Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1986, Page 40
40
LAUGARDAGUR 22. NÖVEMBER 1986.
Afmæli
70 ára verður mánudaginn 24. nóv-
ember Sveinn A. Sæmundsson
blikksmíðameistari, Vallargerði 2,
Kópavogi. Hann og kona hans, Jón-
ína R. Þorfinnsdóttir, taka á móti
gestum í sal Sjálfstæðisflokksins,
Hamraborg 1, Kópavogi, á afmælis-
daginn milli kl. 17 og 20.
Sýningar
Kjarvalsstaðir,
Miklatúni
Helgi Gíslason sýnir 13 verk unnin í tré
og járn. Helgi hefur haldið íjórar einka-
sýningar í Reykjavík og tekið þátt í fjölda
samsýninga. I vestursalnum sýnir Sigurð-
ur Örlygsson 15 verk unnin á þessu ári.
Sigurður hefur haldið einkasýningar og
tekið þátt í samsýningum.
I austurforsal sýnir Sjöfn Hafliðadóttir
verk sín. Hún hefur búið erlendis síðustu
37 árin. Sýningarnar eru opnar daglega
kl. 14-22 til 30. nóvember.
Mokkakaffi,
Skólavörðustíg
Pétur Þór sýnir 21 verk, bæði olíu- og
pastelmyndir sem unnar eru á síðustu
mánuðum. Þetta er fyrsta sýning Péturs í
höfuðborginni en hann hefur áður sýnt í
Hafnarborg, menningar- og hstamiðstöð
Hafnaríjarðar og tekið þátt í samsýning-
um í Danmörku þar sem hann stundar
nám. Mokkakaffi er opið mánudaga til
laugardaga frá kl. 9-23.30 og á sunnudög-
um frá kl. 14-23.30.
Norræna húsið
Jóhanna Bogadóttir sýnir málverk og
teikningar í sýningarsölum Norræna
hússins. Sýningin stendur til 30. nóvember
og er opin daglega frá kl. 14 22. í anddyri
hússins verður opnuð sýning á fmnskum
minnispeningum á morgun. A þessari sýn-
ingu eru munir úr tveimur söfnum: Úrval
fmnskra minnispeninga fyrri alda úr safni
Anders Huldéns. sendiherra Kinna á ís-
landi, og úrval finnskra minnispeninga
síðari tíma úr sláttu fyrirtækisins Kultate-
ollisuus/Kinnmedal sem nú er nærri 100
ára. Sýníngin verður opin daglega kl. 9-22
nema sunnudaga kl. 12-19 og stendur hún
til desemberloka.
Nýlistasafnið,
Vatnsstíg
í kvöld kl. 20 verður opnuð samsýning
ellefu ungra listamanna í húsakynnum
Nýlistasafnsins, Vatnsstíg 3b. Þeir sem
taka þátt í sýningunni eru: Ómar Stefáns-
son, Guðrún Tryggvadóttir, ívar Val-
garðsson, Jóhanna Kristín Ingvadóttir,
Jón Axel Bjömsson, Sólveig Aðalsteins-
dóttir, Axel Jóhannesson, Hrafnkell
Sigurðsson, Steingrímur E. Kristmunds-
son, Þór Vigfússon og Daði Guðbjörnsson.
Sýningin stendur til 30. nóvember og er
opin frá kl. 1&-20 virka daga en kl. 14-20
um helgar.
Listasafn ASÍ,
Grensásvegi
Þar stendur yfir málverkasýning Ágúst
Petersens. Á sýningunni eru 64 verk, eink-
um landslags- og mannamyndir, og er
liðlega helmingur þeirra til sölu. Þess má
geta að Listasafn ASÍ hefur gefið út
skyggnuflokk til kynningar á list Ágústs
og fæst hann í safninu. Jón úr Vör les úr
eigin ljóðum með kaffinu á sýningunni
sunnudaginn 23. nóvember kl. 16. Sýning-
in er opin daglega til 7. desember virka
daga kl. 16-20 en um helgar kl. 14-22.
Kaffiveitingar um helgar. Ath.: lokað 24.
og 25. nóvember.
Listasafn Einars Jónssonar
við Njarðargötu
er opið alla daga nema mánudaga frá kl.
13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn
daglega frá kl. 10-17.
Listasafn Háskóla íslands
í Odda, nýja hugvísindahúsinu, er opið
daglega kl. 13.30-17. Þar eru til sýnis 90
verk í eigu safnsins, aðallega eftir yngri
listamenn þjóðarinnar. Aðgangur að safn-
inu er ókeypis.
Listasafn Islands
Þar stendur yfir yfirlitssýning á verkum
Valtýs Péturssonar. Sýningin spannar all-
an listferil Valtýs allt frá því að hann var
við nám í Bandaríkjunum 1944^16 til verka
frá þessu ári: Eru þar alls 127 verk, olíu-
myndir, mósaík og gvassmyndir. I tilefni
sýningarinnar hefur verið gefin út vönduð
sýningarskrá og litprentað plakat. Sýn-
ingin er opin virka daga frá kl. 13.30-18
en kl. 13.30-22 um helgar.
Stofnun Árna Magnússonar
Handritasýning opin á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugardögum frá kl. 14-
16.
Sjóminjasafn íslands,
Vesturgötu 8, Hafnarfírði
Opið þriðjudaga til sunnudaga kl. 14-18.
Sædýrasafnið
Opið alla daga kl. 10-17.
Slunkaríki
ísafírði
Björg Örvar sýnir innþrykkjur eða mónó-
týpur. Sýningin stendur fram í desember.
Hlaðvarpinn
Guðmundur Björgvinsson sýnir verk sín í
Hlaðvarpanum, Vesturgötu 3.
Árbæjarsafn
Opið samkvæmt samkomulagi.
Ásgrímssafn,
Bergstaðastræti 74
Safnið er opið þriðjudaga, fimmtudaga og
sunnudaga kl. 13.30-16.
Ásmundarsafn
við Sigtún
Safnið er opið er á þriðjudögum, fimmtu-
dögum, laugardögum og sunnudögum frá
kl. 14-17.
Ásmundarsalur
við Freyjugötu
Álfhildur Olafsdóttir sýnir málverk í Ás-
mundarsal. Sýningin er opin virka daga
kl. 12-18 en um helgar kl. 14 -18 og lýkur
henni sunnudaginn 23. nóvember.
Gallerí Borg,
Pósthússtræti
Tryggvi Ólafsson myndlistarmaður sýnir
35 akrýlmyndir, flestar unnar á þessu ári.
Myndirnar eru allar til sölu. Jasstríó leik-
ur í galleríinu á laugardag eftir kl. 16 og
Jónas Árnason rithöfundur áritar nýja
bók sína, en kápumynd hennar er eftir
Tryggva. Sýning Tryggva stendur til
þriðjudagsins 25. nóvember. Um helgina
er hún opin kl. 14-18 en frá kl. 10-18 virka
daga.
Gallerí Grjót,
Skólavörðustíg 4A
I dag kl. 18 verður opnuð sýning á nýjum
verkum eftir þá sem að Galleríinu standa,
en það eru þau Jónína Guðnadóttir,
Magnús Tómasson, Ófeigur Bjömsson,
Ragnheiður Jónsdóttir, Steinunn Þórar-
insdóttir, Þorbjörg Höskuldsdóttir og Örn
Þorsteinsson. Sýningin verður opin virka
daga kl. 12 -18 en frá kl. 14-18 laugardaga
og sunnudaga. Gallerí Grjót hefur nú
starfað í 314 ár og hefur eingöngu verk
eftir félagana sem vinna í mjög mismun-
andi efni.
Gallerí íslensk list,
Vesturgötu 17
Þar stendur yfir sýning Septem-hóps-
ins.
Galleri Listver
Steindór Marinó Gunnarsson sýnir verk
sín.
Gallerx Gangskör,
Amtmannsstíg
Egill Eðvarðsson sýnir verk sín í Gallerí
Gangskör. Sýningin er opin virka daga
kl. 12-18 og um helgar kl. 14-18.
Gallerí Langbrók-Textíll
Bókhlöðustíg 2
Opið þriðjudaga til föstudaga kl. 12-18 og
laugardaga kl. 11-14.
Gallerí Hallgerður
Ása Ólafsdóttir sýnir í Gallerí Hallgerði.
Á sýningunni em tvö myndofin verk og
19 collagemyndir. Allt eru þetta myndir
sem á symboliskan hátt segja frá. Þær eru
allar unnar á árinu 1986. Sýningin er opin
daglega kl. 14—18 og stendur til 23. nóv-
ember.
Gallerí, Skipholti 50c
Gunnar Öm sýnir 16 mónótýpur frá þessu
ári. Hann hefur haldið 18 einkasýningar
og tekið þátt í fjölda samsýninga víða um
Evrópu. Sýningin er opin virka daga og
Iaugardaga kl. 14-18.
Tónleikar
Hátíðartónleikar
Karlakórs Reykjavíkur með
Sinfóníuhljómsveit íslands
í Laugardalshöll
Laugardaginn 22. nóvember nk. mun
Karlakór Reykjavíkur efna til hátíðartón-
leika í Laugardalshöll í samvinnu við
Sinfóníuhljómsveit íslands. Tónleikarnir
hefjast kl. 15 og mun Lúðrasveit Reykja-
víkur leika létt lög við komu gesta.
Hvatinn að þessum tónleikum er 60 ára
afmæli kórsins og 200 ára afmæli Reykja-
víkurborgar. Karlakór Reykjavíkur og
Sinfóníuhljómsveit íslands hafa átt mikið
og gott samstarf undanfama áratugi. Árið
1969 voru t.d. haldnir tvennir tónleikar í
Laugardalshöll sem um 6 þúsund manns
sóttu. Þessir aukatónleikar Sinfóníu-
hljómsveitar íslands verða með hátíðar-
sniði, t.d. setja óperukórar mikinn.svip á
söngskrána. Viðar Gunnarsson bassa-
söngvari verður einsöngvari með kórnum.
Stjórnandi verður Páll Pampichler Páls-
son.
Burtfararprófstónleikar
Laugardaginn 22. nóvember mun Þorvald-
ur Bjarni Þorvaldsson halda burtfarar-
prófstónleika frá Tónskóla Sigursveins
D. Kristinssonar. Þorvaldur leikur á gítar
og á efnisskrá hans verða verk eftir J.S.
Bach, Fernando Sor, Heitor Villa-Lobos,
John W. Duarte og Isaac Albeniz. Tónleik-
arnir verða í Áskirkju og hefjast kl. 17.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfír.
Félagsvist
Spilakvöld í Kársnessókn
Spiluð verður félagsvist í safnaðarheimil-
inu Borgum þriðjudaginn 25. þessa
mánaðar kl. 20.30.
Tapad-fundið
Hjól í óskilum á Grandanum
Grátt DBS 10 gíra hjól hefur verið lokað
með gráum númeralás við girðingu á
Flyðrugranda 6 síðustu þrjár vikur. Eig-
andi hjólsins er vinsamlegast beðinn að
íjarlægja það. Upplýsingar í síma 13742.
Fressköttur
týndur úr Hlíðunum
Ungur grábröndóttur fressköttur týndist
í Hlíðunum (Mávahlíð) mánudaginn 17.
nóvember sl. Ef einhverjir geta gefið upp-
lýsingar um hann vinsamlegast hringi í
síma 24595.
Seðlaveski tapaðist
Svart seðlaveski tapaðist á mánudaginn
sl. í Austurstræti. I veskinu eru skilríki
og bankakort. Finnandi vinsamlegast
hringi í síma 12124 eftir kl. 20. Fundarlaun.
Köttur týndur frá Hlunnavogi
Þessi köttur tapaðist frá heimili sínu,
Hlunnavogi 5, 20. október sl. Þetta er
læða, smávaxin, hvít á kvið og bringu og
gul og gráflekkótt á baki og haus. Hún
er mjög gælin og er með gula ól. Fólk er
beðið að kíkja inn í bílskúra sína eða á
aðra staði þar sem hún gæti hafa lokast
inni. Allar upplýsingar eru vel þegnar í
síma 33311 eftir kl. 17.
Sýningu Alfhildar í Ásmund-
arsal að Ijúka
Sýningu Álfhildar Ólafsdóttur, sem staðið
Ferðalög
Ferðafélag íslands
Dagsferð sunnudaginn 23. nóvember:
Kl. 13 Músarnes-Borgarvík Kjalarnes.
Ekið að Brautarholti á Kjalarnesi og
gengið þaðan um Músarnes og Borgarvík.
Létt gönguferð. Verð kr. 350. Brottför frá
Umferðarmiðstöðinni, austanmegin. Far-
miðar við bíl. Frítt fyrir börn í fylgd
fullorðinna. ATH. Kvöldvaka miðviku-
daginn 26. nóvember í Risinu. Helgi
Björnsson jöklafræðingur „svipast um í
fjallaklösum undir jöklum".
Útivistarferðir
Dagsferð sunnudaginn 23. nóv. kl. 13
Elliðavatn-Hjallar-Kaldársel. Létt
ganga með viðkomu m.a. hjá rústunum
við Elliðavatn og Gjáarétt í Búrfellsgjá.
Gangan er að hluta um Heiðmerkurfrið-
land. Verð 300 kr., frítt f. börn m. fullorðn-
um. Brottför frá Umferðarmiðstöðinni,
bensínsölu.
Helgarferð 28.-30. nóv. Aðventuferð í
Þórsmörk. Það verður sankölluð aðventu-
stemmning í Mörkinni. Gist í Útivistar-
skálunum góðu í Básum. Gönguferðir við
allra hæfí. Aðventukvöldvaka. Uppl. og
farm. á skrifst. Grófinni 1, símar 14606 og
23743. Sjáumst.
....V
Ymislegt
Áhugahópur um byggingu
Náttúrufræðihúss
stendur að sýningu á íslenskum fléttum í
anddyri Háskólabíós. Sýningin er opin frá
kl. 13-22 á virkum dögum og frá kl. 16-22
á laugardögum og sunnudögum. Enginn
aðgangseyrir. Þarna gefst fólki kostur á
að kynnast nokkrum tegundum þessa
flokks íslenskra plantna sem fæstir þekkja
utan fjallagrasa og litunarskóga. Sýningin
stendur fram í fyrstu viku desember.
Rannsóknarstofnun
uppeldismála
Þriðjudaginn 25. nóvember flytur dr. G.
Thomas Fox jr. fyrirlestur á vegum Rann-
sóknarstofnunar uppeldismála er nefnist:
Can research be made educational? Fyr-
irlesturinn verður haldinn í Kennara-
skólahúsinu við Laufásveg og hefst kl.
16.30. í fyrirlestri sínum íjallar dr. Fox um
menntunargildi rannsókna. Ræðir hann
um að hvaða marki hefðbundnar rann-
sóknir á skólastarfi séu menntandi og
hvernig megi bæta um betur. Fyrirlestur-
inn verður fluttur á ensku. Öllum heimill
aðgangur.
Hlaðvarpaleikhúsið
Sýnir leikritið Veruleika eftir Súsönnu
Svavarsdóttur í kaffistofu Hlaðvarpans á
sunnudagskvöld kl. 21.
Kvikmyndaklúbbur Hispania
sýnir myndina Talaðu kona í Regnbogan-
um í dag, 22. nóvember, í E-sal (uppi) kl.
15.15 og 17. Sagan er um náttúruunnanda
sem staddur er í fjallahéraði. Þar hittir
hann mállausa stúlku og fer að kenna
henni að tala og h'egða sér. Þetta mælist
ekki vel fyrir hjá bændunum í sveitahérað-
inu. Myndin er með spænsku tali.
Isfugl styrkir handknattleiks-
deild Aftureldingar
Fyrirtækið Isfugl í Mosfellssveit og hand-
knattleiksdeild Aftureldingar hafa gert
með sér samning. ísfugl, sem verið hefur
vaxandi fyrirtæki í Mosfellssveit, hefur
ákveðið að styrkja handknattleiksdeildina
næstu 2 keppnistímabil og leikur meist-
araflokkur karla nú í nýjum búningi,
merktum Isfugli. Mikið starf fer fram í
handknattleiksdeildinni. Þar æfa alls hátt
í 200 einstaklingar handbolta og nær
samningurinn til allra aldurshópa. Vill
stjóm handknattleiksdeildar færa ísfugli
sínar bestu þakkir fyrir góðan hug til
íþróttamála í Mosfellssveit.
hefur yfir í Asmundarsal, lýkur nk. sunnu-
dagskvöld kl. 21. Opið frá kl. 14-21.
Jólakort kvenfélagsins
Hringsins
Jólakort til styrktar barnaspítalasjóði
Hringsins eru komin á markaðinn. Hönn-
uður kortanna er Guðrún Geirsdóttir
félagskona. Þau eru í tveimur litum, blá
og rauð, á bakhlið er merki félagsins. Þau
verða seld á ýmsum stöðum í borginni,
m.a. á Barnaspítala Hringsins, Hagkaupi,
blóma- og bókabúðum og hjá félagskonum.
Taflfélag Reykjavíkur
vill vekja athygli nemenda skólans á sér-
stökum skákæfingum fyrir 14 ára og yngri
(bæði drengi og stúlkur) sem fara fram að
Grensásvegi 46 einu sinni í viku á laug-
ardögum kl. 14-18.
Á þessum skákæfingum er einkum um
að ræða eftirfarandi:
1) Skákkennsla fyrir byrjendur og
skákskýringar.
Skákir eru skýrðar, einkum með tilliti
til byrjana. Skipt er í ílokka eftir getu.
2) Fyrir stúlkur. Stúlkur eiga kost á sér-
leiðsögn.
3) Æfingaskákmót. Teflt er í tveim eða
fleiri flokkum eftir fjölda og getu.
4) Fjöltefii. Þekktir skákmeistarar koma
í heimsókn og tefla fjöltefli, að meðaltali
einu sinni í mánuði.
5) Endataflsæfingar. Nemendum gefst
kostur á að gangast undir sérstök próf í
endatöflum. Fjölrituð verkefni eru afhent
í félagsheimilinu.
Þátttaka í laugardagsæfingum er
ókeypis. Þeir sem gerast félagar í Taflfé-
lagi Reykjavíkur geta tekið þátt í öðrum
skákæfingum og skákmótum á vegum fé-
lagsins fyrir lægra gjald en ófélagsbundn-
ir.
Aðalleiðbeinandi er hinn kunni skák-
meistari Jón A. Pálsson. Aðstoðarmenn
hans eru Davíð Ólafsson og Þröstur Þór-
hallsson.
Aðalleiðbeinandi stúlkna er hin reynda
skákkona Svana Samúelsdóttir.
Jólamerki kvenfélagsins
„Framtíðin á Akureyri“
er komið út. Merkið er gert af myndlistar-
konunni Iðunni Ágústsdóttur og er
prentað í Prentverki Odds Björnssonar,
h/f. Akureyri. Sölustaðir eru: Póststofan
Akureyri, Frímerkjahúsið og Frímerkja-
miðstöðin í Reykjavík. Félagskonur sjá
um sölu á Akureyri. Merkið kostar sjö
krónur og allur ágóði af sölunni rennur í
elliheimilissjóð félagsins.
Ný íslensk skrifstofuhúsgögn
i hæsta gæðaflokki
Nú eru komin á markaðinn hérlendis ný
íslensk skrifstofuhúsgögn sem uppfylla
ítrustu gæðakröfur, sem gerðar eru til
slíkra húsgagna á alþjóðlegum markaði.
Þessi nýju húsgögn, sem hlotið hafa heitið
VIVA, eru eftir Pétur B. Lúthersson hús-
gagnaarkitekt. Þau eru nú almenningi til
sýnis í fyrsta sinn í versluninni Epal, sem
þekkt er fyrir að hafa aðeins úrvals hús-
búnað á boðstólum. Verslunin mun selja
þessi nýju skrifstofuhúsgögn, en framieið-
andi er Smíðastofa Eyjólfs Eðvaldssonar
í Reykjavík.
Foreldrar barna í Steinahlíð
Foreldrar á foreldrafundi í Steinahlíð 11.
nóv. 1986 mótmæla 10% hækkun á dag-
vistargjöldum sem borgarráð hefur nýlega
samþykkt. Við styðjum fóstrur í sinni
launabaráttu og teljum sinnuleysi borgar-
yfirvalda gagnvart kröfum þeirra stefna
starfsemi dagvistarheimilanna í mikinn
voða.
Við borgum gjarnan 10% hærra dagvist-
argjald ef það yrði til þess að hækka laun
starfsfólksins.
Við viljum að börnin okkar fái góða
þjónustu og búi við þroskandi uppeldisleg-
ar aðstæður. En með stefnu borgaryfir-
valda er hætt við að dagvistarheimilin
verði geymsla þar sem fátt fagmenntað
starfsfólk fæst til að vinna.
Við hvetjum aðra foreldra til að láta í
sér heyra.