Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1986, Blaðsíða 25
DV. MÁNUDAGUR 9. JÚNÍ 1986.
25
Dttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Anderlecht
neitar Olsen
Haukur Lárus Hauksson, DV, Dan-
mörku:
Nú er ljóst að fyrirliði danska lands-
liðsins í knattspyrnu, Morten Olsen,
sem leikið hefur með belgiska liðinu
Anderlecht undanfarin ár, mun ekki
leika áfram með liðinu.
Arie Haan, þjálfari liðsins, tilkynnti
Olsen í Mexíkó um helgina að liðið
hefði ekki not fyrir hann áfram og um
framlengingu á samningi hans við fé-
lagið yrði ekki að ræða. Morten Olsen
hefur ekki farið fram á hærri laun hjá
liðinu en talið er að erfið íjárhagsstaða
hafi valdið mestu um þessa óvæntu
ákvörðun forráðamanna Anderlecht.
Morten Olsen er því laus allra mála
hjá Anderlecht og ef að líkum lætur
fær hann mörg freistandi tilboð eftir
heimsmeistarakeppnina í Mexíkó.
Talið er að Olsen hafi mestan áhuga
á að þjálfa eitthvert 1. deildar lið í
Danmörku en einnig er vitað með
vissu að fræg félög hafa áhuga á að
næla í kappann þrátt fyrir að hann
sé orðinn 36 ára gamall. Olsen hefur
sýnt það í Mexíkó að hann er langt
frá því að vera útbrunninn sem leik-
maður og það verður öruggleg slegist
um hann eftir HM. Tottenham hafði
áhuga á Olsen í fyrra en ekki er vitað
hvort sá áhugi er enn fyrir hendi.
-SK
ír mörkum sínum fyrir Dani gegn Uruguay í gærkvöldi.
irður partí í kvöld
inan fallega leik'
sal danska sjónvarpsins og þegar mark
Laudrups, fallegasta mark leiksins,
var endursýnt stóðu allir sem einn á
fætur og fagnaðarlátunum ætlaði
aldrei að linna.
Þriðji mesti ósigur Uruguay á
HM
Uruguaymenn hafa aðeins tvisvar
áður fengið álíka útreið í heimsmeist-
arakeppni en það var í Ungveijalandi
árið 1954 og í Englandi 1966. í gær var
eitt lið á vellinum eins og áður sagði
og hver Daninn öðrum betri. Preben
Elkjær skoraði þrennu, Sören Lerby
eitt, Jesper Olsen eitt og Laudrup eitt.
Leikur Dana óaðfinnanlegur og hvergi
veikan blett að finna.
Einn sorgarblettur
Eini dökki bletturinn á leiknum í
gær voru alvarleg meiðsli Danans
Bertelsen í síðari hálfleik en hann var
borinn út af og fluttur samstundis á
sjúkrahús. Reuter fréttastofan sagði í
gærkvöldi að Bertelsen hefði ökkla-
brotnað en læknir danska landsliðsins
var ekki á sama máli. Rétt fyrir lok
útsendingar danska sjónvarpsins í
nótt sagði hann að Bertelsen væri
ekki brotinn en hann yrði líklega ekki
meira með á HM.
„Det var Denmark, det var
Denmark, olei, olei, olei“
Að sögn Hauks Lárusar Hauksson-
ar, fréttaritara DV í Danmörku, var
Danmörk á hvolfi í alla nótt og í morg-
un voru Danir enn að fagna mesta
sigri landsliðsins frá upphafi og jafn-
framt besta leik liðsins frá upphafi.
Fagnaðarlætin voru óskapleg og engu
líkara en að Danir hefðu orðið heims-
meistarar í gærkvöldi. Rólegustu
manneskjur misstu gersamlega stjóm
á sér og dansað var um gervalla Dan-
mörku fram undir morgun og margir
em eflaust enn að. Hætt er við að
raddir stuðningsmanna danska liðsins
þurfi á hvíld að halda. Á leikvellinum
sungu 3000 danskir stuðningsmenn
stanslaust „og det var Denmark, og
det var Denmai'k. olei, olei. olei. Og
við liggm' að þessi laglína sé orðin
þjóðsöngur Dana.
Lið Dana var þannig skipað: Rasmuss-
en. Olsen. Busk. Nielsen. Lerbv.
Berggreen. Bertelsen(Jan Mölby), Ar-
nesen. Andersen. Elkjær. Laudmp(M.
Olsen).
Leikinn dæmdi Antonio Mai-quez fi'á
Mexíkó og stóð hann sig vel. alla vega
mun betur en aðrir kollegar hans
hingað til. -SK./HLH.
Danir og Brasilíumenn einu
öruggu liðin í 16-liða úrslit
Riðlakcppnin í heimsmeistara-
keppninni í knattspyrnu í Mexikó er
nú langt komin og ekki úr vegi að líta
á stöðuna í riðlunum sex. Eftir leiki
helgarinnar er staðan þannig:
A-riðill:
Argentína..........2 1 1 0
Ítalía.............2 0 2 0
Búlgaría...........2 0 2 0
S-Kórea............2 0 11
Leikir sem eftir eru: S-Kórea-Ítalía og
Argentina Búlgaria, 10. júni.
B-riðill:
Mexíkó.............2 110
Paraguay...........2 110
Belgía.............2 1 0 1
4-2
2-2
2-2
3-4
3 2
2-1
3-3
írak..............2 0 0 2 1-3 0
Leikir sem eftir eru: Írak-Mexíkó og
Paraguay-Belgía, 11. júní.
C-riðilI:
Sovétríkin........2 110 7-1 3
Frakkland,........2 1 1 0 2-1 3
Ungverjaland......2 10 1 2-6 2
Kanada............2 0 0 2 0-3 0
Leikir sem eftir eru: Ungveijaland-
Frakkland og Sovétríkin-Kanada í
dag.
D-riðill:
Brasilía..........2 2 0 0 2-0 4
Spánn.............2 1 0 1 2-2 2
Norði'r-írland....2 0 112-31
Alsír.............2 0 111-21
Leikir sem eftir eru: Norður írland-
Brasilía, Alsír-Spánn þann 12. júní.
E-riðill:
Danmörk..........2 2 0 0 7-1 4
V-Þýskaland......2 110 3-23
Uruguay..........2 0 112-71
Skotland.........2 0 0 2 1-3 0
Leikir sem eftir eru: Danmörk-Vestur-
Þýskaland og Skotland-Uruguay þann
13. júní.
F-riðill:
Pólland.........2 110 1-03
Portúgal........2 10 1112
Marokkó.........2 0 2 0 0-0 2
England.........2 0 110-11
Leikir sem eftir eru: England-Pólland
og Portúgal-Marokkó þann 11. júní.
• Danir og Brasihumenn eru einu
þjóðirnar sem hafa tryggt sér þátt-
tökurétt í 16-liða úrslitin en á milli
riðlakeppninnar og 16-liða úrslitanna
verður þriggja daga hlé á keppninni.
Keppni í hinum riðlunum er yfirleitt
mjög spennandi og úrslit ráðast ekki
fyrr en í síðustu leikjum i riðlunum.
• Einnig vekur það athygli hvað liðin
í F-riðli hafa verið ónýt við að skora
mörk. 1 leikjunum í riðlinum hafa liðin
aðeins skorað tvö mörk. Englendingar
og Marokkómenn hafa ekki enn skor-
aö í Mexíkó. -SK
Tennumar
dregnarúrí
tilefni HM
Haukur Lárus Haukssan, DV, Danmbiku:
Hin 36 ára gamla Marcela Marquez,
sem starfar sem einkaritari í Mexíkó-
horg, hafði ekki gert ráð fyrir þvi að
láta gera við tennumar í sér fyrir
heimsmeistarakeppnina. En það gerð-
ist eigi að síður.
I tilefhi HM hafa borgaryfirvöld
komið upp hreyfanlegum tannlækna-
stólum viða um borgina. Þar átti fólk
að geta fengið gert við tennur sínar
ókeypis. Er þetta sjálfsagt gert til þess
að allir geti brosað sinu fegursta nú á
þessum hátíðisdögum.
En senjóríta Marquez sagði sínar
farir ekki sléttar afjx:ssari tannlækna-
þjónustu. Tönnum hennar fækkaði
heldur eftir að hún settist í einn af
þessum tannlæknastólum. „Ég skil
ekki hvað kom fyrir. Ég ætlaði aðeins
að fá tannhreinsun en í staðinn voru
nokkrar tennur dregnar úr. Þeita var
bara eins og í gamla daga. Ef eitiavað
var i ólagi þá var tönnin. einfaldlega
dregin úr." sagði Marquez sem brosir
svo sannarlega ekki framan í heiminn
þessa dagana. -SMJ
Siggi með 76,14 m
Sigurður Einarsson varð annar i
keppni i spjótkasti á bandaríska há-
skólameistaramótinu um helgina.
Sigurður kastaði spjótinu 76,14 metra
en sigurvegari varð Sviinn Dag Wenn-
lund sem kastaði 78,86 metra. -SK.
Evrópumet
í þrístökki
Auðvetí hjá Lewis
Nikolai Musienko frá Sovétríkjun-
um bætti Evrópumetið í þrístökki um
1 cm þegar hann stökk 17,78 m á frjáls-
íþróttamóti í Leningrad um helgina.
Eldra metið átti Kristo Markov frá
Búlgaríu frá því i ágúst á síðasta ári.
• Carl Lewis sigraði auðveldlega í
100 m hlaupí á móti í Oregon í gær.
Lewis hljóp 100 m á 10,08 sek. og varð
m.a. á undan heimsmethafanum Cal-
vin Smith. Ben Johnson frá Kanada,
sem sigraði Lewis í síðustu viku.
keppti ékki á mótinu. Lewis varð að
sleppa langstökkskeppninni vegna
tognunar sem hann hlaut i 100 m
hlaupinu.
„Þetta er mikið áfall vegna þess að
ég er nýbúinn að jafria mig af slæmum
meiðslum." sagði Steve Cram, hlaup-
arinn frægi, en hann meiddist aftur á
móti í Englandi í gær. Cram varð að
hætta keppni í 1500 m hlaupi vegna
raeiðslanna. -SMJ
Elkjær marka-
hæstur
Það cr Daninn Preben Elkjær Larsen
sem er nú markahæstur á HM með 4
mörk i tveimur leikjum. Fimm leik-
menn hafa síðan skorað tvö mörk. Það
eru þeir Joi'ge Valdano (Argentínu),
Sandro Altobelli (Ítalíu), Julio Romero
(Paraguay), Ivan Yaremchuk (Sovét-
rikjunum) og Klaus AUofs (V-Þýska-
landi). -SMJ
JVVTT SMJVtANUJVtER FRÁ 8. JÚNÍ
O®#' SS OO IhIhekiahf
1 1 I * w ^iS I Laugavegi 170-172 Simi 695500