Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1986, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1986, Blaðsíða 9
DV. FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1986. 9 Utlönd Utlönd Utlönd Utlönd Noregur: Engin stúdents- húfa í ár Björg Eva Erlendsdóttir, Stavangri: Verkfall sýslu- og bæjarstarfsmanna í Noregi, sem staðið hefur í rúma viku, virðist ekki ætla að leysast á eðlilegan hátt. Hvorugur deiluaðilinn vill láta neitt af kröfum sínum og umsvif verk- fallsmanna gerast meiri dag frá degi. Ef fer sem horfir neyðist ríkisstjómin til að gripa inn í. Gro Harlem Brundtland hefur haft nóg að gera frá þvi hún tók við embætti forsætisráðherra fyrir skömmu. Nu er talið að hún muni grípa inn í vinnu- deilur í Noregi. Allt stöðvast Síðustu tvo daga hefur sjónvarp að mestu legið niðri, einungis fi-éttatímar hafa gengið eins og venjulega. Dag- skrá útvarpsins hefur einnig verið stórlega skert, til dæmis hafa engar sendingar verið á rás tvö. Ennfremur hafa öll almenningsfarartæki í Osló stöðvast. Kennaradeilan er enn óleyst og þús- undir nemenda á framhalds- og háskólastigi fá engin prófekírteini i vor vegna þess að prófdómarar eru í verkfalli. Þar hafa engar undanþágur verið veittar. Hins vegar hafa verið veittar undanþágur svo að sjónvarpa megi knattspymuleikjum frá heims- meistarakeppninni í Mexíkó og knattspymuvöllum landsins er haldið opnum. Þetta þýðir glögglega að fót- bolti er Norðmönnum nauðsynlegri en flest annað. Prófskírteini, strætisvagn- ar, sjúkrastöðvar og margt fleira má sigla sinn sjó því að fótboltinn frá Mexíkó hefur forgang. Neyðarástand eftir helgi En eftir helgina vandast málið enn frekar. Þá stöðvast hreinsunardeildir um allt land. Þetta gerist á versta tíma því að um helgina verður haldið kamival í Osló og fleiri bæjum. Reynslan hefur sýnt að miðbær Osló minnir mest á svínastíu eftir þá hátið og má því búast við að ástandið þar verði illþolanlegt strax á mánudag. Löghlýðnin varð þjófnum að falli Tvenn mistök urðu bílþjófi einum í Tokýo að falli er hann stal Mercedes Benz bifreið í miðborg Tokýo. í fyrsta lagi gleymdi hann að athuga hvort nóg bensín væri á bflnum. í öðm lagi gleymdi hann að athuga hvemig bflbeltin virkuðu. Eftir að hann hafði samviskusam- lega spermt beltið, eins og lög gera ráð fyrir, varð hinn 30 ára gamli Hideharu Tsujimoto fyrir því óhappi að verða bensínlaus á hraðbraut í úthverfi borgarinnar. Vegalögreglan fann hann fastan í Benzinum þar sem hann reyndi árang- urslaust að losa öryggisbeltið. Hann hefur verið kærður fyrir þjófri- að. Söngvari biður um pólitískt hæli Sovéskur söngvari hefur beðið um pólitískt hæli í Bandaríkjunum, eftir að hann vann sigur í alþjóðlegri söngvakeppni í Tokýo, að því er haft er eftir japönskum embættismönnum í dag. Flóttamaðurinn heitir Vyacheslav Mikhailovich Polosov, þrjátíu og sex ára, frá Úkraínu. í japanska útvarpinu var sagt að hann hefði borið sigur úr býtum í „Madam Butterfly'1 keppninni síðasta mánudag. 65 þátttakendur frá 14 lönd- um tóku þátt í henni. Á miðvikudaginn birtist svo Polosov á lögreglustöð í Tokýo, og bað um vemd. Andrés önd kom upp um þrjötinn Andrés önd var aðalsönnunargagn- ið, sem gerði lögreglunni kleift að komast til botns í glæp, sem framinn var um borð í jámbrautarlest. Eftir að hraðlestin fór frá Newc- astle, í Norðaustur-Englandi, girti knattspymuáhugamaðurinn, Alan Jo- nes, niður um sig buxumar fyrir framan Donnu Seton, sem einnig var farþegi. Seinna kleip hann hana í rass- inn er hún var að teygja sig eftir farangri sínum. Donna, sem er tuttugu og tveggja ára gömul, fór úr lestinni í York og sagði lögreglunni frá því sem á daga hennar hafði drifið. Hún færði lögregl- unni einnig sönnunargagn. Hún hafði séð stóra mynd af Andrési önd húð- flúrað á aðra rasskinn kauða. í Peterborough stöðvaði lögreglan lestina og bað Alan Jones um að girða aftur niður um sig. Ekki var um neitt að villast. Þama blasti við Andrés önd í öllu sínu veldi. „Konan gaf svo góða lýsingu á húð- flúri mínu, að ég gat okki haldið því fram að þeir hefðu tekið rangan mann,“ sagði hinn tuttugu og tveggja ára gamli Alan Jones, eftir að hann hafði verið sektaður um 250 sterhngs- pund fyrir dónalega hegðun og árás. Kjarnorkufár í Svíþjóð Gunnlaugur A. Jónsson, Lundi: Ekki er enn ljóst hve alvarlegar afleiðingar kjamorkuslysið í Chernobyl hefur haft í Svíþjóð. Því hefur jafnvel verið haldið fram að Svíþjóð sé það land, utan Sovétríkj- anna, sem hafi orðið verst úti af völdum slyssins. Þetta hefur gert sænska kjamorkuandstæðinga ákveðnari í málflutningi sínum en um árabil. Þeir krefjast þess að sænsku kjamorkuverin verði lögð niður og að undirbúningur þess hefj- ist þegar í stað. Styr um Barsebáck Athyglin beinist einkum að kjarn- orkuverinu í Barsebáck á Skáni. Hörðustu andstæðingar kjamorku í Svíþjóð krefjast þess að Barsebáck- verið verði þegar í stað lagt niður og fá þeir dyggilegan stuðning dönsku þjóðarinnar í þeirri kröfu. Danska þingið samþykkti á dögun- um að óska eftir því við Svía að verið verði lagt niður og hefur Ing- var Carlsson, forsætisráðherra Svíþjóðar, Ibfað Dönum því að rann- sókn verði þegar í stað hafin á því hvaða afleiðingar það hefði sér ef Barsebáck-verið yrði lagt niður. Ástæðan til þess að Barsebáck er öðmm kjamorkuverum, sænskum, fremur í sviðsljósinu er einföld. Inn- an fjörutíu kílómetra radíusar frá Barsebáck búa um fjórar milljónir manna. Bæði Kaupmannahöfh og Malmö eru innan þessa radíusar. Allir virðast sammála um að stað- setning kjarnorkuversins hafi verið einstaklega klaufaleg á sínum tíma. Nægilegt öryggi? Kjamorkuandstæðingar benda að sjálfsögðu á að afleiðingar kjam- orkuslyss verði ekki teknar aftur og benda á að þrátt fyrir allt öryggið gerist kjarnorkuslys. Dæmin sýni og sanni það. „Það er ekki spuming um hvort kjarnorkuslys verður held- ur hvar og hvenær næsta slys verður. Það er lika rangt að öryggi í sænskum kjamorkuverum sé miklu meira en erlendis," segir Olof Johan- son, aðaltalsmaður sænska Mið- flokksins í kjamorkumálum og verðandi varaformaður flokksins. Miðflokkurinn hyggur gott til glóðarinnar Miðflokkurinn virðist nú vera að vakna af værum blundi og er líklegt að kjamorkuslysið í Chernobyl eigi eftir að hafa þær afleiðingar að fylgi flokksins stóraukist. Er kjamorku- umræðan stóð sem hæst í Svíþjóð fyrir 10 árum fékk miðflokkurinn rúm 25% atkvæða og þá fyrst og fremst út á baráttu sína gegn kjam- orkuverum. Nú er fylgi flokksins komið niður fyrir 10% en ekki kæmi á óvart þó næsta skoðanakönnun sýndi stóraukið fylgi flokksins, svo mjög sem raust hans hefur hljómað að undanfómu. Vinstri flokkurinn, kommúnistamir, standa við hlið Miðflokksins i kjarnorkumálum. Lars Werner, formaður flokksins, krefst þess að Barsebáck verði lokað þegar í stað. v Hvað kemur i staðinn? íhaldsmenn hafa löngum verið hvað dyggastir stuðningsmenn kjamorkunnar. „Hvað á að koma í staðinn? Andstæðingar kjamork- unnar hafa ekki upp á neitt að bjóða nema kol,“ segir Ulf Adelsohn, leið- togi íhaldsmanna. Ljóst er að sænsku kjamorkuverin verða ekki lögð niður án mjög mikils fjárhags- legs tjóns sænska þjóðarbúsins. Á þessu atriði hamra stuðningsmenn kjamorkunnar að sjálfsögðu svo og því að sænsk kjamorkuver séu þau ömggustu í heiminum. Útflutningur á sænsku öryggi „Við verðum að hefja útflutning á sænskri öryggistækni í kjamorku- málum," segir Bengt Westerberg, foringi Þjóðarflokksins, og margir taka í sama streng. „Það er jaftv- nauðsynlegt fyrir okkur og það fólk sem býr í þeim löndum þar sem ör- vggi er minna að öryggið verði aukið í þessum löndum. Geislavirk ský virða nefnilega engin landamæri," skrifar Gautaborgarpósturinn í leið- ara á dögunum. . Afstaða stjórnarinnar óljós Afstaða jafnaðarmanna er enn sem komið er dálítið óljós en það kæmi ekki á óvart að niðurstaðan yrði sú að Barsebáck yrði lagt niður eins fljótt og mögulegt væri sem einhvers konar friðþægjandi athöfh gagnvart kj amorkuandstæðingum. ■ TV/'CfA A' í v : ; Sviar deila nú hart um tilvistarrétt kjamorkuvera. Andstæðingar kjamorku nota slysin í Chernobyl og Harrisburg máli sínu til stuðnings Kjarnorkuverið í Barsebáck er í brennidepli þessa daga. Danir óttast afleiðingar slyss þar og hata kratist lokunar þess.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.