Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1986, Blaðsíða 28
28
DV. MÁNUDAGUR 9. JÚNÍ 1986.
íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir
Fýrsta tap Þórs á Akur-
eyri í rúma 22 mánuði
- umdeilt sigurmavk Ásbjóms í 1-0 sigi KR í I. deild
Frá Þráni Stefánssyni, fréttamanni
DV á Akureyri:
Þór tapaði í fyrsta skipti á heima-
velli frá 22. júlí 1984 í l.deildinni þegar
KR-ingar léku hér á föstudagskvöldið.
Aðeins eitt mark skorað í leiknum og
það var mjög umdeilt. Tveir fyrrum
KA-menn á Akureyri voru bak við
mark KR. Gunnar Gislason gaf lang-
sendingu næstum frá eigin vítateig
fram og beint á Ásbjörn Bjömsson, þar
sem Ásbjöm var talsvert fyrir innan
vamarmenn Þórs. Eftirleikurinn var
auðveldur fyrir Ásbjörn. Hann lék á
Baldvin Guðmundsson, markvörð
Þórs, og renndi síðan knettinum í
markið. Það var fjaðrafok út af mark-
inu, leikmenn Þórs svo og áhorfendur
héldu því fram að Ásbjöm hefði verið
rangstæður, gleymt sér fyrir innan
vörn Þórs. Vissulega leit það þannig
út en dómarinn, Sveinn Sveinsson, og
línuvörður hans, Eyjólfur Ólafsson,
gerðu enga athugasemd. Markið dæmt
gilt og það tryggði sigur KR.
Nokkrir lögreglumenn voru við störf
á leiknum og í leikslok héldu þeir út
á völlinn til dómara og línuvarða hans,
þegar nokkrir áhorfenda virtust eiga
eitthvað vantalað við þá. Þeir fóru í
lögreglufylgd til búningsherbergja.
Fyrri hálfleikurinn á grasvellinum
hér á Akureyri var mjög slakur. Það
eina markverða var þegar Hálfdán
Örlygsson, KR, átti skot að marki, sem
Baldvin varði. Síðari hálfleikurinn
byrjaði hins vegar með fjöri. Halldór
Áskelsson átti skot í stöng KR-marks-
ins á 46. mín. og á 50. mín. átti Willum
Þórsson skalla að marki Þórs, sem
Baldvin rétt varði. Þá átti Sæbjöm
Guðmundsson skot rétt framhjá stöng
Þórsmarksins. Sigurmark Ásbjörns
var svo skorað á 76. mín. Leikmenn
Þórs atkvæðameiri það sem eftir lifði
leiks. Stefán Jóhannsson varði jarðar-
bolta, fast skot, frá Júlíusi Tryggva-
syni og rétt fyrir leikslok kom Bjami
Sveinbjömsson knettinum í mark KR.
Það var réttilega dæmt af vegna rang-
stöðu.
Það var ekki mikið um fína drætti
í leiknum. Þeir Júlíus og Siguróli
Kristjánsson bestir hjá Þór, Loftur
Ólafsson og Sæbjöm hjá KR. Tveir
KR-ingar bókaðir, Willum og Stefán
markvörður fyrir tafir. Landsliðsmað-
urinn hjá KR, Ágúst Már Jónsson,
varð að fara af velli á 70. mín. vegna
meiðsla og kom Hannes Jóhannsson
í hans stað. Liðin voru þannig skipuð.
Þór: Baldvin, Jónas Róbertsson,
Baldur Guðnason (Einar Arason), Nói
Bjömsson, Júlíus, Ámi Stefánsson,
Halldór, Siguróli, Bjami, Hlynur Birg-
isson og Kristján Kristjánsson.
KR: Stefán, Loftur, Hálfdán, Jó-
steinn Einarsson, Ágúst Már (Hann-
es), Gunnar, Willum, Júlíus Þorfinns-
son, Bjöm Rafhsson, Sæbjöm og
Ásbjöm.
Áhorfendur 1050.
Maður leiksins: Júlíus Tryggvason,
Þór.
hsím
• Ásbjöm Björnsson - umdeilt sig-
urmark.
• Júlíus Pétur Ingólfsson, bestur á
Skaganum.
Brassar
fyrstir
- í 2. umferð HM
Brasilía varð fyrst þjóðanna á HM
til að tryggja sér sæti í aðra umferð
HM þegar Brasilía sigraði Alsír, 1-0,
í Guadalajara á föstudag. Eina mark
leiksins skoraði Careca á 67. mín. eftir
mikinn misskilning í vöm Alsír. Bras-
ih'a hafði lengstum yfirburði í leiknum
utan 20 minútna kafla, þegar Alsír
hafði undirtökin.
„Þetta var spennandi leikur og jafii.
Tæknin frábær en því miður byijuðu
leikmenn mínir ekki nógu vel. Tal-
svert þvingaðir af orðstír Brassanna,“
sagði Rabah Sadane, þjálfari Alsír,
eftir leikinn. „ Það er erfitt að skora
mörk hér á HM, von að áhorfendur
kvarti vegna stífs vamarleiks. Aðeins
við, Sovétríkin og Danmörk reyna að
leika sóknarleik," sagði Tele Santana,
þjálfari Brasilíu, eftir leikinn. Lið
Brasilíu var þannig skipað: Carlos,
Edson (Falcao 11. mín.), Edinho, Julio
Cæsar, Branco, Elzo, Alemao, Socrat-
es, Junior, Careca, og Casagrande
(Muller 50. mín). Zico var ekki meðal
varamanna. hsím
Mark eftir
110 sekúndur
- þegar Ungveijar unnu Kanada
Marton Esterhazy skoraði fyrir
Ungveijaland eftir aðeins 110 sekúnd-
ur í HM-leiknum við Kanada í C-riðli
í Irapuato á föstudag. Bætti þar með
met sovéskra, sem skomðu eftir eina
mínútu og 56 sekúndur gegn Ungveij-
alandi. f leiknum á föstudag sigraði
Ungveijaland, 2-0, og hefúr nú smá-
möguleika á að komast í aðra umferð.
Tvö stig en markatalan ljót, 2-6. Ung-
veijar leika síðasta leik sinn í riðlinum
við Frakkland á mánudag.
Detrai skoraði síðara mark Ung-
veijalands á 76. mín. Fjórum mín. fyrir
leikslok fékk Sweeney hjá Kanada að
sjá rauða spjaldið dómarans. Fyrsti
leikmaður á HM til að vera rekinn
af velli. „Leikurinn var erfiður, mér
finnst ég hafa elst um 30 ár síðan ég
kom hingað til Mexíkó,“ sagði Gyorgy
Mezey, landsliðsþjálfari Ungverja-
lands, eftir leikinn. hsím
Aðeins eitt mark þrátt fyrir
fjölmörg góð færi
- þegar Skagamenn sigruðu FH á Akranesi í 1. deild
Frá Sigurgeiri Sveinssyni, frétta-
manni DV á Akranesi.
Skagamenn léku oft prýðilega gegn
FH i 1. deildar leik liðanna á Akranesi
á föstudagskvöldið. Þeim tókst aðeins
að skora eitt mark þrátt fyrir fjölmörg
færi en þetta eina mark nægði þeim
þó til að hljóta stigin þijú. Sanngjam
sigur en eins og leikurinn þróaðist
hefðu FH-ingar hæglega getað „sto-
lið“ stigi undir lokin. Það hefði þó
aðeins flokkast undir þjófnað.
Tæplega sjö hundruð áhorfendur
(696) höföu varla komið sér fyrir á
áhorfendasvæðunum þegar Valgeir
Barðason skoraði eina mark leiksins.
Það var á fimmtu mín. Júlíus Pétur
Ingólfsson átti góða sendingu inn fyrir
vöm FH, Valgeir hljóp af sér vamar-
mennina og skoraði af öiyggi. Vel að
þessu marki staðið. Þó þetta yrði eina
mark leiksins var oft góð spenna.
Sveinbjöm Hákonarson skallaði yfir
mark FH eftir góða sendingu Guð-
bjöms. Hinum megin komst Ingi Bjöm
frír í gegn og í gott færi. Missti þá
boltann frá sér. Ólafúr Þórðarson átti
hörkuskot rétt framhjá marki FH og
Heimir Guðmundsson átti laust skot
í stöng FH-marksins. Síðasta færi fyrri
hálfleiksins átti Óli Dan. Hörkuskot
yfir mark eftir aukaspymu Kristjáns
Hilmarssonar. Rétt áður hafði Viðar
Halldórsson, bakvörður FH, bjargað
vel spymu frá Valgeiri.
Síðari hálfleikurinn var ekki eins
skemmtilegur og hafnfirsku leikmenn-
imir hristu þá talsvert af sér slenið
sem einkennt hafði þá í þeim fyrri.
Ingi Bjöm fékk fyrsta færið, komst
frír inn fyrir en Birkir varði auðveld-
lega laust skot hans.. Hinum megin
átti Valgeir skalla rétt framhjá, Júlíus
lék snyrtilega á nokkra vamarmenn
FH. Lyfti síðan knettinum yfir Halldór
markvörð en honum tókst að kasta
sér aftur og slá til knattarins sem lenti
ofan á þverslá. Rétt fyrir lokin komst
Óli Dan. í dauðafæri við mark Skaga-
manna en Birkir varði vel frá honum
í hom. Síðan rann leiktíminn út.
Hjá Akranesi bar Júlíus Pétur af,
besti maður á vellinum. Óli Þórðar,
Sveinbjöm og Guðbjöm vom einnig
góðir í liði Skagamanna. Ámi Sveins-
son meiddist á 25. mín. og kom Jakob
Halldórsson í hans stað. Hjá FH var
Henning Henningsson bestur, Óli
Dan. átti góða spretti og Halldór var
góður í markinu. Vonbrigði með Inga
Bjöm. Hann sást varla en fékk þó tvö
góð færi. Liðin vom þannig skipuð:
Akranes. Birkir, Guðjón Þórðarson,
Heimir, Sigurður Lárusson, Sigurður
Jónsson, Sveinbjöm, Ólafúr, Ámi
(Jakob 25. mín.),Júlíus, Valgeir og
Guðbjöm.
FH. Halldór, Viðar, Ólafur Kristj-
ánsson, Henning, Ólafur Jóhannesson,
Guðmundur Kristjánsson, Ingi Bjöm,
Ólafur Dan., Ólafur Hafsteinsson
(Hlynur Eiríksson), Pálmi Jónsson og
Kristján Hilmarsson (Hörður Magn-
ússon).
Dómari Bragi Bergmann.
Maður leiksins: Júlíus P. Ingólfsson,
Akranesi.
hsim
3. deild
3. deild
3. deild
Þrenna Gunnars Orra
og stórsigur hjá
Fylkismenn unnu stórsigur á Ár-
menningum á Árbæjarvelli á laugar-
daginn. Með sigrinum skutust þeir í
þriðja sæti riðilsins, á toppnum tróna
nýliðar ÍR en Stjarnan bíður færis í
öðru sæti með leik til góða.
f B-riðlinum heldur Leiftur frá Ól-
afsfirði toppsætinu í ömggum
höndum eftir útisigur á Eskifirði.
Úrslitin urðu annars í A-riðli:
Grindavík-ÍK 1-3.
Mörk ÍK skoruðu þeir Guðmundur
Gíslason 2 og Þórir Gíslason 1. Helgi
Bogason svaraði fyrir heimamenn.
Fylkir-Ármann 8-1.
Mörk Fylkis skomðu Gunnar
Orrason 3, Óskar Theódórsson 2,
Brynjar Jóhannesson, Gústaf Vífils-
son eitt og eitt var sjálfsmark. Mark
Ármenninga gerði ívar Jósafatsson.
ÍR-HV 5-3.
Heimir Karlsson, þjálfari ÍR, gerði
2 mörk en Bragi Bjömsson, Þorvald-
ur Steinsson og Sigurfínnur gerðu
allir sitt markið hver. Mörk gestanna
ofan af Skaga gerðu þeir Elías Víg-
lundsson, 2, og Valur Guðjónsson.
Leik Stjörnunnar og Reynis frá
Sandgerði var frestað þar sem enginn
dómari lét sjá sig.
Staðan í A-riðli:
ÍR 3 3 0 0 9- 3 9
Stjarnan 2 2 0 0 11- 0 6
Fylkir 3 2 0 1 9- 2 6
ÍK 3 2 0 1 4- 3 6
Reynir S. 2 1 1 0 2- 1 4
Ármann 3 0 1 2 2-11 1
Grindavík 3 0 0 3 1- 6 0
HV 3 0 0 3 3-15 0
leyfði sér þann munað að brenna af
vítaspymu í leiknum.
Austri-Leiftur 1-2.
Þeir Óskar Ingimundarson þjálfari
og Halldór Guðmundsson sáu um að
öll stigin fóm til Ólafsfjarðar. Grétar
Ævarsson svaraði fyrir Eskfirðinga
úr vítaspymu.
Magni-Þrótt.ur Neskaupstað 0-2.
Þróttarar sóttu öll stigin til Greni-
víkur með mörkum Marteins
Guðgeirssonar og Bergvins Haralds-
sonar.
Staðan í B-riðli:
í B-riðli urðu útslit þessi:
Reynir Á.-Leiknir F. 2-0.
Mörkin skomðu Öm Viðar Arnar-
son og Stefán G. Níelsson.
Valur Rf.-Tindastóll 0-1.
Mark Sauðkrækinga gerði Eyjólf-
ur Sverrisson. Eiríkur bróðir hans
Leiftur, Ól. 3 3 0 0 8-1 9
Þróttur, N. 3 2 1 0 7-1 7
Tindastóll 2 10 13-24
Reynir, Á. 3 1114-44
Magni 2 10 12-33
Austri, E. 2 0 112-31
Valur, Reyðarf. 2 0 0 2 0-5 0
Leiknir, F. 3 0 0 3 1-8 0 JFJ
Gunnar Orrason hefur alltaf verið
marksækinn miðherji.