Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1986, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1986, Blaðsíða 32
T _> FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1986. Hafskipsmálið: Gæsluvarð- , haldið stytt um 2 vikur Úrskurður Hæstaréttar um gæslu- varðhalcl Hafskipsmanna liggur nú fyrir og staðfesti rétturinn gæsluvarð- haldsúrskurðinn en stytti jafnframt varðhaldið um tvær vikur eða tif 11. júní. Einn af þeim sem setið hafa inni er nú faus úr gæsluvarðhaldi, Þórður Hilmarsson sem sleppt var í gær, en þeir sem gert er að sitja til 11. júní eru Björgólfur Guðmundsson, Ragnar Kjartansson, Páll Bragi Kristjónsson og Helgi Magnússon. Rannsóknarlögreglan hefúr nú hafið "^firheyrslur yfir starfsmönnum Út- vegsbankans en sem kunnugt er af fréttum var ákveðið að hraða þeim þætti rannsóknarinnar svo sem kostur er í framhaldi af fundi bankastjómar bankans og rannsóknarlögreglustjóra. FRI Fangi strauk Fangi strauk úr Hegningarhúsinu að Skólavörðustíg 9 í gær kl. 17.45. /i^fcnginn stökk út um glugga á ann- arri hæð og síðast sást til hans á harða spretti inn Bergstaðastræti. Hann var ekki fundinn í morgun. Þetta er í ann- að skiptið í þessum mánuði sem fanganum tekst að strjúka úr gæslu. Fanginn er síbrotamaður og hefur oft setið inni. Hann var á Litla-Hrauni, en kom til læknismeðferðar til Reykja- víkur í byrjun maí. Þá tókst honum að strjúka. Náðist fljótlega og var sett- ur í einangrunarklefa þaðan sem hann strauk núna. -SOS HM-handbók Heimsmeistarakeppnin í knatt- spymu hefst á morgun og í tilefni af jjJjví mun 20 síðna blað tileinkað keppn- iiini fylgja helgarblaði DV á morgun. Meðai efnis í blaðinu verður kynn- ing á liðum HM og leikmönnum. Stutt viðtöl við ýmsa sem verða í eldlín- unni, skrá yfir leiki keppninnar og hvaða lið séu sigurstranglegust hjá veðbönkum. fros LOKI Þaö rignir alla vega ekki í sjónvarpinu í kvöld! Dularfullt smit úr svartflekkóttum villiketti í Húnavatnssýslu: Lömbin fæðast morkin á Mosfelli „Þetta fár hlýtur að hafa borist með erlendum köttum. Hér áður fyrr þótti nauðsynlegt að hafa ketti í fjár- húsum því annars var hætta á að rottur legðust á féð,“ sagði Einar Höskuldsson, bóndi á Mosfelli í Austur-Húnavatnssýslu, í samtali við DV. Ær Einars bónda hafa nú borið tæplega 300 dauðum lömbum og er tjón hans því mikið. Rannsóknir á blóðsýnum, er dýralæknir tók og sendi suður á Keldur, sýna svo ekki verður um villst að fárið má rekja til kattar. „Þetta var svartflekkóttur villi- köttur sem birtist allt í einu hérna á hlaðinu og enginn vissi hvaðan kom. Ég lét hann afskiptalausan, enda ekki vanur að skjóta ketti ná- granna minna. Strax eftir fengitím- ann fór svo að bera á þessu hjá mér. Tvílemdar ær báru lömbum þar sem annað var morkið og hitt hreinn aumingi, er gefa varð lyf fyrstu vik- umar. Þetta er náttúrlega slæmt og þá sérstaklega ef þetta fer í kýr eða konur,“ sagði Einar bóndi á Mosfelli. Strax og ljóst varð að sökin lá hjá svartflekkóttu læðunni voru gerðar ráðstafanir til að koma henni fyrir kattarnef: „Kötturinn var styggur eins og refur þannig að ég varð að skjóta hann í veiðiboga," sagði Ein- ar. Ekki er nóg með það að lömbin fæðist dauð á Mosfelli, nokkrar kindur Einars bónda hafa drepist úr legeitrun sem hann telur að rekja megi til ófagnaðarins er villiköttur- inn bar í fjárhús hans. -EIR Eldur kom upp í bífreið, sem verið var að gera við inni í bílskúr við Nýbýlaveg í Kópavogi í gær. Fljótt náðist bifreiðin út úr bílskúrnum. Hér á myndinni sjást slökkviliðsmenn að störfum. Nokkrar skemmdir urðu á bifreiðinni, sem var númerslaus. DV-mynd: S Veðrið á morgun: Kosninga- skúrir Á morgun ríkir sunnan- og suð- vestanátt á landinu. Skýjað og víða skúrir eða rigning á öllu sunnan- og vestanverðu landinu. Þurrt verður að mestu norðaustanlands. Hiti verður á bilinu 6-10 stig. Heit- ast verður á Norðausturlandi, 10 stig, og þar ætti að sjást til sólar. Sjonvarpið í kvöld: Lokaslagurinn um atkvæðin Talsmenn framboðsflokkanna í Reykjavík ætla að ræða málin saman í síðasta sinn fyrir kosningar í hring- borðsumræðum í sjónvarpinu í kvöld. Páll Magnússon fréttamaður stjómar umræðunni. Einn fulltrúi mætir fyrir hvem flokk. Fyrir Alþýðuflokk Bjarni P. Magnús- son, Sjálfstæðisflokk Davíð Oddsson, Framsóknarflokk Sigrún Magnús- dóttir, Alþýðubandalag Össur Skarp- héðinsson, Kvennalista Sólrún Gísladóttir og fyrir Flokk mannsins Áshildur Jónsdóttir. Allir nema Össur era efstu menn á lista, en hann er í fjórða sæti. „Össur er í baráttusæt- inu,“ sagði Steinar Harðarson, kosn- ingastjóri Alþýðubandalagsins, aðspurður hvers vegna efsta manni væri ekki teflt fram. „Þátturinn verður ekki í neinu yfir- heyrsluformi og mitt hlutverk er að sjá um að þetta fari skikkanlega firam. Ætlunin er að frambjóðendur ræði sjálfir saman yfir hringborðið," sagði Páll Magnússon fréttamaður í morg- un. Þátturinn hefet kl. 22.15 og stendur í allt að hálfan annan klukkutíma. -APH Hafskipsmenn: Tveir vildu kjósa en fá það ekki Tveir af fjórmenningunimi, sem nú sitja í gæsluvarðhaldi, fóra fram á að fá að kjósa í borgarstjórharkosning- unum en þeirri beiðni hafnaði RLR. Annar þeirra kærði þá úrskurðinn til sakadóms sem einnig hafnaði beiðni hans. „Þetta er umdeilanlegt atriði og eðli- legt að menn geti borið það undir dómstóla," sagði Þórir Oddsson, vara- rannsóknarlögreglustjóri ríkisins, í samtali við DV. „Það er gott að þessi úrskurður liggur fyrir.“ Sakadómur byggði niðurstöðu sína á því að flutningur mannsins á kjör- stað samræmdist ekki tilgangi gæslu- varðhaldsins, þ.e. einangrun hans. Lögfræðingur þess sem kærði byggði kröfú sína á því að kosningaréttur væri grundvallarmannréttindi og ekki tekinn af msnni án dóms. -FRI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.