Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1986, Blaðsíða 42
42
DV. MÁNUDAGUR 9. JÚNÍ 1986.
Sviðsljós_____________Sviðsljós____________Sviðsljós_____________Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Veit mamma hvað ég vil?
an dreka sem verður aðalnúmerið í
skrúðgöngunni. Þetta karnival er
dálítið sérstakt að því leyti að við
sækjum þemað í íslenska sögu, fyrst
goðsögur en síðan þaráttuna milli
kristni og heiðni á íslandi o.s.frv.
Þetta er semsagt þjóðlegt karnival,
sem allir ættu að geta haft gaman
af, ekki síst ef þeir taka þátt í því
sjálfir."
Mynd KAE
Jóhannes Páll
sem situr í Vatíkaninu, á nú í
baráttu við þyngdina. Starf páfa
er greinilega fitandi og því situr
hans heilagleiki og telur kalor-
íur. Síðast þegar fréttist sýndi
vigtin að páfinn væri 8 kg of
þungur. Jóhannes Páll hefur nú
keypt sér skokkgalla og hleypur
nokkra kílómetra á hverjum
morgni. Það hefur strax borið
árangur, að minnsta kosti segir
í yfirlýsingu frá páfastóli að leið-
togi kaþólsku kirkjunnar hafi
þegar lést um tvö kiló.
Þessa dagana eru krakkar í leik-
hópnum Veit mamma hvað ég vil?
að undirbúa rammíslenskt karnival
sem fer fram þann 17. júní á götum
bæjarins. Leikstjóri er Árni Pétur
Guðjónsson og að hans sögn er leik-
hópurinn að leita að sem flestum
þátttakendum til að vera með. „Þeim
sem hafa áhuga og eru orðnir 18 ára
er velkomið að kíkja niður í Borgar-
skála í Sigtúni þar. sem við æfum
fyrir hátíðina og smíðum gríðarstór-
„Geta talað
standandi"
Muriel Bryant, t.v.‘, og Erla Guðmundsdóttir. DV-mynd PK
Phil Collins
er að öllum líkindum ein dug-
legasti og fljótasti plötufram-
leiðandi í heimi. Nú nýverið var
maðurinn mættur í hljóðver
ásamt rokk og blúsaranum Eric
Clapton. Þeir tvímenningarnir
sungu 12 lög inn á plötu á að-
eins sex dögum, snaggaralega
gert. Þess má til gamans geta
að Michael Jackson hefur verið
að vinna að 12 laga plötu I heil
tvö ár og er henni ekki lokið!
Skyldi þeirra flokkur vera að vinna eða tapa?
Kosn i ngastemm ni ng
Kosninganætur hafa alltaf verið
sveipaðar stemmningarljóma. Hvar-
vetna um landið koma menn saman
á kosningavökum, fylgjast með
tölum og gera sér dagamun. Allir
halda með sinum flokki og ef vel
gengur glymja fagnaðarópin um
ganga og sali.
í sveitarstjórnarkosningunum um
daginn brugðu menn ekki út af þess-
um vana og víða var mikið um dýrðir.
Meðfylgjandi myndir voru teknar í
Grundarfirði og skýra þær sig sjálfar.
Ronald P.
Reagan
sonur hins eina sanna forseta
Bandaríkjanna, hefur fengið
hlutverk í nýrri kvikmynd - „So-
ul Man". Þará ballettdansarinn,.
Playboy-blaðamaðurinn og for-
setasonurinn að leika ráðsnjall-
an námsmann í peningavand-
ræðum. Námsmaðurinn snjalli
grípur til þess ráðs að gleypa
ógrynnin öll.af sólpillum til að
verða svartur og geta sótt um
peningastyrk.
Fyrir skömmu heimsótti Muriel
Bryant, framkvæmdastjóri al-
þjóðasamtaka Málfreyja, landið.
Tilgangur hennar var að fylgjast
með starfsemi nýstofnaðrar Is-
landsdeildar og kenna ný þjálf-
unarprógrömm.
Á íslandi eru starfandi einar 22
deildir og eru 5 í Reykjavík en
hinar eru dreifðar út um allt land
nema á Austfjörðum og er það
miður. Starfsemi Málfreyja hófst
á íslandi í upphafi kvennaáratug-
arins, 1975. Um stöðuga aukn-
ingu félaga hefur verið að ræða
og búist er við fjörkipp í aukning-
unni nú í kjölfar nýstofnaðra
landssamtaka. Að sögn Erlu
Guðmundsdóttur, formanns
landssamtakanna, er tilgangur
félagsins að þjálfa konur í að
geta talað standandi þ.e. staðið
upp hvar sem er og hvenær sem
er og sagt sína skoðun vafninga-
laust. Ræðumennska er þó ekki
það eina sem kennt er. Konur eru
einnig þjálfaðar í alþjóðlegum
fundarsköpum og öllu sem snertir
samskipti manna. Óþarft er sjálf-
sagt að minna á að kunnátta í
mannlegum samskiptum reynist
mörgum heilladrjúg þegar út í
lífið er komið.
Til hamingju!