Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1986, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1986, Side 20
20 LAUGARDAGUR 22. NÖVEMBER 1986. „Við fórum til Glasgow í vor. Allir töldu að við værum að fara í verslun- arferð en við fórum til að skrifa og gerðum það svikalaust," segja þær systur Iðunn og Kristín Steinsdætur sem nú í vikunni unnu til fyrstu verðlauna í leikritasamkeppni Ríkis- útvarpsins fyrir leikrit sitt 19. júni. í níu daga unnu þær að verkinu af kappi. „Þegar við vorum orðnar þreyttar þá fórum við út á pöbb og tókum handritið með og héldum áfram að ræða verkið," segir Kristín. „Það er afskaplega notalega stemmning og afslappandi að vinna á pöbb, næðið er fullkomið og enginn skiptir sér af. Ég hef aldrei skilið kaffihúsaskáld fyrr en eftir þessa reynslu." Einn kafli í flugstöðinni „Mest af frumdrögum leikritsins skrifuðum við þó á hótelinu. Einn kafla skrifuðum við þó í flugstöðinni í Glasgow meðan við biðum eftir fari heim. Og þegar við komum til baka þá var beinagrindin að leikritinu fullmótuð en við áttum þó verulega vinnu eftir við endurbætur og nokkr- ar yfirferðir yfir textann áður en hann var fullbúinn." Þetta er í stórum dráttum sköpun- arsaga leikritsins. „Okkur datt reyndar í hug þegar allar konumar voru að koma heim frá Glasgow nú á dögunum að sennilega væru þær með allar töskur fullar af leikrit- um,“ segir Iðunn. Eftir að heim var komið hittustþær systur nokkrum sinnum og báru saman bækur sínar. Kristín býr á Akranesi og flestar ferðimar fór Ið- unn þangað með tölvudiskinn sinn. „Við erum með sams konar tölvur og getum því skipst á diskum eftir þörfum og samræmt þær hugmyndir sem við höfum um breytingar," segir Iðunn. „Það er mikill munur að vinna svona verk á tölvu. Við sömd- um þó ekki fmmdrögin þannig heldur handskrifuðum við allt í byrj- ' un. Það er betra að byrja að skrifa á einhverjum notalegum stað þar sem erfitt getur verið að burðast með tölvu. Það er fyrst og fremst við loka- vinnsluna þegar allar breytingamar koma til sögunnar sem kostir tölv- unnar njóta sín best.“ Allt í samvinnu Þær systur segja að útilokað sé að skilja á milli hvor á hvað í verkinu. „Við eigum þetta að öllu leyti sam- an,“ segir Kristín. „Við þekkjum þó eina og eina setningu en allar hug- myndirnar hafa þróast í samvinnu okkar. Sumir vilja gera því skóna að önnur hafi leikið á hljóðfærið en hin dansað en í raun og vem var það ekki þannig." Og þær systur hafa skrifað fleira með þessu móti. Um síðustu helgi var frumsýnt á Húsavík leikrit þeirra Síldin kemur og síldin fer. Það verk unnu þær í aðalatriðum á síðasta ári eh luku við það nú í byrjum árs. Það leikrit gerist í ótilgreindum síldarbæ einhvers staðar á Norður- eða Austurlandi. Raunar berast böndin fljótt að Seyðisfirði þar sem þær eru fæddar og uppaldar og „það er rétt,“ segir Kristín, „þetta er okk- ar reynsla í bland. Hins vegar er alveg Ijóst að það er ekki bara Seyð- isfjörður sem verið er að lýsa. Leikritið hefði getað gerst í hvaða síldarbæ sem er.“ Þær systur fóru til Húsavíkur til að vera viðstaddar fmmsýninguna. Iðunn og Kristín Steins- dætur segja frá verð- launa- leik- ritinu Það er því skammt stórra högga á milli því ekki var vikan nema hálfn- uð þegar þær voru kvaddar til að veita verðlaunum fyrir 19. júni við- töku. „Þetta kom okkur gjörsamlega í opna skjöldu," segja þær einum rómi. „Við áttum alls ekki von á að hreppa verðlaunin en erum afskap- lega ká( ar með þau.“ Jón er kominn heim Því fer þó fjarri að þetta séu frum- raunir þeirra systra í bókmenntun- um. Langt er síðan Iðunn var þekkt fyrir dægurlagatexta sem hún hefur samið fleiri en tölu verður á komið. „Jóp er kominn heim, er uppáhaldið hjá mér,“ segir Iðunn. Hún á einnig svo fræga texta sem Ég fer í fríið og Þorgeir Ástvaldsson hefur sungið við góðan orðstír. Iðunn samdi einnig marga texta fyrir Vilhjálm heitinn Vilhjálmsson og nú nýverið hefur hún verið að semja texta við lög fyrir Gísla Helga- son. „Það er mjög gott að semja við lögin hans. Þau eru svo falleg,“ segir Iðunn. Kristín hefur aftur á móti látið textagerðina alveg vera. „Ég er þýskukennari við Fjölbrautaskólann á Akranesi," segir Kristín, „og hef þýtt nokkuð af barnabókum úr þýsku. Ég bjó í Þýskalandi í 6 ár. Einnig hef ég skrifað sjálf nokkuð af barnaefni og núna á ég framhalds- sögu í Æskunni." Iðunn hefur einnig fengist við barnasögur og fyrir jólin kemur frá henni saga um jólasveinana með myndum eftir Búa Kristjánsson. Hvorug frekari Þessar sögur semja þær ekki í sam- einingu en hvor er frekari þegar í samvinnuna er komið. „Hvorug," svara þær báðar og má ekki á milli sjá hvor er á undan. „Mér hefur allt- af fundist að mestu skipti að við séum báðar sáttar við það sem við ger- um,“ segir Kristín. „Við vinnum saman af því að okkur finnst það gaman og við skrifum af því að við höfum gaman af því.“ Og Iðunn heldur áfram að segja frá samvinnunni. „Meðan Kristín var úti var lítið um beina samvinnu en við notuðum bréf til að bæta fjar- vistirnar upp og það voru óskaplega miklar bréfaskriftir en þá vorum við ekki farnar að semja neitt sarnan." Þetta var á þeim árum sem Iðunn var duglegust við textagerðina. Það var á Húsavík og þá „var því ekki trúað að ég hefði samið þessa texta," segir Iðunn. „Heldur virtust menn eiga auðveldara með að trúa því að maðurinn minn, Björn Friðfinnsson, hefði samið þetta en ekki þorað að birta þá undir eigin nafni af þvi að hann var bæjarstjóri. Þess vegna áttu textamir að hafa verið eignaðir mér. Þarna kemur fram mjög undarlegt viðhorf til kvenna og raunar töluvert mikið hugmyndaflug." Hvar á að byrja Þarna nálgumst við einnig efni leikritsins því eins og nafn þess bend- ir til þá fjallar það um jafnréttis- baráttu kvenna. „Við skrifum út frá þeim sjónarhóli að jafnréttisbaráttan snúist ekki um að ná sér niðri á vondum körlum,“ segir Iðunn, „held- ur að sjá fyrst hvar við stöndum sjálfar og síðan getum við hafið hina eiginlegu kvennabaráttu." Og Kristín heldur áfram: „Við ræddum þennan punkt mikið áður en við byrjuðum að skrifa. Ég á von á að býsna margar konur kannist við sjálfa sig í leikritinu." - Sömduð þið leikritið eingöngu með flutninng í útvarpi í huga eða er hægt að færa það upp á sviði? „Já, þetta er samið með útvarp í huga en með breytingum gengi það á sviði,“ segir Iðunn. „Það verður að taka sérstakt tillit til þess að verk- Iðunn og Kristín Steinsdætur - við eiaum verkið að öllu leyti saman.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.