Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1986, Blaðsíða 44
FRÉTTASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu um frétt hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er
notað í DV, greiðast 1.500 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 4.500 krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórrt - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Frjálst,óháð dagblað
LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1986.
Jón Páll sterkastur:
Dró 160 kílóa
þungan
jötun út
í leðjuna
Jón Páll Sigmarsson endur-
heimti í gær titilinn „Sterkasti
maður heims“. í spennandi keppni
í Nice í Suður-Frakklandi hlaut
Jón Páll 59 stig.
Bretinn Geoff Capes, sem náði
titlinum af Jóni í Portúgal í fyrra,
varð nú að sætta sig við annað
sæti. Hann hlaut 54 stig.
Þessir tveir kraftajötnar höfðu
mikla yfirburði yfir aðra keppend-
ur. Snerist keppnin fljótlega upp í
einvígi þeirra. Næsti keppandi,
„slátrarinn" frá Hollandi, Ab
Volders, var langt fyrir neðan með
37,5 stig.
Óttast var að Jón Páll færi illa
út úr reiptoginu í gær enda mun
léttari en flestir aðrir keppendur,
„aðeins" 123 kíló. Jón kom hins
vegar á óvart með því að draga
hinn 160 kílóa þunga „Grizzly"
Brown út í leðjuna og tryggja sér
þannig 2. sæti í reiptoginu á eftir
Geoflf Capes.
Jón sigraði svo léttilega í rétt-
stöðulyftunni, sem fólst í því að
lyfta báti upp með sem mestum
sandi í.
í lokagreininni, að hlaupa með
kampavínstunnur og hlaða á pall,
sigraði Jón einnig.
-KMU
Skeljungur
kaupir ekki
Þórður Ásgeirsson, forstjóri OL-
ÍS, tilkynnti starfsfólki fyrirtækis-
ins á fundi í dag að hugmyndir um
samruna OLÍS og Skeljungs, eða
að Skeljungur keypti OLÍS, væru
úr sögunni. Fundurinn var haldinn
síðdegis í gær.
íslendingar efstir
- á ólympíuskákmótinu ásamt Sovétmönnum - þjóðimar tefla saman í dag
Islendingar sigruðu Argentínu-
merrn í sjöttu umferð á ólympíuskák-
mótinu í Dubai í gær með 3
vinningum gegn 1 og eru nú í efsta
sæti ásamt Sovétmönnum með 17,5
vinninga.
Urslit í einstökum skákum okkar
manna urðu þessi: Helgi Campora
1/2—1/2. Jóhann-Panno 1-0. Jón L.-
Palermo 1/2—1/2. Margeir-Ricardi
1-0.
Sovétmenn tefldu í gær við Eng-
lendinga og lyktaði þeirri viðureign
með jafhtefli, 2-2. Önnur helstu úr-
slit voru þau að Bandaríkjamenn
unnu Chilebúa með 3,5-0,5 vinning-
um, Rúmenar unnu Kínveija með
3,5 vinningum gegn 0,5. í viðureign
Ungverja og Búlgara var staðan
þannig að Ungveijar voru með 2
vinninga á móti 1, en ein skák fór í
bið. í viðureign Kúbu og Júgóslavíu
er staðan þanng að Kúba er með 0,5
vinninga en Júgóslavía er með 1,5
en tvær skákir fóru í bið. Líkur eru
á að Kúbumenn vinni aðra þeirra
en hin verði jafntefli, þannig að báð-
ar þessar þjóðir hafi 17 vinninga eftir
umferðina.
Eins og er eru í 2.-4. sæti eru Eng-
land, Bandaríkin og Rúmenía með
17 vinninga. Júgóslavía er í 5. sæti
með 16,5 vinninga og tvær biðskák-
ir. Þar fyrir neðan er Kanada með
16,5, Ungverjaland með 16 vinninga
og eina biðskák og loks Kúba með
15,5 vinninga og tvær biðskákir. í
dag, laugardag, munu Islendingar
tefla við Sovétmenn. A
Hólmfríður Karlsdóttir heimsótti unga vini á barnaheimili Vifilsstaða í gær. Börnin hlupu í faðm hennar er hún birtist -
sum voru feimin. DV.mynd bg.
- sjá Us. 2
Komdu með í
A1IKLAG4RD
LOKI
Þetta er ekkert mál fyrir
fleiri en Jón Pál!
Veðrið á sunnudag og mánudag:
Léttskýjað á Suðuriandi
en él fyrir norðan
Norðaustanátt verður um allt land, él fyrir norðan en þurrt og víða léttskýjað á Suðurlandi. Hiti verður á bilinu -1 til -7 stig.