Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1986, Page 23
LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1986.
79
Kvikmyndir
Aftur til fortíðar
Horton Foote, einhver virtasti handritshöfundur Bandaríkjanna um
þessar mundir, sækir efhiviöinn til heimabæjarins sem hann yfirgaf
sextán ára. Úr honum hafa orðið til kvikmyndir á borð við Tender
Mercies og The Trip to Bountiful.
Horton Foote heima í stofu.
sér hógvært og hávaðalaust yfir-
bragð enda segir skáldið: „Ödipus
stakk að sönnu úr sér augun en
hann gerði það ekki á leiksviði.“
f Tender Merciessegir frá
drykkfelldum countrysöngvara en
persónuna, sem Robert Duvall
túlkaði svo snilldarlega, byggir
Foote á minningum sínum um
frænda sem var að reyna að gera
það gott í tónlistarheiminum.
Raunar segir Foote að það sé gott
fyrir góða hlustendur að búa í Suð-
urríkjunum því Suðurríkjamenn
hafi öðrum mönnum meira gaman
af að segja sögur. Tímunum saman
geti þeir látið dæluna ganga um
það hvað þessi sagði og hvað hinn
sagði og hvemig veðrið var þá og
í hvaða fötum þeir voru. Og það
er sagt að Foote blandi ekki mjög
geði við kvikmyndagerðarfólk ut-
an vinnutímans þegar unnið er að
gerða kvikmyndar; hann er að
finna á tali við skúringakonu hót-
elsins eða hjá húsverðinum. Á tali
er ef til vill fullmikið sagt því Fo-
ote hlustar og skúringakonan segir
frá.
Sterk fjölsky Idutengsl
Fjölskylda Horton Foote hefur
öll meira og minna tekið þátt í
störfum hans. Kona hans, Lillian,
hefur verið framleiðandi, handrita-
lesari, ráðgjafi og félagi og þrjú af
bömum þeirra fjórum hafa leikið í
kvikmyndum eftir handritum hans.
En Foote er ekki aðeins bundinn
núlifandi fjölskyldu sinni. Það eru
látnir forfeður og frændur sem
sækja stöðugt á huga hans og hann
segir að það sé sama hvort hann er
í London, New York eða Hollywo-
od, alltaf sé Wharton í Texas
honum efst í huga.
Foote er orðinn 69 ára og menn
segja að það sé staðfesta hans og
lítill áhugi á tískusveiflum í bók-
menntum sem hafi orðið til þess
að hann njóti nú vinsælda sem
aldrei fyrr. Og íbúarnir í Wharton,
sem eru 9.000 talsins, eru ánægðir
með þennan son bæjarins þótt
hann sé nú löngu fluttur burt.
Hann á hús og tilbúinn grafreit í
bænum en þekkir svo sem ekki
marga lengur. Það var ef til vill
vegna sterkra tengsla hans við for-
tíðina að einhver sagði þegar
Whartonbúar vildu halda honum
samsæti: „Hvar á að halda það? í
kirkjugarðinum?" -SKJ
Byggt á American Film og fleiri
heimildum.
Horton Foote hafði starfað í 25
ár við leikhús og leikritun þegar
hann hvarf því sem næst af sjónar-
sviðinu árið 1966 og flutti frá New
York til New Hampshire. Nánustu
samstarfsmenn hans meðal leik-
stjóra og framleiðenda voru dánir,
hættir eða höfðu snúið við blaðinu
í leikhúsmálum og framúrstefna og
tilraunaleikhús voru ekki Texas-
búanum Horton Foote að skapi.
Hann íhugaði jafnvel að snúa sér
að forngripasölu en kona hans,
Lillian Foote, hvatti hann til að
skrifa sem fyrr og sá á meðan fyrir
heimilinu með fasteignasölu. Áður
en Foote dró sig í hlé hafði hann
starfað við virta sjónvarpsmynda-
flokka eins og Kraft Playhouse,
Playhose 90 og Philco Television
Playhouse. Hann fékk óskars-
verðlaunin fyrir handrit sitt að
kvikmyndinni To Kill a Mocking-
bird, byggðri á sögu Harper Lee.
Slegið í gegn
En síðan var eins og tómarúm
tekið. Hann var tilnefndur til
óskarsverðlauna í fyrra fyrir The
Trip to Bountiful og kvikmynd-
imar 1918 og On Valentine’s Day
hafa báðar hlotið lofsamleg um-
mæli. Þær eru byggðar á hlutum
af níu leikrita seríu sem Foote
skrifaði á meðan hann var í sjálf-
skipaðri útlegð í New Hampshire.
Yrkisefni úr æsku
Horton Foote skiptir sér meira
af gerð kvikmynda eftir handritum
sínum en flestir handritshöfundar.
Hann tekur því allt annað en ljúf-
mannlega ef kvikmyndir hans eru
kallaðar „litlar“ en sumir láta sér
þetta lýsingarorð um munn fara
þegar þeir fjalla um verk hans enda
hefur tilkostnaðurinn við margar
myndanna verið langt fyrir neðan
meðallag í Hollywood. Tender
Mercies kostaði 4,5 milljónir doll-
ara, The Trip to Bountiful 3
milljónir og þær nýjustu, 1918 og
On Valentine’s Day, 1,7 milljónir
dollara hvor.
Rebecca De Mornay og Geraldine Page leggja upp i ferð i The Trip to
Bountiful.
myndaðist á ferli Footes og það var
ekki fyrr en með handriti að kvik-
myndinni Tomorrow árið 1972 að
til hans spurðist að nýju. Og dóm-
arnir voru mjög góðir andstætt því
sem verið hafði um tvö fyrri kvik-
myndahandrit hans, Baby, the
Rain Must Fall (1964) og Hurry
Sundown (1967). En þó vel gengi
með þessa kvikmynd sneri Foote
sér í ríkara mæli að sjónvarpi og
leikhúsi þar til hann skrifaði hand-
ritið að Tender Mercies (1983). í
henni fer Robert Duvall með aðal-
hlutverk en þeir hafa verið vinir
um áratugaskeið og raunar var það
Foote sem kom Duvall á framfæri
með því að fá honum hlutverk í
To Kill a Mockingbird.
í kjölfar Tender Mercies hafa
fylgt þrjár kvikmyndir eftir hand-
ritum Footes og öllum verið vel
Og myndir Foote eru um fleira
óvenjulegar. Allan sinn feril hefur
hann verið að skrifa um heimabæ
sinn, Wharton í Texas, og æsku
sína þar en hann var ekki nema
sextán ára þegar hann hélt að
heiman, staðráðinn í að gerast leik-
ari. Leiklistarbrautin reyndist
honum ekki greið en öðru máli
gegndi um leikritunina og um
skriftirnar segir hann: „Yrkisefnin
hafa mótast um það leyti sem þú
ert tólf ára. Þau velja þig.“
Góður hlustandi
1 verkum sínum kallar Horton
Foote litla bæinn sinn, Harrison,
Texas. Þar gerast einstæðar gleði-
sögur og sérstakir harmleikir úr
hversdagslífinu. Ofbeldi, framhjá-
hald, dauði og drykkjuskapur eru
viðfangsefni hans en allt hefur á
Foote-hjónin horfa með samstarfsmanni á dætur sínar, Daisy og Hallie, viö töku On Valentine’s Day.