Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1986, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1986, Blaðsíða 21
DV. MÁNUDAGUR 9. JÚNÍ 1986. Siggi bjargaði Lemgo frá falli - Siggi Sveins skoraði 9 mörk gegn Beriín Atli Hilmarsson, DV, Þýskalandi: Sigurður Sveinsson átti stórleik er Lemgo bjargaði sér enn einu sinni frá falli á síðustu stundu er liðið lék gegn Berlín á heimavelli um helgina. Siggi var öðrum fremur maðurinn á bak við sigur Lemgo og skoraði 9 mörk í leikn- um sem endaði 33-16 og er það stærsti sigur Lemgo í Bundesligunni frá upp- hafi. Lokaumferð Bundesligunnar fór fram um helgina og meistaralið Essen tapaði á útivelli, 23-21, fyrir Gross- waldstadt og lék Alfreð ekki með vegna meiðsla. Páll Ólafsson skoraði eitt mark þegar Dankersen tapaði á útivelli fyrir Gummersbach, 29-17. Kiel tapaði fyrir Schwabing, 19-25, og tryggði Schwabing sér þar með annað sætið. Gúnsburg tapaði heima fyrir Hofweier, 28-26, og er fallið í 2. deild ásamt Dankersen og Berlín. Klempel markahæstur Pólverjinn Jersey Klempel varð markahæstur í Bundesligunni en hann skoraði 230 mörk ú 26 leikjum. Af ís- lendingunum varð Siggi Sveins markahæstur með 117 mörk í 14 leikj- um, Alfreð skoraði 108 mörk í 24 leikjum, Páll 105 mörk í 24 leikjum og Átli Hilmarsson 66 mörk í 15 leikj- um. -SK Bryndis var best - ísland í 2. sæti í sundi á íriandi „Að mörgu leyti getum við vel við frammistöðu landsbðsins unað en því er ekki að neita að sundfólkið er ekki í toppformi sem stendur enda tvö stór- mót nýafstaðin, Kalott-keppnin og meistaramót íslands," sagði Guð- mundur Ámason hjá Sundsambandi íslands í samtali við DV í gærkvöldi en hann er staddur á Norður-írlandi þar sem landskeppni írlands, íslands og Lúxemborgar fór fram um helgina. írland sigraði í keppninni, hlaut 128 stig, en ísland hafnaði í öðm sæti með 95 stig og Lúxemborg rak lestina með aðeins 57 stig. Eitt íslandsmet var sett á mótinu. Islenska sveitin synti 4x100 metra skriðsund á 3:42,02 mín. en eldra metið var 3:43,20 mín. Bestum árangri íslensku keppendanna náði Bryndís Ólafsdóttir en hún sigraði í 100 metra skriðsundi á 58,83 sek. og var það besta afrek sem unnið var á mótinu samkvæmt alþjóðlegri stigatöflu. Bryndis var útnefnd besta sundkona landskeppn- innar. Eðvarð Þór Eðvarðsson sigraði í þremur greinum og stóð sig mjög vel. Hann sigraði í 100 m bringusundi á 1:05,96 mín., 200 m baksundi á 2:09,39 mín. og 200 m fjórsundi á 2:11,07 mín. I landskeppninni var íslenska sundfólkið yfirleitt í 2. sæti en næsta stórverkefiii landsliðsfólksins er þátttaka á skoska meistaramótinu í Edinborg i vikunni. I lið- ið vantar þau Ragnar Guðmundsson, Ragrdieiði Runólfsdóttur, Tryggva Helga- son og Áma Sigurðsson. -SK • Þessi mynd birtist fyrir helgina í dagblaði einu á Norðurlöndunum og sýn- ir hún tvo leikmenn þýska landsliðsins spássera um á Adamsklæðunum einum saman á svölum hótelsins sem þeir dvelja á i Mexíkó. Hvort nekt landsliðs- mannanna stendur i einhverju sambandi við mexíkanskar konur skal ósagt látið. Þyskir á kvennafari? Vestur-þýskir lesendur dagblaðsins Bild voru vaktir upp einn dag í síðustu viku með flennistórri frétt á forsíðu þess efnis að leikmenn þýska landsliðs- ins á HM væru á kafi í kvenfólki í Mexikó. Leikmenn þýska liðsins hafa þrætt fyrir að hafa komið nálægt konum í Mexíkó. Hins vegar hefur sú stað- reynd gefið íréttinni byr undir báða vængi að vitað er að leikmenn lands- liðsins fá mikla peninga frá Bild segi þeir þeim 13 fréttamönnum blaðsins sem staddir eru í Mexíkó nýjustu frétt- ir úr herbúðum landsliðsins. Telja fróðir menn að þessar kynlífesögur séu komnar frá einhverjum leikmönnum þýska liðsins. -SK 21 | Atli með tilboð (frá B. Leverkusen Páll áfram hjá Dankersen I „Ég er með tilboð frá Bayer Lever- I kusen og reikna með að leika með Uðinu á næsta leiktímabiU," sagði handknattleiksmaðurinn AtU Hilm- ■ arsson í samtaU við DV í gærkvöldi. I AtU lék sem kunnugt er með ■ Gúnsburg í vetur en átti lengi við I meiðsU að striða og náði sér ekki á _ strik. „Ég fékk einnig tilboð frá sviss- neska félaginu Grasshoppers en það mál er líklega strandað vegna þess að ekki fæst dvalarleyfi í Sviss fyrir íjölskyldu mína. Annars hefði mig mest langað til að leika í Sviss. Ég get ekki neitað því að ég er orðinn frekar leiður hér í Þýskalandi. For- ráðamenn Gúnsburg hafa komið illa fram við mig eftir að ég meiddist og ég ræð engum íslenskum leikmanni að fara til Gúnsburg. Mannlegi þátt- urinn hjá forráðamönnum liðsins er alveg á núlli,“ sagði Atli Hilmarsson. Atli sagði ennfremur að 90% líkur væru á því að PáU Ólafeson yrði áfram hjá Dankersen á næsta keppn- istímabili. -SK Stórsigrinum fagnað Dönsku landsUðsmennimir í knatt- spymu höfðu æma ástæðu til að gleðjast í gærkvöldi eftir stórsigurinn gegn Umguay. Hér sjást þeir Preben Elkjær Larsen, númer tíu, sem skoraði þrjú mörk, og Michael Laudrnp fagna marki Laudrups í gærkvöldi. Ostjórn- leg gleði rikti í Danmörku í aUa nótt en nánar er sagt frá viðbrögðum manna við stórsigri Dana og öðmm á HM á bls. 24-25. Símamynd/Reuter. lan Rush til Juventus - fyrir metupphæð, 180 millj. króna Ian Rush, landsUðsmiðheiji Wales og Liverpool, ákvað í gær að taka tU- boði ítalska liðsins Juventus, Torino. Rush flaug í gær til Torino til að undir- ski-ifa samninginn. Juventus hafði boðið Liverpool þrjár milljónir sterl- ingspunda í Rush og hafði náðst samkomulag milli félaganna. Þetta gera 180 milljónir íslenskar, metupp- hæð fyrir breskan leikmann. Svo getur þó farið að Rush leiki sem lánsmaður með Liverpool næsta leik- tímabil ef ítalska knattspymusam- bandið heldur fast við að leyfa aðeins tvo erlenda leikmenn í leik. Þeir Mic- hel Platini, Frakklandi, og Michael Laudmp, Danmörku, leika með Ju- ventus. Platini á eitt ár eftir af samningi sínum. í næsta mánuði ákveður ítalska sambandið hvort ein- hverjar breytingar verða gerðar á þeim reglum sem nú gilda. hsim Var danska vatnið eitrað? Haukur Lárus Hauksson, DV, Dan- mörku: Eins og komið hefur fram í fréttum hefur danska landsliðið í knattspymu orðið mest fyrir barðinu á magakveisu og niðurgangi á heimsmeistarakeppn- inni í Mexíkó. Danir höfðu með sér rúm 8 tonn af dönsku vatni og var því tappað á fem- ur í Danmörku i apríl. Nú er svo komið að heilbrigðisyfirvöld í Danmörku hafa sent viðvömn í herbúðir danska liðsins og dönsku landsliðsmönnunum hefur verið bannað að drekka danska vatnið. Það mun hafa staðið heilan dag í miklum hita í vömgámi áður en það var flutt til Mexíkó og kann það að hafa ýtt undir bakteríumyndun í vatninu sem síðan hefur skilað sér í niðurgangi og magaverkjum á meðal dönsku leikmannanna. Finnst mönn- um það kaldhæðnisleg staðreynd, ef rétt reynist, að Danir hafi sjálfir kom- ið með smitberann með sér til Mexíkó og geti því engum kennt um nema sjálfum sér. -SK Tvö íslandsmet Ragnheiðar í Kanada Sundkonan Ragnheiður Rimólfs- dóttir frá Akranesi setti um helgina tvö glæsileg íslandsmet á sterku móti í Kanada. Ragnheiður synti 100 metra bringu- sund á 1:16,07 min. en Guðrún Fema átti eldra metið og var það 1:16,24 mín. Þá synti Ragnheiður 200 metra fjórsund á 2:26,40 mín. en eldra metið, 2:28,39 mín., átti hún sjálf. Þetta er mjög góður árangur hjá Ragnheiði og hún er mjög nálægt því að ná lág- mörkum fyrir heimsmeistaramótið í sundi sem fram fer í Madrid á Spáni í ágúst. -SK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.