Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1986, Side 4
4
LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1986.
Fréttir
Kári Jónasson.
Friðrik Páll Jóns- Einar öm Stef-
son.
ánsson.
Nýr fréttastjóri?
Stefán Jón Haf-
stein.
Harður slagur
í útvarpinu
Fjórir þaulreyndir útvarpsmenn
keppa nú um fréttastjórastarf við
fréttastoíú útvarps en nöfn umsækj-
enda voru opinberuð á útvarpsráðs-
fundi í gær. Umsækjendur eru Kári
Jónasson aðstoðarfréttastjóri, Friðrik
Páll Jónsson fréttamaður, Einar Öm
Stefánsson fréttamaður og Stefán Jón
Hafstein, fréttaritari Ríkisútvarpsins í
Bandaríkjunum.
Útvarpsráð fjallaði um umsóknimar
á fundi sínum í gær án þess að taka
afstöðu til þeirra. Starf fréttastjóra
losnar um áramótin er Margrét Ind-
riðadóttir lætur af störfum. Að feng-
inni umsögn útvarpsráðs skipar
Markús Om Antonsson útvarpsstjóri
í stöðuna.
Samkvæmt heimildum DV standa
umsækjendur nokkuð jafht að vígi þó
sumir þyki jafnari en aðrir í þessum
slag. Líklegt var talið að umsækjendur
yrðu fleiri og vom nöfn þeirra Ólafs
Sigurðssonar, fréttamanns sjónvarps,
og Jóns Hákonar Magnússonar sérs-
taklega nefnd í því sambandi. Þeir létu
sig vanta.
-EIR
Sfeinunn Þórðardóttir hefur í dag lifað heila öld. DV-mynd Þorgerður.
100 ára í dag
Frá Þorgerði Malmquist Neskaupstaö:
Steinunn Þórðardóttir, sem nú
dvelst á Fjórðungssjúkrahúsinu í Nes-
kaupstað, er 100 ára í dag. Er hún vel
málhress og fer fram úr á hverjum
degi.
Steinunn er fædd að Sléttaleiti í
Suðursveit þann 22. nóvember árið
1886. Foreldrar hennar vom þau
Ragnhildur Þorsteinsdóttir og Þórður
Arason frá Reynivöllum.
Til Eskifjarðar fluttist Steinunn svo
árið 1912 og bjó þar með manni sínum,
Bimi Ámasyni. Hann lést árið 1973.
Frá því í október 1978 hefúr Stein-
unn dvalist á Fjórðungssjúkrahúsinu
í Neskaupstað.
Steinunn og Bjöm áttu þrjú böm,
sem öll em á lífí. Þau em Vilborg,
Ragnar og Guðný. Afkomendur Stein-
unnar em famir að nálgast áttunda
tuginn í fimm ættliðum.
Ættingjar Steinunnar vilja þakka
starfsfólki sjúkrahússins alla þá að-
stoð og umönnun sem henni hefúr
verið veitt þar.
Fíkniefnakvikmyndin:
Beðið eftir svari
ráðherra
„Við erum að bíða eftir svari frá
menntamálaráðherra. Það hafa farið
fram viðræður við hann um hvort
halda eigi áfram gerð kvikmyndarinn-
ar. Ráðherra hefur látið þau orð falla
að hann vilji ljúka gerð hennar og
sýna í skólum víða um land,“ sagði
Ómar Einarsson, framkvæmdastjóri
íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavík-
urborgar, í samtali við DV.
Eins og kunnugt er af fréttum lét
Davíð Oddsson borgarstjóri stöðva
frekari tökur á kvikmyndinni „Þitt er
valið“ sem fjölmiðlunarfyrirtækið
Tákn var að gera fyrir Reykjavíkur-
borg og átti að fjalla um fíkniefna-
vanda ungs fólks. Óx borgarstjóra
kostnaður í augum en hann hafði rúm-
lega tvöfaldast miðað við upphaflega
áætlun.
„Það er allt stopp hjá mér,“ sagði
Önundur Bjömsson hjá Tákni að-
spurður. Hann bíður eftir fundi
borgarráðs næstkomandi þriðjudag en
þar verða örlög fíkniefhakvikmyndar-
innar að öllum líkindum ráðin.
-EIR
Stjómmál dv
Prófkjörsslagur Páls Péturssonar og Stefáns Guðmundssonar:
„Þetta verður
hnrfjafht“
„Ætli Páll hafi það ekki, ég held
það, en þetta verður hnífjafht. Það
verða ekki mörg atkvæði sem skilja
á milli hans og Stefáns,“ sagði fram-
sóknarmaður í Skagafirði um úrslit
prófkjörs Framsóknarflokksins í
Norðurlandskjördæmi vestra nú um
helgina. Æsispennandi prófkjör.
Talið er að baráttan um þriðja sætið
standi á milli Elínar Líndal, Lækja-
móti í Víðidal, og eina Vestur-
Húnvetningsins í prófkjörinu, og
Sverris Sveinssonar, varaþingmanns
á Siglufirði. Elín er af mörgum talin
Páll Pétursson, formaður þing-
flokks Framsóknarflokksins.
sigurstranglegri því auk Sverris býð-
ur Guðrún Hjörleifsdóttir, Siglufirði,
sig líka fram. Alls eru fimm í fram-
boði og reiknað er með um 1100
m.inna þátttöku í prófkjörinu. Úrslit
verða ljós eftir miðnættið á sunnu-
dagskvöld.
Prófkjörsreglumar slys
Flestir þeir framsóknarmenn, sem
DV ræddi við, eru á einu máli um
að það hafi verið slys að samþykkja
þær prófkjörsreglur sem kosið er eft-
ir. Einn tók heldur betur djúpt í
árinni er hann sagði: „Þetta er lang-
líklegasta regla sem fundin hefúr
verið upp til að sundra flokknum."
Höfundur prófkjörsreglnanna er
Magnús Ólafsson, bóndi á Sveins-
stöðum í Húnavatnssýslu. Þær eru
sagðar hugsaðar þannig að lítill
meirihluti geti ekki ráðið bæði fyrsta
og öðru sætinu.
Einn stuðningsmanna Stefáns
Guðmundssonar, á Sauðárkróki,
sagði beinlínis að Stefán hefði stefnt
á fyrsta sætið vegna prófkjörsregln-
anna. Hann hefði ella óttast að sjá
sína sæng uppreidda; óttast að það
gæti orðið „slys“ og hann dottið i
þriðja sætið.
Hver kjósandi merkir við tvo ffarn-
bjóðendur í prófkjörinu en fimm eru
í framboði. Setja skal töluna 1 við
nafn þess sem kjósandi vill að verði
númer eitt en töluna 2 við nafn þess
sem kjósandi vill að verði númer
tvö. Nái frambjóðandi 40 prósentum
greiddra atkvæða alls telst atkvæði
hans númer 2 aðeins sem 40 pró-
sent. Við þetta varð Stefán hræddur.
Þetta þýðir með öðrum orðum að
vægi atkvæðanna er misjafnt. 400
atkvæði í fyrsta sætið gefa 400 at-
kvæði en 400 atkvæði í annað sætið
gefa aðeins 160 atkvæði. Þess vegna
reyna öll þau sem taka þátt í próf-
kjörinu að fá sem flest atkvæði í
fyrsta sætið.
Stefán með skrifstofu
Nokkur munur er á vinnubrögðum
þeirra Páls og Stefáns. Sá síðar-
nefhdi opnaði kosningaskrifstofu
fyrir um tveimur vikum á Sauðár-
króki og þar er unnið ötullega að
því að Stefán fái Krókinn til að setja
sig í fyrsta sætið og ekkert annað.
Páll er ekki með kosningaskrifstofu.
Reyndar hefur Páll Pétursson sagt
að það hafi komið sér á óvart að
Stefán tók þennan pól í hæðina og
opnaði skriistofú. Með því sé verið
að efna til óffiðar. Þá segir Páll að
lendi hann ekki í fyrsta sæti líti
hann á það sem vantraust á sig.
Dyggur stuðningsmaður Stefáns, á
kosningaskrifstofu hans á Sauðár-
króki, sagði að þeir ynnu eingöngu
að því að Stefán færi í fyrsta sætið,
vegna reglnanna, þeir skiptu sér
ekki af hinum sætunum, hvað fólk
kysi í þau.
Dyggur stuðningsmaður Páls
sagði að undir venjulegum „kring-
umstæðum" ætti Páll að hafa það
en allt gæti gerst vegna hinna fárán-
legu prófkjörsreglna.
Hrepparígur
Stuðningsmaður Páls taldi að
Austur-Húnvetningar hefðu mjög
þjappað sér saman um Pál í fyrsta
sætið. Þá ætti hann nokkuð vísan
Fréttaljós
Jón G. Hauksson
stuðning Siglfirðinga og líklegast
nauman meirihluta í Vestur-Húna-
vatnssýslu. í innsveitum Skagafjarð-
ar skiptist fylgi þeirra beggja
nokkuð jafht. „Stefán á hins vegar
Krókinn alveg,“ bætti hann við.
Af þessu er ljóst að menn velta þvi
mjög fyrir sér hvemig Sauðárkrókur
skili sér i þessu prófkjöri. í skoðana-
könnuninni síðast, þar sem Stefán
fékk 637 atkvæði og 1008 manns tóku
þátt, kusu aðeins 120 frá Sauðár-
króki.
í siðustu bæjarstjómarkosningum
kusu um 440 manns Framsóknar-
flokkinn á Sauðárkróki og vitað er
að ýmsir „góðir" framsóknarmenn
kusu óháða og K-listann. Nú er róið
að því af öllum krafiti að þetta fólk
skili sér í prófkjörinu um helgina.
Þetta gæti þýtt að um 400 kysu Stef-
án í fyrsta sætið.
Annað er einnig að koma upp í
kjördæminu á síðustu dögum. Það
er að dyggustu stuðningsmenn Páls
og Stefáns tryggi sinn mann með því
að „blokkera" hinn.
Heyrst hefur að Elín Líndal,
Lækjamóti í Víðidal, fái þannig mörg
atkvæði. Stuðningsmenn Páls setji
hann því í fyrsta sætið og Elínu í
annað. Það sama geri stuðnings-
menn Stefáns, setji hann í það fyrsta
og Eh'nu í annað. Þetta gæti einfald-
lega þýtt að „slysið" yrði, að annar
lenti í því fyrsta en hinn í þriðja og
Elín skytist-inn á milli þeirra.
Vilja Pál og Stefán efsta
Langflestir þeirra sem DV hefur
rætt við segjast vilja sjá þá Pál og
Stefán í efstu sætunum og þetta hefði
verið tryggt með venjulegu prófkjöri
þar sem allir frambjóðendumir yrðu
númeraðir. Nú sé bitist vegna fárán-
legra reglna.
Við sögðum áðan frá því að fáir
af Króknum hefðu kosið í skoðana-
könnuninni fyrir nokkrum vikum,
eða 120. Þá kusu einnig fáir á
Blönduósi, eða 20. Nú er búist við
að Blönduósingar flykkist i prófkjör-
ið, hátt á annað hundraðið, og kjósi
Pál.
Hver er Elín?
En hver er þá þessi Elín R. Líndal
frá Lækjamóti í Víðidal sem margir
spá að lendi í þriðja sætinu? Hún
er þrítug að aldri, „er ung, falleg
kona,“ eins og einn orðaði það. Hún
er gift Þóri Isólfssyni og reka þau
myndarlegt bú á Lækjamóti. Hún
vinnur jafnframt sem verkstjóri við
saumastofu í Víðihlíðinni.
Elín er eini Vestur-Húnvetningur-
inn i prófkjörinu. Stuðningsmaður
hennar telur öruggt að heimasveitin
skili sér um helgina. Kemur þar ekki
síst til að ekkert BB-framboð verður
að þessu sinni. Ingólfur Guðnason,
sparisjóðsstjóri á Hvammstanga,
hefúr gefið allt slíkt upp á bátinn.
Takið eftir, lesendur góðir, að í
skoðanakönnuninni hjá Framsókn-
arflokknum í kjördæminu nýlega
fékk Ingólfur Guðnason 113 atkvæði
og Gunnar Sæmundsson, bóndi í
Hrútatungu, einum innsta bænum í
Hrútafirði, 106 atkvæði. Elín fékk í
sömu könnun 159 atkvæði.
Fari svo, eins og menn spá, að fylgi
Stefán Guðmundsson alþingis-
maður.
Ingólfs og Gunnars fari yfir á Elínu
er hún vel sett. Með þeirra fylgi í
skoðanakönnuninni hefði hún feng-
ið 378 atkvæði og orðið í þriðja sæti
í skoðanakönnuninni.
Það gerðist hins vegar ekki. Sigl-
firðingurinn Sverrir Sveinsson,
veitustjóri þar i bæ, varð í þriðja
sætinu, hlaut 260 atkvæði. Það sem
skemmir á hinn bóginn fyrir honum
núna er framboð Guðrúnar Hjör-
leifsdóttur, ungrar konu á Siglufirði.
Það er ljóst að Siglfirðingar verða
að velja og hafna, standa fast með
öðru hvoru þeirra, ef árangur á að
nást.
Það er á þessum forsendum sem
menn þykjast sjá að Sverrir, sem var
í þriðja sæti listans síðast og er nú
varaþingmaður, hafni í fjórða sæti
prófkjörsins um helgina. Einn sagði
um Sverri: „Þetta er ágætismaður
en hann hefúr ekki haft nógu góða
aðstöðu til að láta bera á sér. Hann
hefur lítið gert að því að böðlast um
vítt og breitt í kjördæminu."
Lítum á úrslitin í skoðanakönnun-
inni sem við höfum vitnað í hér á
undan. Úrslitin urðu þessi: Páll Pét-
ursson, Höllustöðum, A-Hún„ 674
atkvæði, Stefán Guðmundsson,
Sauðárkróki, 637 atkvæði, Sverrir
Sveinsson, Siglufirði, 260 atkvæði,
Elín R. Líndal, Lækjamóti, Víðidal,
159 atkvæði, Ingólfur Guðnason,
Hvammstanga, 113 atkvæði, Gunnar
Sæmundsson, bóndi Hrútatungu,
106 atkvæði og Guðrún Hörleifs-
dóttir, Siglufirði, 97 atkvæði. Alls
tóku 1008 þátt í skoðanakönnuninni
og það mátti setja þijú nöfn á list-
ann. I prófkjörinu nú um helgina
má aðeins setja tvö nöfn á listann.
Úrslitin eru bindandi fyrir þrjú efstu.
En að lokum, lesendur, ein spáin
í prófkjörinu um helgina er þessi:
nr. 1 nr.2
Páll 550 300(120) 670 atkv.
Stefán 450 300(120) 570 atkv.
Elín 200 400(160) 360 atkv.
Sverrir 100 250(100) 200 atkv.
Guðrún 10 60( 24) 34 atkv.
Við sjáum svo hvemig úrslitin fara
um helgina. Það skýrist aðfaranótt
mánudagsins. Gamli refúrinn á
Löngumýri, Bjöm Pálsson, móður-
bróðir Páls Péturssonar, sagði að
hann vissi „allt um úrslitin en ég
vil ekki segja þér þau. Mér þykir
hins vegar grábölvað að vinir mínir,
þeir Páll og Stefán, skuli vera að
bítast."
-JGH.