Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1986, Síða 28
DV. FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1986.
, 44
«.
13
SM4
^fCÍF^
Klassíker
vikunnar
Dr. and the Medics - Spirit
in the Sky (IRS)
Þetta klassíska lag Normans
Greenbaum er vandmeðfarið
og Dr. And The Medics velja
að breytaútsetningu höfundar
sem minnst; rokka lagið örlítið
upp og gera það nútímalegra.
Jafngott og áður.
Aðrar
endingargóðar
Rolling Stones - One Hit (To The
Body) (Rolling Stones)
Önnur smáskífan af skít-
verkaplötunni og líklega besta
lag plötunnar; þéttur Stones
rokkari sem grípur mann með
einsog skot. Þeir eru engum
líkir gömlu mennirnir.
Moody Blues - Your Wildest
Dreams (Polygram)
Aðrir gamlingjar enn í fullu
fjöri og halda sig við það sem
þeir kunna og gera vel. Góð
melódía og raddirnar hjá
strákunum hafa hvergi látið á
sjá. Líklega ekki nógu nútíma-
legt til að verða smellur en
gott samt.
Frá Lippo Lippi - Everytime I
See You (Virgin)
Það er ekki sami hasarinn í
þessum Norðmönnum og lönd-
um þeirra í A-Ha; þessir eru
mjúkir og vandaðir, semja fal-
legar melódíur sem eru gjald-
gengar hvar sem er.
Simply Red - Holding Back
the Years (WEA)
Makalaus rödd sem þessi
maður hefur, annað eins hefur
ekki heyrst í háa herrans tíð.
Þetta lag annars í rólegri
kantinum, ansi hreint ljúft og
gott. Ekta knúsari.
Cock Robin - The Promise You
Made (CBS)
Mjúkt popp, lag sem grípur
mann þegar við fyrstu áheyrn
og verður bara betra eftir því
sem oftar er hlustað.
Tvær endingarminni
Status Quo - Rollin’ Home
(Phonogram)
Þetta er vissulega hressilegt
rokklag a la Status Quo, en
allt of líkt Rockin All Over
The World til að teljast gjald-
gengt sem nýtt lag. Það gengur
bara ekki að skipta um nafn á
laginu.
The Matchroom Mob With
Chas & Dave - Snooker Loopy
(Rockery)
Hræðilega hlýtur breska
húmornum að hafa hrakað
uppá síðkastið fyrst lög á borð
við Living Doll, Chicken Song
og þetta njóta mikilla vin-
sælda. í ruslið með þetta.
-SþS-
| MEGAS - ALLUR |
Vonandi ekki allur enn
Mikill hvalreki heíúr orðið á fjörum ■
íslenskra tónlistarunnenda; meistari
Megas er kominn út allur í hand-
hægum neytendaumbúðum. Pakkinn
inniheldur níu plötur ásamt 40 síðna
handbók með textum og úrklippum
úr dagblöðum gegnum árin þar sem
Megas er til umfjöllunar.
Saga Megasar sem opinbers tónlist-
armanns nær allar götur aftur til
ársins 1971 en þá kom út fyrsta plat-
an, sem bar einfaldlega nafn höfundar.
Þar kvað við nýjan tón í íslenskri tón-
list, tón sem langt í frá allir felldu sig
við. Sérstaklega voru það textar og
textameðferð sem fóru fyrir brjóstið á
viðkvæmu fólki og fylltist margur
maðurinn heilagri vandlætingu yfir
virðingarleysi Megasar fyrir íslensk-
um menningarverðmætum.
Tónlistin sjálf var einfold í sniðum,
kassagítar og flauta á stöku stað.
Sem áður sagði fékk þessi plata mjög
misjafnar viðtökur, annaðhvort féllu
menn marflatir fyrir henni eða fitjuðu
uppá trýnið og fussuðu. Margir þeirra
síðarnefhdu áttu þó síðar eftir að upp-
götva snilli Megasar og þeir eru
eflaust fáir í dag sem ekki viðurkenna
Megas sem einn allra fremsta tónlist-
armann poppkynslóðarinnar.
Megas hefur aukinheldur það ffarn
yfir obbann af íslenskum tónlistar-
mönnum að hann er textahöfúndur
par exellence og leyfi ég mér að fúll-
vrða að annar eins hefúr ekki fyrir-
fundist hérlendis fyrr eða síðar.
Fjögur ár liðu frá því fyrsta platan
kom út þar til sú næsta leit dagsins
ljós. Hún hét og heitir Millilending
og Megas var nú rafvæddur með að-
stoð hljómsveitarinnar Júdasar.
Enn sem fyrr stuðuðu textar Megas-
ar f'ólk og í útvarpinu heyrðist hann
varla enda réðu þar ríkjum menn sem
tilheyrðu vandlætingarhópnum.
í kjölfar Millilendingar fóru ár mik-
illa afkasta Megasar og á næstu
tveimur árum komu út tvær plötur
Fram & aftur blindgötuna og Á bleik-
um náttkjólum, sem að margra áliti
er besta plata Megasar og jafnffamt
ein besta plata íslensk sem út hefur
komið.
Á þessum plötum ferðast Megas ffam
og aftur um tónlistarsviðið, er hreint
ótrúlega fjölbreyttur og hver textinn
öðrum betri.
1978 kom svo Megas öllum rækilega
á óvart með því að gefa út plötu með
ýmsum barpagælum og enn á ný
fúögnuðust hneykslunarraddimar því
Megas var sjálfúm sér trúr og fór
ótroðnar slóðir í túlkun bamagæln-
anna, líkt og öðm sem hann tók sér
fyrir hendur.
Næstu plötur vom hljómleikaplöt-
urnar Drög að sjálfsmorði en nafnið
skírskotar til sögusagna um sjálfsmorð
Megasar sem gengu fjöllunum hærra
um Reykjavík um áramótin 1978-1979,
sem reyndust töluvert orðum auknar.
Sjálfsmorðið er það síðasta sem
komið hefur út í nafni Megasar eins;
á undanfömum árum hefur hann kom-
ið ffam á plötum ýmissa aðila með lag
eða lög og hefur þeim nú verið safnað
saman í þessum pakka á eina plötu
sem nefnist Gult & Svart Holdið.
Auk fyrmefndra laga em á þessari
plötu áður óútgefnar upptökur frá
fyrri árum, fágætir gripir.
Níunda platan í safninu er passíu-
sálmaprógramm Megasar sem hann
hefúr flutt síðastliðna tvenna páska
og er mikill fengur að því að hafa feng-
ið það á plötu til varðveislu.
Hitt leikhúsið, sem stendur að þess-
ari útgáfú á heildarverkum Megasar,
á heiður skilinn fyrir framtakið og
vonandi eiga fleiri plötur eftir að bæt>
ast við þetta safn á komandi árum.
-SþS
PRINCE AND THE REVOLUTION - PARADE
Hvort sem maður kann að meta per-
sónuna Prince eður ei verður því ekki
neitað að þrátt fyrir alla sjálfdýrkun,
sem einkennt hefúr feril hans, er þama
á ferðinni skapandi tónlistarmaður
sem fer sinar eigin leiðir i listsköpun
og gerir marga góða hluti, eins og
nýjasta plata hans, Parade, ber með
sér.
Eins og síðasta plata Prince, Purple
Rain, er Parade saminn utan um kvik-
mynd. Myndin nefnist Under The
Cherry Moon og veit ég ekki nánari
deili á henni. En sjálfsagt leikur
Prince aðalhlutverkið. Minna tekur
kappinn varla að sér. Það em tólf lög
á Parade sem öll em eftir Prince.
Bæði em þau misjöfn að gæðum og
ólíkar tónlistarstefnur ráða ferðinni.
Kannski er ekki við öðm að búast
þegar samið er fyrir kvikmynd.
Það er nú svo með þá tónlist sem
Prince býður upp á að þegar hún er
hvað athyglisverðust, í flóknum lögum
eins og Christopher Tracy’s Parade, I
Wonder U og Do You Lie þá nýtur
kappinn sín síst, þrátt fyrir góðar út-
setningar og verulega athyglisverðar
tónsmíðar. Aftur á móti í Mountains
og Kiss, sem nálgast það að vera soul-
lög, nýtur hann sín hvað best, þótt
ekki séu þau lög jafnáhugaverð og
fyrmefnd lög. Eitt allra besta lagið á
plötunni er svo Sometime It Snows In
April sem er rólegt verk, flókið og
virkar fráhrindandi í fyrstu en vinnur
á við hverja hlustun.
Prince er athyglisverður tónlistar-
maður, góður lagahöfúndur og upp-
finningasamur útsetjari. Galli hans,
að mínu mati, er rödd hans sem nálg-
ast það að vera hálfgerðir skrækir
frekar en söngur. Tel ég að hér sé um
heimatilbúning að ræða. Vel getur
verið að flestum aðdáendum hans líki
vel þessi raddbeiting. Og pilturinn á
svo sannarlega marga aðdáendur. í
heild aftur á móti hefur rödd hans
neikvæð áhrif á lögin, þótt ekki sé
hægt að segja annað en miklar tilfinn-
ingar séu lagðár f sönginn.
Parade nokkuð sérstök plata, sem
hlustandinn leggur ekki frá sér svo
auðveldlega eftir fyrstu hlustun, þótt
tónlistin sé á köflum virkilega uppá-
þrengjandi. Prince hefur hæfileika og
hann telur sig ábyggilega vita það
manna best sjálfur. En eins og mörgum
öðmm hæfileikaríkum piltum hættir
honum til að reyna við hluti sem hann
ræður ekki almennilega við.
HK
SMÆLKI
Sœl nú!... Joe
Strummer Ciash sjálfur
lenti i klóm lögreglunnar
á dögunum. Ástæðan fyr-
ir afskiptum þeirra svart-
klæddu af Strummer var
su að hann var úti að
aka. ölvaður. Fyrir vikið
verður Strummer að láta
bifreióaakstur eiga sig
næsta eitt og hálfa árið
... Warren Cann,
trommuleíkari Ultravox,
var iátinn fjúka fyrir
skemmstu og er ósam-
komulagi innan hljóm-
sveitarinnar kennt um.
Afgangurinn af hljóm-
sveitinni er aftur á móti
byrjaður undirbúning ad
nýrri breiðskífu sem
væntanlega kemur út í
haust... Glæsilegur ár-
angur poppara á Vestur-
löndum í söfnun á fé til
hjálpar bágstöddum i Afr-
iku hefur ekki farið
framhjá neinum, meira
að segja ekki Rússunum.
Þeir hafa nú gripið hug-
myndina á lofti og hvetja
sovéskar rokkhljómsveit-
ir til að halda góðgerðar-
tónleika til aðstoðar þeim
sem eiga um sárt að
binda eftir kjarnorkuslys-
íð i Chernobyi. Ennfremur
hafa Rússarnír beðið
Sting og Elton John um
aó koma og hjálpa til...
Dire Straits voru á hljóm-
leikareisu fyrir nokkru i
Ástralíu og nágrenni og
troðfylltu alla safi og hall-
ir hvar sem jjeir komu.
Einum tónleikum var þó
aflýst, ekki vegna dreemr-
ar aósóknar heldur vegna
þess að þeir áttu aó vera
á stað sem heitir Ayers
Rock en það ku vera heil-
agt svæðí i augum
innfæddra frumbyggja
Ástraliu. Mark Knopfler
vildi ekki styggja frum-
byggjana og aflýsti her-
legheitunum...Bob Dylan
er að leggja uppi enn
eina hljómleikaferðina í
sumar um þver og endi-
löng Bandarikin. Með sér
hefur hann að venju valið
iið manna og að þessu
sinni tekur hann meó sér
tvo sérstaklega valin-
kunna heiðursmenn, þá
Keith Richards og Ron
Wood úr Rolling Stones
en þeir tróðu einmitt upp
með Dylan á Band Aid
tónleikunum í Philadelfia
í fyrra sællar minningar
... Kveðjutónleikar
Wham verða haldnir á
Wembley leikvanginum í
Lundúnum þann 28. júní
næstkomandi... Lagið
Rock Lobster með B-52’s
var gefið út i fimmta sinn
nú á dögunum og náði
þá leksins að slá i gegn.
Gallinn er bara sá að
hljómsveitin er hætt, drif-
fjöður hljómsveitarinnar,
Ricky Wilson, lést úr
krabbameini í fyrra...
Sjáumst siðar...