Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1986, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1986, Síða 13
DV. LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1986. 57 bara dómarinn x Vinnutíminn er langur, vinnan er erfið, kaupið er lágt og óhorfend- ur eru þeirrar skoðunar að þeir geti sjálfir innt starfið betur af hendi. Þeir umgangast ríkt og firægt fólk en verða sjólfir hvorki ríkir né frægir, og í eina skiptið sem þeir komast í fréttirnar er þegar þeim verður eitthvað ó. Þeir eru alltaf fyrir augum fólks en þó veit varla nokkur hvað þeir heita. Eng- inn klappar fyrir þeim þótt þeir séu jafii lengi ó íþróttavellinum og aðr- ir og þeir vinna aldrei. Hverja er verið að tala um? Jú, auðvitað íþróttadómarana. Hvers vegna þá dómari? Það er þvi ekki að furða þótt ýmsir spyrji hvers vegna nokkur vilji vera íþróttadómari. Og hvert er svarið? Það virðist vera það að áhugi á íþróttum reki menn til þess; oft menn sem vildu gjarnan keppa en eru annaðhvort orðnir of gamlir eða geta ekki keppt lengur vegna meiðsla. Það er að minnsta kosti víst að fáir sækjast eftir dómara- starfi peninganna vegna enda fó sumir dómarar - til dæmis rugby- og tennisdómarar - aðeins greidd- an útlagðan kostnað við starfið. Hvaö fá knattspyrnudómar- arnir? Margir sem fylgjast reglulega með ensku knattspyrnunni vildu víst gjarnan fá að vita hvað dómar- arnir fá. Þeir eru nýbúnir að fá kauphækkun og fá nú 50 pund . (3000 krónur) fyrir leikinn. Einn þeirra, Brian Hill, sem er þrjátiu og átta óra, segir um starfið: „Við erum þeir sem allir vilja vera á móti. Áhorfandinn er aðeins með okkur þegar við dæmum mark til handa liðinu sem hann fylgir. Á öðrum stundum vildu þeir helst sjá okkur detta beint á hausinn eða gleypa flautuna.“ Hvers vegna sóttist hann þá eftir dómarastarfinu? Hill er bókhaldari hjá by ggingafyrirtæki og til þess að geta sinnt þessu áhugamáli sínu verður hann að dæma leiki ó laug- ardögum og sækja nómskeið eða hlusta ó fyrirlestra á sunnudögum. „Maður nýtur hins vegar samvis- tanna við félaga sína,“ segir hann, „og svo er um að ræða íþrótt.“ Vinna flestir við annaö Flestir dómarar hafa fasta vinnu. Þeir sem sjást í grænum jökkum á háum stólum ó Wimbledon eru tannlæknar, læknar, kennarar og gleraugnasalar á virkum dögum, og í Tennisdómarasambandinu breska eru einnig slökkviliðsmenn og lögregluþjónar. Þá er einn út- fararstjóri í því og einn fiskbúðar- eigandi. Hnefaleikadómarinn Larry O’C- onnell, sem hefur dæmt þegaisAlan Minter, Frank Bruno og Barry ' McGuigan hafa verið í hringnum, vinnur daglega við að skera út í silfur og gull. Og Malcolm Hunt- ingdon, sem dæmdi á Wimbledon 1983 þegar McEnroe og Lewis léku, er íþróttafréttamaður. Glímudóm- arinn Joe D’Orazia kennir hins vegar þroskaheftum bömum. Löng og erfið leið Það getur tekið langan tíma að verða alþjóðadómari í knatt- spyrnu. Flestir byrja á því að dæma minni háttar leiki en vinna sig svo smám saman upp og það er ekki óalgengt að alþj óðadómarar verði menn ekki fyrr en um fertugt. „Maður verður í rauninni að vera afar áhugasamur til þess að fara að dæma,“ segir Neil Midgley sem er nú 42 ára og alþjóðadómari. Hann byrjaði að dæma 1959. „Það er þreytandi að fara á milli valla úti um land og dæma leiki fyrir hálft annað pund (90 krónur). Þeg- ar maður kemst hins vegar loks til þess að dæma leik í Evrópukeppn- inni og sér alla fánana á vellinum þó verður manni ljóst að það var þess virði að leggja á sig allt þetta erfiði." Stuttur starfsaldur Knattspyrnudómarar verða að hætta þegar þeir verða 48 ára. Eng- in slík aldurstakmörk gilda fyrir rugbydómara en þegar hugsað er til þess að þeir verða stundum að hlaupa um 15 kílómetra í einum leik þá er skiljanlegt að þeir eru fóir eldri en fimmtugir. „Árleg þolpróf eru nauðsynleg fyrir knattspyrnudómara," segir Brian Hill. „Maður verður að geta fylgst með leiknum. Einn háskólanna gerði á því athugun hve langt dóm- arar hlaupa á meðan á einum leik stendur og komust að þeirri niður- stöðu að vegalengdin væri 16 til 19 kílómetrar. Það er sennilega lengra en sjálfir leikmennirnir hlaupa.” Hættulegt starf Það má ekki gleyma því að starf íþróttadómarans er ekki með öllu hættulaust. Reyndar má oft telja dómarann í talsverðri hættu. Þannig gerðist það nýlega að dómari í hnefaleikakeppni í Kan- ada varð fyrir höggi annars kappans og féll í öngvit. Varð að fá annan dómara í hans stað. Tennisdómarar þurfa oft að gæta sín ó boltanum sem þýtur í gegnum loftið á miklum hraða. Fyrr á þessu ári fékk tennisdómari bolta i and- litið og brotnuðu þá gleraugu hans og annar fékk bolta í brjóstið og lést úr hjartaslagi. Sá atburður gerðist í Bandarikjunum. Þá er það gömul daga um að drasli sé fleygt í knattspyrnudóm- ara. Það er hins vegar ekki einhlítt að dómarinn einn verði fyrir því að einhverju sé fleygt í hann. Þannig segir Brian Hill að í fyrra hafi hann orðið að yfirgefa leik- völlinn eftir læti sem enduðu með því að annar markmaðurinn missti meðvitund eftir að einhverju hafði verið fleygt í höfuð hans. Einmana menn Ý msir halda að dómararnir kynnist frægum iþróttagörpum og eigi með þeim góðar stundir. Það telst þó mjög til undantekninga í flestum greinum og í sumum tilvik- um er dómurum hreinlega bannað að umgangast leikmenn. Þannig er það til dæmis í knattspvrnu og tennis. Dómararnir búa ekki einu sinni á sömu gistihúsum og leik- mennirnir og drekka ekki með þeim kaffi eða te á leikvanginum. Og að loknum leik halda knatt- spyrnu- og tennisdómararnir beint heim til sín. Reglumar eru þó aðr- ar þegar rugbydómarar eiga í hlut. Þeim er heimilað að sitja kvöld- verðarboð rygbyfélaganna og mega meira að segja æfa með leikmönn- unum og flytja fyrirlestra ó félags- fundum. Er þetta meðal annars réttlætt með því að mgby sé mjög tæknilegur leikur og skipti það máli að dómaramir geti lært af sjálfum leikmönnunum. Ánægjan samt oft mikil Þóttkaup knattspymudómara sé lítið miðað við það sem leikmenn- irnir fá og þeir hafi oft þurft að leggja mikið ó sig fó þó þeir sem lengst ná og dæma milliríkjaleiki oft að ferðast til margra landa. Það fá ýmsir þeirra að gera nú á ári heimsmeistarakeppninnar en þeir sem til þekkja munu þó flestir sam- mála um að þeir fáu, sem það fá, eigi það vel skilið. „Sá sem stefnir að því að verða dómari," segir einn úr stéttinni, „elskar íþróttina. Oft hefur hann sjálfur verið leikmaður sem hefur haft svo gaman af því að vera með að hann vill endur- gjalda þá ánægju. Maður myndi vissulega ekki leggja þetta á sig ef maður hefði ekki ánægju af því enda myndi enginn gera það fyrir peningana eina.“ ÁSG tók saman

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.