virði.
Picasso lét einnig eftir sig miklar
peningafúlgur í Banque Nationale
de Commerce Industrielle í París,
hugsanlega meira en 200 milljónir
króna á núverandi gengi.
En mestu auðæfi Picassos var þó
að finna í listaverkum hans. Hann
hélt til haga öllu sem rak á fjörur
hans og er hann lést fundust í fórum
hans hálfrar aldar gamlir hattar,
skór og verkfæri, dreifð um alla dval-
arstaði hans.
En Picasso safnaði fleiru en gömlu
drasli. Hann keypti myndir eftir aðra
listamenn, bæði eftir vini eins og
Braque, Matisse, Miró og Cocteau.
og lærifeður, svo sem Cézanne, Cour-
bet, Degas og Corot.
Þessar myndir mundu nú vera
metnar á yfir hundrað milljónir ís-
lenskra króna.
Eigin verk aðalgóssið
Þá er aðalgóssið eftir, þ.e. Picasso-
myndir Picassos. Allt frá þvi á þriðja
áratug aldarinnar hafði Picasso fyrir
sið að kaupa margar mynda sinna
til baka, sérstaklega þær sem hann
hafði neyðst til að selja þegar hann
var ungur og snauður.
Sjálfur seldi hann sjaldnast myndir
nema að vel yfirveguðu ráði og einn
umboðsmanna hans, Heinz Berrgru-
en, sagði að Picasso hefði ævinlega
haldið eftir „bestu myndunum, eink-
um þegar um myndraðir var að
ræða“.
Enn liggja ekki fyrir upplýsingar
um fjölda og verðgildi þessara verka,
þótt úrval þeirra hafi verið á farand-
sýningunni „Picassos Picassos" fyrir
nokkrum árum.
En stuttu eftir að Picasso lést var
það skoðun virts bresks sérfræðings,
Nicholas Adam, að hans eigin verk
mætti meta á 50 milljón sterlings-
pund og geta menn því gert sér í
hugarlund hvers virði þau eru í dag.
Við erum alltént að tala um nokkur
hundruð milljóna íslenskra króna.
Skilgetin börn og óskilgetin
Erfingjar skiptust í þrennt, ætt-
ingja listamannsins, franska ríkið og
liststofnanir, þ.e. listasöfn. Ættingj-
arnir voru: ekkja Picassos. Jacquel-
ine, Paulo (f.1921), sonur Picassos og
rússnesku ballerínunnar Olgu Kok-
hlovu, sem lést 1955, fyrrverandi
kona Paulos, Emilienne og 23 ára
gömul dóttir þeirra, Marina, og þrjú
óskilgetin börn Picassos, Maia (f.
1935), dóttir Marie-Thérése Walter.
og þau Claude og Paloma (f.1947 &
1949 ), börn Francoise Gilot.
Franska ríkið gat síðan átt von á
erfðaskatti og ákveðnum fjölda lista-
verka. Listasöfn um víða veröld, í
New York, París. Antibes, Barce-
lona, Madrid o.fl. biðu einnig í
ofvæni eftir að fá að vita hvað kæmi
i þeirra hlut þar eð Picasso hafði
munnlega lofað að gauka einhverju
að þeim í fyllingu tímans.
En ýmis ljón voru í veginum fyrir
snurðulausri afgreiðslu erfðamál-
anna. Samkvæmt frönskum lögum
erfir ekkja ekki mann sinn nema
þess sé sérstaklega getið í kaupmála
eða hjónavígsluvottorði. Ekkert
slíkt var fyrir hendi hvað Jacqueline
snerti. Því erfði hún aðeins 50 %
þeirra eigna sem Picasso hafði
áskotnast eftir 1961, árið sem þau
giftust.
Skildu aldrei
Meðal þessara eigna var vitanlega
fjöldi listaverka en rétt er að hafa
hugfast að Picasso eignaðist flestar