Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1986, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1986, Page 13
DV. FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1986. 13 Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Ótryggar merkingar á svaladrykkjum - enn er langt í land Viðbrögð framleiðenda við svala- drykkjakönnuninni, sem Neytenda- síða DV hefur látið gera, hafa verið lítil sem engin en miðað við útkomu úr sambærilegri könnun, sem gerð var fyrir rúmu ári, eru niðurstöður þessar- ar athugunar mun jákvæðari. Þegar könnun á svaladrykkjum og mjólkur- drykkjum var gerð fyrir rúmu ári kom í ljós að lítið var að marka fjálglegar lýsingar á umbúðum varðandi bæti- efharíkt innihald þessara hollustu- diykkja. Átti þetta sérstaklega við um drykki frá Mjólkurbúi Flóamanna sem kom langverst út úr athuguninni. Mjólkurbúið kemur betur út en síðast Nú er annað uppi á teningnum því drykkir frá mjólkurbúinu koma þokkalega út þótt ekki standist allt sem þeir segja vera í mjólkurdrykkj- unum. Hvað ávaxtadrykkina varðar þá var C-vitamínmagn meira í inni- haldi en gefið var upp á umbúðum og mun það teljast jákvæðara en hitt. 1 mjólkurdrykkjunum reyndust prótín- merkingar ekki samsvara því sem mældist og í Sopa var minna kolvetni en gefið var upp á umbúðum. Annað var það sem vakti athygli og það var hve sætir mjólkurdrykkimir eru og því ættu sykursjúkir að varast þá og þá ekki síður ættu foreldrar að hugsa sig vel um áður en þeir venja böm sín á að drekka þessa bragðbættu mjólk- urdrykki frekar en nýmjólkina. Birgir Guðmundsson, framleiðslu- stjóri hjá Mjólkurbúi Flóamanna, sagði í samtali við DV að hann væri tiltölulega ánægður með útkomuna úr þessari könnun en vildi taka fram að ýmsa þætti yrði að taka inn í mynd- ina áður en dregnar væm ályktanir af niðurstöðunum. „Það er eitt grund- vallaratriði sem ekki er hægt að líta fram hjá þegar verið er að rannsaka vöm sem unnin er úr náttúmafurðum og það er að marktækar rannsóknir geta tekið allt upp í ár. Sveiflumar, t.d. í próteininu, geta verið svo miklar og vemleg frávik frá einstökum mæl- ingum em eðlileg. Við getum ekkert hróflað við þessum efhum í mjólkinni, við getum fjarlægt fituna en öðrum þurrefhum getum við ekki hróflað við. Það má segja að í Jóganum væri pró- teininnihaldið alveg á mörkunum svo hægt væri að fella það innan fráviks- markanna," sagði Birgir Guðmunds- son. Hann sagði einnig að það væm vel þekkt vandræði hjé íslenskum fyr- irtækjum að panta þyrfti umbúðir í stóm upplagi því þær væm dýrar og mun óhagkvæmara að framleiða fyrir svo lítinn markað sem hér er. „Þetta getur leitt til þess að vömlýsing skekkist miðað við innihald þegar vömþróun á sér stað. “Birgir taldi meginástæðuna fyrir því að Mjólkur- bú Flóamanna kæmi betur út nú en fyrir ári þá að vömeftirlit væri orðið strangara og síðasta árið sagði hann að gert hefði verið átak í að samræma vömþróun og eftirlit. Svalinn kemur verr út en áður í fyrri svaladrykkjakönnuninni komudrykkjarvömr frá Sól h/f mjög vel út og komust næst því að inni- halda það sem gefið var upp á umbúðum. Nú er útkoman aftur á móti ekki eins góð og er munurinn mestur á Epla-Svala þar sem gefið var upp að hann innihéldi 30 mg af C- vítamíni en mæling leiddi í ljós að í hverjum 100 grömmum vom ekki nema 22 mg. Sigrún Helga, matvælafræðingur hjá Sól h/f, sagði að þessar niðurstöð- ur kæmu sér á óvart. „Þetta hlýtur að vera einstakt tilfelh en C-vítamín er mjög viðkvæmt og dofnar eftir því sem það geymist lengur. Okkur hefúr greinilega ekki tekist nægilega vel upp með Epla-Svalann en að sjálfsögðu munum við laga þetta hið bráðasta," sagði Sigrún Helga að lokum. Deilt um dagsþörf Hvað varðar Hi-C svaladrykkina þá komu þeir vel út ef miðað er við að dagsþörf af C-vítamíni sé 45 mg á dag. Á umbúðum stendur að drykkurinn innihaldi fulla dagsþörf og ef miðað er við tölur manneldisráðs virðist inni- haldið vera í samræmi við vömlýs- ingu. Það er svo aftur annað mál að mikið hefur vorið deilt um þennan kvarða og fleiri en ein viðmiðun í gangi. Það er vissulega ánægjulegt að sjá þá breytingu sem orðið hefur frá því fyrri könnunin var gerð en niðurstöð- ur þessarar könnunar sýna þó að ekki er hægt að treysta fyllilega vörumerk- ingum. Allir em sammála um að meira C-vítamínmagn en getið er um á um- búðum sé betra en of lítið en óná- kvæmnin, sem í ljós hefur komið, leiðir þó til þess að neytendur verða að taka innihaldslýsingum með ákveðnum fyr- irvara. -S.Konn. mUACK&DECKER w Loftpúðasláttuvélin Lauflétt en öflug garð- sláttuvél. Útsölustaðir um allt land FRÁBÆRT VERÐ Kr. _____insson nsonhf ARIWIÚLA 1 - SÍMI68-55-33 Allt í helgarmatinn NÝJAR VÖRUR í ÖLLUM DEILDUM Opið til kl. 20 í ^ kvöld Munið BARNAHORNIÐ Á ANNARRI HÆÐ Opið frá kl. 9-16 laugardag Munið JL-hornið Flöskumóttaka 'aaíaaa » i . '.z~ .j f3UQi3 UHÍÍUUUUUIII Hllh. Jón Loftsson hf. ________________ Hringbraut 121 Sími 10600 — u-XfcJ Þú borðaðir rúmlega eitt hundrað Holl húsráð SS pylsur á síðasta ári. Þegar tappatogarann vantar er hægt að skrúfa krók úr herðatré og notast við hann. Erfiður tappi Ef tappinn er óhreyfanlegur vermir þú flöskustútinn yfir vatnsgufu eða undir heitum krana. Forðastu að láta innihaldið hitna, sér í lagi ef vín er í flöskunni. Maturinn of saltur Ef þú hefúr saltað um of skaltu bæta hráum kartöflusneiðum í pottinn. Þær drekka í sig saltið og að sjálfsögðu em þær fjariægðar áður en maturinn er borinn á borð. Mjólkin brennur ekki við Láttu fáeinar glerkúlur í skaftpott- inn þegar þú hitar mjólk. Kúlumar fara af stað þegar mjólkin sýður og hljóðið leynir sér ekki. Þegar illa fer Það getur reynst erfitt að týna sam- an glerbrot og agnir. Bleyttu bómull- arhnoðra og notaðu hann til að safna þessu saman. Vandaðu þig, þá nærð þú hverri einustu ögn. -RóG. SLATURFELAG o =j s cn > SUÐURLANDS Áriö 1985 boröuöu islendingar hvorki meira né minna en 17 milljónir og eitt hundrað þúsund (17.100.000) SS pylsur. Þaö gera liðlega 100 pylsur á hvert mannsbam sem náö hefur „kiötaldri". Betri meömæli eru vandfundin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.