Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1986, Side 6
6
LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1986.
Utlönd
Olof Palme ranglega skatt-
lagður eftir Harvardfyrirlestur?
Skattamál Olofs Palme, fyrrum forsætisráðherra Svíþjóðar, voru mjög i
sviðsljósinu í Sviþjóð vikurnar áður en Palme var myrtur í febrúar síðast-
liðnum.
Gurailaugur A Jómssan, DV, Lundi
Innan skamms er að vænta dóms í
skattamáli Olofs Palme.
Mál þetta var mjög í sviðsljósinu
mánuðina áður en Palme var myrtur
en eins og vænta mátti misstu bæði
fjölmiðlar og almenningur áhuga á
málinu eftir morðið.
Það fór meira að segja ekki hátt að
sama dag og Palme var myrtur var
gögnunum í skattamáli þessu stolið
auk þess sem þurrkaðar voru út af
tölvu allar upplýsingar um málið.
Lögreglan hefúr enn ekki komist að
því hver var þar að verki en þeim hin-
um sama sást yfir að öll málsgögnin
voru til í tvíriti og þjófnaðurinn hefur
því ekki haft nein áhrif ó framgang
málsins í dómskerfinu.
Bakgrunnur þessa skattamáls er sá
að Olof Palme var boðið fjörutíu þús-
und sænskar krónur-, eða tæplega tvö
hundruð og fjörutíu þúsund íslenskar
krónur, fyrir að halda fyrirlestur við
Harvardháskólann í Bandaríkjunum.
Palme afþakkaði greiðsluna en hélt
fyrirlesturinn engu að síður.
Harvardnámið ókeypis
Síðan gerðist það að Jóakim sonur
Palme stundaði ókeypis nám við þenn-
an sama skóla í heilt ór og þar með
vaknaði spuming fréttasnápa og fleiri
hvort Palme hefði raunverulega verið
greitt fyrir fyrirlesturinn með því móti
að felld voru niður skólagjöld fyrir son
hans.
Skattanefhdin komst að þeirra nið-
urstöðu að svo væri og gerði Palme
að greiða þrjátíu og tvö þúsund sænsk-
ar krónur í skatt, eða tæplega tvö
hundruð þúsund íslenskar krónur.
Palme og lögfræðingur hans kærðu
þessa niðurstöðu. Tveimur dögum áð-
ur en kærufresturinn rann út, þann
tuttugasta og áttunda febrúar síðast-
liðinn, það er sama dag og Palme var
myrtur, einhvem tíma eftir skrifstofut-
íma þennan dag, hurfu svo málsgögn-
in.
Niðurstöðu í málinu er að vænta
fyrir miðjan desember en þá fellur
dómurinn um hvort Palme hafi verið
ranglega skattlagður.
á Rín að gjalda?
Hvers
Asgeir Eggerlssan, DV, Mimchen:
Menn spyrja sig hvers Rín eigi að
gjalda því að enn rennur í hana sor-
inn. I þriðja sinn á rúmum þrem vikum
mnnu eiturefni í ána snemma í gær-
morgun.
Hundrað kíló af illgresiseyðinum
gychlorphinoly-ediksýru runnu úr
verksmiðju í Ludwigshaven. Að sögn
forráðamanna verksmiðjunnar er ill-
gresiseyðirinn ekki nema að litlu leyti
eitraður.
Vegna bilunar í kælikerfi verksmiðj-
unnar komst efnið í gegnum kælipípur
og rann með kælivatninu út í fljótið.
Talsmenn verksmiðjunnar telja að ef-
nið hverfi fljótt úr umhverfinu með
náttúrlegum hætti. Tilkynntu þeir að
fólk þyrfti ekki að óttast eiturverkanir
af völdum efnisins. Engu að síður var
fylgt samkomulagi landanna, sem Rín
rennur um, hvað varðar viðvörunar-
skyldu. Yfirmönnum vatnsveitna
nágrannalandanna var gert viðvart.
Ymis umhverfisvemdarsamtök hafa
boðað til alþjóðlegra mótmælafunda
vegna endurtekinna eitmnarmengun-
ar í Rínarfljótinu.
Geivitennur græddar
við kjálkabeinið
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækur óbund. 8-9 Bb.Lb.Sp
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 9-10 Ab.Lb.Sb. Sp.Vb
6 mán. uppsögn 10-15 Ib
12 mán. uppsögn 11-15,75 Sp
Sparnaður - Lánsréttur
Sparað i 3-5 mán. 9-13 Ab
Sp. í 6 mán. og m. 9-13 Ab
Ávísanareikningar 3-7 Ab.Sb
Hlaupareikningar 3-7 Sb
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1-2 Bfa.Úb.Vb
6 mán. uppsögn 2.5-4 Úb
Innlán með sérkjörum 8,5-17
Innlán gengistryggð
Bandarikjadalur 5-7 Ab
Sterlingspund 8.75-10.5 Ab
Vestur-jrýsk mörk 3.5-4 Ab
Danskar krónur 7.5-9 Ib.Vb
ÚTLÁNSVEXTIR % lægst
Utlán óverðtryggð
Almennir víxlar(forv.) 15,25-16.25 Ab.Úb.Vh
Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kge/19,5
Almenn skuldabréf(2) 15,5-17 Ab.Vb
Viðskiptaskuldabréf(1) kge Allir
Hlaupareikningar(- 15.25-18 Ab.Sp.Vb
yfirdr.) Útlán verðtryggð Skuldabréf
Að 2.5 árum 4-6.75 Ab
Til lengri tima 5-6.75 Ab
Utlán til framleiðslu
Isl. krónur 15-16.25 Ab.Lb. Sp.Úb.Vb
SDR 8 Allir
Bandarikjadalir 7.5 Allir
Sterlingspund 12.75 Allir
Vestur-þýsk mörk 6.25 Allir
Húsnæðisián 3.5
Lífeyrissjóðslán 5
Dráttarvextir 27
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala 1517 stig
Byggingavisitala 281 stig
Húsaleiguvisitala Hækkaöi 9% 1. okt.
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennar tryggingar 111 kr.
Eimskip 228 kr.
Fiugleiðir 180 k-.
Hampiðjan 131 kr.
Iðnaðarbankinn 128 kr.
Verslunarbankinn 98 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af
þriðja aðila, er miðað við sérstakt
kaupgengi, kge. Búnaðarbankinn
reiknar þó vexti af viðskiptavíxlum
miðað við 19,5% ársvexti. (2) Vaxtaálag
á skuldabréf til uppgjörs vanskilalána
er 2% bæði á verðtryggð og óverð-
tryggð lán, nema í Alþýðubanka og
Verslunarbanka.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb = Búnaðarbankinn, Ib = Iðnaðar-
bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Úb = Útvegsbank-
inn, Vb = Verslunarbankinn,
Sp = Sparisjóðirnir.
Nánari upplýsingar um peninga-
markaðinn birtast í DV á fimmtu-
dögum.
Haukur L. Hauksson, DV, Kaupmannahafn:
Þeir er misst hafa eina tönn eða
fleiri ættu nú að geta séð fram á bjart-
ari tíð.
í Danmörku hafa tannlæknar að
undanfomu grætt gervitennur í
kjálkabeinið með góðum árangri, svo
góðum að fullvíst er talið að tennum-
ar sitji fastar um ókomna framtíð.
I danska tímaritinu, Rannsóknir og
samfélagið, segir tannlæknir nokkur
að það hafi lengi verið draumur tann-
lækna að geta grætt gervitennur í stað
þeirra horfnu. Þannig urðu leiguliðar
að gefa herrum sínum heilar tennur
úr sér hér áður fyrr. Átti að græða þær
í en það gekk hins vegar oftast illa.
Páll Vfflijálmsscn, DV, Osló:
Ósonlagið í himinhvolfinu heldur
áfram að þynnast. Nýlega uppgötvuðu
norskir vísindamenn gat á ósonlaginu
yfir Svalbarða.
Ósonlagið vemdar jörðina fyrir út-
fjólubláum geislum sólar. Of mikið
magn útfjólublárra geisla getur valdið
húðkrabbameini.
Ósonlagið liggur í um það bil tutt-
ugu til tuttugu og fimm kílómetra hæð
frá jörðu og hefur sífellt þynnst síð-
ustu árin vegna mengunar.
Það er einkum gastegundin freon
PáH Vfllgálmsgan, DV, Osló:
Hreinskilni kostaði homma einn í
Osló starfið fyrir skömmu. Homminn
vann á félagsmálastofhun borgarinnar
og játaði fyrir móður eins skjólstæð-
ingsins að hann væri hommi auk þess
sem hann stundaði vændi.
Móðirin fór rakleiðis til forstöðu-
manns félagsmálastofhunarinnar og
krafðist þess að homminn yrði þegar
Nú til dags er aftur á móti hægt að
setja æ fleiri gervilíffæri í stað ónýtra
eða sýktra og það sama á nú við um
tennur. Gervitennur eru framleiddar
úr sérstöku plastefni og eru græddar
beint á kjálkabeinið.
Telur tannlæknirinn að eftir tíu ár
verði reglan sú að tannleysi verði
bætt með gervitönnum.
Eitt þeirra vandamála er tengjast
þessari aðgerð er hættan á bólgum en
tannlæknar vinna hart að lausn þess.
Tanngræðing er dýr og kostar um
tvö hundruð þúsund íslenskar krónur.
í Sviþjóð borgar hið opinbera hluta
kostnaðarins og er vonast til að
danska ríkið komi til með að gera hið
sem brýtur upp ósonlagið. Hver eining
freons brýtur upp tíu þúsund einingar
af óson. Freon er meðal annars mikið
notað í hvers kyns úðunarbrúsum, til
dæmis í svitalyktareyði.
í Noregi hafa verið settar reglur er
banna innflutning á úðunarbrúsum er
innihalda freon. Nýverið voru nokkur
fyrirtæki kærð fyrir að brjóta þessar
reglur.
A ráðstefhu í Noregi, er lýkur um
helgina, kom fram að enn væri óson-
lagið nægilega þykkt en gera þyrfti
ráðstafanir til að hindra frekari eyð-
ingu þess.
í stað rekinn.
Móðirin hélt því fram að hann gæti
smitað bam sitt með eyðni. Þrátt fyrir
að homminn væri ekki með sjúk-
dóminn, né gæti smitað aðra í vinn-
unni þótt hann væri sjálfur sýktur, var
hann látinn taka pokann sinn.
Forstöðumaður félagsmálastofnun-
arinnar gaf þá ástæðu fyrir uppsögn-
inni að með hreinskilni sinni hefði
homminn íþyngt móðurinni að óþörfu.
sama.
Gat á ósonlaginu yffir Svalbarða
Hreinskilnin varð honum dýr
Mikil eftirspum
eftir jólahjálp
Haukur L. Haukssan, DV, Kaupmiböfa:
Starfsfólk bamahjálparinnar í
Kaupmannahöfn hefur þegar hafið
jólaundirbúninginn og felst hann
helst í fjárhagsaðstoð til fjöl-
skyldna sem eru svo illa staddar
að þær geta ekki haldið sómasam-
leg jól fyrir böm sín.
Nú þegar, fimm vikum fyrir jól,
hefur fjöldi atvinnulausra bankað
upp á hjá bamahjálpinni til að
tryggja að þau verði örugglega
með þegar hinni alþjóðlegu jóla-
hjálp verður úthlutað.
Starfsfólk bamahjálparinnar
segir það nýlundu að fólk sé svo
snemma á ferðinni og það af sjálfs-
dáðum, yfirleitt fái það upplýsing-
ar um illa staddar fjölskyldur í
gegnum skólana.
Bamahjálpina vantar nú um
þrjú hundruð og fimmtíu þúsund
danskar krónur til að geta úthlut-
að jólahjálpinni í ár til þeirra tvö
þúsund og fimm hundruð fjöl-
skyldna er talið er að þurfi á henni
að halda.
Jólahjálpin felst einnig í því að
gefin er karfa af mat og öðru er
nauðsynlegt þykir við hver jól.
Skemmdawerk á
bensínstöðvum Shell
Haukur L. Hauksson, DV, KauprrLhöfn:
Rúmlega tuttugu bensínstöðvar
Shell-olíufélagsins í Kaupmanna-
höfh og Árósum urðu fyrir barðinu
á skemmdarverkamönnum fyrr í
þessari viku. Vom skemmdarverk-
in framin á seima tíma og umsvifum
Shell-olíufélagsins í Suður-Afríku
var mótmælt.
Vom bensínslöngur skomar í
sundur, rúður brotnar, húsveggir
málaðir slagorðum og sums staðar
var sykri hellt niður í tankana.
Verður að hreinsa allt dælikerfið
og tankana þar sem sykurinn eyði-
leggur vélamar.
Deildarstjóri Shell segir að að-
gerðimar séu ekki réttlátar þar
sem Dansk Shell eigi ekki í neinum
viðskiptum við Suður-Afnku.
Fimm skemmdarverkamenn
vom handteknir við verk sitt og
sitja nú í ellefú daga gæsluvarð-
haldi.
í yfirlýsingu frá samtökum, er
kalla sig eftir blökkumannaleið-
toganum Steva Biko, segir að Shell
viðhaldi fasískum stjómarháttum
og þjóðarmorðum i mörgum ríkj-
um með alþjóðlegum umsvifum
sínum.
Danska Suður-Afríkunefhdin
hefur tekið skýra afstöðu gegn
þessum skemmdarverkum þar sem
þau eyðileggja allar tilraunir til
að koma Shell frá Suður-Afríku.
Royal Copenhagen
kaupir
Bing & Gröndahl
Haukur L. Haiflcssan, DV, KaiqamJnöfa:
Sameinuðu dönsku bmgghúsin,
er eiga meðal annars Carlsberg og
Tuborg bjórverksmiðjumar, hafa
undanfarin ár keypt ýmis listiðn-
aðarfyrirtæki í Danmörku í nafni
dótturfyrirtækis síns, Royal Co-
penhagen.
Nú hefur hin hundrað þrjátíu og
fimm ára gamla og þekkta postu-
línsverksmiðja Bing & Gröndahl
sameinast Royal Copenhagen.
Ástæðan er rekstrarörðugleikar
postulínsverksmiðjunnar undan-
farin ári. Nú munu ölpeningar
bjarga henni og atvinnu um eitt
þúsund starfsmanna.
Royal Copenhagen komst á legg
á árunum 1984 til 1985 og er í dag
eigandi hinnar konunglegu postu-
línsverksmiðju, Silfursmiðju
Georgs Jensen, Holmegaard gler-
verksmiðjunnar og Illum Bolighus
vöruhússins.