Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1986, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1986, Side 14
70 LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1986. Bílar Nokkur atriði um Ijós Um ljósanotkun gilda ákveðn- ar grundvallarreglur sem allir ættu að hafa í heiðri. í gildi eru reglur af hálfu löggjafans sem kveða á um ljósabúnað og ljósa- tíma. Þær eru góðar svo langt sem þær ná en reynslan hefur sýnt að viturlegt er að nota ljós mun oftar en reglugerðin ákveð- ur. Sumir vilja halda þvi fram að hér á landi ætti að skylda öku- menn til að hafa ljósin kveikt allan sólarhringinn. En það er um að gera að nota ljósin rétt og hafa þau í lagi. Þegar ekið er með há ljós ættu ökumenn að hafa það í huga að mjög margir bílar eru búnir ha- logenljósum sem eru mjög skær og geta blindað ökumann sem kemur á móti þótt töluverður spölur sé í að bílarnir mætist. Hér er það reynslan ein sem getur hjálpað ökumanninum í að velja rétta augnablikið til að lækka ljósin. Ekki má gera það of fljótt því þá myrkvast kannski sá hluti vegarins sem á milli bílanna er en hins vegar má heldur ekki draga það um of því þá getur myndast slysahætta af því að ökumaðurinn, sem á móti kemur, blindast. Önnur grundvallarregla, Sem allir ættu að hafa í huga, er að setja ekki háu ljósin á of nálægt bíl sem ekið er á undan. Slíkt getur líka orsakað blindu hjá ökumanninum sem á undan fer og fipað hann við aksturinn. Mjög hvimleiður siður hefur skotið upp kollinum nú síðustu ár. Það er ótímabær notkun rauðra þokuljósa aftan á bílum. Þessi ljós eru mjög skær og eru fyrst og fremst ætluð til notkunar í þoku eða miklu dimmviðri, en alls ekki við venjulegar aksturs- aðstæður. Vegna þess hve skær þau eru þá geta þau valdið þeim sem á eftir fer óþægindum og draga mjög úr hæfni þeirra sem á eftir koma til að greina bremsu- ljósin. Það ætti að vera sjálfsögð til- litssemi allra ökumanna að hafa öll Ijós bílsins í lagi. Alltof al- gengt er að menn aki um eineygð- ir í marga daga, eða einhver afturljósanna séu í ólagi. Það kostar ekki mikla fyrirhöfn að ganga í kringum bílinn og ganga úr skugga um að ljósin séu í lagi, eða fá einhvern til að segja sér hvort bremsu- og stefnuljós virki eins og ætlast er til. BVttiTO aku\\ósa Þrátt íyrir ýmsa þróun í bílaiðnaðin- um hefur þróun ökuljósanna alls ekki haldist í hendur við aðrar breyt- ingar sem þar hafa orðið - fyrr en nú. Það er fyrst og fremst aukinni þekkingu um ljós og hæfni augans til að nema birtu að þakka að ný tækni er að ryðja sér rúms í bílljósum þessa dagana. Brátt verður þess ekki þörf að hafa röð aukaljósa framan á bílnum til að fá þá ökubirtu sem ósk- að er heldur verður unnt að fá alla þá birtu, sem menn óska, úr aðalljós- unum sjálfum. í sjálfu sér er ekkert vandamál að skapa nóg ljósmagn, en að ná jöfnu ljósi, það er að segja nægu ljósi fyrír framan bílinn ásamt því að ljósið nái nægilega langt fram, er meiri vandi. Það þarf að beina ljósinu þannig fram að það blindi ekki þá sem á móti koma. Ekkert ljós jafnast á við dagsbirt- una vegna þess að þar er jöfn birta á hlutum sem eru nálægt og þeim sem lengra eru í burtu. Augað þarf ekki að stilla sig inn á mismunandi ljós- styrk og því sjáum við jafnlangt frá okkur í dagsljósi og raun ber vitni. Þessar aðstæður vildu allir hafa þeg- ar ökuljósin eru notuð en það er vandinn. í myrkri er illmögulegt að ná fram sömu lýsingu á því sem nálægt er og því sem lengra er í burtu. Hér er það eðlisfræðin sem hjálpar okkur að útskýra málið. Sé fjarlægðin frá ljósgjafanum tvöfölduð þá fellur styrkleiki ljósmagnsins niður í einn fjórða af því sem var fyrir framan Ijósgjafann. Sé fjarlægðin aukin enn aftur um helming þá er ljósmagnið aðeins einn sextándi af upphaflegu ljósi. Hér áður fyrr reyndu menn að mæta þessu með því að framleiða óhemjusterk ljós sem lýstu vel fram á veginn. Gallinn varð hins vegar sá Hella Ellipsoid Headlamp System for BMW SPEGILL / SKERMUR LINSA DREIFIGLER Skýringarmynd af HE-ljósinu frá Hella. Halogenperan sendir frá sér Ijósið sem kastast frá parabólulöguðum speglinum I brennipunkti 1 (F1), þaðan í gegnum skerm sem ákvarðar Ijósflötinn nánar (F2) og loks í gegnum lins- una sem sendir Ijósið fram á veginn í gegnum dreifigler. að næst bílnum varð allt of bjart og ökumaðurinn nær blindaðist. Þetta þýddi að ekki dugði að hafa nóg ljós- magn heldur varð að dreifa ljósinu nægilega jafnt til að allir hefðu af því full not, bæði ökumaðurinn og þeir sem á móti komu. Bylting í gerð ökuljósa Nú virðist sem ný öld sé að ganga í garð hvað varðar gerð ökuljósa. Það eru tveir aðilar sem virðast leiða þessa nýju tækni. Hella í Þýskalandi hefur hannað alveg nýja gerð ljósa, svonefnd HE-ljós, og Lucas í Eng- landi hefur leyst vandann að hluta með „homo focal parabol" ljósum, en þar er spegilflötur ljóssins brotinn upp í tvo fleti með mismunandi rad- íusum sem beina ljósinu jafnar fram. HE-ljósið frá Hella þykir meiri bylting í gerð ökuljósa og litum fyrst nánar á þá lausn. Þeir hjá Hella nota safnlinsu á bak við ljósglerið, skerm sem ákvarðar ljóssviðið frá halogenperunni og ljósspegil sem er parabóla með þrjá mismunandi kast- fleti. Þetta þýðir að ljósið fellur um þrjá brennipunkta. í fyrsta brenni- punktinum er öllu ljósinu frá halog- enperunni safnað saman. í öðrum brennipunktinum er með skermingu ákveðið hvað af ljósmagninu er not- að og þar með fást mjög skörp skil á milli ljóss og skugga. Frá þriðja brennipunktinum er ljósið sent fram á veginn í gegnum sterka safnlinsu. Lögun linsunnar sér um að kasta ljósinu á réttan hátt fram á veginn og jafnframt er hægt að stýra dreif- ingunni. Bjargvættur bílahönnuða Fram að þessu hefur reglan um bílljós verið „því stærri, því betri“. Þetta hefur skapað bílahönnuðum dagsins í dag vandamál því þeir vilja þynna framenda bíla sem mest og þá er alls ekki pláss fyrir þau ökuljós sem við höfum vanist fram til þessa. Því má segja að nýju HE-ljósin séu bjargvættur bílahönnuðanna. Hönn- un ljóssins gerir það að verkum að ljósflötur ljóskersins er miklu minni en gömlu ljósanna og því hægt að fella þau inn í minni flöt en áður. Einnig er hægt að halla Ijósinu um 450 án þess að ljósmagnið minnki. BMW með nýju HE-ljósin Fyrsti bílaframleiðandinn til að hagnýta sé þessi nýju Ijós frá Hella er BMW-bílasmiðjurnar í Þýska- landi. Það er topplínan þeirra, 7-línan, sem verður búin þessum nýju ljósum sem staðalbúnaði. Bílar í 7-Iínunni verða búnir „Ellipsoid Dipped-Beam“ ökuljósum. Þótt þessi ljós séu aðeins 80 millimetrar í þver- mál gefa þau mjög góða ljósdreifingu og ljósmagnið er 1 lux í allt að 140 metra fjarlægð. „Venjulegt" ljós sem er 181 millimeter í þvermál og með parabóluspegli dregur 20 metrum skemmra fram á veginn og sendir frá sér mun mjórri ljósgeisla. HE-ljósin henta sérlega vel sem ökuljós og sömuleiðis sem þokuljós. Því verða bílarnir frá BMW búnir báðum þessum nýju Ijósum frá Hella, en háu ljósin verða áfram af „görnlu" gerðinni. Lucas valdi aðra leið Breska fyrirtækið Lucas valdi allt aðra leið í leit sinni að betri lausn með homo-focal ljósum sínum. Homo-focal þýðir nánast sameigin- legur brennipunktur. Parabóluform- aður spegill ljóssins hefur tvo mismunandi radíusa, en samt með sameiginlegum brennipunkti. Venjuleg ljósker gefa frá sér sama ljósmagn frá öllum fletinum. Þetta þýðir mikið ljósmagn næst bílnum en minna lengra í burtu. Homo-focal ljósið vinnur þannig að innri para- bólan gefur minna ljós næst bílnum á meðan ytri parabólan gefur aðal- ljósgeislann fram á veginn. Þetta verður til þess að ljósmagnið verður mun jafnara og þar með er mætt vanhæfni augans til að stilla sig inn á skilin á milli ljóss og skugga. Enn sem komið er eru nýju homo- foeal ljósin frá Lucas aðallega í aukaljósum, bæði kösturum og þokuljósum, en koma án efa í öku- ljósum líka. Umsjón: Jóhannes Reykdal

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.