Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1986, Page 25
LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1986.
25
Lopadeilan fyrir rétt 10. febrúar:
Stórar
upphæðir
í lögfræði
kostnað
„Ég er enn sannfærður um að ég
eigi eftir að vinna þetta mál og er
ekki farinn að örvænta. Ef ég hins
vegar tapa því þá get ég alltaf hald-
ið áfram að spila á bassann minn,“
sagði Ámi Egilsson bassaleikari í
símtali við DV frá heimili sínu i
Kalifomíu . Dómarinn í deilu Áma
og eiginkonu hans, Dorette, við að-
ila í íslenska ullariðnaðinum hefur
nú frestað réttarhöldum firam til 10.
febrúar næstkomandi.
„Þetta er búið að vera óhemju dýr
málarekstur. Sjálfúr er ég búinn að
eyða sem svarar átta milljónum ís-
lenskra króna í lögfræðinga og
amdstæðingar mínir hafa ekki eytt
minnu. Það mætti segja mér að lög-
fræðikostnaður þeirra væri ekki
undir einni milljón dollara, eða rösk-
ar 40 milljónir íslenskra króna,“
sagði Ámi. „íslensku fyrirtækin
réðu dýmstu lögfræðinga í Los
Angeles í vinnu og þeir taka 250
dollara á tímann(10 þúsund ísl. kr.).
Þetta á eftir að verða enn dýrara,
málið er rétt að byija."
Lopadeilan stendur sem kunnugt
er um kæm Áma Egilssonar og eig-
inkonu hans á sex aðila fyrir hringa-
myndun og meiðyrði. Hluta málsins
hefur nú verið vísað frá og eftir
standa kærur á Hildu hf., Pólarprjón
á Blönduósi og Paul Johnson, ræðis-
mann íslands í Chicago. Þá hefur
Pólarpijón sett fram kröfu vegna 10
milljóna króna skuldar sem fyrir-
tækið telur sig eiga inni hjá The
Icelander, fyrirtæki Áma og Do-
rette. The Icelander er keðja átta
verslana sem þau hjón hafa rekið
víðs vegar um Bandaríkin undan-
farin ár. Hafa verslanimar sérhæft
sig í sölu á íslenskum ullarvörum
en nú er svo komið að þau fá engar
vörur keyptar frá íslandi:
„Við höfum neyðst til að fara að
selja írskar ullarvörur í staðinn og
enn ekki fyrirsjáanlegt hversu mikið
tjón okkar er vegna alls þessa. Til-
gangur íslensku fyrirtækjanna var
að koma okkur á kné en hvort það
er milljón dollara virði verða for-
ráðamenn þeirra að eiga við sjálfa
sig,“ sagði Ámi Egilsson.
-EIR
Við erum
undir Áma
segja ullarmenn um lögfræðikostnaðinn
Talsmenn íslensku ullarfyrirtækj-
anna, sem eiga í málaferlum við Árna
Egilsson í Kalifomíu, segja lögfræði-
kostnað sinn vera miklu lægri en Árni
vill vera láta:
„Við höfum ekki borgað neinum lög-
fræðingi 250 dollara tímakaup. Það
eina sem ég get sagt er að við höfum
haldið lögfræðikostnaðinum niðri og
hann er alla vega verulega lægri en
hjá Áma,“ sagði Sigurður Ágúst Jens-
son hjá Útflutningsráði íslands í
samtali við DV.
Kristinn Jömndsson, framkvæmda-
stjóri Hildu hf„ tók undir orð Sigurðar:
„Ég hef ekki hugmynd um hvað aðrir
hafa borgað lögfræðingum í þessu
máli. Hilda hf. hefur ekki greitt neinar
8 milljónir í lögfræðikostnað."
Á Blönduósi vildi framkvæmdastjóri
Pólarprjóns ekki tjá sig um kostnað
fyrirtækis síns vegna lopadeilunnar í
Kalifomíu. -EIR
Lottó í gang
um næstu helgi
Ný tegund getrauna, lottó, fer í
gang næstu helgi er dregnar verða
út fyrstu tölumar í beinni útsend-
ingu úr sjónvarpssal. Það em
Öryrkjabandalag íslands, íþrótta-
samfiand íslands og Ungmennafélag
íslands sem standa að þessum nýja
getraunaloik og fá af honum tekjur.
Lottó er þannig uppbyggt að fólk
kaupir sér miða með fimm röðum
og á að velja fimm tölur frá 1- 32 úr
hverri röð en 25 krónur em lagðar
undir á röðina. Alls verður hægt að
skila inn seðlum á sextíu stöðum á
landinu til að byija með.
Potturinn í þessum getraunaleik
er áætlaður um 2 milljónir króna í
hverri viku og ef enginn hefúr fimm
rétta í einhverri vikunni færist sá
vinningur yfir í pott næstu viku.
Erlendis em dæmi um í svipuðum
getraunum að potturinn hafi færst
frá einni viku til annarrar og myn-
dað þannig stjarnfræðilegar vinn-
ingsupphæðir. -FRI
Fréttir
Ámi Egilsson þenur bassann og hefur þegar greitt bandariskum lögfræðingum 8 milijónir króna.
LÖQQILTIR ENDORSKOÐENDUR
VIÐSKIPTAFRÆÐINQAR
HAQFRÆÐINQAR
LÖQFRÆÐINGAR u
M REKSTRARVERKFRÆÐINQAR M
REKSTRARTÆKNIFRÆÐINQAR L j
Með lögum nr. 12/1986 var ríkisendursKoðun flutt um setí stjórnskipun
landsins. Frá 1. janúar 1987 mun stofnunin starfa á vegum Alþingis og er frá
þeim tTma óháð ráðuneytum og öðrum handhöfum framkvæmdavaldsins.
Auk hefðbundinnar endurskoðunar á sviði reikningsskila og að reikningar
séu í samræmi við heimildir fjárlaga og annarra laga verður í auknum mæli
lögð áhersla á svonefnda stjórnsýsluendurskoðun, með könnunum á nýtingu
og meðferð ríkisfjár.
Fyrirkomulag þetta krefst breyttra starfshátta og starfsmanna með sér-
þekkingu á ýmsum sviðum opinberrar stjórnsýslu og atvinnumála þjóðarinnar.
Ríkisendurskoðun er á höttunum eftir starfsmönnum sem hafa þekkingu og
getu til að takast á hendur verkefni af þessu tagi.
Hefur þú áhuga á
► að geta bent á hvað úrskeiðis fer T rekstri ríkisins og gera
tillögur um úrbætur?
► að taka þáttT nýjum vinnubrögðum og móta þau?
Þá stendur þér til boða
► að starfa að meiri háttar verkefnum þar sem skyggnst er um
gervallt stjórnkerfi ríkisins.
► að fá útrás fyrir framtakssemi og frumkvæði við lausn
óþrjótandi verkefna.
Ef áhugi er fyrir hendi, sendið þá skriflegar upplýsingar um æviferilsatriði
(nafn, aldur, menntun og fyrri störf) til ríkisendurskoðanda, og veitir hann allar
nánari upplýsingar.
RÍKISEMDORSKOÐOM
Laugavegi 105 — sTmi 22160 — 150 Reykjavík