Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1986, Page 2
54
LÁÚGARDAGIJR 20. DESEMBER 1986.
Góð jólagjöf:
„Sjálfvirki
nuddpúðinn. “
Fæst ódýrastur í Fönix,
Hátúni 6a, simi 24420.
HEIMA
I BILNUM
ÉG DREKK EKKI í DAG
Egdrekk
ekki í dag
eftir Auðun Blöndal
Reynslusaga alkó-
hólista, skáldsga sem
að grunni til byggist
á sönnum atburðum
úr lífi höfundar.
Þetta er mannbæt-
andi saga, holl lesn-
ing þeim, sem
Bakkussækirað, og
spennandi saga af
ástum og ævintýrum.
Skjaldborg hf.
HÓLMGARÐI 34 - REYKJAVÍKSfMI 31599
Bændur —
Verktakar
Hendið ekki gamla Land Rovernum - Við
eigum mikið af ódýrum varahlutum. Bjóðum
á hagstæðu verði: Boddý hluti - sæti —
klæðningar — vélahluti - gírkassahluti - allt í
undirvagn.
Með sérstöku samkomulagi við Heklu hf.
Rvk. mun umboðsaðili Heklu hf. á Norður-
landi Höldur sf. á Akureyri hefja innflutning
pg sölu á Land Rover bifreiðum að nýju á
íslandi. Vinsamlegast hafið samband:
Varahlutaverslun. Sími sölumanns.
96-21365 96-21715
# Tryggvabraut 12. Box 510
OlUUr 5¥• Telex 2337. 600 Akureyri.
Myndin var tekin af annarri reynsluferð jólasveinsins i svifdrekanum.
Loftferðir
jólasveina
Engar sögui- fara af því að jóla-
sveinar séu vandlátir á farartæki.
Hitt er þó víst að þeir eru ekki gjam-
ir á að skipta um ef þeim líka einn
ferðamáti fremur en annar.
Á íslandi hafa þeir lengst af látið
sér nægja að ferðast á tveim jafnfljót-
um. Það hefur þó borið við að þeir
hafa valið sér snjósleða eða önnur
tól af því tagi en ekki líkað vel að
þvi er breiðsíðunefndin hefur eftir
áreiðanlegum heimildum.
í útlöndum, þar sem jólasveinninn
er aðeins einn, ferðast hann alltaf
um í sleða sem dreginn er af hrein-
dýrum - nema þegar hann hefur
hesta í þjónustu sinni. Sleðaferðir
jólasveinsins em og með þeir ósköp-
um að hann svífur um háloftin,
andstætt öllum lögmálum.
í þessum sömu útlöndum gengur
þó orðið illa að fá böm til að trúa á
þessar flugferðir. Því hefur verið
bmgðið á það ráð að kenna jóla-
sveininum að fara með svifdreka.
Hefur það tekist bærilega og mega
böm víða um heim eiga von á að sjá
sveinka geysast um háloftin í hinu
nýja faratæki um þessi jól.
Það hefur Breiðsíðunefndin hins
vegar sannfrétt að jólasveinar vorir
ætli að halda áfram að þramma um
byggðir um þessi jól sem endranær.
Marilyn
Monroe nakin
í Playboy
Opnan í janúarhefti Playboy verð-
ur prýdd áður óbirtri nektarmynd af
Marilyn Monroe. Enn er í minnum
höfð nektarmyndin af henni sem
birtisc í Playboy árið 1953 en mynd-
in, sem nú á að gleðja lesendur
blaðsins, er eldri.
Það var Earl Morgan sem tók
Qölda nektarmynda af Monroe á ár-
unum 1946-1950 og er umrædd mynd
úr því safni. Morgan málaði Monroe
einnig og verður sýnishom af þeim
myndum einnig í Playboy.
Falsaðar
eiginhandar-
áritanir
í Bandaríkjunum hafa komið fram
ásakanir á hendur manni að nafhi
Timothy Phillips fyrir að selja fals-
aðar eiginhandaráritanir með nafni
John F. Kennedy. Phillips vann á
þessu ári fyrir Joseph P. Kennedy
Joseph P. Kennedy hafði falsara i
þjónustu sinni.
vegna öldungadeildarkosninganna í
haust.
Phillips vann á sínum tíma einnig
fyrir John F. Kennedy og því treystu
minjagripasalar manninum og töldu
eiginhandaráritanimar ófalsaðar.
Það kom þó fljótlega í ljós að Phillips
átti óeðlilega mikið af blöðum með
nafni Kennedys og var þá farið að
rannsaka málið.
Það em einkum minjagripasalar
sem hafa farið flatt á þessum við-
skiptum. Gáfu sumir þeirra vel fyrir
eiginhandaráritanir sem síðan
reyndust verðlausar. Enginn þeirra
hefur þó kært Phillips fyrir tiltækið.
Phillips hefur gefið þá skýringu á
tiltæki sínu að hann hafi verið at-
vinnulaus eftir að kosningabarátt-
unni lauk í haust. Honum hafi því
hugkvæmst að auka tekjur sínar með
lítils háttar svindli.
Jerry Lee
Lewis sjúkur
í magnýl
Rokkarinn Jerry Lee Lewis varð
að fara á sjúkrahús í heimabæ sínum,
Nashville í Tennessee, skömmu eftir
að hann kom úr íslandsreisu sinni
nú í haust. Kvartaði hann undan
stöðugum verkjum sem læknar
fundu enga skýringu á.
Eftir nokkurra dága legu var
ákveðið að útskrifa rokkstjömuna
af sjúkrahúsinu og honum ráðlagt
að fara í meðferð vegna verkjapillu-
fíknar. Jerry Lee Lewis er nú vistað-
ur á afvötnunarstöðinni sem kennd
er við Betty Ford í Kalifomíu.
Mariiyn Monroe á þeim árum sem hún sat fyrir á nektarmyndum.