Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1986, Side 2
2
LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1986.
Fréttir
Hólmfríður Karlsdóttir og börnin á Vifilsstöðum. DV-mynd BG.
Hófí snýr aftur til bamanna:
„Verð fóstra á
meðan ég hef
efni á því“
„Það var alveg æðislega gaman
að sjá börnin aftur. Sum þeirra komu
hlaupandi til mín en önnur voru
feimin. Þetta var dásamlegt," sagði
Hólmfríður Karlsdóttir sem heim-
sótti unga vini sína á bamaheimilinu
á Vífilsstöðum í gær. Það var orðið
langt síðan bömin höfðu séð eftir-
lætið sitt, fóstmna og fyrrum al-
heimsfegurðardrottningu, Hófí, sem
hefur haft öðrum hnöppum að
hneppa síðastliðið ár en gæta bama.
„Þrátt fyrir mörg tilboð er ég stað-
ráðin í að halda áfram að gæta
barnanna á Vífilsstöðum. Það er svo
ótrúlega gaman að ekkert annað
kemur til mála. Ekki einu sinni til-
boð um hlutverk í kvikmyndum sem
ég hef fengið,“ sagði Hófí og bætti
því við að peningar kæmu þessu
máli ekki við: „Ég verð fóstra svo
lengi sem ég hef efni á því. Ég veit
að laun fóstra eru ekki góð en félags-
skapur barnanna er dýrmætur. Mér
líður hvergi betur en meðal þeirra."
-EIR
Dönsk bremsa
á verðlagningu
steinullar
- verðlagsyfirvöld rannsaka hugsanleg undirhoð
fslenskir húsbyggjendur njóta nú
lægra verðs en ella á innlendri stein-
ull til einangrunar. Steinullarverk-
smiðjan hf. á Sauðárkróki, sem er
næstum einráð á markaðnum, ætlaði
að hækka steinullarverðið um 10 15%
í haust. Superfossverksmiðjumar i
Danmörku bjóða glemll á svo lágu
verði að íslenska steinullin hefur ekki
verið hækkuð nema um 5%.
Forráðamenn Steinullarverksmiðj-
unnar álíta danska boðið vera undir-
boð, „dumping". Að þeirra tilhlutan
em viðskiptaráðuneyti, fiármálaráðu-
neyti og Verðlagsstofnun að kanna
þetta boð. Teljist það undirboð má
búast við að lagt verði sérstakt gjald
á dönsku glemllina. Raunar er sáralít-
ið flutt inn af henni þrátt fyrir hag-
stætt verð. En möguleikinn er fyrir
hendi.
Þetta verðstríð er á ýmsan hátt sér-
kennilegt. Áður en Steinullarverk-
smiðjan hóf framleiðslu var miklu
meira notað af innfluttri glerull en
steinull enda er glemllin langtum
ódýrari. Hún er jafngóð sem hitaein-
angrun en mun lakari sem hljóðein-
angrun. Steinullarverksmiðjan varð
hins vegar að selja steinullina undir
glemllarverði til þess að ná markaðn-
um og tókst það. Margir telja þessa
aðferð Steinullarverksmiðjunnar
raunar hreint og klárt undirboð.
Verksmiðjan hefur svo verið rekin
með bullandi tapi sem nam 39 milljón-
um króna í fyrra og mun verða hátt í
50 milljónir króna í ár. Þar með er
hlutafé verksmiðjunnar næstum allt
horfið í taprekstur. Og áætlun fyrir
næsta ár gerir ráð fyrir að enn verði
45-50 milljóna króna tap. Þá er ekki
reiknað með að steinullárverðinu
verði haldið óbreyttu eins og nú er
raunin á.
Umboð dönsku Superfossverksmiðj-
anna er í höndum 0. Johnson &
Kaaber hf. Gunnlaugur Birgir Daní-
elsson deildarstjóri álítur að verðtil-
boð þeirra fyrir glerull sé eðlílegt þótt
það sé vafalaust komið eins neðarlega
og hægt sé að bjóða án þess að borga
með vömnni. Hann telur fráleitt að
Danimir hafi slíkan áhuga á íslenska
markaðnum að þeir vilji gefa með
framleiðslu sinni.
Deildarstjórinn bendir á að offram-
boð sé á þessum vörum um allan heim
og verksmiðjur almennt ekki reknar
nema með hálfum afköstum. Ástandið
leiði af sér mikla samkeppni um sölu
þar sem verðið hafi vissulega mikla
þýðingu. Hann segir að þrátt fyrir síð-
asta verðtilboð Superfoss, frá því i
vor, og sem forráðamenn Steinullar-
verksmiðjunnar telji undirboð hafi
engin áhersla verið lögð á að komast
aftur inn á íslenska markaðinn með
kynningu eða auglýsingum.
„Markaðurinn hér er ekki það stór
og við höfum viljað lofa mönnum að
koma fótum undir steinullarfram-
leiðsluna, sé það hægt. Áður en þeir
byrjuðu vorum við orðnir stærstir í
glerullarsölunni og þetta er þess vegna
okkar vettvangur. Þótt ég sé ekki sér-
stakur frj álshyggj upostul i held ég að
það yrði mjög óheppilegt að þeir stein-
ullarmenn næðu einokunarstöðu. Þeir
verða auðvitað að sætta sig við eðli-
legt aðhald," segir Gunnlaugur Birgir
Daníelsson.
-HERB
Spenna magnast fyrir prófkjör Framsóknar í Reykjavík:
Skilur smalamennskan
Harald eflir í kuldanum?
Gríðarleg smalamennska fyrir próf-
kjör Framsóknarflokksins í Reykja-
vík, sem verður um næstu helgi, virðist
ætla að skilja Harald Ólafsson, eina
þingmann flokksins í borginni, eftir
úti í kuldanum.
Heimildarmenn DV, sem spáð hafa
í hinn mikla fjölda sem bætist á kjör-
skrána, telja að slagurinn um efsta
sætið sé á milli Guðmundar G. Þórar-
inssonar og Finns Ingólfssonar. Staða
Haralds Ólafssonar sé veikari, ein-
faldlega vegna þess að hann hafi ekki
öfluga smalamaskínu eins og hinir.
Haraldur treysti á gamla flokksliðið.
Á síðustu vikum hafa um 2.400
manns gengið í flokksfélög í Reykja-
vík eða skráð sig á kjörskrá án þess
að ganga í flokkinn. Fyrir í Framsókn-
arfélögum í borginni voru um 1.900
manns.
Stefhir þannig í að um 4.300 manns
hafi rétt til að kjósa í prófkjörinu.
Ekki skila þeir sér allir á kjörstað.
Afioll eru ein’kum talin verða í hópi
gamalla flokksfélaga.
Spámenn DV telja ekki fjarri lagi
að áætla að 3.500 til 3.700 manns kjósi
í prófkjörinu. Af þeim fjölda séu tveir
af hverjum þrem nýkomnir á kjörskrá
vegna smölunar.
Hvor hefiir þá smalað betur. stuðn-
ingsmannahópur Guðmundar eða
Finns?
Finnur er talinn fá megnið af at-
kvæðum þeirra sem gengu í Félag
ungra framsóknarmanna, um 670
manns. Af þeim sem skráðir voru á
kjörskrá sem óflokksbundnir er Finn-
ur talinn eiga 500 tíl 600. Þannig
virðist smölum Finns hafa tekist að
safna 1.100 til 1.200 nýjum atkvæðum.
Guðmundur og menn hans eru tald-
ir hafa smalað 800 til 900 inn á kjör-
skrána fyrir þetta prófkjör. Ennfremur
er talið að Guðmundur eigi drjúgt af
atkvæðum meðal gamalla félaga
vegna fyrri smalana en þessi er ekki
sú fyrsta fyrir hann.
Heimildarmenn blaðsins telja að
munurinn á Finni og Guðmundi verði
innan við 200 atkvæði. Á hvom veginn
úrslitin verða geti ráðist af því hversu
duglegir þeir verða við að tala við
gamla flokksliðið þá viku sem er til
prófkjörsdags.
Haraldi Ólafssyni lýst illa á stöðuna.
Hefur hann óskað eftir því við kjör-
nefnd að vel verði gengið frá kjör-
skránni. Telur hann allnokkur dæmi
þess að bæði utanbæjarfólk og með-
limir annarra stjómmálaflokka hafi
skráð sig til þátttöku i prófkjörinu.
-KMU
Opna á
Bláfjöll um
helgina
í dag er ætlunin að opna skíða-
svæðið í Bláfjöllum fyrir almenn-
ing en það fer þó aðeins eftir veðri.
Eins og spáin var fyrir daginn i
dag voru líkur á að fresta þyrfti
opnuninni til morguns, sunnudags.
Að sögn Þorsteins Hjaltasonar,
umsjónarmanns skíðasvæðisins,
verður bamalyftan ekki i gangi til
að byrja með en bæði stólalyftan
í Kóngsgili og Borgarlyftan verða
skíðiimönnunr til reiðu.
í máli Þorsteins kom ennfremur
fram að ætlunin er að reisa nýja
bamalyftu í vetur á þeim stað sem
sú gamla er og á hin nýja að vera
mun fullkomnari en hin.
Aðspurður um likumar á að
fresta þyrfti opnun svæðisins
vegna veðurs sagði Þorsteinn að
menn yrðu bara að vona hið besta.
-FRI