Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1987, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1987, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 2. JANÚAR 1987. 9 DV íkveikja talin orsök hótel- brana sem kostaði 43 mannslrf Grunur leikur á því að óánægður starfsmaður hafi valdið hótelbrunan- um í San Juan á Puerto Rico á gamlárskvöld. Á hótelinu bjuggu um þúsund manns, aðallega Bandaríkja- menn og Kanadamenn, en í brunanum fórust ijörutíu og þrír. Nokkrum mínútum áður en eldsins varð vart gekk sá orðrómur í spilavíti hótelsins að menn skyldu forða sér því að senn mundi draga til tíðinda. Starfslið hafði ákveðið að leggja niður störf í deilu við hótelstjómina. Eldurinn geisaði í nokkrar klukku- stundir og urðu nokkrar sprengingar í byggingunni. Flestir gestimir björg- uðust út. Sumir handlásu sig á samanhnýttum lökum niður á gang- stéttina en einhveijum var bjargað í þyrlu af þaki hótelsins. Stjóm stéttarfélagsins, sem að vinnudeilunni stendur, ber til baka fúllyrðingar um, að einhver starfs- manna kunni að hafa kveikt í hótelinu að ráðnum hug og telur útilokað að nokkur hafi getað fengið sig til slíks verks. Fjórir starfsmenn fómst í eldin- um. Ferðamannavertíðin á Puerto Rico er í hámarki um þessar mundir. Gestir úr hótelinu segjast hafa heyrt orðskvitt um að verkfall væri yfirvof- andi og að það hefði borist hótun um að sprengja mundi sprengd í bygging- unni. Fyrr í vikunni hafði tvívegis komið upp eldur í hótelinu en í hvor- ugt skiptið alvarlegur bmni. Verkfallsmenn ræða nýjar aðgerðir Jámbrautarstarfsmenn í Frakk- landi og stjórn landsins íhuga nú nýjar aðgerðir eftir að vonin um skjótan endi verkfallsins brást. Ætlunin er að sérstök nefhd verk- fallsmanna haldi fund í dag en í gær kusu margir þeirra að halda verkfall- inu áfram en það hefur nú staðið yfir í sextán daga. Á miðvikudaginn tilkynnti sérstak- ur samningsaðili skipaður af stjórn- mni írá þeirri ákvörðun að tekið yrði tillit til aldurs en ekki verðleika í hinu nýja launakerfi en það var ein af að- alkröfum jámbrautarstarfsmanna. Þeir segja hins vegar að ekki hafi verið tekið tillit til kröfu þeirra um launahækkun, fleiri frídaga og greiðslu fyrir vinnutap vegna verk- fallsins. Þess vegna hafi þeir ákveðið að halda verkfallinu áfram. Þessi sérstaka nefnd verkfallsmanna er fyrir utan venjuleg verkalýðsfélög og þykir mörgum verkalýðsleiðtogum harka sún er hún sýnir harla óvenju- leg. I gær tók Francois Mitterrand, for- seti landsins, á móti sendinefnd jámbrautarstarfsmanna. Hingað til Francois Mitterrand, forseti Frakk- lands, tók á móti sendinefnd járn- brautarstarfsmanna í gær en forsætisráðherrann Chirac hefur hingað til neitað að hitta þá að máli. hefur Chirac forsætisráðherra neitað að hitta verkfallsmenn og hefur aðal- ritari gaullista gagnrýnt afstöðu forsetans sem hann segir geta aukið erfiðleikana á að ná samningum. ______________________________________________________________________Útlönd Hundrað þúsund veðurtepptir Meira en hundrað þúsund far- Bandaríkjunum vegna þéttrar þoku farþega voru að koma heim úr jóla- þegar voru veðurtepptir í tvo daga yfir svæðinu. Þurfti að leggja þrjátíu leyfi. Mörg þúsund biðu þess einnig á einum af umferðarmestu flugvöll- og fimm flugvélum á veg, er ætlaður á öðrum flugvöflum að komast til um í heimi. er leigubifreiðum, á meðan þær biðu Atlanta. Fjölda flugferða var frestað á þess að geta hafið sig á loft. Hartsfield flugvelhnum í Atlanta f Mörg þúsund hinna veðurtepptu Creiðslur almennings fyrir læknishjálp og lyf (skv. reglugerð útg. 19. desember 1986) 1. Greiðslur hjá heimilislækni og heilsugæslulækni 110 kr. - Fyrir viðtal á stofu læknis. Innifalin er ritun lyfseðils. 200 kr. - Fyrir vitjun læknis til sjúklings. Ofangreindar greiðslur eru hámarksfjárhæðir og má læknir ekki krefja sjúkling um við- bótargjald nema vegna lyfja eða umbúða sem sjúklingur kynni að þurfa að fara með burt með sér. 2. Greiðslur fyrir sérfræðilæknishjálp, rannsóknir og röntgengreiningu 360 kr. - Fyrir hverja komu til sérfræðings. 140 kr. - Elli- og örorkulífeyrisþegar, fyrstu 12 skiptin hjá sérfræðingi á hverju almanaks- ári, síðan ekkert. (Sjá nánar hér að neðan.) Aldrei má krefja sjúkling um nema eina greiðslu fyrir hverja komu ásamt rannsókn/ röntgengreiningu í framhaldi af henni. Til nánari skýringar er eftirfarandi tafla: Greiðslur almennings fyrir sérfræðilæknishjálp. nokkur dæmi. TAFLA Heimilis- læknir Sérfræð- ingur Rannsókn/ Röntengr. Sérfræð- ingur Aðgerð hjá + Svæfing/deyfing sérfræðingi hjá sérfræðingi Dæmi 1 110 360 Dæmi 2 110 250 Dæmi 3 110 360 360 Dæmi4 110 360 0 Dæmi 5 110 360 0 360 Dæmi 6 110 360 0 360 0 360 Skýringar: Taflan lesist frá vinstri til hægri og sýnir samskipti við a.m.k. tvo lækna. Dæmi 4: Sjúklingur leitar til heimilislæknis og greiðir þar 110 kr. Heimilislæknir vísar síðan sjúklingi til sérfræðings og þar greiðir sjúklingur 360 kr. Þessi sérfræðingur sendir sjúkl- ing í röntgengreiningu og þarf sjúklingur ekki að greiða sérstaklega fyrir hana þar sem hún er í beinu framhaldi af komu til sérfræðings. Ofangreindar greiðslur eru hámarksfjárhæðir og má læknir ekki krefja sjúkling um við- bótargjald nema vegna lyfja eða umbúða sem sjúklingur kynni að þurfa að fara með burt með sér. Allir eiga að fá kvittanir fyrir greiðslum sínum hjá sérfræðingum. Elli- og örorkulífeyrisþegar, sem leggja fram hjá sjúkrasamlagi sínu kvittun fyrir 12 greiðslum á sérfræðilæknishjálp á sama ári, fá skírteini sem veitir þeim rétt á þessari þjónustu ókeypis það sem eftir er ársins. Kröfugangan markar tímamót Nokkrir hinna þúsund stúdenta í Peking, er gengu í kuldanum i gær- kvöldi til þess að krefjast lýðræðis og lausnar félaga sinna, sögðu göngu sína hafa markað tímamót í sögu Kína. Að minnsta kosti hvað varðar lýðræð- islegar umbætur. Kváðu þeir yfirvöld ekki lengur geta gengið'fram hjá kröfum þein-a um umbætur eftir mánaðarlanga ókyrrð í háskólum landsins. Einnig lögðu þeir áherslu á að þeim hefði tekist það sem stúdentum hefði ekki tekist áður, það er að fá yfirvöld til þess að sleppa þeim er teknir hafa verið. Y firvöld létu undan kröfum stúdenta í gærkvöldi og lofuðu að láta lausa að minnsta kosti tuttugu og íjóra stúd- enta sem teknir voru síðdegis í gær. í morgun tilkynnti ríkisútvarpið að öll- um stúdentum, sem teknir voru í gær, hefði verið sleppt. Nokkrir stúdentanna voru að niður- lotum komnir eftir að hafa gengið fimmtán kílómetra í snjó og kulda. Voru sumir þeirra í baðmullarskóm sem engan veginn hæfðu veðráttunni. Lögðust nokkrir til svefns er þeir höfðu náð Torgi hins himneska friðar á meðan aðrir skokkuðu þar sér til hita. Þar biðu þeirra strætisvagnar og létu stúdentar að lokum flytja sig aftur til háskólans eftir tilmæli háskólayfir- valda. Kínverskir Qöhniðlar srierust önd- verðir gegn kröfum stúdenta og full- yrtu að lítill hópur öfgamanna lægi að baki þessum ólöglegu mótmælum. 3. Greiðslur fyrir lyf 200 kr. - Fyrir lyf í lyfjaverðskrá I og innlent sérlyf. 350 kr. - Fyrir lyf í lyfjaverðskrá II. 80 kr. - Elli- og örorkulífeyrisþegar, fyrir lyf í lyfjaverðskrá I og innlent sérlyf. 120 kr. - Elli- og örorkulífeyrisþegar, fyrir lyf í lyfjaverðskrá II. Eitt gjald greiðist fyrir hvern 120 daga lyfjaskammt eða brot úr honum. Gegn framvísun sérstaks lyfjaskírteinis í lyfjabúð fást ákveðin lyf við tilteknum langvar- andi sjúkdómum ókeypis. Læknar gefa vottorð til sjúkrasamlags í þeim tilvikum sem réttur á skírteini kann að vera fyrir hendi. Greiðslur þessar gilda frá og með 1. jan. 1987. aTRYGGINGASTOFNUN _ RÍKISINS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.