Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1986, Blaðsíða 26
26
DV. MÁNUDAGUR 9. JÚNÍ 1986.
íþróttir íþróttir Iþróttir Iþróttir
Staðan í
1. deild
Heil umferð var í 1. deildinni á
föstudagskvöld. Úrslit urðu þessi:
Akranes-FH 1-0
Breiðablik-Víðir 0-1
Valur-Fram 1-1
Þór-KR 0-1
Keflavík-ÍBV 1-0
Staðan er nú þannig:
KR 5 2 3 0 7-2 9
Akranes 5 2 2 1 5-2 8
Víðir 5 2 2 1 3-3 8
Valur 5 2 1 .2 7-4 7
FH 5 2 1 2 6-5 7
Breiðablik 4 2 1 1 3-2 7
Keflavík 5 2 0 3 3-7 6
Fram 4 1 2 1 3-3 5
Þór 4 1 1 2 3-4 4
ÍBV 4 1 0 3 1-9 1
Markahæstu leikmenn eru nú:
Valgeir Barðason, Akranesi 4
Hilmar Sighvatsson, Val 3
Ingi Björn Albertsson, FH 3
Jón Þórir Jónsson, Bbliki 3
-hsím.
Staðaní
2. deild
í 2. deild karla var háð heil umferð
um helgina, fjórða umferðin. Úrslit
urðu þessi.
Völsungur-Njarðvik 1-2
Siglufjöröur Isafjörður 1-1
KA-Þróttur 2-1
Víkingur-Skallagrímur 9-0
Einherji-Selfoss 0-0
Staðan er nú þannig:
KA 4 2 2 0 10- 4 8
Njarðvik 4 2 2 0 9- 5 8
Selfoss 4 2 2 0 6- 2 8
Víkingur 4 2 11 14- 4 7
Siglufj. 4 1 3 0 6- 5 6
Völsungur 4 12 1 5-3 5
Einherji 4 12 1 4-7 5
ísafjörður 4 0 3 1 8-10 3
Þróttur 4 0 1 3 5- 9 1
Skallagrímur 4 0 0 4 1-19 0
Markhæstu leikmenn eru nú.
Andri Marteinsson, Víkingi 7
Gústaf Björnsson, Siglufj. 4
Jón Gunnar Bergs, Selfoss 4
Tryggvi Gunnarsson, KA 4
-hsím.
„Hefáhyggjur"
- Spánn vann N-íriand, 2-1
„Ég hef áhyggjur af því hvaða leik-
menn ég get látið leika gegn Alsír,
margir meiddir. Við lékum mjög vel í
íyrri hálfleiknum gegn Norður-lrlandi
en mark íra strax í byrjun þess síðari
hafði sálræn áhrif á leikmenn mina.
Þá bættu meiðsli Gordillo ekki úr.
Hann gat aðeins leikið af hálfum
krafiti í síðari hálfleiknum," sagði
Miguel Mimoz, landsliðsþjálfari Spán-
ar, eftir 2-1 sigur á Norður-írlandi á
HM á laugardag. Leikið í Guadalajara
og áhorfendur 28 þúsund.
„Við vorum illa leiknir fyrstu 20
mínútumar. Hefðum þó getað náð
jafntefli,“ sagði Billy Bingham, stjóri
Ira. Strax á fyrstu mín. skoraði Emilio
Butrageno fyrir Spán og þegar Julio
Salinas skoraði á 19. mín. virtist öllu
lokið. Spánveijar miklu betri. En þeir
fengu á sig mikið klaufamark á 47.
mín. - Colin Clarke skoraði - og það
setti spænsku leikmennina heldur bet-
ur út af laginu. írar náðu oft hættuleg-
um sóknum og börðust af krafti en
leiknin var slök. í fyrri hálfleiknum
fékk Colin Clarke tvö góð færi, sem
hann misnotaði. Fékk talsvert lými
vegna þess hve spænskir höfðu
stranga gæslu á Norman Whiteside.
hsim
Grétar Einarsson skallar knöttinn yfir Örn Bjarnason, markvörð Breiðabliks, og i markiö. Eina mark leiksins. DV-mynd Brynjar Gauti.
Víðir í toppbaráttunni
eftir sigur á Blikum
-óvæntur sigur Víðis, 1-0, í Kópavogi í 1. deild
„Þetta var mikill baráttuleikur en
sigur okkar sanngjarn. Við spiluðum
síðari hálfleik af öryggi og beittum
síðan skyndisóknum. Annars er tak-
markið sem fyrr að halda okkur í
fyrstu deild," sagði Kjartan Másson,
þjálfari Víðis í Garði, eftir að lið hans
hafði sigrað Breiðablik í slökum og
tíðindalitlum leik á föstudagskvöldið.
Víðismenn skoruðu eina mark leiks-
ins á síðustu mínútu fyrri hálfleiks
og eru nú komnir í þriðja sæti fyrstu
deildar.
Leikurinn á Kópavogsvelli fór
mjög rólega af stað, barist var á
miðju vallarins og langar sendingar
hjá leikmönnum sem hittu sjaldnast
á samherja. Á 17. mín. fengu Blikarn-
ir sitt besta færi í leíknum. Jón Þórir
Jónsson, hinn sókndjarfi framherji
Breiðabliks, komst í gegn um Víðis-
vörnina en Gísli Hreiðarsson,
markvörður Víðis, bjargaði með
góðu úthlaupi.
Upp við mark Breiðabliks myndað-
ist mikil hætta þegar Helgi Bentsson
einlék skemmtilega inn í vítateigs-
hornið, gaf fyrir markið en þar var
enginn Víðismaður svo að heima-
menn sluppu með skrekkinn. En svo
allt í einu, á siðustu sekúndum fyrri
hálfleiks, tókst Víðismönnum að
skora. Daníel Einarsson kýldi knött-
inn langt fram völlinn og inn í
vítateig Breiðabliks. Þar stóð Örn
Bjarnason, markmaður Blikanna, og
virtist ætla að handsama knöttinn
en Grétar Einarsson skaust
eldsnöggt upp í boltann og skallaði
hann laglega í netið.
Síðari hálfieikur
Lítið sem ekkert dró til tíðinda eft-
ir leikhlé en þó voru Víðismenn nær
því að bæta marki við en Blikarnir
að jafna. Klemens Sæmundsson fékk
gott færi á 70. mín. en Örn varði
glæsilega. Mark Duffield skallaði
rétt framhjá skömmu síðar. Leik-
menn Breiðabliks komust hins vegar
ekkert áleiðis gegn sterkri vörn Víð-
is. I lokin spörkuðu Víðismenn svo
boltanum eins langt í burtu og mögu-
legt var og höfðu öll stigin þrjú á
brott með sér í leikslok. Sanngjarn
sigur, þar sem Víðismenn börðust
miklu betur. Liðið leikur ekki
skemmtilega knattspyrnu en þó ár-
angursríka. Helgi Bentsson var mjög
góður í framlínunni, alltaf myndast
hætta þegar hann er með knöttinn,
einnig átti Daníel Einarsson góðan
leik. Hann stjórnar vörninni vel og
Víðismenn hafa haldið hreinu marki
í síðustu fjórum leikjum. Lið Breiða-
bliks var lélegt og olli sannarlega
vonbrigðum. Skástu menn liðsins
voru þeir Ólafur Björnsson og Jón
Þórir Jónsson, sem ekki tókst að
skora að þessu sinni. Dómari var ÓIi
Ólsen og dæmdi sæmilega.
Lið Breiðábliks:
Örn Bjarnason, Ingvaldur Gústafs-
son, Ólafur Björnsson, Magnús
Magnússon, Benedikt Guðmunds-
son, Jón Þórir Jónsson, Hákon
Gunnarsson, Rögnvaldur Rögn-
valdsson (Helgi Ingvarsson, 63. mín.)
Guðmundur Guðmundsson, Guð-
mundur Sigurðsson (Jóhann Grét-
arsson, 63. mín.), Vignir Baldursson.
Lið Víðis:
Gísli Hreiðarsson, Klemens Sæ-
mundsson, Björn Vilhelmsson,
Vilhjálmur Einarsson, Ólafur Ró-
bertsson, Daníel Einarsson, Guðjón
Guðmundsson, Mark Duffield, Helgi
Bentsson, Grétar Einarsson, Þórður
Þorkelsson (Vilberg Þorvaldsson, 65.
mín.)
Gult spjald: Grétar Einarsson.
Áhorfendur: 603.
Maður leiksins: Helgi Bentsson,
Víði.
Wilkins rekinn af velli
og jafiitefli Englands við Marokkó
• Ray Wilkins, rekinn af velli í fyrsta
sinn.
„Þegar dómarinn flautaði hélt ég að
við ættum að fá aukaspymu. Dómar-
inn sagði hins vegar að hann hefði
dæmt rangstöðu á England. Ég tók
boltann upp og kastaði honum í átt til
leikmannanna. Það var alls ekki ætlun
mín að kasta honum i dómarann,"
sagði Ray Wilkins eftir að hann var
rekinn af velli á 41. mín. í leik Eng-
lands og Marokkó á föstudagskvöld. í
fyrsta sinn sem Wilkins er rekinn af
velli á löngum ferli. Þegar atvikið átti
sér stað var hann fyrirliði enska liðs-
ins, Bryan Robson fyrirliði hafði
slasast sex mín. áður á öxl og varð að
fara út af.
„Þetta var afar heimskulegt af mér
og þegar mér var vísað af velli var ég
Enski dómarinn George Courtney
var mjög í sviðsljósinu í leik Mexíkó
og Paraguay á Azteca-leikvanginum í
Mexíkó-borg á laugardag. Jafntefli
varð 1-1 og 114 þúsund áhorfendur
voru ekki ánægðir með það. Julio
Romero jafnaði fyrir Paraguay sex
mínútum fyrir leikslok.
algjörlega tómur, gat ekki hugsað. Ég
er mjög hryggur og einnig reiður,"
sagði Wilkins ennfremur. Hann hafði
leikið mjög vel þar til brottreksturinn
átti sér stað, tvívegis leikið Waddle
alveg frían en Waddle tókst ekki að
nýta sér það. Wilkins var bókaður
snemma í leiknum og segja fféttamenn
að það hafi verið harður dómur. Bók-
un aftur þegar hann kastaði boltanum
i dómarann og þvi rautt spjald.
„Ég dáist að því hvemig leikmenn
mínir léku í síðari hálfleiknum. Þeir
voru hetjur því það er erfitt að leika
einum færri,“ sagði Bobby Robson,
landsliðseinvaldur Englands, eftir
leikinn. Enska liðið sótti miklu meira
Mexíkó náði forustu með marki
Luis Flores á 33. mín. og hefði átt að
fá vítaspymu þegar Hugo Sanchez,
Real Madrid, komst í gott færi en
markvörður Paraguay, Roberto Fem-
andez, felldi hann. Dómarinn dæmdi
ekkert en atvikið átti sér stað á 39.
mín. Hins vegar bókaði hann þrjá leik-
í síðari hálfleiknum en gat ekki skorað
ffekar en áður á HM. Leiknum lauk
með markalausu jafhtefli, (1-0, og það
merkilega var að þó leikmenn Ma-
rokkó væru einum fleiri gerðu þeir
litla tilraun til að vinna. Virtust mjög
ánægðir með að fá stig úr leiknum,
töfðu lokakaflann. Snem stundum við
á miðjum velli, léku aftur og oft alla
leið til markvarðar. Skrítinn bolti það.
Hodge kom í stað Robson þegar hann
slasaðist og þegar langt var liðið á
leikinn kom Gaiy Stevens, Tottenham,
inn fyrir Mark Hateley, sem hafði
verið bókaður. Að öðm leyti var enska
liðið eins skipað og gegn Portúgal.
menn í fyrri hálfleiknum og þegar
hann bókaði „dýrlinginn" Sanchez á
74. mín. ætlaði allt að verða vitlaust.
Shanchez hélt þá mikla sýningu en
hefur sennilega eytt of miklum kröft-
um í hana. Eftir að Romero skoraði
fékk Mexíkó vítaspymu. Femandez
varði frá Sanchez og leiktíminn rann
hsím
hsím
Mexíkó misnetaði vrti
- og Paraguay náði jafhtefli á Azteca-leikvanginum